Morgunblaðið - 31.08.2004, Side 39
Sýnd kl. 6. ísl tal
SÝND UM HELGAR.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30.
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 6. ísl tal.
Sýnd kl. 6 og 8. Enskt tal.
SV MBL
ÓÖH DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýra-spennumynd!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Jason Bourne er kominn aftur
og leitar hefnda í frábærum
hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og
ofsafengin átakaatriði.
Ein besta ástarsaga allra tíma.
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
YFIR 40000 GESTIR Yfir 22.000 gestir!
Yfir 20.000 gestir!
Þeir hefðu átt að láta hann í friði.
„Myndir á borð við
þessar segja meira en
þúsund orð.“
HJ. MBL
„Drepfyndin“
Ó.Ö.H. DV
S.K., Skonrokk
Ó.H.T Rás2
Nicole Kidman
The Stepford Wives
Sýnd kl. 8 og 10.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 39
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0002-4854
4741-5200-0002-5562
4543-3700-0047-8167
4507-4300-0029-4578
4507-4500-0033-0867
4507-4500-0033-0693
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Outkast og rapparinn Jay-Z fengu flest verðlaun á MyndbandahátíðMTV eða fern hvor. Hátíðin var haldin í Miami á sunnudagskvölden þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin utan New York ogLos Angeles. Mikill glæsibragur var yfir athöfninni en ekkert
hneyksli á borð við koss Madonnu og Britney eða berbrjósta Janet setti
mark sitt á kvöldið. Margir listamannanna notuðu þó tækifærið og hvöttu
fólk til að kjósa í forsetakosningunum í nóvember.
OutKast fékk verðlaun fyrir besta myndband ársins fyrir „Hey Ya!“ en
þetta er í þriðja sinn í röð sem rappsveit vinnur þessi eftirsóttu verðlaun.
Hljómsveitin fékk líka verðlaun fyrir besta hipp hopp-myndbandið, bestu
brellurnar og bestu listrænu stjórnunina. OutKast fékk líka þann heiður að
vera með lokaatriði hátíðarinnar þar sem svetin tók brot úr nokkrum lögum í
röð, „Prototype“, „The Way You Move“, Ghetto Musick og með orðum André
3000 „í milljónasta skipti“ „Hey Ya!“. Hljómsveitarmeðlimir þökkuðu Guði,
foreldrum sínum og aðdáendum.
Jay-Z var líka ein helsta stjarna hátíðarinnar en myndband hans „99
Problems“ hefur vakið mikla athygli en það sýnir hann deyja í skotárás. „Ég
reyndi á þanþolið ... og þetta eru verðlaunin,“ sagði Jay-Z þegar hann tók við
verðlaunum fyrir besta rappmyndbandið. Jay-Z, sem vakti athygli í hvítum
jakkafötum, með stráhatt og svört sólgleraugu, fékk líka verðlaun fyrir bestu
leikstjórn, bestu klippingu og bestu myndatöku.
No Doubt fengu verðlaun fyrir besta poppmyndbandið og besta myndband
hljómsveitar en Usher var verðlaunaður fyrir besta myndband tónlistar-
manns og besta dansmyndbandið. Beyoncé Knowles, kærasta Jay-Z, vann
líka til verðlauna fyrir besta myndband tónlistarkonu fyrir „Naughty Girl“.
Alicia Keys, Black Eyed Peas, Franz Ferdinand, Jet, Yellowcard og Mar-
oon 5 fengu ein verðlaun hver.
Komu á hátíðina á snekkjum
Mikið af þekktu tónlistarfólki kom fram. Usher hóf leikinn og söng
Confessions Part II en svo kom gullklædd Christina Aguilera á svið og söng
með Nelly „Tilt’cha Head Back“ af væntanlegri plötu hans.
Stevie Wonder steig óvænt á svið með Lenny Kravitz og fluttu þeir ásamt
Aliciu Keys lag hennar „If I Ain’t Got You“ af nýjustu plötu hennar og sígilt
lag Wonder, „Higher Ground“.
Að þessu sinni komu stjörnunar ekki á hátíðina með glæsivögnum heldur á
glæsibátum. „Ég vildi fá ekki aðeins kynþokkafyllsta bátinn heldur líka hrað-
skreiðasta,“ sagði Usher er hann steig af silfursnekkju.
P.Diddy var á meðal kynna hátíðarinnar ásamt stjörnum á borð við Jenni-
fer Lopez, Will Smith, Paris Hilton, Shakira, Ludacris, Beastie Boys og
Shaquille O’Neal.
Tónlist | Myndbandaverðlaun MTV veitt í Miami
OutKast með myndband ársins
Beastie Boys eru enn miklir grallarar en þeir
kynntu dagskrá hátíðarinnar.
Snyrtilega klæddur Jay-Z heldur á lofti tvennum
af fernum verðlaunum sem hann hlaut.
Sigurvegarar kvöldsins voru OutKast en hér er André
3000 á sviði að syngja „Hey Ya!“. Forsetakosning-
arnar í nóvember settu mark sitt á kvöldið.
Reuters
Gullklædd Beyoncé lét ljós sitt skína en hún
hreppti ein verðlaun á hátíðinni.
Hið virta danska dagblað Berlingske Tidende fer einkennilega leið í gagn-rýni sinni á nýjasta verk Bjarkar
Guðmundsdóttur, raddaplötuna Medúllu.
Sami maðurinn, Thomas Søie Hansen, skrifar
þar tvo dóma, í öðrum þeirra segir hann plöt-
una snilld en í hinum er hún það alls ekki.
Í inngangsorðunum, sem bera yfirskriftina
„Gal eller genial“ (rugl eða snilld) segir að
Björk sé einn umdeildasti popplistamaður
samtímans vegna þess að hún hafi aldrei
nokkru sinni gert málamiðlun hvað list sína
varðar. Hansen viðurkennir að hann geti ekki
ákveðið sig hvað plötuna varðar, sé fastur á
milli ástar og haturs í garð söngkonunnar og
því hafi hann skrifað tvo dóma sem séu báðir
jafngildir.
Í fyrri dómnum fær platan fimm stjörnur
af sex. Þar segir að Björk gulltryggi stöðu
sína sem tilraunaglaðasti popptónlistarmað-
urinn í dag. Hansen lýkur svo endalausu lofs-
orði á Björk, hljómur hennar sé algerlega ein-
stakur og með hverri hlustun á Medúllu
opinberist eitthvað nýtt, á stundum sé upplif-
unin nánast trúarleg.
Í hinum dómnum kveður við allt annan tón
og þar eru stjörnurnar einungis tvær. Þar er
Medúlla orðin að tilgerðarlegu, yfirkeyrðu
verki frá ofmetnum listamanni og raddirnar
minna á hýenukór. Efni plötunnar stendur
engan veginn undir háleitum hugmyndunum
og Björk er eins og keisarinn í sögu H.C.
Andersen. Fötin engin, utan kannski eitt par
af ullarsokkum.
Þessi gjörningur minnir á tilhögun MORF-
ÍS-ræðukeppnanna, þar sem andstæðingar
draga um hvort þeir tali með eða á móti til-
teknum málefnum. Thomas Søie Hansen
ákvað að draga ekki og fór í bæði störfin. At-
hyglisverð nálgun en engu að síður væri gam-
an að vita hvað honum finnst, hvora afstöð-
una hann tekur sem gagnrýnandi. Því að
þessi aðferð sýnist fullgræskumikil og síst al-
varlegum gagnrýnendum til eftirbreytni.
Tónlist | Tvöfaldur dómur um Medúllu í Berlingske Tidende
Gargandi snilld – eða geðveiki?
Medúlla Bjarkar er klofin í tvennt af Berlingske
Tidende.