Morgunblaðið - 31.08.2004, Page 44

Morgunblaðið - 31.08.2004, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÓVÍÐA er kórastarf með jafnmiklum blóma og á Íslandi. Á þriðja hundrað kóra er starfrækt í landinu og gera má ráð fyrir að þá skipi á milli átta og tíu þúsund manns. Í vetrarstarfi kór- anna nú gætir óvenjumikillar fjölbreytni. Mikil áhersla er á nýsköpun; Dómkórinn efnir til tónsmíðakeppni, en að auki eru margir kórar að frumflytja ný verk, bæði eftir íslensk tónskáld og erlend. Fjölbreytni í efnisvali er mikil; íslenskir kórar syngja auk íslensku tón- listarinnar og stóru verka Bachs, bæði djass og blús, kvikmyndatónlist, verk íslenskra al- þýðutónskálda jafnt sem verk virtustu erlendu tónskálda samtímans. Meðal meðleikara íslenskra kóra í vetur eru Sinfóníuhljómsveit Íslands, kammersveitir, barrokksveitir, djassbönd, saxófónkvartett og jafnólíkar hljómsveitir og Sigur Rós og Mezzo- forte. Útgáfa á kórtónlist hefur færst í vöxt, og fjölmargir kórar leggja í landvinninga, með tónleikaferðum þar sem bæði er keppt og sungið á kóramótum og listahátíðum og al- mennum tónleikum. Morgunblaðið/Jim Smart Kór Langholtskirkju á æfingu. Tíu þúsund manns í kórum  Vantar alltaf / 35 LÍFEYRISSJÓÐUR verslunar- manna (LV) hefur ákveðið að bjóða verðtryggð lán með föst- um 4,3% vöxtum án fjárhæð- artakmarkana. Vextirnir eru 0,1% prósentustigi lægri en vextir á íbúðalánum bankanna og 0,05 prósentustigum lægri en vextir á lánum Íbúðalánasjóðs sem gilda í septembermánuði. Þá lækkar sjóðurinn vexti á eldri lífeyrissjóðslánum um 0,6 prósentustig. „Með þessum breytingum er sjóðurinn að bregðast við þeirri ánægjulegu þróun sem orðin er 0,6 prósentustig og verða því vextir þeirra 4,53% frá og með 1. september. Þeir vextir taka mið af vöxtum 30 ára íbúðabréfa á hverjum tíma með 0,75% álagi. Sjóðfélögum stendur jafnframt áfram til boða hefðbundið lífeyr- issjóðslán án þess að krafist sé fyrsta veðréttar. Þau eru með ofangreindum 4,53% vöxtum, en lánsskilyrði þeirra hafa verið rýmkuð, þannig að hámarksfjár- hæð lánanna hefur verið afnum- in. Þeir sem greitt hafa í fjóra af síðustu sex mánuðum til sjóðsins geta fengið lán hjá honum. issjóði verslunarmanna með 4,3% vöxtum er að lánið sé á fyrsta veðrétti. Það er án fjár- hæðartakmarkana og getur numið allt að 65% af markaðs- verði eignar, sem er hámark þess sem leyfilegt er samkvæmt lögum um lífeyrissjóði, en þó ekki hærra en sem nemur brunabótamati viðkomandi eign- ar. Lánstími getur verið allt að því 30 ár. Íbúðalán bankanna geta numið allt að 80% af mark- aðsverði. Þá hefur sjóðurinn ákveðið lækkun á vöxtum eldri lána um á lánamarkaði með lækkun vaxta samhliða þátttöku bank- anna,“ sagði Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri LV, í samtali við Morg- unblaðið. Ætlum að viðhalda okkar hlutdeild „Sjóðfélagalánin hafa ætíð skipað traustan sess í eignasafni lífeyrissjóðsins, enda afskriftir vegna þeirra hverfandi, og við ætlum okkur að viðhalda okkar hlutdeild á þessum markaði,“ sagði hann ennfremur. Skilyrði fyrir láni frá Lífeyr- LV býður verðtryggð lán með 4,3% föstum vöxtum BANKARNIR styrkja nemendafélög fram- haldsskólanna, sumir með því að veita þeim umbun fyrir hvern nemanda sem bætist við í viðskipti. Landsbanki Íslands er með samninga við nokkur nemendafélög sem m.a. kveða á um að ákveðnar upphæðir renni til nemendafélag- anna fyrir hvern nemanda sem bætist í hóp við- skiptavina bankans. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru upphæðirnar sem bankinn greiðir misjafnar, en eitt nemendafélag menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu kveðst fá 70 þúsund krónur frá Landsbankanum ef 50 nemendur fara í viðskipti við hann. Það þýðir að bankinn greiðir nemendafélaginu 1.400 krónur á hvern nemanda sem hann fær til sín í viðskipti. Tveir bankar bítast um nemendur Mennta- skólans í Reykjavík en þar eru starfrækt tvö nemendafélög, Skólafélag MR og Framtíðin. Það fyrrnefnda er með samning við KB banka og fær greidda ákveðna krónutölu fyrir hvern nemanda sem bætist í hóp viðskiptavina bank- skólanum í Kópavogi, segir bankana hafa sótt það stíft að fá að vera með kynningarbása í skólanum en ekki sé um það að ræða að skólinn fái greiðslu fyrir að leyfa slíkt. „Þeir hafa sótt í þetta á undanförnum árum að fá að koma hérna og við höfum leyft þeim að koma en þó þannig að hver og einn banki fær bara einn dag. Það fær enginn meira en það. Ég held að þetta hafi verið fjórir bankar, KB banki, Landsbankinn, Íslandsbanki og svo Sparisjóður Kópavogs.“ Helgi segir að ákveðið hafi verið að leyfa þeim aðeins að vera með kynningu í einn dag hverjum þar sem þetta trufli daglegan rekstur skólans. Ólafur Sigurjónsson, skólameistari við Fjölbrautaskólann við Ármúla, tekur undir að bankarnir hafi sóst töluvert eftir að fá að kynna starfsemi sína í skólanum. Í haust hafi fulltrúar frá Sparisjóði vélstjóra, sem sé með útibú á næsta horni, Landsbankanum og Íslandsbanka komið í skólann. ans. Markmið bankans er að fá helming nem- enda skólans í viðskipti. Náist það fær skóla- félagið ákveðna upphæð greidda frá bankanum. Náist það ekki fær félagið engu að síður greidda ákveðna krónutölu á hvern nemanda sem fer í viðskipti við KB banka. Hitt félagið, Framtíðin, er með samning við Landsbankann. Sækjast eftir að kynna starfsemina í skólunum Mikil ásókn hefur verið af hálfu banka og sparisjóða í að fá að kynna starfsemi sína fyrir nemendum í framhaldsskólum. Helgi Krist- jánsson, starfandi skólameistari í Mennta- Nemendafélög fá greitt fyrir nýja viðskiptavini Landsbanki og KB banki greiða fyrir hvern nýjan viðskipta- vin úr hópi nemenda  Algengt að/miðopna KARLMAÐUR á þrítugsaldri strauk af Litla- Hrauni í gærkvöldi en tilkynning barst lögreglu um atvikið laust fyrir klukkan 19. Allt tiltækt lið lögreglunnar á Selfossi leitaði strokufangans fram eftir kvöldi auk þess sem lögreglan í Reykjavík var með eftirlit á Suðurlandsvegi við Rauðavatn og við Vesturlandsveg og leitaði í bif- reiðum á leið til höfuðborgarsvæðisins. Þá var lögreglan í Hafnarfirði með eftirlit á Krísuvíkurvegi og lögreglan á Selfossi leitaði í bifreiðum á mótum Gaulverjabæjarvegar og Eyrarbakkavegar og við Óseyrarbrú. Að sögn Erlends S. Baldurssonar, deildar- stjóra hjá Fangelsismálastofnun, var maðurinn á leið í íþróttasal þegar honum tókst að koma sér undan og klifraði yfir girðingu sem umlykur fangelsið. Atvikið uppgötvaðist skömmu síðar og var þá kallað út aukastarfsfólk sem leitaði mannsins við fangelsið án árangurs. Maðurinn, sem er 28 ára, er dæmdur fyrir þjófnaðarbrot og afplánar 22 mánaða fangels- isdóm en hann hefur áður fengið dóm fyrir rán. Seint í gærkvöldi bárust lögreglu upplýsingar um að til mannsins hefði sést í höfuðborginni. Hann er krúnurakaður og klæddur í dökkbláan samfesting með endurskin á herðum og baki. Morgunblaðið/Þorkell Lögreglan í Reykjavík stöðvaði bifreiðar sem leið áttu um Suðurlandsveg við Rauðavatn. Strokufanga af Litla-Hrauni ákaft leitað ELDUR kviknaði í 12 hæða fjölbýli við Aust- urbrún 6 í Reykjavík laust fyrir klukkan 23 í gærkvöld. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eld í húsinu kl. 22.59 og var allt tiltækt lið slökkviliðs sent á staðinn auk lögreglu- og sjúkrabíla. Að sögn Guðmundar Halldórssonar, stöðv- arstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, kviknaði eldur í íbúð á 3. hæð hússins, og logaði í íbúðinni þegar slökkvilið kom á staðinn. Reykkafarar voru sendir inn í húsið og björg- uðu eldri konu úr íbúðinni þar sem eldurinn var laus en svartur reykjarmökkur var þá á stiga- gangi þriðju hæðar svo vart sást út úr augum. Konan var flutt á slysadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Fossvogi með reykeitrun. Slökkviliði tókst fljótlega að slökkva eldinn og þótti ekki ástæða til að rýma nema neðstu hæðir hússins og héldu því fjölmargir íbúar kyrru fyrir á efri hæðum þess. Brunavarna- kerfi hússins fór í gang og hafði fjöldi fólks safnast saman í anddyri á neðstu hæð og utan við húsið en að sögn Guðmundar skapaðist aldrei öngþveiti meðal íbúa sem héldu ró sinni. Í húsinu eru 75 íbúðir. Eldsupptök voru ókunn þegar Morgunblaðið fór í prentun. Morgunblaðið/Þorkell Eldur í 12 hæða fjöl- býlishúsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.