Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Medcare Flaga hf., kt. 581090-2189, hefur gefið út skráningarlýsingu
vegna skráningar í Kauphöll Íslands hf. á nýjum hlutum félagsins.
Hinir nýju hlutir eru samtals að nafnverði 193.454.167 krónur og voru
gefnir út vegna kaupa félagsins á SleepTech LLC. Hlutirnir eru allir greiddir
og var útgáfa þeirra skráð þann 3. júní 2004 hjá Hlutafélagaskrá og þann
4. júní 2004 hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. og á Aðallista Kauphallar
Íslands hf. Heildarhlutafé Medcare Flögu hf. er samtals að nafnverði
670.509.232 krónur og allt skráð á Aðallista Kauphallar Íslands hf.
Umsjónaraðili skráningar í Kauphöll Íslands hf. er Fyrirtækjaráðgjöf
Kaupþings Búnaðarbanka hf. (KB banka), kt. 560882-0419.
Skráningarlýsingu ásamt gögnum sem vitnað er í má nálgast á eftirtöldum
stöðum hjá umsjónaraðila og útgefanda:
SKRÁNINGARLÝSING
Fyrirtækjaráðgjöf KB banka
Borgartúni 19, 105 Reykjavík
sími 444 6000, www.kbbanki.is
Medcare Flaga hf.
Síðumúla 24, 108 Reykjavík
sími 510 2000, www.medcare.com
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hand-
tók í gær 21 árs karlmann grunaðan
um að hafa kveikt í sex bílum við
Lækjargötu og Fögrukinn í Hafnar-
firði í fyrrinótt. Maðurinn hefur áður
komið við sögu lögreglunnar.
Við bílabrunann barst eldur í fjöl-
býlishús við Lækjargötu 34 með
þeim afleiðingum að rúður sprungu í
gluggum á fyrstu þremur hæðum
þess. Þá kviknaði í hurðum og
gluggakörmum á neðstu hæð húss-
ins, þar sem fyrirtæki er til húsa.
Við Fögrukinn var einnig kveikt í
bifreið. Brann ein bifreið þar, en
tókst að stöðva útbreiðslu eldsins áð-
ur en frekari skemmdir urðu.
Engin slys urðu á fólki.
Slökkvistarf við húsið gekk vel að
sögn lögreglu, en töluverðan tíma
tók að slökkva í bifreiðunum, sem
kveikt hafði verið í. Ljóst þykir að
tjón vegna eldsins nemur milljónum
króna.
Ljósmynd/Hafsteinn Ingólfsson
Drjúga stund tók að slökkva eldinn í bílunum og brotnuðu rúður í húsinu við Lækjargötu í gífurlegum hita.
Handtekinn fyrir íkveikju
í sex bílum í Hafnarfirði
„VIÐ hjónin vöknuðum um fjög-
urleytið við hvelli og bresti frá
gluggum hússins sem voru að
springa,“ sagði Einar Sveinsson,
íbúi við Lækjargötu 34. „Þegar
við litum út um gluggann litum
við beint inn í rauðan eldinn frá
brennandi bílunum alveg upp-
undir húsinu. Rétt í því kom
slökkviliðið á vettvang. Þetta
voru óskapleg læti, allar rúð-
urnar í húsinu, tólf að tölu, eru
krosssprungnar, en það bjargaði
heilmiklu að það var aðeins ytra
byrðið sem sprakk.“
Einar sagði stórsjá á húsinu, en
fyrir utan skemmdir á rúðum
væri megnið af þeirri hlið hússins
sem snýr að brunastaðnum sótað
upp í þak, en húsið er fjögurra
hæða.
Eldsúlan hefði verið mjög há og
hefði það tekið slökkviliðið nokk-
urn tíma að ráða niðurlögum
eldsins. Ekki hefðu þó orðið
skemmdir innandyra og engum
orðið meint af.
„Þetta hefur verið gífurlega
mikill logi,“ sagði hann. „Tveir
bílar eru kolbrunnir auk tveggja
annarra sem eru illa farnir. Sá
fimmti er skemmdur en ekki mik-
ið brunninn. Þetta var með ólík-
indum.“
Vöknuðu við hvelli og bresti
Einar Sveinsson við stofugluggann
sem brotnaði vegna hitans.
Morgunblaðið/Þorkell
BÆJARSTJÓRA Seltjarnarness
var í gær afhentur listi með undir-
skriftum 924 íbúa á Seltjarnarnesi
sem mótmæla tillögum að deili-
skipulagi fyrir Hrólfskálamel og
Suðurströnd. Þetta er um 27,5%
íbúa á kjörskrá í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum.
Þór Whitehead, talsmaður áhuga-
hóps um betri byggð á Seltjarnar-
nesi, afhenti bæjarstjóra mótmælin
í bæjarskrifstofum Seltjarnarness í
gær. Þór sagði við það tilefni að
þetta væri í þriðja skiptið á und-
anförnum áratug sem bæjarstjórn
Seltjarnarness kæmi fram með
skipulagstillögur sem ekki hljóti náð
íbúanna.
Hann benti á að í síðustu tvö
skipti hafi hávær mótmæli íbúa
komið því til leiðar að fallið var frá
skipulagsáformunum, og hann eigi
von á því að það sama verði uppi á
teningnum nú.
Í samtali við Morgunblaðið eftir
fundinn sagði Þór að hópurinn væri
með einfaldar kröfur. Hætta eigi við
fyrirhugað deiliskipulag og snúa sér
þess í stað að því að gera aðalskipu-
lag fyrir lengri tíma í stað þess að
einblína á skammtímamarkmið.
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri Seltjarnarnesbæjar, segir að
mótmæli verði efniviður fyrir frek-
ari vinnslu málsins hjá skipulags-
nefnd, alveg eins og aðrar athuga-
semdir sem borist hafa. Hann segir
að mikið hafi verið gert til að vekja
athygli bæjarbúa á málinu og það
endurspeglist í fjölda þeirra sem
mótmæla.
„En við höfum líka gert ýmislegt
til að vekja athygli hinna 70 pró-
sentanna sem ekki skrá sig á
listann. Ég er ekki að fullyrða neitt
um þeirra afstöðu, en það má segja
að stór hluti bæjarbúa hafi ekki séð
ástæðu til að gera athugasemdir,“
segir Jónmundur.
924 íbúar mótmæla skipulagi á Seltjarnarnesi
Eiga von á að fallið verði
frá skipulagsáformum
Morgunblaðið/Kristinn
Þór Whitehead, talsmaður áhugahóps um betri byggð á Seltjarnarnesi, af-
henti Jónmundi Guðmarssyni bæjarstjóra mótmælin í gær.
GRUNNSKÓLAKENNARAR af-
hentu Launanefnd sveitarfélag-
anna í gær formlega tilkynningu
um boðun verkfalls í grunnskólun-
um, sem á að koma til framvæmda
20. september n.k.
Viðræður samningsaðila héldu
áfram í gær hjá ríkissáttasemjara í
Borgartúni. Finnbogi Sigurðsson,
formaður Félags grunnskólakenn-
ara, segir að staðan í viðræðunum
sé óljós, en menn leiti allra leiða til
að leysa deiluna svo komast megi
hjá verkfalli.
„Í þessu felast engin sérstök
tímamót,“ sagði Birgir Björn Sig-
urjónsson, sem er í forsvari fyrir
sveitarfélögin í þessum kjaravið-
ræðum, þegar hann var spurður
um viðbrögð við verkfallsboðun
kennara. „Við höldum bara bara
okkar striki og höldum áfram að
vinna í samræmi við okkar vinnu-
áætlun.“
Birgir Björn sagði erfitt að meta
líkur á verkfalli á þessu stigi. Menn
séu að reyna að leita lausna og von-
andi takist það svo ekki komi til
röskunar á skólastarfi.
Finnbogi sagði að á fundinum í
gær hefðu menn aðallega rætt um
vinnutíma og kennsluskyldu, en sá
hluti deilunnar hefur mikið verið
ræddur á síðustu vikum. Hann
sagði erfitt að meta hvort menn
hefðu færst nær lausn á því máli.
„Menn halda spilunum þétt að
sér,“ sagði Finnbogi, en hann sagði
að viðræðurnar hefðu verið gagn-
legar.
Hann sagðist ekki treysta sér til
að meta líkur á verkfalli. Markmið
kennara væri að ná samningum.
Ekki verkfall
í einkaskólum
Boðað verkfall kennara nær til
allra grunnskóla í landinu nema
nokkurra einkarekinna skóla. At-
kvæðagreiðsla um verkfall hefur
ekki farið fram í þessum skólum
ennþá. Meðal þessara skóla eru
Tjarnarskóli og Landakotsskóli í
Reykjavík.
„Menn halda
spilunum
þétt að sér“
Kennarar boða verkfall 20. september
Í TILLÖGU að ályktun sem lögð
hefur verið fyrir Fjórðungsþing
Vestfjarða er lagt til að við endur-
greiðslu námslána verði tekið tillit
til hlutfalls háskólamenntaðra í
hverjum landsfjórðungi þannig að
þar sem hlutfallið er lakast verði
afslátturinn mestur.
Í drögunum er lýst stuðningi við
þá hugmynd sem kemur fram í
byggðaáætlun frá 2002–2005 um
afslátt af endurgreiðslu námslána.
Tekið verði tillit til þessarar hug-
myndar þegar lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna verða endur-
skoðuð.
„Afslátturinn verði miðaður við
lágmark 5 ára viðveru á viðkom-
andi svæði og miðist við að létta
greiðslubyrðina þann tíma sem bú-
ið er á svæðinu. Áhersla verði lögð
á einfalt og skilvirkt kerfi. Afslátt-
arstuðlar verði settir við hlutfall
búsettra 1. des. 2004, en þeir síðan
endurskoðaðir á þriggja ára
fresti.“
Afsláttur náms-
lána eftir búsetu