Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 21

Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 21
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 21 Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin á ótrúlegu tilboði til Costa del Sol þann 29. september. Tryggðu þér ferð á vinsælasta staðinn í sólinni og njóttu dvalarinnar í einu besta loftslagi í heimi á hreint ótrúlegum kjörum. Þú getur valið um 2 frábæra valkosti, okkar vinsælustu íbúðir, Timor Sol, eða gott 3ja stjörnu hótel með hálfu fæði allan tímann. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 69.990 M.v. 2 í herbergi með hálfu fæði, 3 vikur með sköttum. Munið Mastercard ferðaávísunina Costa del Sol 3 vikur með hálfu fæði frá kr. 69.990 29. sept. - 3 vikur Las Palomas *** Fallegt hótel í hjarta Torremolinos, rétt fyrir ofan ströndina, með góðri þjónustu, garði, sundlaug, veitingastöðum og örstutt að ganga í allar áttir. Frábær kostur á hreint ótrúlegu verði. Hálft fæði innifalið allan tímann. Verð kr. 65.990 M.v. 2 í stúdíó, 3 vikur með sköttum. Timor Sol Vinsælustu íbúðir Heimsferða á Costa del Sol með frábærri aðstöðu. Mikil þjónusta er í hótelinu, veitingastaðir, skemmtun, heilsudagskrá, verslanir og móttaka. BÆJARLIND 14 -16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is OPI‹ LAUGARDAGA 10 -18 OG SUNNUDAGA 13 -18 F A B R IK A N 65% AFSLÁTTUR BOR‹STOFUBOR‹ OG 6 BASTSTÓLAR Á‹UR 139.000 KR. 48.650 KR. 50% AFSLÁTTUR NIMFA BASTHÆGINDASTÓLL Á‹UR 39.000 KR. VER‹ NÚ 19.500 KR. ÚTSÖLULOK Reykjavík | Þorlákur Björnsson, formaður leikskólaráðs Reykjavík- urborgar, segist mundi vilja sjá minni mun á leikskólagjöldum eftir því hvort foreldrar eru í sambúð eða einstæðir, og segir hann starfshóp vinna að því að skoða gjaldskrármál borgarinnar í heild sinni. „Ég held ég myndi vilja sjá ein- hverja leiðréttingu á þessu, en ég á dálítið erfitt með að sjá nákvæm- lega hvað hún verði mikil, mér sýn- ist að við [hjá Reykjavíkurborg], í samanburði við önnur sveitarfélög, megum aðeins taka til í okkar ranni,“ segir Þorlákur. Þorlákur segist þó ekki líta svo á að foreldrar sem eru giftir eða í sambúð séu að niðurgreiða leik- skólana fyrir þá sem eru einstæðir, eins og samtökin Börnin okkar telja. „Það er alveg sama hvernig hlut- unum er snúið, það eru alltaf þeir sem eiga meira undir sér sem greiða fyrir þá sem eiga minna und- ir sér. En svo geta menn alltaf rætt um hvar þau mörk eiga að vera, og um það á að vera stanslaus umræða. Það sem stjórnarmenn í Börnunum okkar eru að segja er að þetta bil sé óeðlilega mikið,“ segir Þorlákur. Gjaldskrármál borgarinnar endurskoðuð Þær athugasemdir eru eðlilegar, að mati Þorláks, og bendir hann á að starfshópur Reykjavíkurborgar, undir formennsku Bjarkar Vil- helmsdóttur, sé nú að fara yfir gjaldskrármál hjá Borginni í heild sinni, þar á meðal gjaldskrár leik- skólanna. Sú vinna hófst í lok sum- ars, og gert er ráð fyrir því að hóp- urinn skili af sér í haust. Stefna Reykjavíkurborgar er að greiða tvo þriðju hluta kostnaðar við leikskólana, en að foreldrar greiði að meðaltali þriðjung. Þorlák- ur segir að reynslan sé þó sú að meðaltalið sem foreldrar greiði sé rúm 30%. Foreldrar sem eru giftir eða í sambúð greiða 35% en ein- stæðir foreldrar greiða 28%. Formaður leikskólaráðs Reykjavíkur Vill minni mun á leikskólagjöldum Reykjavík | Verðlagning á bens- ínstöðvum ræðst af stórum hluta af staðsetningu þeirra segir Sveinn Aðalsteinsson varafulltrúi F-listans í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkurborgar. Hann segir stefnu borgaryfirvalda, að fjölga bensínstöðvum til að auka sam- keppni, hafa mistekist. Samkeppni olíufélaganna snúist aðallega um staðsetningu stöðva, því góð stað- setning tryggi jafna umferð við- skiptavina óháð verðlagi. Á fundi skipulagsnefndar nýverið lét Sveinn bóka eftirfarandi: „Fulltrúi F-listans í skipulags- og byggingarnefnd átelur skipulags- lausa fjölgun bensínstöðva í Reykja- vík, sem þó hefur ekki skilað þeim árangri til neytenda að lækka bens- ínverð í borginni til samræmis við nágrannasveitarfélögin.“ Sveinn nefnir bensínstöðvar Ork- unnar beggja vegna Miklubrautar sem dæmi um verðlagningu eftir staðsetningu stöðva. Þegar hann at- hugaði verð á 95 oktana bensíni fyr- ir fund skipulagsnefndar kostaði lítrinn kr. 107,30 á þessum stöðvum. Hins vegar kosti lítrinn 99,80 krón- ur á Skemmuveginum vegna ná- lægðar og samkeppni við Atlants- olíu. Það sama gildi þegar skoðað sé verð á bensínstöðvum við Ártúns- holt og Gullinbrú, sem búi við góða staðsetningu. Bensínlítrinn á þeim stöðvum sé dýrari en hjá sama olíu- félagi í Mjódd þar sem samkeppnin virðist meiri. Sveinn líkir þessu við baráttu um besta hilluplássið í verslun og fáist það sé hægt að hækka verðið á vör- unni. Almenningur verði að vera meðvitaður um þetta og fjölmiðlar verði að upplýsa fólk reglulega. „Þetta kom fólki mjög á óvart á fundinum og það hafði ekki gert sér grein fyrir þessu,“ sagði Sveinn eft- ir fundinn í skipulags- og bygginga- nefnd. „Það er verið að fjölga stöðv- um í Reykjavík með það að markmiði að reyna að lækka verðið, en verðið er mun hærra í Reykjavík en nágrannasveitarfélögunum.“ Segir staðsetningu ráða miklu um bensínverð Morgunblaðið/Þorkell Fjölgun bensínstöðva hefur ekki leitt til lækkunar á bensíni. Hlemmur | Sjálfsbjörg mótmælir því harðlega að aðgengi hreyfihaml- aðra og annarra fatlaðra að Trygg- ingarstofnun ríkisins (TR) sé ýtt til hliðar við gerð nýs deiliskipulags fyrir Hlemmtorg. Á fyrirhuguðu skipulagi torgsins er gert ráð fyrir því að stæði ætluð fötluðum, sem nú eru fyrir framan þjónustumiðstöð TR við Laugaveg, 114 verði færð og verði fyrir fram- an Laugaveg 116. Í athugasemd Sjálfsbjargar við deiliskipulagið kemur fram að með þessu sé verið að mismuna aðgengi einstaklinga að opinberri þjónustu á grundvelli fötlunar, og við slíkt sætti Sjálfsbjörg sig ekki. Er því farið fram á að haft verði samráð við bæði TR og Sjálfsbjörg til að aðgengi fatlaðra að húsnæði TR verði tryggt, og bætt frá því sem nú er. Mótmæla skipulagi við Hlemm Morgunblaðið/Árni Torfason Vogahverfi | Húsasmiðjan-Blómaval hefur óskað eftir því við skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkurborgar að reisa verslun fyrir starfsemi Blómavals á lóðinni Skútuvogi 14, þ.e. við hliðina á Húsasmiðjunni, og er nú beðið umsagnar hafnarstjórnar um málið. Að sögn Árna Haukssonar, forstjóra Húsasmiðjunn- ar, er stefnan sú að flytja starfsemi Blómavals úr Sig- túni í Skútuvoginn. „Við þurfum einfaldlega meira at- hafnasvæði og meira pláss og ætlum okkur að opna nýja og glæsilega verslun Blómavals á nýjum stað við hlið Húsasmiðjunnar í Skútuvogi,“ segir Árni. „Það er mikill gangur í Blómavali og við teljum styrk í því að vera með starfsemi Blómavals við hlið Húsa- smiðjunnar.“ Spurður um hvenær af flutningi geti orðið segir Árni að menn bíði rólegir eftir umsögn hafnarstjórnar, þar sem lóðin sé á hafnarsvæði, og síðan eftir svari frá borg- inni. Þegar það liggi fyrir fari menn að huga að næstu skrefum. „En við stefnum að því að opna þarna stóra og glæsilega Blómavalsverslun á næsta ári,“ segir Árni. Vilja flytja í Skútuvoginn HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.