Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 23
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Hveragerði | Áhugasamir
foreldrar hafa endurvakið
Sunddeild Hveragerðis.
Sunddeildin var öflug á ár-
um áður en starfið hefur að
mestu legið niðri í mörg ár.
Margir krakkar mættu á
fyrstu æfinguna.
Formaður endurreistu
deildarinnar er Guðrún Haf-
steinsdóttir. Deildin hefur
ráðið til sín þjálfara, Magn-
ús Tryggvason. Iðkendum
verður skipt í tvö aldursstig
og æfingar verða fjórum
sinnum í viku hjá eldri
hópnum.
Sunddeildin endurvakin
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 23
Þorlákshöfn | Vonir standa til þess
að hægt verði að opna minjasafn í
Þorlákshöfn á næsta ári. Undirbún-
ingur þess er eitt af verkefnum
Barböru Helgu Guðnadóttur, bók-
menntafræðings, sem tekið hefur til
starfa sem menningarfulltrúi Sveit-
arfélagsins Ölfuss. Þetta er ný staða
sem felst í því að efla menningar-
starf í sveitarfélaginu jafnframt því
að vera yfirmaður bóka- og minja-
safns sveitarfélagsins.
Barbara hefur undanfarin þrjú ár
verið verkefnastjóri hjá Fornleifa-
stofnun Íslands þar sem hún hefur
haft umsjón með verkefnum á sviði
fræðslu- og kynningarmála. Hún
var um tíma framkvæmdastjóri
Sumartónleika í Skálholtskirkju og
hefur í mörg ár starfað sem leið-
sögumaður.
Þjónustustarf við íbúana
Barbara segir alla hafa tekið
henni mjög vel og hlakkar til að búa
og starfa í sveitarfélagi þar sem hún
finnur fyrir löngun hjá íbúum til að
gera meira og betur. Hún segir
bókasafnið bjart og rúmgott og sér
fram á að hægt verði að auka þar
upplýsinga- og fræðsluþjónustu við
sveitarfélagið.
„Eitt stærsta skrefið í þá átt
verður líklega minjasafn sem vonir
standa til að hægt verði að opna
jafnvel á næsta ári. Hér er mikill
fjöldi muna sem gaman verður að
fara í gegnum, fræðast um og sýna.
Þá er ég ekki í nokkrum vafa um að
hægt sé að koma Þorlákshöfn á
kortið hjá ferðamönnum. Það krefst
þó mikils og vandaðs undirbúnings.
Í vetur verður boðið upp á marg-
víslega menningarviðburði, m.a.
tónlistarhátíð og ljósmyndasýningu.
Annars lít ég á starf menningar-
fulltrúa öðru fremur sem þjónustu-
starf við íbúana. Ég reyni að kom-
ast að því á hverju fólk hefur
mestan áhuga, hef svo ýmsar hug-
myndir sjálf og úr öllu þessu reyni
ég að galdra fram öflugt og fjöl-
breytt menningarlíf,“ segir
Barbara.
Menningarfulltrúi í Þorlákshöfn
Galdrar fram öflugt
menningarlíf
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Menning: Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri býður Barböru Helgu Guðna-
dóttur menningarfulltrúa velkomna til starfa hjá sveitarfélaginu Ölfusi.
BÆJARRÁÐ Hveragerðis hefur
ákveðið að hefja undirbúning gatna-
gerðar til að bæta úr lóðaskorti í
bænum. Gert er ráð fyrir að alls
muni 68 hús standa við þessar götur.
Gert er ráð fyrir að verkið verði
unnið í vetur og að hægt verði að út-
hluta fyrstu lóðunum í haust.
Byggingarfulltrúi og bæjarstjóri
lögðu greinargerð um helstu kosti í
nýframkvæmdum í gatnagerð fyrir
bæjarráð Hveragerðis á dögunum.
Á grundvelli þess var samþykkt að
fela þeim að undirbúa útboð á
gatnagerð á seinni hluta Hraunbæj-
ar, fyrri hluta Valsheiðar og nýrri
götu sem ber heitið Birkimörk. Allar
eru þessar götur í nýju hverfi,
skammt vestan við Hótel Örk, og við
þær munu standa alls 68 hús af ýms-
um gerðum þegar svæðið verður
fullbyggt. Ætlunin er þó að áfanga-
skipta verkinu og láta eftirspurn
ráða hraða þess.
Bæjarráð Hveragerðis hefur
einnig samþykkt að undirbúa útboð
á áframhaldi götunnar Sunnumerk-
ur sem ný verslunarmiðstöð stendur
við. Við það verða til nokkrar versl-
unar- og þjónustulóðir.
Undirbúa gatna-
gerð í nýju hverfi
ÁRBORGARSVÆÐIÐ