Morgunblaðið - 04.09.2004, Side 24

Morgunblaðið - 04.09.2004, Side 24
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Umferðin: Lítil börn geta ekki metið hætturnar í umhverfi sínu og það fer því eftir þroska hvers barns hvenær það er tilbúið að ganga sjálft í skólann. ÞESSA dagana eru mörg lítil börn að stíga sín fyrstu skref í skólastarf- inu og jafnframt í umferðinni á leið- inni skólann sinn. Bent hefur verið á mikilvægi þess að börn á Íslandi hreyfi sig almennt meira og liður þar í er að þau gangi til og frá skóla. Að auki hefur margoft verið bent á hættuna sem stafar af þeirri miklu umferð sem foreldrar, sem eru að aka börnum sínum, orsaka við skólana. Hlutverk foreldra í að skapa börnum sínum heilbrigt og öruggt umhverfi á leið til og frá skóla er því mjög mikið og mikilvægt. Foreldrar þurfa að vega og meta aðstæður hverju sinni og þar skiptir aldur barnsins mjög miklu máli sem og þær umferðargötur sem liggja að skólanum. Yngstu skólanemarnir geta að sjálfsögðu ekki farið einir í skólann, sérstaklega ekki fyrst í stað, og þurfi þeir að fara langa leið og yfir umferðarþungar götur þá þarf alltaf að fylgja þeim í skólann. Þeir sem aftur á móti eiga stutta leið fyrir höndum og þurfa ekki að fara yfir hættulegar götur ættu að geta gengið sjálfir þegar foreldrar eru búnir að kenna þeim að fara örugga gönguleið. Alltaf þarf þó að hafa í huga að lítil börn geta ekki metið hætturnar í umhverfi sínu og það fer því eftir þroska hvers og eins barns hvenær það er tilbúið að ganga sjálft í skólann. Síðast en ekki síst er svo bent á mikilvægi þess að börnin séu með endurskinsmerki á útifatnaði sínum. Þeir sem aftur á móti telja nauð- synlegt að aka barni sínu í skólann verða að vera meðvitaðir um þá hættu sem þeir skapa öðrum börn- um með því að auka á umferð við skólann með akstri sínum. Rauði þráðurinn þar hlýtur að vera að aka ekki hratt og að sýna sérstaka varúð. Svo þarf m.a. að vera vel á verði fyrir börnum sem allt í einu skjótast yfir götu – jafnvel beint fyrir framan bíl- inn, að stöðva bílinn, á meðan barninu er hleypt út, þar sem ekki stafar hætta af honum fyrir önnur börn eða umferð. Talsvert hefur á þetta skort og agaleysi og tillitsleysi ökumanna við skóla er stundum ótrúlegt. En með góðum vilja er allt hægt að bæta og nokkrir skólar eru til fyrirmyndar hvað varðar aðstöðu til að stöðva ökutæki við skólann. Fram eftir hausti og svo aftur þeg- ar vorar kjósa margir stálpaðir nem- endur að koma á hjóli í skólann og þar gildir það sama og um þá gang- andi: það þarf í upphafi að hjálpa þeim að finna öruggustu leiðina í skólann, að allur búnaður hjólsins sé samkvæmt reglum og virki, sjá til þess að nemendurnir kunni umferð- arreglurnar og virði þær – og síðast en ekki síst þá verða allir hjólreiða- menn að vera með hjálm. Að lokum er bent á margs konar fræðsluefni um börn og slysavarnir á heimasíðunni: www.lydheilsustod.is  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð Munið að fylgja litlu börnunum í skólann Herdís Storgaard, verkefnisstjóri Árvekni, Lýðheilsustöð DAGLEGT LÍF 24 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ferðina. „Aftur á móti var ég með lærling, Guðrúnu Ansnes, með mér í framleiðslu skálanna í vor. Núna er ég því með aðstoðarkonu í skálagerðinni.“ En hvað þola svona skálar? „Þú setur náttúrulega ekki hreðkuskálarnar undir krana. Best er að halda þeim hreinum með rökum klút,“ segir Valdís og tekur fram að á sama hátt og gott sé að bera feiti á skó sé gott að fer ég í matvöruverslanir til að kaupa hreðkurnar. Eftir að hafa flutt hráefnið hingað heim sýð ég grænmetið í nokkrum mismun- andi litum, forma skálarnar og svo þarf náttúrulega að koma þeim saman. Heildarferlið við gerð nokkurra skála með þessum hætti tekur um þrjá daga,“ segir hún og svarar því til að hún viti ekki til að aðrir íslenskir mynd- listarmenn hafi tileinkað sér að- „ÉG ER afskaplega ánægð með að Clinton skyldi velja hreðkuskál- arnar mínar. Pappírinn hefur aldrei náð sama sessi og postulín og þvíumlíkt þrátt fyrir að geta verið hágæðaefni,“ segir Valdís Harrysdóttir, myndlistarkona og meðeigandi í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu 4. Athygli vakti þegar Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, festi kaup á fimm svokölluðum hreðkuskálum eftir Valdísi í heimsókn sinni í versl- unina í liðinni viku. Valdís útskrifaðist úr Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1994. „Ég kynntist aðferðinni við að búa til pappír úr gulrótum á pappírsnámskeiði hjá dönsku myndlistarkonunni Anne Vilsbøl í myndlistarskólanum árið 1992. Eftir námskeiðið hélt ég áfram að þróa aðferðina og prófa mig áfram með ýmsar tegundir af trefjaríku grænmeti,“ segir Val- dís og tekur fram að núorðið noti hún mest hreðkur. „Þess vegna kalla ég skálarnar venjulega hreðkuskálar.“ Þriggja daga ferli Valdís er spurð að því hvort flókið ferli sé að baki framleiðsl- unni. „Já og nei,“ segir Valdís. „Ég þarf auðvitað fyrst að kaupa heilmikið af grænmeti. Yfirleitt bera matarolíu á skálarnar til að auka endingu þeirra. „Varasamt er að setja hrásalat eða annað fljótandi fæði í skálarnar. Hins vegar hentar mjög vel að geyma í þeim ávexti, hnetur, kex og því- umlíkt.“ Á leið á bandarískan markað „Já, hann fékk upplýsingar um það,“ svarar Valdís því hvort hún haldi að Clinton hafi vitað hvers konar skálar hann var að kaupa. „Honum hefur litist svona vel á aðferðina og skálarnar. Vænt- anlega er hann jafnmikill fag- urkeri og hann er gáfumaður. Ég veit að hann keypti fimm skálar í gulum, bleikum og rauðum tón- um. Einn af lífvörðum hans keypti því til viðbótar eina stóra skál. Ég veit ekki hvort Clinton hefur ætl- að að eiga skálarnar sjálfur eða gefa einhverjum. Hann staldraði ekki lengi við í búðinni áður en hann hvarf á braut með skál- arnar.“ Valdís er spurð hvort hún telji koma til greina að markaðssetja skálarnar í Bandaríkjunum í kjöl- far viðskiptanna við Clinton. „Satt að segja var ég farin að huga að markaðssetningu á skálunum í Bandaríkjunum áður en Clinton festi kaup á sínum skálum. En auðvitað er ekki verra að vita að Bandaríkjamaður eins og Clinton hefur smekk fyrir skálunum. Verst að ná ekki mynd af honum með þær,“ segir Valdís í léttum tón og fram kemur að jafnan sé ágætt úrval af skálunum í Kirsu- berinu. Hreðkuskálar svipaðar þeim sem Clinton festi kaup á eru í meðalstærð og kosta hver um sig á bilinu 3.500 til 4.500 kr. í Kirsuberinu. Clinton féll fyrir hreðkuskálum  HÖNNUN Morgunblaðið/Þorkell Valdís: Prófar sig áfram með ýmsar tegundir af trefjaríku grænmeti. ago@mbl.is Ferlið: Valdís kaupir litskrúðugt grænmeti, sýður það, formar svo skálar og setur saman. GÓÐ heilsa er hverjum manni dýrmæt og margt er hægt að gera til að halda henni allt sitt líf. Við þurfum m.a. að huga að lífs- venjum okkar, s.s. mataræði, hreyfingu, streitu, reykingum og áfengisneyslu, sem og að forðast það í umhverfinu sem ógnað get- ur heilsunni. Flestir vita hvað þarf að gera til að halda góðri heilsu en nauðsynlegt er að áreiðanlegar upplýsingar um heilsu- tengd efni séu aðgengilegar. Landlækn- isembættið og Lýðheilsustöð hafa því tekið höndum saman um að vera til skiptis með vikulegan pistil á síðum Morgunblaðsins um málefni tengd heilsunni undir yfirskriftinni „Hollráð um heilsuna“. Þessir fræðslupistl- ar eru rökrétt framhald þess samstarfs sem Landlæknisembættið og Morgunblaðið hafa haft með sér síðastliðin fjögur ár. Báðar þessar stofnanir starfa með það að markmiði að efla og viðhalda heilsu lands- manna, hvor á sinn hátt. Starfsmenn stofn- ananna munu sjá um pistlana en einnig kalla til sérfræðinga eftir þörfum. Lesendur geta þannig treyst því að það sem þar er sagt byggist á nýjustu og áreiðanlegustu þekkingu sem völ er á hverju sinni. Jafn- framt verður lögð áhersla á að gefa les- endum góð og hagnýt ráð. Pistlarnir verða einnig birtir á vefsetrum stofnananna.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð Vikulegir pistlar um heilsu TENGLAR ........................................................... www.landlaeknir.is www.lydheilsustod.is Anna Elísabet Ólafsdóttir og Sigurður Guðmundsson Dalvegi 4 • Sími 564 5700 • badstofan.isá öllum vörum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.