Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 25
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 25
TÍSKUVERSLUNIN ER, við
hliðina á Mokka við Skólavörðu-
stíg, er ein af litlum sérverslunum
sem setja svip sinn á götuna. „Ég
er nýkomin með vörur, jakka, bux-
ur, blússur, skó og pils, frá þýska
hönnuðinum Rund Holz, sem er af-
ar sérstakur og margir kannast við
en svo er ég með ítalskar peysur
frá Luana og föt frá þýska fyr-
irtækin NUU,“ segir Álaug Harð-
ardóttir verslunareigandi. „Ég var
nýbúin að taka fram þessar vörur
fyrir menningarnóttina og hugsaði
með mér að það væri brjálæði að
vera með svona sérstakan fatnað.
En svo birtist Laurie Andersen,
kærasta Lou Reed, og keypti heil-
mikið fyrir næstu tónleikaferð að
því er mér var sagt. Það stappaði í
mig stálinu.“
Áslaug rak heildverlsun með
hársnyrtivörur í ein 16 ár en tísku-
verslun var alltaf draumurinn og
því sló hún til. „Það var yngri dótt-
ir mín Sunneva, sem er 12 ára,
sem kom með þetta nafn, ER, sem
mætti útleggja sem „er á meðan
er“,“ segir Áslaug. „En svo var það
eldri dóttir mín Hrefna, sem hann-
aði fyrir mig merki verslunar-
innar.“
Vörurnar eru flestallar til í
stærðum XS upp í XL og frá 1-3
eða st. 38-44 en þar sem um hann-
aðan fatnað er að ræða kemur lítið
af hverri flík.
Morgunblaðið/Eggert
Áslaug Harðardóttir verslunareigandi: Með peysu frá fyrirtækinu Luana.
TÍSKA | Laurie Andersen, kærasta Lou
Reed, fataði sig upp
Þýskur hönnuður
við Skólavörðustíg
Stuttur jakki: Frá þýska hönn-
uðinum Rund Holz.
Vetrarstarfið
er hafið!
Skautahöllin í Laugardal
www.skautaholl.is
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
55
80
08
/2
00
4
E-kortshafar fá 2,5% endurgreiðslu
af því sem keypt er í Debenhams.
Skartaðu
þínu fegursta
P I L G R I M
Nýtt og freistandi
í Debenhams
Skartgripir frá Pilgrim njóta fádæma vinsælda víða um heim.
Þessar frábæru vörur fást nú hjá Debenhams og auka enn á
ótrúlega fjölbreytt vöruúrval fyrir konur á öllum aldri.
ÞEGAR sjampó eða sturtusápa er
auglýst er oft dregið fram að það
innihaldi ávexti eða efni úr ávöxt-
um. Sjampóið á því að vera ríkt af
vítamínum fyrir hárið en raunin
er sú að prótein og vítamín í
sjampói gera ekkert gagn fyrir
hárið því það er dautt. Rótin er
eini lifandi hluti hársins og fær
aðeins prótein og vítamín innan
frá, efni úr sjampói ná ekki til
hennar. Þetta er meðal þess sem
fram kemur í grein í Dagens
Nyheter. Það er einnig afar mis-
jafnt hversu mikið af ávöxtum eða
efnum úr ávöxtum sjampó eða
sturtusápa inniheldur. Stundum
er það afar lítið og oft jafnvel
ekki neitt nema ávaxtailmefni.
Lyfjafræðingur sem rætt er við er
efins um markaðssetningu á
„ávaxtasjampói“ og bendir á að í
auglýsingunum sé lögð áhersla á
virk efni í sjampóinu. Þess beri að
geta að þau geti einnig verið of-
næmisvaldandi.
Ávextir í sjampói
gera ekki gagn
NEYTENDUR