Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 26

Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 26
DAGLEGT LÍF 26 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hún var bara tuttugu ogeins þegar hún kom ífyrsta sinn til Íslandsárið 1955. Þá var hún ung og kærulaus eins og hún orðar það sjálf. Hún vann í eitt ár í Reykjavík og tók ástfóstri við landið og vini sína hér í norðri. Og alltaf var hún á leiðinni aftur í heimsókn en kom ekki fyrr en núna, hálfri öld síðar. „Þetta kom til af því að ég kynntist íslenskum strák sem var með mér í menntaskóla á Bret- landi og hann var með ótrúlega fal- legar myndir í fórum sínum frá Ís- landi og sagði okkur frá landinu. Ég gat ekki annað en heillast af þessu landi þarna langt í norðri þar sem loftið var hreint og vet- urinn kaldur. Mig dauðlangaði að fara þangað og greip því gæsina þegar ég sá litla auglýsingu í blaði þar sem auglýst var eftir stúlkum til að skrifa ensk verslunarbréf í heildsölufyrirtæki í Reykjavík. Faðir minn var afskaplega strang- ur og ég er eiginlega enn undrandi á því að hann skyldi leyfa mér að fara. Hann sagði mér að engin dagsbirta væri á Íslandi yfir vet- urinn, en ég sagði að mér væri al- veg sama. Ég var ævintýragjörn og vildi fara. Móðir mín kvaddi mig með tárin í augunum því hún hélt að á Íslandi væri allt svo frumstætt að ég myndi tæpast lifa þetta af.“ Þetta er bara jarðskjálfti Faðir Margaretar fylgdi henni til Íslands til að fullvissa sig um að allt væri eins og það ætti að vera. „Og hann þurfti ekki að hafa nein- ar áhyggjur af mér því ég fékk inni hjá yndislegu fólki á Kvisthag- anum vestur í bæ, leikkonunni Sig- ríði Hagalín og Ólafi þáverandi manni hennar. Þau voru ein- staklega góð við mig og mér er svo minnisstætt hversu blíðlega hún Sigga vakti mig alltaf á morgnana. Hún strauk mér um vangann og talaði til mín í lágum hljóðum. Hún var svo vitur hún Sigga.“ Margaret vann í Hafnarstrætinu hjá heildsölu Ólafs Gíslasonar og líkaði vel. „Einu sinni þegar ég var að vélrita í vinnunni þá kom smá- vægilegur jarðskjálfti og mér varð nokkuð um, en Íslendingarnir létu eins og ekkert væri og sögðu að þetta væri „bara jarðskjálfti“. Í frítíma sínum hitti hún gjarnan nokkrar breskar og skoskar vin- konur sínar sem komu í sömu er- indum og hún til Íslands. „Við skemmtum okkur konunglega í Reykjavík og eyddum ekki tíma okkar í að ferðast um landið, við höfðum svo mikið að gera í sam- kvæmislífinu. Hugur okkar var að mestu bundinn við föt, stráka og varaliti.“ En hún var duglegri í þetta sinn og fór að skoða Gullfoss, Geysi og Þingvöll eins og sönnum ferða- manni sæmir og snæddi humar á veitingahúsinu Við fjöruborðið á Stokkseyri. Í þau fimmtíu ár sem liðin eru síðan Margaret vann á Íslandi, segist hún hafa haldið miklu vinfengi við ís- lensku fjölskylduna sem hún dvaldi hjá og þau komu nokkrum sinnum í heimsókn til henn- ar á Englandi. „Ég er afskaplega stolt af Íslandi og hef staðið með Íslend- ingum í einu og öllu frá því að ég sneri aftur heim árið 1956. Ég hef haldið með Íslendingun bæði í fisk- veiðideilum og fót- bolta og mun gera það áfram.“ Margaret segist ekki hafa verið dugleg við að læra íslenskuna. „Ég nennti held ég bara ekki að leggja það á mig og Sigga talaði svo góða ensku við mig. En ég vildi óska að ég hefði notað tækifærið á meðan ég var hér, til að læra tungumálið. En einn góðan veð- urdag ætla ég að læra íslensku, kannski þegar ég verð svo gömul að ég hætti að komast ferða minna.“ Kumpánlegur Clinton í Reykjavík Margaret segir dálítið sérstakt að koma aftur til Íslands eftir öll þessi ár. „Reykjavík hefur stækk- að svo ótrúlega mikið. Húsin og trén eru orðin svo mörg. Þegar ég bjó hér þá gekk ég meira og minna um opin svæði til og frá vinnu minni vestan úr bæ. En mér finnst borgin engu að síður falleg þó að hún hafi þanist svona út.“ Þegar Margaret var á göngu sinni um Reykjavík með Ted manni sínum í Íslandsheimsókn- inni, þá vildi svo til að Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna var einmitt á sama tíma að ganga um stræti borgarinnar. „Við Ted sát- um utan við veitingastað og vorum að borða og Ted mætti augum Clintons fyrir tilviljun þegar hann gekk framhjá og hann var svo al- mennilegur að heilsa, rétt eins og þeir væri gamlir vinir. Clinton var einstaklega alþýðlegur og þetta var óvænt ánægja en svolítið fynd- ið því Ted hefur aldrei verið hrif- inn af Ameríkönum.“ Margaret hefur búið mestan part ævi sinnar á Bretlandi en hún fór ævinlega heim til Skotlands í fríum sínum og hélt góðu sam- bandi við föðurlandið. Fyrir þrem- ur árum flutti hún á skosku eyjuna Isle of Arran og þar unir hún hag sínum vel. Föt, strákar og varalitir Hin skoska Margaret Godfrey kom í nýju lopa- peysunni sinni til fundar við Kristínu Heiðu Krist- insdóttur og rifjaði upp árið góða sem hún átti á Ís- landi fyrir hálfri öld. Morgunblaðið/Þorkell Hjónin: Margaret í lopapeysunni góðu og Ted, eiginmaður hennar. Reykjavík að baki. khk@mbl.is Margaret: Skömmu eftir að hún kom heim til Bret- lands eftir Íslandsdvölina. Kjólinn saumaði Kristín, móðir Sigríðar Hagalín.  HEIMSÓKN HEFNDIN er í raun og veru sæt, að mati svissneska vísinda- mannsins Dominique de Quervain. Heilastöðin sem stjórnar ánægju er greinilega örvuð þegar maður hefnir sín á erkióvini. Á vefnum forskn- ing.no er greint frá niður- stöðum rannsóknar Quervain og félaga sem birtar eru í tíma- ritinu Science. Rannsóknin fólst í að nokkrir karlar voru látnir spila pen- ingaspil og höfðu möguleika á að refsa þeim meðspilurum sem settu eiginhagsmuni framar en hagsmuni liðsins. Meirihlutinn nýtti sér þennan möguleika, þrátt fyrir að það kostaði þá sjálfa peninga. Hefnd- arþorstinn var sterkari en löngunin í peninga, að mati vís- indamannanna. Quervain segir að niðurstöð- urnar styrki tilgátuna um að fólk fái ánægju út úr því að refsa fólki sem brýtur gegn gildandi viðmiðum. Vís- indamennirnir vita ekki um muninn á hefndarþorsta hjá kynjunum eða hjá fólki úr mis- munandi stéttum.  RANNSÓKN Hefndin er sæt Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is Blómavasar • Karöflur • GjafirGóð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið: mán. - föstud. 11-18 laugard. 11-15 15% afsláttur af öllum sérpöntuðum húsgögnum frá Cassina. Síðasti dagur í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.