Morgunblaðið - 04.09.2004, Side 34
KIRKJUSTARF
34 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vetrarstarf
Laugarneskirkju
NÚ TAKA öll hjól að snúast í Laug-
arneskirkju. Allt barnastarfið er
komið á skrið, 12 spora starfið Vin-
ir í bata verður kynnt á mánudags-
kvöldið 6.9. kl. 20:00 og er fólk ein-
dregið hvatt til að mæta og kynna
sér það merka starf.
Fræðslukvöldin hefjast þriðju-
dagskvöldið 7. 9. kl. 19:45, þar sem
Bjarni Karlsson sóknarprestur
fjallar um kristinn lífsstíl. Gengið
er inn um dyr á austurgafli kirkj-
unnar. Í framhaldi, kl. 20:30 sömu
kvöld, er lofgjörðarstundin
„Þriðjudagur með Þorvaldi“, fyr-
irbænir og kaffispjall í safn-
aðarheimili.
Mömmumorgnar eru alla mið-
vikudaga kl. 10:00 og gönguhóp-
urinn Sólarmegin leggur upp frá
kirkjudyrum þá sömu morgna kl.
10:30 og er nýtt fólk hvatt til þátt-
töku í þeim frábæra félagsskap.
Kyrrðarstundir eru svo öll fimmtu-
dagshádegi og gott borðsamfélag
að þeim loknum í safnaðarheim-
ilinu.
Nú er fólk sem óðast að skrá sig í
skemmtiferð eldri borgara til Vest-
mannaeyja, skráning og upplýs-
ingar þar að lútandi eru á skrif-
stofu í síma 588 9422.
Kvenfélagið heldur sinn fyrsta
fund mánudaginn 4. október og
fermingarstarfið hefst sunnudag-
inn 19. 9. við messu kl. 11:00, og
verður það, ásamt öðru unglinga-
starfi auglýst með bréfum til allra
unglinga í sókninni.
Sóknarprestur.
KK og Ellen
í Léttmessu í
Árbæjarkirkju
Í FYRSTU Léttmessu vetrarins
sunnudagskvöldið 5. september kl.
20:00 er það gítarsnillingurinn með
mjúku röddina Kristján Krist-
jánsson (KK), sem leiðir sönginn
ásamt systur sinni Ellen. Flutt
verða lög eftir KK er hafa trúar-
lega skírskotun í bland við gamla
íslenska sálma.
Sr.Þór Hauksson þjónar fyrir alt-
ari og flytur hugvekju. Eftir messu
verður boðið uppá kaffi og
skemmtilegt samfélag í safn-
aðarheimilinu. Allir hjartanlega
velkomnir.
Árbæjarkirkja.
Barnastarf að hefjast í
Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGINN 5.september
hefst barnastarf á ný í Hafnarfjarð-
arkirkju eftir sumarfrí. Starfið fer
fram eins og áður bæði í safn-
aðarheimilinu og Hvaleyrarskóla.
Einu sinni í mánuði verður síðan
haldin fjölskylduguðsþjónusta þar
sem báðir sunnudagaskólarnir
sameinast. Við upphaf starfsins að
þessu sini fá börnin afhentar bæði
safnmöpur og annað sem heyrir til.
Leiðtogar eru þeir sömu og síðasta
vetur. Báðir sunnudagaskólarnir
byrja kl.11.
Gæludýramessa í
Borgarholtsskóla
SUNNUDAGINN 5. september nk.
kl. 11:00 hefst sunnudagaskólinn að
loknu sumarleyfi í Borgarholts-
skóla. Messa dagsins verður fyrir
alla fjölskylduna. Krakkakór Graf-
arvogskirkju undir stjórn Oddnýjar
J. Þorsteinsdóttur mun syngja.
Sunnudagaskólaleiðtogar verða
kynntir. Undirleikari er Guðlaugur
Viktorsson.
Gæludýrabúðin Dýraland mun
verða með ýmis gæludýr til sýnis.
Kókómjólkurkötturinn Klói kemur
í heimsókn og færandi hendi.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason mun
þjóna við athöfnina.
Stórtónleikar
í Langholtskirkju
Í TILEFNI þess að hinn hláturríki
hreingerningarmaður Guðfreður
Hjörvar lætur af störfum hjá Lang-
holtskirkju vegna aldurs, hefur
hann kallað fjölmarga af bestu
söngvurum og kórum þjóðarinnar
til liðs við sig til að halda tónleika í
Langholtskirkju sunnudagskvöldið
5. september kl. 20. Listamennirnir
gefa vinnu sína og aðgangseyrir,
kr. 1.500, rennur til Langholts-
kirkju.
Kvöldmessa í
Dómkirkjunni
SUNNUDAGINN 5. september kl.
20 verða aftur teknar upp mán-
aðarlegar kvöldmessur í Dómkirkj-
unni. Þessar stundir einkennast af
fegurð og kyrrátri gleði. Söng ann-
ast sönghópur úr Dómkórnum við
undirleik Martein H Friðrikssonar.
Bergþór Pálsson syngur einsöng og
prestarnir sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson og sr. Hjálmar Jónsson
þjóna.
Þema messunnar þessu sinni er
fegurð sumars og þakklæti fyrir
gjafir þess. Komið og njótið helgi
og friðar.
Kirkjustarf aldraðra
í Reykjavíkur-
prófastsdæmum
KIRKJUSTARF aldraðra er nú að
hefjast á ný eftir sumarfrí og af því
tilefni verður samkirkjuleg guðs-
þjónusta í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu Hátúni 2 n.k. miðvikudag
8. september kl. 14:00 Stjórnandi er
Vörður L.Traustason, Björn
Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra predikar, Lög-
reglukórinn syngur og leiðir al-
mennan söng undir stjórn Guðlaugs
Viktorssonar. Organisti er Óskar
Einarsson.
Á eftir verða kaffiveitingar í
neðri sal kirkjunnar.
Þessi guðsþjónusta er samstarfs-
verkefni Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma, Fíladelfíu, Óháða
safnaðarins og Fríkirkjunnar í
Reykjavík og henni er útvarpað á
Lindinni fm 102,9. Allir eru vel-
komnir og eru eldri borgarar sér-
staklega hvattir til að taka þátt í
guðsþjónustunni sem markar upp-
haf vetrarstarfsins.
Lindasókn í Kópavogi
– Fjölskyldumessa
VETRARSTARFIÐ í Lindasókn í
Kópavogi hefst með fjölskyldu-
messu næstkomandi sunnudag 5.
september kl. 11 í Lindaskóla.
Sunnudagaskólaefni vetrarins
verður kynnt, Gulla gæs kemur í
heimsókn, fjörugur söngur og
fræðsla. Hannes Baldursson org-
anisti sér um undirleik og sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar.
Boðið verður upp á kaffi, safa og
kexmeti eftir messuna. Íbúar í
Vatnsenda- og Salahverfi athugi að
langferðabíll merktur hóp-
ferðabílar Ingi keyrir Vatnsend-
ann, niður salina og stansar við all-
ar biðstöðvar á leiðinni. Bíllinn
verður við fyrstu biðstöð á Vatns-
enda kl. 10.45.
Litli kórinn
í Neskirkju
LITLI kórinn – kór eldri borgara í
Neskirkju er að hefja vetrarstarfið.
Æfingar verða sem fyrr á þriðju-
dögum kl. 16.30 í nýja safn-
aðarheimilinu og verður fyrsta æf-
ing 7. september. Allir sem hafa
gaman af söng og að vera í góðum
félagsskap eru velkomnir. Stjórn-
andi er Inga J. Backman en Reynir
Jónasson spilar með kórnum. Nán-
ari upplýsingar eru í síma 552 2032.
Klassísk messa og
gregorssöngur
ÁHUGAHÓPUR um klassíska
messu og iðkun gregorssöngs mun
ní í vetur eins og s.l. vetur standa
fyrir messum með gregorslagi 1.
sunnudag í hverjum mánuði í Frið-
rikskapellu í Reykjavík. Hópurinn
kallar til helgiþjónustu ýmsa
presta.
Næstkomandi sunnudag þann 5.
september kl. 20.00 verður fyrsta
messa vetrarins í Friðrikskapellu.
Prestur verður séra Kristján Valur
Ingólfsson og sungin verður XI.
messa, Orbis factor. Æfing fyrir
messuna verður laugardaginn 4.
september kl. 12.00. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Klassísk messa og greg-
orssöngur er dýrmætur arfur kirkj-
unnar og kjarnmikið andlegt fóður.
Barna- og unglinga-
kór Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
STARF barna- og unglingakórs er
nú að hefjast á ný í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði eftir nokkura ára hlé
og hefur Erna Kristín Blöndal
söngkona verið ráðinn nýr kór-
stjóri. Æfingar kórsins verða síð-
degis á miðvikudögum í safn-
aðarheimili Fríkirkjunnar við
Linnetsstíg og verður endanlegur
æfingatími ákveðinn í samráði við
þátttakendur og foreldra. Kórinn
er opinn öllum börnum og ungling-
um og verður skipt í hópa eftir
aldri. Formleg skráning í kórinn
fer fram í Fríkirkjunni í dag, laug-
ardaginn, 4. september, kl.11 og
eru foreldrar beðnir að mæta með
börnum sínum til að kynna sér starf
kórsins.
Vetrarstarfið hafið
í Grafarvogssókn
SUNNUDAGINN 5. september kl.
11:00 er fermingarbörnum úr
Foldaskóla Hamraskóla og Húsa-
skóla og foreldrum þeirra boðið
sérstaklega til guðsþjónustu í Graf-
arvogskirkju. Dregið verður um
væntanlega fermingardaga.
Að lokinni guðsþjónustu verður
fundur þar sem verður meðal ann-
ars rætt um fermingarfræðsluna,
ferminguna sjálfa og því sem henni
tengist.
Vetrarstarfið í Grafarvogssókn
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00 á
neðri hæð kirkjunnar
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00 í
Borgarholtsskóla
Sunnudaginn 19. september kl.
11:00 er fermingarbörnum úr
Borgaskóla Engjaskóla Korpuskóla
Rimaskóla og Víkurskóla og for-
eldrum þeirra boðið sérstaklega til
guðsþjónustu í Grafarvogskirkju.
Hægt er að sjá hefðbundna dag-
skrá safnaðarstarfsins í vetur á:
www.grafarvogskirkja.is
Englaguðsþjónusta –
hátíð í Hjallakirkju
UPPHAF vetrarstarfsins í Hjalla-
kirkju hefst með því að við höldum
hátíð í kirkjunni þann 5. september
kl. 11. Þá verður kirkjan sett í há-
tíðarbúning, skreytt í öllum regn-
bogans litum þar sem þemað „Sam-
an í trú og gleði!“ verður mótandi.
Allir krakkar eru hvattir til að
mæta með engil með sér að heiman
því við ætlum okkur að fylla kirkj-
una af englum!
Þetta er sannkölluð fjöl-
skyldustund fyrir fólk á öllum aldri,
þó efni hennar miðist að mestu leyti
við yngri kynslóðina. Brúður
barnastarfsins láta sjá sig og Tóta
trúður kemur í heimsókn. Tónlistin
verður lífleg og fjörug - alveg í takt
við annað sem fram fer. Næsta
sunnudag á eftir, 12. september,
hefst svo formlega sunnudaga-
skólastarfið með barnaguðsþjón-
ustu kl. 13. Við hvetjum alla til að
koma í kirkjuna á þessum hátíð-
isdegi og taka fyrstu skrefin með
okkur inn í komandi vetur.
Fella- og Hólakirkja
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
kl 11:00.
Sunnudagaskólastarfið hefst í
dag. Umsjón hefur nýráðinn barna-
og æskulýðsfulltrúi kirkjunnar, sr.
Helga Helena Sturlaugsdóttir. Efla
Sif og Ásdís verða líka með henni
við sunnudagaskólastarfið í vetur.
Prestur verður sr. Guðmundur
Karl Ágústsson, organisti Peter
Maté. Öll börn eru velkomin og
skemmtilegast er ef foreldrar og
aðrir aðstandendur koma með og
eiga góðar stundir í kirkjunni. Ver-
ið öll velkomin. Skráning í stúlkna-
kór og kórskóla verða á eftir guðs-
þjónustu, umsjón Þórdís.
Kaffi og djús á eftir guðsþjónust-
unni.
Hversdagsmessa
í Grensáskirkju
HVERSDAGSMESSUR verða í
Grensáskirkju á fimmtudögum kl.
19:00. Lögð er áhersla á notalega
stund í húsi Drottins að loknum
vinnudegi með einföldu formi, lof-
gjörð, bæn, samskotum og alt-
arisgöngu. Tónlistarstjórn er í
höndum Þorvalds Halldórssonar.
Hér er um að ræða nýbreytni í
starfi Grensáskirkju. Hugmyndin
með hversdagsmessunni er að geta
átt góða og uppbyggilega stund í
húsi Drottins að loknum venjuleg-
um starfsdegi og flétta þannig iðk-
un trúarinnar saman við hvers-
dagslífið enda á kristin trú okkar
ekki að vera spariflík heldur rauð-
ur þráður tilverunnar alla daga.
Fyrir messu er boðið upp á léttan
málsverð á vægu verði frá kl. 18:15
í safnaðarheimili kirkjunnar.
Messunni lýkur laust fyrir kl. 20
og hentar tíminn því einkar vel
þeim sem kjósa að nýta kvöldið með
öðrum hætti.
Syngjandi sveifla
í Bústaðakirkju
HIÐ syngjandi hressa barna- og
unglingakórastarf Bústaðakirkju
er að hefjast.
Í Bústaðakirkju eru starfandi 5
barna- og unglingakórar. Þar geta
börn og unglingar á aldrinum 5-16
ára fundið eitthvað við sitt hæfi. Í
Morgunblaðið/Ómar