Morgunblaðið - 04.09.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.09.2004, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sighvatur Fann-dal Torfason fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 25. október 1936. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Skagafjarðar á Sauð- árkróki 25. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar Sighvats voru Sig- urður Torfi Sigurðs- son frá Bæ á Fells- strönd og Guðrún Valfríður Sigurðar- dóttir frá Stóra- Fjarðarhorni í Strandasýslu, og var hann yngst- ur sjö barna þeirra. Systkinin eru 1) Sigvaldi, f. 1922, d. 1998, 2) Sig- urkarl, f. 1924, d. 1997, 3) Sigur- jón, f. 1926, d. 2000, 4) Guðbjörg, f. 1929, 5) Sigurrós, f. 1929, d. 2003 og 6) Svavar, f. 1933 Eftirlif- andi eiginkona Sighvats er Sigur- laug Pálsdóttir frá Laufskálum í Hjaltadal, f. 10. júní 1934, foreldr- ar hennar voru Páll Jónsson og Guðrún Gunnlaugsdóttir. Börn Sighvats og Sigurlaugar eru: 1) Guðrún, f. 1960, eiginmaður Ás- grímur Sigurbjörnsson, f. 1956, sonur þeirra Gunnar, f. 2000. 2) Páll, f. 1965, eigin- kona Margrét Grét- arsdóttir, f. 1965, synir þeirra Grétar Ingi, f. 1994 og Sig- hvatur Rúnar, f. 1996. 3) Gunnlaugur, f. 1967, unnusta Elín Gróa Karlsdóttir, f. 1968, fv.eiginkona Sigríður Einarsdótt- ir, f. 1969, dætur þeirra Særós, f. 1994, Auður, f. 1996 og Júlía, f. 1998. Sonur Elínar er Valdimar Örn Bald- ursson, f. 1994. Sighvatur ólst upp í Hvítadal og lauk búfræðinámi frá Bændaskól- anum á Hvanneyri árið 1958, hann bjó í Hvítadal og á Neðri Brekku í Saurbæ til ársins 1966 er hann flyst til Sauðárkróks og ræðst sem kennari við Barnaskól- ann þar, og kenndi hann við Grunnskólann á Sauðárkróki til ársins 2003. Auk þess vann hann allmörg sumur hjá Vegagerð rík- isins. Útför Sighvats fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Aldrei gat ég ímyndað mér að það yrði svona erfit að skrifa þessi fáu orð á þessari kveðjustund, það er svo margt sem flýgur gegnum huga minn á þessari stundu og sem ég vil þakka fyrir. Ég kynntist Sighvati fyrst þeg- ar við Gurra fórum að vera saman, en ekki almennilega fyrr en ég fékk að fara með, þegar Gurra fylgdi honum til London, þegar hann fór í aðgerð þar, eftir það og síðar þegar við flutt- um á Krókinn, áttu leiðir okkar eftir að liggja oft saman og margar ánægjulegar samverustundir áttum við, hvort sem það var í umræðum um landsins gagn og nauðsynjar eða sveitarstjórnarmál, eða þegar verið var að gera eitthvað og þú komst til aðstoða eða fylgjast með hvernig gengi. Þau verða ekki eins kvöldin hér eftir, engan veit ég sem hefur hugsað eins til fjölskyldu sinnar og þú gerðir, það voru fá kvöld sem þú fórst ekki gangandi hring til þess að líta til barnabarna þinna og maður fann þá umhyggju sem þú barst fyrir fjölskyldu þinni. Eftir að Gunnar fæddist voru það fáir laugardags- og sunnudags- morgnar sem við komum ekki í heim- sókn og alltaf varst þú tilbúinn að gera allt sem Gunnar bað þig um. Ég veit að við Gunnar eigum eftir að minnast þeirra stunda sem við átt- um með þér, og síðast nú í sumar eft- ir að þú varst orðinn veikur komst þú við hjá okkur í heimferðum þínum á daginn, af sjúkrahúsinu til þess að fylgjast með hvernig framkvæmdum í garðinum og húsbyggingu Gunnars miðaði. Ég veit að nú eftir að veikind- unum er lokið líður þér vel og ert örugglega farinn að yrkja jörðina á öðrum stað, því að sveitin átti svo stóran hlut í þér, það sást svo vel þeg- ar þú varst að tala um æskuslóðir þínar og held ég að þú hefðir helst viljað vera bóndi allt þitt líf. Með söknuði kveð ég nú tengda- föður minn og bið guð að blessa hann, ég vil þakka þær stundir sem við átt- um saman. Ásgrímur Sigurbjörnsson. Mig langar í örfáum orðum að minnast tengdaföður míns Sighvatar Torfasonar sem lést á Heilbrigðis- stofnunni á Sauðárkróki 25. ágúst. Ég átti því láni að fagna að koma inn í fjölskyldu Sighvatar fyrir um tólf árum er við Palli fórum að vera saman. Betri tengdaföður hefði ég ekki getað fengið. Hann var traustur og yfirvegaður maður og hafði skoð- anir á öllum hlutum og ætíð nægan tíma til að ræða um hlutina. Marga umræðuna tókum við um sveitastörf- in og lífið í sveitinni, því þar skildum við hvort annað mjög vel. Sighvatur hafði gaman af því að fara í sveitina sína fyrir vestan og þar fylgdist hann vel með og átti margar góðar stundir. Þegar ég lít til baka koma margar góðar minningar upp í huganum, t.d. hvað hann var alltaf áhugasamur um allt sem við vorum að framkvæma hvort sem það var verið að byggja húsið, smíða sólpallinn eða þá við vor- um að vinna í garðinum. Þá var gott að leita hjálpar hjá honum og fá góð ráð eins og honum einum var lagið að veita. Sighvatur var einstakur barnavin- ur enda búinn að kenna við Barna- skólann á Sauðárkróki frá 1966 fram til 2003. Hann fylgdist vel með Grét- ari Inga og Sighvati Rúnari og á hverjum degi kom hann við hjá okkur til að vita hvernig gengi og athuga hvort ekki væri allt í lagi. Það er sárt til þess að hugsa að loksins þegar hann var hættur að vinna skuli hann vera hrifinn á brott frá okkur. Veik- indi Sighvatar eru búin að vera mikil og erfið í sumar en aldrei heyrði mað- ur hann kvarta og þótt við vissum að hverju stefndi þá einhvern veginn er enginn tilbúinn til að kveðja. Kæri Sighvatur ég þakka þér allar okkar samverustundir og allt það sem þú varst mér og minni fjöl- skyldu, og afastrákarnir þínir munu gæta þess að hugsa vel um ömmu Dúu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín tengdadóttir Margrét. Í dag kveðjum við hann Sighvat, afabróður okkar sem ávallt var okkur svo góður. Þegar við hugsum til hans, skjóta upp kollinum margar ljúfar minningar . Það var okkur ætíð jafn- mikil ánægja að hitta Sighvat hjá ömmu og afa á Árbrautinni, þar sem hann var alltaf léttur í lund og jafn- áhugasamur um hvað við höfðum fyr- ir stafni. Við minnumst Sighvats frænda með mikilli hlýju og þakklætis fyrir allan þann kærleik sem hann ávallt sýndi okkur frænkum. Aðstandend- um öllum sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Nú er hafinn annar óður. Angar lífsins Berurjóður. Innra hjá mér æskugróður. Óði mínum létt um spor. Ég þakka af hjarta, guð minn góður, gjafir þínar, sól og vor. (Stefán frá Hvítadal.) Blessuð sé minning hans. Elísabet, Halldóra og Fjóla. Margar góðar og hlýjar minningar koma upp í huga okkar þegar við minnumst Sighvats föðurbróður okk- ar. Hann var yngsti bróðir föður okk- ar og þrátt fyrir talsverðan aldurs- mun voru þeir bræður mjög samrýndir. Hann flutti norður á Sauðárkrók með fjölskyldu sína og varð þá samgangur meiri. Gestrisni var þar í fyrirrúmi. Á sumrin var Sighvatur daglegur gestur á heimili okkar, en þá starfaði hann hjá Vegagerðinni. Þá var oft setið og spjallað langt fram á kvöld. Hann var hafsjór af fróðleik sem hann miðlaði til okkar. Sighvatur var skáldmæltur og á tyllidögum var hann aufúsugestur hjá okkur og oftar en ekki laumaði hann að okkur vísu eða kvæði í tilefni dagsins. Skáldskapur hans er okkur afar kær, dýrmætur fjársjóður sem við munum geyma vel. Sighvatur var ættrækinn og heim- sótti oft bernskustöðvar sínar og allt- af smá stopp á Árbrautinni til að segja okkur fréttir úr Dölunum. For- eldrar okkar dáðu hann mjög fyrir alla hans hlýju og umhyggju. Hann var einstaklega góður við okkur syst- urnar. Hlýr og trygglyndur. Börnum okkar fylgdist hann vel með og þótti þeim mikið til afabróður síns koma. Við munum sakna hans sárt. Elsku Dúfa, Guðrún, Palli, Gulli og fjöl- skyldur, guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Minningin um góðan mann lif- ir. Að lokum gerum við hans eigin orð að okkar. Þó að englar veginn vísi vakti leiðir jörðu frá. Biðjum við að ljós þér lýsi ljúfum brautum himins á. Ingibjörg, Guðrún, Torfhildur, Sjöfn og Svala. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Sighvati Torfasyni þá fjóra vetur er ég var við nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þá bjó ég hjá föðurbróður mínum, Ásgrími Sigurbjörnssyni og eigin- konu hans Guðrúnu Sighvatsdóttur. Oftar en ekki þá heimsótti Sighvatur dóttur sína og tengdason eftir kvöld- mat og fékk sér kaffisopa og ræddi málefni líðandi stundar. Stjórnmálin voru oftar en ekki krufin til mergjar, jafnt landsmál sem sveitarstjórnar- mál. Ég naut þeirra forréttinda, sextán ára unglingurinn og framundir tví- tugsaldur, að fá að taka þátt í þeim umræðum sem þarna áttu sér stað. Eftir á að hyggja, þá höfðu þessar umræður mikil áhrif á mig og mínar lífsskoðanir og fyrir það vil ég þakka. Ekki minnist ég þess að ég hafi verið svo pólitískur er ég flutti til Ása og Gurru, en ég var ekki búinn að dvelja lengi í þessu umhverfi að ég gerðist framsóknarmaður. Sighvatur fylgdi Framsóknar- flokknum alla tíð að málum og starf- aði mikið innan hans. Hann var fram- sóknarmaður í besta skilningi þess hugtaks. Hann var félagshyggju- og samvinnumaður og hafði ætíð ríkar skoðanir á störfum og stefnu Fram- sóknarflokksins. Hann var talsmaður hinna dreifðu byggða og mikill áhugamaður um vöxt og framgang sinnar heimabyggðar. Umfram allt þá var Sighvatur framsóknarmaður sem stóð vaktina og barðist fyrir flokkinn sinn þegar á hólminn var komið. Sighvatur var einn af máttarstólp- um Framsóknarfélags Skagafjarðar. Brennandi áhugi hans á stjórnmálum var smitandi og fylgdu börn og tengdabörn honum í miklu flokks- starfi sem sýndi sig kannski best í að- draganda kosninga, þar sem Sighvat- ur og hans fólk stóð ætíð vaktina, Framsóknarflokknum til mikillar gæfu. Heimsóknirnar í Hólatúnið til Ása og Gurru verða ekki eins og áður. Þó er ljóst að á því heimili verður áfram rætt um málefni líðandi stundar, en ekki mun Sighvatur taka þátt í þeim umræðum meir. Sighvatur sinnti fjölskyldunni sinni vel hin síðari ár og það var aðdáunarvert að sjá hve barnabörnin hændust að afa sínum sem sýndi þeim mikla þolinmæði og væntum- þykju. Oft er sagt um börnin að þau hænist að þeim sem hreinasta hjart- að hefur. Missir fjölskyldunnar er mikill. Ég vil á þessari stundu flytja Dúu og fjölskyldunni allri mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Ég þakka Sighvati fyrir liðnar samverustundir, stundir sem munu seint mér úr minningu renna. Guð blessi minningu Sighvats Torfasonar. Birkir J. Jónsson. Kveðja frá Árskóla Í dag kveðjum við Sighvat kennara og samstarfsmann til fjölda ára. Hann hóf kennslu við grunnskólann á Sauðárkróki árið 1966 en lét nýlega af störfum vegna aldurs. Sá sem kennir á stað eins og Sauðárkróki í tæp 40 ár hefur áhrif á mannlífið. Áhrif Sighvatar voru hlýja og virðing og eru þeir margir fyrrum nemendur hans sem minnast hans þannig. Framkoma hans og yfirbragð var þannig að nemendur báru virðingu fyrir honum. Hjá honum fundu þeir föðurlega umhyggju. Kennarastarfið hefur breyst mikið frá því Sighvatur byrjaði að kenna og byggist í dag á miklu meira samstarfi bæði við aðra kennara og allt sam- félagið. Þetta var Sighvati auðveld- ara vegna þess hversu félagslyndur hann var og tilbúinn að takast á við breyttar aðstæður. En bak við hressilega framkomu Sighvatar leyndist listræn, næm og viðkvæm sál. Allir þessir eiginleikar gerðu Sig- hvat að farsælum kennara. Á kenn- arastofunni var ætíð líflegt í kringum Sighvat. Hann hafði afar ákveðnar skoðanir á mörgum málum og lá ekk- ert á þeim. Sköpuðust ætíð skemmti- legar umræður í kjölfarið. Það er kunnara en frá þurfi að segja að kvenfólki hefur fjölgað mikið í kenn- arastéttinni á undanförnum áratug- um. Þannig var það einnig á kenn- arastofunni á Króknum og var Sighvati mjög umhugað um að setja „konurnar sínar“ úr jafnvægi með hvössum fullyrðingum um stöðu kvenna. Oftar en ekki tókst honum að láta þær hækka róminn og þá var honum skemmt. Undantekningalítið hlógu allir dátt á eftir. Það kom fyrir að Sighvatur sat þögull á kennara- stofunni með blað fyrir framan sig og tilbúinn að brjóta upp á það til þess að aðrir sæju ekki hvað hann var að skrifa. Þá var Sighvatur að yrkja. Því miður var hann tregur til að láta aðra njóta, en það sem hann lét frá sér bar þess merki að þar færi mikill hagyrð- ingur. Fyrir hönd starfsmanna og nem- enda í Árskóla þakka ég Sighvati samfylgdina og samstarfið. Fjöl- skyldu hans færi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Óskar G. Björnsson, skólastjóri. Kveðja frá Framsóknarfélagi Skagafjarðar Sighvatur Torfason var um árabil einn af forystumönnum Framsókn- arflokksins í Skagafirði. Hann var m.a. formaður Framsóknarfélags Sauðárkróks, fulltrúi í miðstjórn og bæjarfulltrúi á Sauðárkróki. Sighvatur var mikill ágætismaður sem hafði ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum, maður sem var mikill húmoristi en jafnframt maður sem við sem yngri erum gátum leitað ráða hjá af fullri alvöru og hrein- skilni. Að leiðarlokum vil ég þakka Sig- hvati fyrir hans óeigingjarna og far- sæla starf fyrir okkur framsóknar- menn í Skagafirði. Ég vil jafnframt senda samúðarkveðjur til eftirlifandi eiginkonu hans, Sigurlaugar Páls- dóttur, barna, tengdabarna og barnabarna. Sigurður Árnason. Í dag er jarðsunginn frá Sauðár- krókskirkju, Sighvatur Torfason, fyrrverandi kennari á Sauðárkróki, góður og einlægur vinur minn og fjöl- skyldu minnar. Þegar ég sest niður til að setja á blað nokkur kveðju- og þakkarorð koma í hug minn ljóðlínur úr ljóði frænda hans Stefáns frá Hvítadal, þar sem segir: Það kveða við klukkur í fjarska, það kalla mig dulin völd. Nú heyri ég hljómana blíða ég hringist til guðs í kvöld. Það fór fyrir Sighvati, sem fleirum, að þurfa að takast á við illvígan og erfiðan sjúkdóm. Baráttan var erfið en hann stóð, eins og ætíð, á meðan stætt var. Eftir standa góðar minn- ingar um mætan mann. Þegar mér bárust fregnir af and- láti vinar míns sat ég klökkur um stund, leit yfir farinn veg, en leiðir okkar Sighvatar hafa legið saman frá árinu 1966, er hann flutti með fjöl- skyldu sína til Sauðárkróks og við urðum nágrannar í Suðurgötunni í mörg góð ár. Ævistarf Sighvatar var kennsla. Hann var einstaklega góður kennari, börnin voru hans og hann þeirra. Margt barnið, unglingurinn og for- eldrið eiga Sighvati mikið að þakka, ekki bara sem fræðara heldur einnig sem vinar og málsvara. Hann var góður fjölskyldumaður og naut þess mjög að ganga með barnabörnunum, sýna þeim um- hverfið og fræða. Sighvatur var sannur samvinnu- maður og mikill félagsmálamaður. Hann sat í stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar og var formaður þess um skeið. Hann sat einnig í bæjar- stjórn Sauðárkróks og skilaði þar sem annars staðar góðu verki. Öll stjórn var örugg í hans höndum. Minningin geymir margar góðar og glaðar stundir sem við áttum sam- an. Sighvatur var tilfinningamaður, vel lesinn, ljóðelskur og átti mjög létt með að yrkja. Ég trúi því að hann hefði fremur orðið skáld en hagyrð- ingur ef hann hefði lagt skáldskapinn fyrir sig. Hann flíkaði ekki þessum hæfileikum sínum, en vafalaust leyn- ast í fórum hans margar perlur. Með söknuði þakka ég fyrir sam- fylgd, vináttu og holl ráð og bið eilíf- an Guð að vernda og styrkja fjöl- skylduna og ástvini alla. Ég kveð Sighvat vin minn með orð- um frænda hans frá Hvítadal Nú get ég lofað lífið, þótt lokist ævisund. Ég hef litið ljómann og lifað glaða stund. Stefán Guðmundsson. Við kveðjum í dag kæran félaga. Við fráfall Sighvatar Fanndal sækja margar hlýjar minningar að okkur, sem áttum með honum gef- andi samstarf og gleðistundir í dags- ins önn, árum, jafnvel áratugum sam- an, í Barnaskólahúsinu við Freyjugötuna. Sighvatur var traust- ur félagi, ábyrgur og farsæll í starfi og vel liðinn, bæði af nemendum og samstarfsfólki. Hann var dulur um eigin hagi og flíkaði lítt tilfinningum sínum en okkur var þó öllum ljóst að undir hrjúfu karlmennskuyfirborði bjó listræn, hlý og viðkvæm sál. Næmt brageyra hans og hárfínn húmor náðu að fanga ýmis skemmti- leg tilefni og atvik og fella í stuðla og höfuðstafi á eftirminnilegan hátt. Hann fór þó dult með kveðskap sinn, kvað hann ómerkilegan og ekki til að hafa yfir nema einu sinni. Margir leituðu til hans eftir ljóði við hátíðleg tilefni. Hann varð jafnan vel við slík- um beiðnum. Ljóðin hans hafa því víða verið flutt á mannamótum og yljað eins og að var stefnt. Er full ástæða til að safna saman og halda til haga því efni, sem eftir hann liggur í bundnu máli. Það yrði góður fengur fyrir þá sem unna blæbrigðum máls- ins í vel kveðinni vísu og fallegu ljóði. Hann hvatti mjög til vísnagerðar og var oft hlegið að misvel heppn- uðum tilraunum okkar hinna, sem auðvitað komust aldrei í hálfkvisti við hans kveðskap. Hann hafði fastmótaðar skoðanir og lá ekki á þeim, ef svo bar undir. SIGHVATUR FANN- DAL TORFASON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.