Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 40

Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Arnheiður Guð-finnsdóttir fædd- ist á Patreksfirði 31. janúar 1931. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi 23. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guð- finnur Einarsson, f. á Lambleiksstöðum á Mýrum A-Skafta- fellssýslu 29.8. 1883, d. 30.7. 1949, og Markúsína Áslaug Markúsdóttir, f. á Króki á Rauðasandi 20.10. 1905, d. 4.12. 1987. Systkini Arnheiðar eru Bára, f. 15.9. 1927, d. 28.10. 1940, og Páll, f. 16.12. 1928, kona hans var Nanna Sörla- dóttir, f. 10.5. 1931, d. 15.9. 1998, þau eiga þrettán börn. Arnheiður átti tvö hálfsystkini samfeðra, Pál og Hólmfríði, sem bæði fluttust ung út til Kanada með móður sinni og létust bæði þar. Arnheiður giftist 17.7. 1958 Bergsveini Guðmundssyni, f. 8.6. 1936, þau skildu. Hinn 11.2. 1972 gift- ist Arnheiður Jóni Pedersen, f. 18.10. 1935. Hann er sonur hjónanna Herberts Petersen sem er lát- inn og Mattheu Kristínar Petersen, f. 23.5. 1904, og lifir hún tengdadóttur sína. Arnheiður lauk ljósmæðranámi frá Ljósmæðraskóla Ís- lands 1952. Hún vann við Sjúkrahús Patreksfjarðar til 1954 er hún fer til Reykjavíkur og vinnur á Land- spítala og Landakoti en lengst af sínum starfsferli vann Arnheiður á mæðradeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur þar til hún hætti störfum sökum aldurs. Fljótlega eftir það fluttu þau hjón- in til Patreksfjarðar. Útför Arnheiðar fer fram frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku frænka, þá er kallið komið, að mér finnst alltof fljótt, þú sem varst svo ánægð að vera komin aft- ur heim í fjörðinn þinn fallega. Eins og þú sagðir þá gastu setið við eld- húsgluggann og horft út fjörðinn og rifjað upp bernskuárin þín hér. Þú og Nonni voruð dugleg að fara út í náttúruna í bíltúr í berjamó eða veiða í Sauðlauksdal, stundum var pabbi með í för, hann var svo ánægður að þú og Nonni væruð flutt hingað, hann beið með kaffi og meðlæti á hverjum degi eftir ykkur að koma í heimsókn og vil ég þakka þér fyrir það hvað þú varst góð og hugulsöm við hann. Ég veit að Nonni heldur áfram að koma í heimsókn en nú mun vanta hana Heiðu þeirra og þín verður sárt saknað. Ég var fyrsta barnið sem þú tókst á móti eftir að þú útskrif- aðist sem ljósmóðir, þú hélst mér undir skírn og réðir nafni mínu ásamt því að bjarga lífi mínu. Mamma var heppin að eiga svona góða mágkonu. Ég man þegar ég var yngri, þá fékk ég að gista hjá þér í Reykjavík og þú kynntir mig alltaf sem litla ljósubarnið þitt. Við systkinin vorum alltaf svo stolt af þér og þegar að við systurnar fór- um að eiga börn var oft hringt eða farið til Heiðu frænku til þess að fá upplýsingar og láta hana skoða sig og átt þú nú þegar nöfn eins og t.d. Páll Heiðar, Arnar og Arnheiður og veit ég að þér fannst vænt um það, því miður eignaðist þú aldrei þín eigin börn en þú áttir alltaf mikið í okkur öllum, þú varst alveg sér- staklega barngóð kona. Það var okkur öllum mikið áfall þegar að þú veiktist svo skyndilega, ég veit að amma, afi, Bára og mamma taka vel á móti þér og vísa þér veginn í nýj- um heimkynnum. Við komum til með að aðstoða Nonna eins og þú baðst okkur um því hann kemur til með að sakna þín sárt. Um leið og ég votta Nonna sam- úð mína vil ég þakka honum hvað hann reyndist Heiðu frænku ynd- islegur og góður í gegnum árin, einnig vil ég votta pabba samúð mína sem og Möttu, Páli og Mörtu. Hvíl í friði, elsku frænka. Bára. Elskuleg og kær svilkona mín Heiða er látin, eftir stutta en erfiða sjúkralegu á gjörgæslu Landspítala – háskólasjúkrahúss, Fossvogi í Reykjavík. Hennar létta og innilega hláturs er sárt saknað. Heiða var í eðli sínu glaðsinna og það sem snart hennar hláturtaugar fékk tárin til að streyma – ómögulegt var annað en að hrífast með. Létt lund fleytir fólki yfir margt. Hún kunni ógrynni af skondnum og skemmtilegum máltækjum, Heiða gat þessvegna alltaf haft síðasta orðið, þar sem hún gat sett punkt á eftir efninu með hnyttnu orðafari eða máltæki. – Hafsjór var hún, þegar röðin kom að léttum og hnitmiðuðum, en einn- ig spökum og alvarlegum fer- skeyttlum sem gátu átt við hvaða tækifæri sem var. Þessi léttu tilsvör hennar gátu oft lyft þungum og óþarfa þrasgjörnum samræðum upp á efra og eðlilegra svið. Já létt- leikinn er vörn gegn ýmsu og mik- ilvægt að viðhalda honum. Líf Heiðu var ekki alltaf dans á rósum frekar en okkar allra mannanna barna. Þá er gott að grípa til hlát- ursins og hamingjuspiks bernsku- áranna. Heiða og Jón mágur minn voru tiltölulega nýflutt til fæðingar- og bernskubæjar Heiðu – Patreks- fjarðar. Þar áttu þau hlýlegt og fal- legt einbýlishús, á fallegum stað í bænum, með útsýni yfir „fjörðinn minn“, eins og Heiða orðaði það. Já, Heiða var komin heim þar sem hver þúfa og steinn vöktu upp ljúfar æskuminningar frá tímum foreldra og vina. Patreksfjarðarbær var bærinn hennar Heiðu, þar sem flestir ættingjar hennar, bróðir, bræðrabörn og bróðurbarnabörn, makar og fjölskyldur búa. Jón og Heiða áttu ekki börn, en mikið var af börnum í kringum þau. Sonum okkar tveimur, Herbert og Hálf- dani, voru þau Nonni og Heiða afar góð og auðvelt var um samgang þar sem vegalengd milli heimilanna var ekki ýkja löng – allir á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Margar helg- ar voru þeir fóstraðir eða fengnir að láni og var þá gjarnan farið í úti- legur og veiðiferðir. Jón kom þeim upp á bragðið með stöngina á með- an Heiða sat og prjónaði á þá peys- ur. Það voru forréttindi að eiga Nonna og Heiðu. Eitt sinn stóðu synirnir vatns- greiddir og í sjálfvöldum spariföt- um á tröppunum og biðu eftir því að þeir yrðu sóttir í helgarheimsókn af þessu frændfólki sínu, þegar ungur vinur og leikfélagi hleypur til þeirra – snarhemlar og spyr, þegar hann sér bræðurna svona uppáklædda og fína „Hvert eruð þið að fara?“ – Stolt svar – „Til Nonna hlanda og töntu Heiju – Átt þú SVOLEIÐ- IS?“ Já, það voru nefnilega forrétt- indi að eiga SVOLEIÐIS. Þetta eru góðar og gefandi minn- ingar að ylja sér við. Fyrir allt þetta og margt fleira vil ég að leið- arlokum þakka minni kæru svil- konu og sendi eiginmanni hennar og mági mínum Jóni innilegar sam- úðarkveðjur, sem og öllum öðrum ættingjum og vinum. Hvíl í friði elsku Heiða. Marta María. „Ég er ýmist betri eða verri, eftir því hvernig mér líður.“ Þetta voru með síðustu orðunum, sem ég heyrði frá minni ágætu, fyrrum barnapíu og síðan vini, Heiðu, er ég átti símtal við hana í júlí síðast- liðnum. En þá var ég að boða komu mína til Patró áður en haustaði. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Á þeim tíma, sem við höfðum ætlað að njóta samveru á heimili hennar á Patró, fæðingarstað okkar beggja, barðist Heiða fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Reykjavík. Illskeytt sýking hafði heltekið hana og ekki varð við neitt ráðið. Í þessu ívitnaða samtali sagði hún einnig: „Við höfum það voða- lega gott í aumingjaskapnum,“ og átti þá við að heilsan hjá þeim hjón- um væri kannski ekki alltaf eins og bezt yrði á kosið og sagðist ekki hafa verið nógu hress í sumar. En báðar þessar tilvitnuðu setn- ingar lýsa ákveðnum atriðum í lyndiseinkunn hennar. Þrátt fyrir mikla bjartsýni og já- kvæðni stóð hún alltaf með báða fætur á jörðinni. Hún var oft „þægi- lega“ kaldhæðin í tali og hafði til að bera þann góða eiginleika að vera hreinskiptin. Og margar vísurnar kunni hún, sem smellpössuðu oft við umræðuefnið hverju sinni. Harmar maður nú, að hafa ekki lát- ið verða af ætlan sinni að skrá þær. Það er hverjum manni mikil gæfa að finna væntumþykju, skilyrðis- lausa væntumþykju, ekki aðeins frá foreldrum sínum og nánasta skyld- fólki, heldur einnig frá óskyldu fólki, sem maður kynnist á lífsleið- inni. En þess urðum við, Gunnar bróðir minn og ég, aðnjótandi frá Heiðu hendi. Hún passaði okkur, lítil börn á Patreksfirði, á fimmta áratugnum og við áttum alltaf ein- hvern heiðurssess í hjarta hennar alla tíð síðan. Þótt hún hefði öðrum hnöppum að hneppa en að passa lít- il börn, þegar yngri systkini okkar voru komin í heiminn, hafði hún engu minni áhuga á velferð þeirra en okkar eldri systkinanna. Og allt- af talaði hún af mikilli virðingu um foreldra okkar, Jóhönnu Ólafsdótt- ur og Kristján Halldórsson, sem látin eru fyrir mörgum árum. Þegar Heiða var komin til Reykjavíkur til náms í ljósmóður- fræðunum, vorum við flutt þangað og kom hún þá stundum að heim- sækja okkur, en við bjuggum ekki langt frá heimavist þeirra náms- meyjanna í Ljósmæðraskólanum, sem þá var staðsettur við hlið Fæð- ingardeildarinnar. Og mikið naut maður þess að fá að fara með henni í „spossitúra“, því þá gaukaði hún að manni ein- hverju smá nammi og þótti manni einna mest varið í tyggjóið í þá daga. Aldrei man ég eftir henni þá öðruvísi en glaðri og kátri, syngj- andi eða raulandi nýjustu slagara þess tíma og alltaf tengi ég „Litlu fluguna“ hans Fúsa við hana. Sá texti festist í minninu við að hlusta á Heiðu. Hún giftist frænda okkar, Berg- sveini Guðmundssyni, og tengdist þá enn meira fjölskyldunni og þrátt fyrir að þeim auðnaðist ekki að ganga æviveginn saman, breytti það engu um samskipti hennar við fjölskyldu okkar. Seinni maður hennar er Jón Ped- ersen, mikill sómamaður, sem borið hefur hana á höndum sér, eftir að heilsu hennar fór að hraka hin síð- ari ár. Þótt það hafi atvikast svo, að hún tæki ekki á móti neinu af mínum börnum, þá varð ég samt aðnjót- andi hennar líknandi handa. Þegar erfiðleikar urðu við brjóstagjöf eftir fæðingu eldri dóttur minnar, kallaði móðir mín á Heiðu til hjálpar og kynntist ég þá hversu mjúkhent hún var og nærfærin í þessum hluta starfa ljósmæðra. Vegna búsetu minnar úti á landi í meira en tvo áratugi var minna um samskipti en ella hefði orðið. En eftir flutning suður, urðu þau meiri og ánægjulegri sem aldrei fyrr. Aft- ur varð síðan vík á milli vina, þegar þau hjónin tóku ákvörðun um að flytja úr Kópavoginum og til Patró. – En í samtölum okkar kom fram hversu vel hún naut þess að vera komin aftur heim. Vart hefur nokkur manneskja, mér óskyld, gefið mér betri verald- lega gjöf, gjöf þar sem væntum- þykja og góður hugur stóð að baki. Þau hjónin gerðu sér sérstaka ferð til Neskaupstaðar fyrir nokkrum árum, til að færa mér hlut, – ferm- ingargjöfina, sem foreldrar mínir gáfu Heiðu á sínum tíma. Og hún færði mér hana með þeim orðum, að nú gæti farið að síga á seinni hluta ævi sinnar og hún vildi að þetta kæmist í réttar hendur áður en hún kveddi. Það má segja að maður hafi alltaf verið þiggjandi í samskiptunum við hana Heiðu mína. Þökkum við systkinin og okkar fjölskyldur fyrir alla hennar velvild og vináttu og vottum Jóni og öðru skyldfólki okk- ar dýpstu samúð. Megi hún hvíla í friði. Guðríður, Gunnar, Hanna Karen og Ólafur Barði. Heiða frænka var glaðlynd, opin og tilfinningarík manneskja. Þegar við hugsum til hennar dettur okkur fyrst í hug brosið hennar bjarta, hlý orð og þétt faðmlag. Heiða var þeim dýrmæta eiginleika gædd að sjá alltaf björtu og broslegu hliðarnar á lífinu. Henni fylgdi því viss léttleiki sem smitaði út frá sér til allra sem umgengust hana. Heiða frænka var glæsileg og vel menntuð kona. Henni varð ekki barna auðið en bróðurbörnin nutu gæsku hennar og væntumþykju sem væru þau hennar eigin og seinna börnin okk- ar líka.Heiða fylgdi Jóni sínum eftir í veiðiferðum og það var líf þeirra og yndi að ferðast um á húsbílnum. Meðan Jón veiddi sat Heiða í bíln- um og las eða tíndi ber. Æskuslóðirnar voru Heiðu alltaf hugleiknar. Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn, en þorpið fer með þér alla leið. Svo kvað skáldið og Patreksfirð- ingurinn Jón úr Vör. Langþráður draumur hennar rættist þegar þau hjónin fluttust vestur á Patreks- fjörð. Þó að Heiða hafi aðeins feng- ið að njóta þess í tæp þrjú ár að dvelja í faðmi fjarðarins kæra og í nálægð við fjölskylduna sína fyrir vestan, þá er víst að þau ár voru henni með þeim dýrmætustu í líf- inu. Það er til marks um ást og tryggð Jóns að hann gerði henni kleift að láta drauminn rætast og fylgdi henni vestur eins og hún fylgdi honum í veiðiferðirnar. Á Patró höfðu þau alltaf nóg fyrir stafni. Það var bróður hennar ekki síst mikils virði að fá þau í nágrenn- ið og njóta félagsskapar þeirra. Ófáar ferðir fóru þau þrjú saman inn á Barðaströnd og komu við í Selinu til að hella uppá könnuna og borða nestið sem Heiða passaði alltaf upp á að hafa meðferðis.Við geymum allar dýrmætu minning- arnar um Heiðu frænku með okkur og erum þakklát og rík í hjartanu fyrir að hafa átt hana að. Kæri Jón, við vottum þér okkar innilegustu samúð og þökkum þér fyrir elsku þína og umhyggju við Heiðu frænku á umliðnum áratug- um. Blessuð sé minning Heiðu okkar. Einar og Harpa. Elsku Heiða frænka. Þau sitja alltaf í minningunni orðin sem þú sagðir við mig fyrir næstum 14 árum þegar ég var nýbúin að eiga hana Kristínu mína: „Það er ekki sjálfgefið að eignast barn og hvað þá heilbrigt barn.“ Mér verður oft hugsað til þessa því þarna talaði kona sem vissi hvað hún var að segja. Það var alltaf svo gaman að hitta þig og Jón eða heyra í þér í síma. Við gátum hlegið og hlegið, þú að spyrja hvort ég hefði heyrt þennan brandarann eða hinn. Elsku Jón, ég veit að minning Heiðu verður okkur systkinunum öllum sem ljós í minningunni. Þín frænka Nanna. Jæja, elsku Heiða mín, ekki datt mér í hug að ég þyrfti að fara að skrifa minningargrein um þig svona snemma en það koma nú nokkrar skemmtilegar minningar upp í huga minn. Eins og að þú varst vön að kalla mig Sigríði stórráðu. Manstu þegar við fórum í bæjarferðina, ég, þú, Arnar minn og Hjördís Ósk frænka okkar. Við fórum í Quelle að skoða föt, þú sagðir að Nonni þinn væri svo duglegur að kaupa á þig þar, svo fórum við á McDonalds og fengum okkur í svanginn og töluð- um mikið og hlógum og ég veit að Arnar og Hjördís skömmuðust sín mikið fyrir okkur. Svo enduðum við bubbulínurnar á því að taka rúnt niður Laugaveginn og fá okkur stóran og mikinn ís. Fyrir rúmum 13 árum ætlaði ég að gleðja þig og yngja þig upp. Ég var komin einar 19 vikur á leið og þurfti þess vegna að koma til Reykjavíkur í sónar. Ég færði þér fréttirnar vegna þess að ég var alveg viss um að þetta væri nú stelpa og átti hún að fá nafnið þitt. Þar sem þú varst ljósmóðir vildir þú endilega koma með mér í sónar. Það var gaman að fylgjast með þér þegar ljósmóðirin var að útskýra allt þetta á sjónvarpsskján- um fyrir þér, vegna þess að þú hafðir bara unnið með gömlu góðu hlustunarpípunum, ekki komið ná- lægt sónartæki. Allt í einu sagðir þú: Ekki er þetta litla hvíta þarna á stelpum? Ó, nei var þetta þá ekki strákur, þannig að við urðum að stytta nafnið þitt og gefa honum nafnið Arnar. Seinna fékkstu litla, já, pínulitla nöfnu sem þér þótti mikið vænt um. Ekki get ég sleppt því að láta þess getið hvað þér þótti gaman að bröndurum, að ég tali nú ekki um ef þér þótti þeir vera obbulítið … þú veist. Ég veit að þú skrifaðir mikið af þeim niður í bók og oft hefur nú verið hlegið á Heilsuverndarstöð- inni þar sem þú vannst eiginlega allt þitt líf. Jæja, elsku Heiða mín, ég og strákarnir mínir þökkum þér fyrir allt og megi guð vera með þér. Þín frænka Sigríður stórráða. ARNHEIÐUR GUÐFINNSDÓTTIR Elsku Heiða tanta, þú varst alltaf svo góð og skemmtileg. Nú ertu komin til Guðs. Lára Kristín og Andrea Rut. HINSTA KVEÐJA Eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNAR G. SCHRAM prófessor, Frostaskjóli 5, sem lést sunnudaginn 29. ágúst, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju- daginn 7. september kl. 13.30. Elísa St. Jónsdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, Bjarni Daníelsson, Jón Gunnar Schram, Laufey Böðvarsdóttir, Kári Guðmundur Schram, Íris Huld Einarsdóttir, Þóra Björk Schram, Gunnar Rafn Birgisson, Kristján Schram, Elizabeth J. Nunberg, Margrét G. Schram, Helgi Hallgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.