Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR Keflvíkingar efna til „Ljósanætur“, uppljóma Bergið, varpa birtu á fortíð og flóðlýsa samtíð er við hæfi að minnast liðinna daga og hyggja að fræðslumálum í fámennu samfélagi á löngu liðinni tíð. Mér rennur blóðið til skyldunnar. Faðir minn, Pétur Guðmundsson, var kennari á Suðurnesjum. Ráðinn af séra Oddi Gíslasyni, frægum klerki í Grindavík, forgöngumanni slysavarna, þeim er vann sér til frægðar að ræna brúði sinni. Jens prófastur Pálsson, Útskálaprestur, stóð einnig að þeirri ráðningu. Að liðnu einu ári í Grindavík, þar sem Pétur hlaut einróma lof foreldra og stjórnvalda fyrir kennslu, sóttust Kefl- víkingar eftir starfskröftum Péturs og var hann ráðinn kennari í Keflavík haustið 1890 og kenndi þar allt til ársins 1893. Í skólaskýrslu, sem Pétur ritar og varðveitt er á Þjóð- skjalasafni, kemur fram að skólinn er settur 6. dag október- mánaðar 1890 í Góðtemplarahúsinu, en þar hafði skólanefndin tekið eitt herbergi á leigu til barnakennslu. Gott þykir mér að sjá hvað faðir minn segir um framburð. „Í þessum tímum voru þau (börnin) látin stafa öll erfið orð utanað og ríkt gengið eftir að láta þau bera skýrt fram.“ Skólinn var settur af sóknarprestinum séra Jens Pálssyni. Séra Jens var þjóðkunnur fyrir afskipti sín af landsmálum. Hann var eindreginn bindindismaður, skáldmæltur. Sálmur hans: „Signuð skín réttlætissólin á Ísraelsfjöllum“ er birtur í sálmabókinni. Í skólaskýrslunni er sagt að börn þau, sem mættu þennan dag „voru 14 að tölu, hálfum mánuði síðar bætt- ist eitt við og loks 2. janúar tvö, voru því börn þau er skólann sóttu alls 17. Börn þessi voru á aldrinum frá 8–14 ára; öll fyrir innan fermingu.“ Sökum takmarka, sem sett eru um lengd frá- sagnar verður nú vikið að lokum skýrslunnar. Aðalpróf var haldið í skólanum 6. og 7. apríl. Prófdómendur voru þeir séra Jens Pálsson á Útskálum, héraðslæknir Þórður J. Thoroddsen og Ögmundur kennari Sigurðsson til skiptis. Þórður J. Thoroddsen, héraðslæknir, var faðir Emils Thor- oddsens píanóleikara, Péturs læknis og fleiri systkina. Móðir þeirra, Anna, var dóttir Péturs Guðjohnsens kennara, org- anista og alþingismanns. Pétur Thoroddsen var nemandi í yngri deild skólans. Í minningarriti góðtemplara lýkur faðir minn lofsorði á Þórð lækni og þakkar honum fyrir að hafa „neytt sig“ til þess að ganga í stúku í Keflavík. Það var „Vonin“. Tengdamóðir mín Anna Þorgrímsdóttir kenndi um skeið í barnaskólanum. Einnig var hún símastúlka hjá Landsímanum þar. Kona mín Birna var um hríð símastúlka hjá Sverri Júl- íussyni. Hann var símstöðvarstjóri. Öndvegismaður, ljúfmenni, sem vildi allra vanda leysa. Birna vitnaði oft í ummæli Sverris er hann viðhafði á æskuárum, en þá var þröngt í búi á heimili hans. „Sá saddi veit ekki hvað hinn svangi líður.“ Það rættist úr hjá Sverri. Hann varð síðar þingmaður Sjálfstæðisflokksins. En orð hans eru enn í fullu gildi. Margt kemur í hugann þegar Keflavík er á dagskrá: Þar voru löngum háðar harðvítugar deilur. Kveðlingar og kvæðabálkar birtust í blöðum. Frægt var kvæðið: „Það er komin kvörtun frá Keflavíkurhreppi/ að þeir skuli ekki fá allir vist á Kleppi.“ En Keflavík var einnig höfn sem hafði beint samband við suð- ræn lönd. Birna kona mín var alin upp hjá afa sínum, Þorgrími lækni. Hún minntist þess oft þegar ítalskir og grískir sjómenn komu að heilsa upp á gamla héraðslækninn. Þorgrímur læknir talaði latínu við Ítalina en grísku við Grikkina. Þau tungumál hafði hann lært í Latínuskólanum. Nanna litla Stefánsdóttir Björnssonar, sparisjóðsstjóra, kom hlaupandi og sagði þegar hún sá grísku sjómennina: „Það eru komnir Grikkjur í túnið.“ Vinnuhjúin í Læknishúsinu gátu sér orð. Sigga, Sigríður Magnúsdóttir, var af ætt Hjörleifs sterka. Hún svipti upp hurð- inni, útidyrum Góðtemplarahússins, í brunanum mikla. Dyrnar opnuðust, það þótti þrekvirki og varð mörgum til bjargar. Þegar Verkalýðsfélag Keflavíkur vígði samkomustað sinn Félagshús var mér boðið, ungum manni, að vera við vígsluna. Forstjóri þess var Torfi. Ég fór í bifreið ásamt Ásgeiri Ásgeirs- syni síðar forseta og Jóni Axel, bróður mínum, en hann var þá framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Ég var beðinn að flytja ræðu á samkomunni, sem kveðju frá ungum jafn- aðarmönnum. Samkoman lifir í minningunni. Það voru dugn- aðarmenn sem að þessu stóðu. Heill Keflvíkingum á Ljósanótt! PÉTUR Thoroddsen fæddist 8. ágúst 1884 í Þórukoti í Ytri- Njarðvík, dáinn 4. mars 1957 í Reykjavík. Foreldar hans voru Þórður J. Thoroddsen, héraðs- læknir og alþingismaður og Anna L. Thoroddsen. Pétur var nemandi í 2. deild barnaskólans. Á vorprófi árið 1892 hlaut hann þessar ein- kunnir: Biblíusögur 5, reikningur 5 1/3, lestur 5, réttritun 6, skrift 4 1/3. Aðaleinkunn: 5,20. Pétur lauk læknaprófi árið 1911. Hann var lengst héraðslæknir í Norðfjarðarhéraði, rúman ald- arfjórðung. Í Keflavík starfaði hann sem læknir um skeið. Pétur kvænist Valdimarsdóttur Davíðssonar, verslunarstjóra á Vopnafirði. KATRÍN Petersen var 6. í röðinni á vorprófi 1891. Katrín var fædd 24. október 1877 í Keflavík. Foreldrar hennar voru Pétur Jakob Jóhanns- son Petersen og Katrín Ill- ugadóttir Petersen. Katrín var átt- unda barn foreldra sinna. Hún var systir Júlíusar Petersens, sem var faðir Jakobínu Mathiesens í Hafn- arfirði. Katrín giftist Guðmundi Ólafssyni, netagerðarmanni. Egill, sonur Katrínar og Guðmundar, fórst með togaranum Sviða úr Hafnarfirði 1941. Meðal afkom- enda Katrínar er Eygló Bald- ursdóttir, lyfjafræðingur. Katrín fylgdi fast á eftir Sigríði Guðna- dóttur í aðaleinkunn, hlaut 4,92. SÓLON Einarsson var fæddur 11. júní 1879 í Bursthúsum í Miðnes- hreppi. Foreldrar hans voru Einar koparsmiður og Þórunn Jóns- dóttir. Sólon var kvæntur Petrún- ellu Magnúsdóttur frá Hópskoti í Grindavík. Sólon fórst með kútt- ernum Geir 24. febrúar 1914. Hann var stýrimaður. Sólon var nemandi föður síns í Keflavík. Meðal afkom- enda Sólons má nefna nafna hans, Sólon Sigurðsson, bankastjóra KB banka í Reykjavík. Sólon Ein- arsson tók miklum framförum í námi sínu í Keflavík. Honum tókst að bæta einkunnir sínar í námi sínu og hækka sig í einkunnum svo sjá má að hann hefir stundað námið af kappi. Dóttir Sólons Ein- arssonar var Júlíana Sigríður, eiginkona Theodórs Mathies- sens læknis í Hafnarfirði. GUÐJÓN Eyjólfsson var fæddur 22. september 1879 í Keflavík. For- eldrar hans voru Eyjólfur Eyjólfs- son Ólafsson og Ólöf Þórarins- dóttir, bæði ættuð undan Eyjafjöllum. Guðjón tók vorpróf 1891 og 1892. Kver, biblíusögur og reikningur voru sterkustu fög Guðjóns. Í öllum þeim greinum fékk hann 5 og 5 1/3. Önnur fög voru honum ekki jafn hugstæð. Guðjón ber með sér létta lund og góðvild. Þannig kemur hann þeim fyrir sjónir er horfa á mynd hans í Keflavíkurbók Mörtu Valgerðar og Jóns Tómassonar. Kona Guðjóns var Svanlaug Árnadóttir frá Hrútatungu. Þau eignuðust fimm börn. Fjöldi mannvænlegra afkomenda rekur ættir sínar til Guðjóns eyjólfssonar og Svan- laugar konu hans. Meðal þeirra má nefna Ottó Guðjónsson, læknir í Ameríku. Ekki má gleyma fjölda nafnkunnra Kefla- víkinga, hörkuduglegum iðnaðarmönnum, framkvæmdastjór- um og athafnamönnum. GRÓA Bjarnadóttir var dóttir Bjarna Bjarnasonar Borgfjörð. Bjarni var virkur félagi í „Von- inni“, góðtemplarastúku í Kefla- vík. Hann var skósmiður. Hann fór til Noregs árið 1897, síðar til Ameríku. Skipið sem hann fór með fórst árið 1898 á leið til Am- eríku. Bjarni á fjölmarga afkom- endur. Meðal þeirra Stefán Jök- ulsson, kennara og hljómlistarmann og útvarps- mann. Gróa Bjarnadóttir var í þriðja sæti nemenda á fyrr- greindu prófi 1891. Kunnátta í kveri og réttritun dró hana nið- ur fyrir tvo pilta, Dagbjart og Gísla Jóhannsson. Hún fékk 5,17 í aðaleinkunn. Gróa var seinni kona Þorvarðs prentara Þorvarðssonar. Hún var móðir Ólafs Kalstað Þorvarðssonar kaupmanns og for- stjóra Sundhallar Reykjavíkur. nafnið Kalstað vísar til Kalsstaða á Hvalfjarðarströnd. Gróa var stjúpmóðir Sig- ríðar konu Einars Olgeirssonar. Nellý, systir mín, var í vist hjá Þorvarði prentara og Gróu á heimili þeirra í Reykjavík. Það var á dögum „hvíta stríðsins“ þegar Nath- an Friedman, rússneskur drengur, var tekinn naðugur á heimili Ólafs Friðrikssonar, ritstjóra Alþýðublaðsins. Við matborðið hjá Þorvarði og Gróu urðu harðar deilur um málið. Þorvarður og Nellý stóðu með Ólafi og drengnum en Gróa og Kjartan stjúpsonur hennar með lögreglu og hvítliðum. Gunnar útvarpsvirkjameistari var annar sonur Gróu og Þorvarps. Árni Skúli Gunnarsson, læknir, er son- ur Gróu og Þorvarps prentar. Nellý, systur minni, féll vel í vist hjá þeim hjónum. Gróa var skartgefin kona og fríð eins og sjá má. DAGBJARTUR Einarsson, útvegs- bóndi að Velli, síðar í Ásgarði í Grindavík, f. 18. október 1876 í Garðhúsum í Grindavík, d. 14. jan- úar 1944. Dagbjartur var bráð- skarpur námsmaður. Hann var jafnvígur á allar námsgreinar sem kenndar voru. Dóttir Dagbjarts var Vilborg, eiginkona Peter Wige- lund, skipasmiðs. Dætur þeirra, Erla og Svala, báðar vel kunnar, eiginkonur Kristjás hljómlist- armanns og Steinþórs Steingríms- sonar, píanóleikara. Pétur Krist- jánsson, söngvari, er langafabarn Dagbjarts. Til hans streyma óskir og vonir þessa daga. Dagbjartur, útvarpsmaður í Grindavík, var 7 ára þegar afi hans og nafni féll frá. „Aldrei hefir annar eins söknuður búið í brjósti drengs á þessum aldri og þegar ég missti afa minn,“ sagði Dagbjartur er hann léði mér myndina til birtingar. Einkunnir Dagbjarts við vorpróf 6.og 7. apríl 1891: Kver 5 2/3, biblíusögur 5, reikn- ingur 5 2/3, lestur 5 2/3, réttritun 5 2/3, skrift 5. Dagbjartur og Pétur kennari voru þremeningar. Eiginkona Dagbjarts var Valgerður Guðmundsdóttir í Grindavík. Þau eignuðust 8 börn. Þau voru: Vilborg Júlía Kristín, Guðrún, Margrét, Jóhanna, Einar Jónsson, Guðmundur, Eiríka Ketilríður Katla, Valbjört, Bryndís. Dagbjartur eignaðist dóttur með Sigríði Magn- úsdóttur árið 1906. Hún hét Hrefna. GUÐMUNDUR Helgi Þorvarðarson var sonur Þorvarðar beykis Þor- steinssonar og konu hans Ragn- hildar Guðmundsdóttur. Guð- mundur fæddist í Þorvarðarhúsi í Keflavík 12. apríl 1879. Hann varð verslunarmaður í Keflavík en síðar kaupmaður í Reykjavík. Kona hans var Nikólína Nikulásdóttir. Þor- varður Helgason, mennta- skólakennari, rithöfundur og leik- ari er dóttursonur Guðmundar Þorvarðarsonar. Guðmundur Þor- varðarson var afbragðsnáms- maður. Kverið dró hann niður í einkunn. Þegar það er frátalið hefði hann verið í hópi hinna hæstu. Hann var 5. í röðinni, 4,92. Ári síðar við vorpróf 1892 hefir Guðmundur Þorvarðarson tekið sjálfan sig taki og bætt einkunn sína. Þá fær hann 5,05 og er 3. í röðinni. ERLENDSÍNA María Jónsdóttir var fædd 7. nóvember 1880 í Keflavík. Hún var dóttir Jóns Eiríkssonar og Valdísar Erlendsdóttur. Maður Er- lendsínu var Guðlaugur Guðnason frá Berustöðum í Holtahreppi. Sonur þeirra Erlendsínu og Guð- leifs var Ragnar Guðleifsson, fyrsti bæjarstjóri Keflavíkur. Erlendsína tók próf vorið 1891 og árið 1892. Hún fluttist úr 10. sæti í 8. sæti og hækkaði úr 4,58 í 4,81. Erlendsína lést 17. október 1960, tæplega átt- ræð. Allir Keflvíkingar þekktu Er- lendsínu og þá feðga Guðleif og Ragnar að góðu einu. Ragnar varð kennari um árabil og forystumað- ur verkalýðssamtaka. SIGRÍÐURGuðnadóttir var í 5. sæti á vorprófi árið 1891. Ári síðar, 1892, er hún efst, þáf ær hún 5,29. Hún var fædd í Langagerði, Hvolshr., Ragnárvallasýslu, 5. mars 1881. Maður hennar var Helgi Jens- son frá Stóra-Knarrarnesi á Vatns- leysuströnd. Sigríður var síðar meir oftast kennd við Skólann. Hún og eiginmaður hennar, Helgi Jensson, sjómaður, bjuggu í Skólanum með fjölda barna sinna. Helgi var val- inkunnur sjómaður og fræg skytta að sögn. Ég minnist þess að kona mín, Birna, sem alin var upp í Læknishúsinu, sem síðar var nefnt Kirkjulundur, sagði margar skemmtilegar sögur af sonum Sigríðar og helga. Þær eru ófáar sögurnar sem Birna mín sagði mér um ævintýri þeirra Adda og Kobba í Skólanum. Allt lifnar það við og stígur fram á svið sög- unnar þegar flett er sögu og skýrslum barnaskólans. Í sögu Keflavíkur er eytt allmörgum blaðsíðum til þess að tíunda fjár- hagsvandræði fólksins sem bjó í skólanum og rakið í smáat- riðum. Annað efni hefði átt að sitja þar í fyrirrúmi. Meðal margra áhugaverðra frásagna Birnu konu minnar eru gam- ansamar frásagnir hennar af bræðrunum í „Skólanum“, Adda og Kobba. Sögurnar eru á geisladiski og segulbandsspólum. Hjónin, Sigríður og Helgi, sómdu sér vel á velli. Bjuggust þau vel, snyrtileg og prúð og glöð í fasi og framkomu. INGIBJÖRG Magnúsdóttir var 11. í röðinni á vorprófi 1891. Hún fékk 4,54 í aðaleinkunn. Ingibjörg var fluglæs og stóð sig vel í reikningi. Ingibjörg var dóttir Magnúsar Engilbertssonar og Önnu Þor- bjargar Gísladóttur. Bróðir hennar var Engilbert Magnússon, fæddur í Gerðahreppi, síðar skipstjóri í Reykjavík. Þau systkinin, Ingi- björg og Engilbert, eignuðust hvorugt afkomendur. Ingibjörg Magnúsdóttir var bráðmyndarleg eins og myndin ber með sér. Þá voru 17 nemendur í skólanum Höfundur er þulur. Eftir Pétur Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.