Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 47

Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 47 að þessi þróun er að nokkru leyti slakri markaðssetningu að kenna, en því til sönnunar þarf ekki annað en að bera saman umfjöllun fjöl- miðla um skák annars vegar og brids hinsvegar um áratugaskeið. Við ætlum í vetur að reyna að blása til sóknar og efla tengsl B.R. við fjölmiðla með því að tryggja skilvirka umfjöllun um starfsemi okkar í fjölmiðlum og á netinu. Fé- lagir eru hvattir til þess að senda inn áhugaverð spil eða forvitnileg- ar fréttir sem reynt verður að koma á framfæri í fjölmiðlum og/ eða á heimasíðu B.R. , en Ísak Örn Sigurðsson mun halda utan um þennan þátt. Hægt er að koma efni á framfæri við einstaka stjórnar- meðlimi eða í tölvupósti til stjorn- @bridgefelag.is. Við munum í þetta sinn ekki póstsenda bréf og fréttir, heldur koma öllu efni á framfæri í tölvu- pósti. Reynt verður að hafa upp á þeim sem ekki geta tekið við tölvu- pósti og senda þeim efni upp á gamla mátann. Það er því mik- ilvægt að félagar láti okkur vita um virk póstföng. Keppnisgjald verður áfram það sama og undanfarin ár, þ.e. kr. 700, en félagsgjald verður kr. 2000. Þeir sem greitt hafa félagsgjaldið fyrir áramót öðlast rétt til að taka þátt í léttri verðlaunakeppni end- urgjaldslaust. Reyndar stóð til að gera þetta á síðustu vertíð en það fórst fyrir, og hörmum við það – gerum bara betur í þetta sinn. Vart hefur orðið við að allnokkr- ir bridsarar búa við svo krappan kost að þeir ráða ekki við að greiða fullt keppnisgjald. Það er auðvitað sárt til þess að vita að sú sé raun- in, og vill stjórn B.R. reyna að koma til móts við þennan hóp með því að bjóða upp á helmingsgjald fyrir þá sem til greina koma. Þetta gildir um alla námsmenn og aðra þá sem sannanlega eiga lítið til skiptanna. Þeim sem telja sig til þessa hóps er boðið að snúa sér til formanns sem tryggir afsláttinn þegar við á. Jafnframt þessu munu þeir félagsmenn sem teljast til lög- giltra eldri borgara (þ.e. 67 ára og eldri) greiða helmingsgjald. Óreyndum spilurum verður nú gefinn kostur á að velja sér „bak- hjarl“ úr röðum stórmeistara B.R., þ.e. spilara sem leita má til með spurningar eða vandamál, svo sem viðeigandi atferli við spilaborðið, kerfisfræði o.s.frv. Þeir sem áhuga hafa á geta snúið sér til stjórnar félagsins eða sent tölvupóst til stjorn@bridgefelag.is. Að lokinni vetrarvertíðinni verð- ur krýndur „bronsstigameistari“ B.R. með viðeigandi verðlaunum. Haustdagskrá Bridsfélags Reykjavíkur Spilamennska BR byrjar þriðju- daginn 14. september. Haustdag- skráin er með nokkuð hefðbundnu sniði. Bryddað verður upp á nýju spilaformi, stuttri Swiss-sveita- keppni með stuttum leikjum. Spil- að er í húsnæði BSÍ, Síðumúla 37. Spilamennska byrjar kl. 19.30 á þriðjudögum. Á föstudagskvöldum er sem fyrr spilaður eins kvölds Bridshátíð, sumarbrids Helgina 11.-12. sept. næstkom- andi ætlar Sumarbrids 2004 að halda bridshátíð. Dagskráin Laugardagurinn 11. sept.: Monrad barómeter, opinn tvímenningur, hefst klukkan 11:00 og lýkur um kl 18:00. Skráningarfrestur til kl. 22:00 föstud. 10. sept. Sunnudagurinn 12. sept.: Monrad sveitakeppni, 8 spila leikir, 7 umferðir, einnig frá kl. 11:00 til 18:00. Skráningarfrestur til kl. 10:45 sunnud. 12. sept Skráning er hafin! Keppnisstjór- arnir Björgvin Már (661-3249), Ísak (822-7649) og Sigurbjörn (695-2020) taka við skráningu, einnig má skrá sig hjá BSÍ (587- 9360). Það verður tekið við skrán- ingum, innan frests, á meðan hús- rúm leyfir. Þátttökugjald í hvort mót er 2 þús kr á spilara. Að sjálf- sögðu verður spilað um silfurstig í báðum mótum. Keppnisstjórar munu glaðir hjálpa áhugasömum spilurum að finna makker og/eða sveitarfélaga, sé þess óskað. Hefðbundinni sumarspila- mennsku lýkur fljótlega, rúmlega vika er nú eftir og allir hvattir til að mæta og ná almennilegum loka- hnykk. Efstu pör síðustu kvöld: Þriðjudagur 24. ágúst Helgi Jónsson - Helgi Sigurðsson 45 Halldór Svanbergss - Kristinn Krist. 29 Miðvikudagur 25. ágúst 1 Hlynur Angantýss - Herm. Friðriks 11 2 Helgi Samúels - Georg Ísaksson 8 Fimmtudag 26. ágúst: Frímann Stefánsson - Páll Þórsson 22 Heimir Tryggvason - Gísli Tryggvas 19 Föstudagur 27. ágúst: Jacqui McGreal - Mary Pat Frick 78 Valur Sigurðs - Kristján Blöndal 48 Sex sveitir spiluðu miðnætursveitó: Harpa Fold Ingólfs - Brynja Dýrborgar, Baldur Bjartmars - Þórir Sigursteinsson. Spilað er í sumarbrids fimm kvöld í viku, mánudaga til föstu- daga. Síðasti spiladagur í sumar er 12. september nk. Bridsfélag Reykjavíkur Vetrarstarf BR er að hefjast og sendi Ísak Örn Sigurðsson blaða- ftr. félagsins þættinum eftirfar- andi pistil: Þá fer vetrarvertíðin að byrja, og vonandi með fullum krafti eins og í fyrra. Haustdagskráin verður með nokkuð hefðbundnum hætti, nema hvað í stað board-a-match keppninnar kemur „Swiss“ sveita- keppni, þ.e. stuttir leikir í líkingu við miðnætursveitakeppnina vin- sælu. Svo virðist sem bridsspila- mennska hafi átt nokkuð undir högg að sækja undanfarið, þótt reyndar hafi ekki sést þess sláandi merki hjá B.R. Það er nokkuð ljóst tvímenningur með ýmsu sniði. Þá hefst spilamennska kl. 19.00. Boðið verður upp á þátttöku í verðlauna- potti, og miðnætursveitakeppnin verður á sínum stað. Tekið er við skráningu í tölvupósti allt að klukkutíma fyrir spilamennsku á tölvupóstfangið keppnisstjori- @bridgefelag.is 14. september til 28. september Þriggja kvölda Hausttvímenning- ur. Hefð er komin fyrir því að byrja spilaárið á þessari keppni. Spilaform er Monrad Barómeter og fjöldi spila í umferð fer eftir þátttöku. 5. október til 26. október Swiss-sveitakeppni Spilaðir eru 7 spila leikir, 4 umferðir á hverju kvöldi. Raðað er eina umferð fram í tímann og spilað er um 6 vinn- ingsstig í leik. Tekið skal fram að notast er við IMP-skalann og útreikningur ekki miðaður við tvímenning. 2. nóvember til 23. nóvember- hraðsveitakeppni. Ein vinsælasta keppni BR á haustin. Skipt verður í riðla eftir árangri og hefur verið mikil keppni um að detta ekki niður um riðil. Þegar heim er komið er hægt að skoða butlerinn á www.bridgefelag.is 30. nóvember til 14. des. Cavendish-tvímenningur. Sama spilaform og á Kauphallar- mótinu sáluga. Skipt er eftir barómeter- eða Monrad-formi eftir fjölda para. 21. desember Jólasveinatvímenningur. 30. desember Minningarmót Harðar Þórðar- sonar. Jólamót BR og SPRON. Spilamennska byrjar kl. 17.00. Spilaðar verða 11 umferðir, 4 spil í hverri umferð. Fyrirkomulag er Monrad Barómeter. Áætluð móts- lok eru um kl. 23.00. Spilað er í húsnæði BSÍ og tekið er við skrán- ingu upp að 56 pörum. Heimasíða BR:www.bridgefelag- .is Eldri borgarar Kópavogi Það var spilað á 7 borðum föstu- daginn 27. ágúst og urðu úrslitin þessi í N/S: Oliver Kristófss. - Sæmundur Björnss.192 Júlíus Guðmundss. - Óskar Karlss.179 Ólafur Ingvarss. - Ragnar Björnss.169 A/V: Heiður Gestsd. - Ingiríður Jónsd.188 Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss.187 Lilja Kristjánsd. - Einar Einarss.175 Regluleg vetrarstarfsemi Félags eldri borgara hófst á ný í gær, 3. september. Sumarbrids Efstu pör undanfarin kvöld: Mánudagur 30. ágúst Hermann Friðrikss- Ísak Örn Sigurðsson 32 Friðrik Jónss-Jóhannes Guðmannsson 21 Þriðjudagur 31.ágúst Vilhjálmur Sig. - Sigurbjörn Haraldsson 43 Björn Friðriks-Sverrir Þórisson 31 Miðvikudagur 1. september Hrafnhildur Skúlad-Jörundur Þórðars. 33 Unnar A. Guðm- Jóhannes Guðmannsson 16 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Mercedes Benz S-420 árg. '92, ek. 207 þús. 16" og 19" álfelgur. Geislaspilari+kraftmagnari og 10 hátalarar. Hleðslujafnari og ABS. Leðuráklæði. Reyklaus. Toppein- tak. Skipti á dýrari jeppa. Uppl. í síma 894 5759. Mercedes Benz 190 E, 1,8, árg. '91, ek. aðeins 120 þús. km. Sjálfsk., topplúga, álfelgur. Að- eins tveir eigendur frá upphafi. Þjónustubók. Verð 750 þús. Ath. skipti. Uppl. 897 9295. Góður smábíll á fínu verði til sölu. Skoda Felicia '98, 5 dyra, ekinn ca 132 þús., beinskiptur, 1300 vél. Einungis til sölu fram yfir helgi á 230 þús. staðgreitt. Uppl. í síma 699 5575. Fjölskyldubíll til sölu. Þessi frá- bæri fjölskyldubíll er til sölu. Áhvílandi bílalán - yfirtaka mögu- leg. Nánari uppl. í síma 898 3310. Chevrolet. Til sölu Camaro V8 5,7 l 1993, kraftmikill og mikið endur- nýjaður, nýskoðaður. Tilboð eða skipti. S. 868 4789. Glæsileg ný kennslubifreið, Subaru Impreza 2004, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. Coleman Cheyenne 10 feta felli- hýsi til sölu. Verð 740.000. Ný hljóðlát miðstöð, bremsur og geymir. Uppl. í síma 567 5734 eða 895 5734. Nýr Toyota Landcruiser 100 Til sölu Toyota Landcruiser 100, bensín, 4,7, nýskr. 6/04, svartur, grátt leður að innan, topplúga, aukasæti, nýr bíll. Uppl. í Toyota- salnum, 421 4888/899 0555. Til sölu O. Astra, fallegur bíll, árg. '99, bein sala eða skipti á ódýrari. Sími 690 7786 eða 421 7786. Nissan Micra 5 dyra, beinsk., árg. '99, ek. 67 þús. Hvítur, vel með farinn, m. útv/segulb. Sam- læsing. Fjögur harðkorna vetrar- dekk fylgja. Skoðaður '05. Reyk- laus. V. 690 þús. Staðgr. 610 þús. Uppl. í síma 698 7722. Þarftu að auglýsa bílinn þinn? Mundu eftir bílablaðinu á mið- vikudögum. Auglýsing með mynd á kr. 1.500. Komdu með bílinn og við tökum myndina þér að kost- naðarlausu. Pantanafrestur í bíla- blaðið er til kl. 12 á þriðjudögum. Auglýsingadeild Morgunblaðsins, sími 569 1111. Netfang: augl@mbl.is mbl.is FRAMKVÆMDASTJÓRN Kven- réttindafélags Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Það er grundvallaratriði að æðsti dómstóll þjóðarinnar sé jafnt skip- aður konum og körlum. Hæstiréttur Íslands hefur sætt nokkurri gagn- rýni í þjóðfélaginu undanfarin miss- eri vegna dómafordæma sinna í ákveðnum málaflokkum og hefur því verið fram haldið að þau fylgi ekki réttarvitund almennings. Ef þess er gætt að konur verði skipaðar í Hæstarétt ekki síður en karlar má ætla að þau sjónarmið sem byggt er á við mat dómstóla endurspegli frek- ar þau viðhorf sem eru almennt ríkjandi í þjóðfélaginu. Ef litið er til þeirra ágætu einstak- linga sem gegna starfi hæstaréttar- dómara í dag er ekki annað hægt en að draga þá ályktun að miðaldra karlar séu þeir sem teljast æskilegir kandidatar í starf hæstaréttardóm- ara af hálfu ríkisvaldsins. Stjórn Kvenréttindafélags Íslands telur hins vegar augljóst að slík einsleitni hafi leitt til umrædds misræmis milli dóma Hæstaréttar og réttarvitundar almennings. Í ljósi sögunnar eru sáralitlar lík- ur á því að konur verði skipaðar í starf hæstaréttardómara og það þrátt fyrir ákvæði jafnréttislaga um jafna möguleika kynjanna við stöðu- veitingar. Dómsmálaráðherra ætti því, frekar en að velja karl úr hópi umsækjanda, að nýta hvert tækifæri sem honum gefst til að skipa konu í starf hæstaréttardómara til að bæta það ójafna kynjahlutfall sem er til staðar í Hæstarétti í dag. Þá er rétt að minna á ákvæði jafn- réttislaga þar sem segir að atvinnu- rekandi skuli vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnu- markaði, svo og innan fyrirtækja og stofnana og er ríkisvaldið þar ekki undanskilið. Stjórn Kvenréttindafélags Íslands telur að dómsmálaráðherra hafi brotið ákvæði jafnréttislaga með skipun hæstaréttardómara árið 2003 og hvetur til þess að sagan endurtaki sig ekki. Stjórnin skorar því á dóms- málaráðherra að velja konu í starf hæstaréttardómara sem nú er laust. Jafnframt skorar stjórnin á ríkis- stjórn Íslands að standa við eigin jafnréttisáætlun og gera, nú sem eft- irleiðis, allt sem í hennar valdi stend- ur til að koma á jafnri skipan kvenna og karla í æðstu embætti þjóðarinn- ar.“ Kvenréttindafélag Íslands Æðsti dómstóll sé jafnt skipaður konum og körlum KEPPT verður í steinakasti, sleggjukasti með skafti, lóðkasti yfir rá og staurakasti á alþjóðlegu Há- landaleikunum sem fram fara á Akranesi í dag. Leikarnir hefjast kl. 14, við skógræktina. Meðal þátttak- enda verða Wout Ziljstra Evrópumeistari í Hálandaleikum og Colin Breyce frá Skotlandi. Íslenska liðið skipa þeir Auðunn Jónsson, Pétur Guðmunds- son kúluvarpari, Óðinn Björn Þor- steinsson kringlukastari, Kristinn Óskar Haraldsson, Jón Valgeir Vill- iams og Georg Ögmundsson, en auk þess að hér sé um alþjóðlegt mót að ræða er líka keppt um Íslandsmeist- aratitil. Alþjóðlegir Hálanda- leikar á Akranesi MINNINGARMÓT um Guðmund Arnlaugsson, fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og alþjóðleg- an skákdómara, verður haldið á morgun, sunnu- daginn 5. september klukkan 13, í Mennta- skólanum við Hamra- hlíð. Tefldar verða sjö um- ferðir tvöfaldar, tvisvar sinnum fimm mínútur. Þátttökugjald er 500 krón- ur fyrir fullorðna en ókeypis verður fyrir ung- linga 16 ára og þá sem yngri eru. Fyrstu verð- laun eru 30.000 krónur, samkvæmt upplýsingum aðstandenda skákmótsins. Skák Minningarmót um Guðmund Arnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.