Morgunblaðið - 04.09.2004, Qupperneq 49
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 49
Pétur Jónasson var nýlega ráðinn fram-kvæmdastjóri verkefnisins Tónlist fyriralla, en tilgangur þess er að kynna ís-lenskum grunnskólabörnum ólíkar teg-
undir tónlistar sem þau læri að meta í skólum sín-
um í lifandi flutningi fremstu listamanna.
Tónlist fyrir alla er faglegt uppeldisstarf og
reglubundinn þáttur í tónmenntar- og tónlistar-
kennslu barna og unglinga. Þannig hafa margir af
fremstu tónlistarmönnum Íslendinga verið í sam-
starfi við kennara um tónleika og fræðslu og þátt-
töku nemenda. Dagskrá Tónlistar fyrir alla er
fjölbreytt og eiga allar tegundir tónlistar þar
heima. Til þessa hafa klassísk tónlist, nútíma-
tónlist, óperutónlist, djass, tangó, vísnatónlist,
heimstónlist og barnalög verið flutt skólabörnum.
Á hverju byggist Tónlist fyrir alla?
„Segja má að hugmyndafræði verkefnisins
byggist öll á fagurri hugsjón Jónasar Ingimund-
arsonar píanóleikara um að hvert mannsbarn á
landinu eigi rétt á að njóta fallegrar og lifandi tón-
listar í hæsta gæðaflokki og fái þannig tækifæri til
þess að kynnast tónlist í sinni bestu mynd. Í fáum
orðum sagt verður þetta mitt stærsta hlutskipti,
þ.e. að framfylgja þessum hugmyndum, og er mér
það ljúft þar sem ég þekki vel af eigin raun þessa
vinnu, þ.e. tónleikahald fyrir skólabörn. Ég tek
við þessu starfi af mjög hæfri manneskju sem er
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, en hún hefur
gegnt starfinu undanfarin fjögur ár. Mér sýnist að
meira en öðrum beri henni að þakka vöxt og við-
gang þessa verkefnis á undanförnum árum.“
Hvert verður þitt helsta framlag í nýju starfi?
„Ég hef hug á að víkka út starfsemina í tvenn-
um skilningi – annars vegar að ná inn fjármagni
til þess að hægt sé að fullnægja markmiðum Tón-
listar fyrir alla, sem eru að hvert grunnskólabarn
á landinu fái að hlusta á tvenna tónleika á ári af
þessu tagi alla sína grunnskólagöngu. Hér vantar
enn nokkuð upp á þótt markiðið færist nær með
hverju árinu.
Hins vegar mun ég leggja mikla áherslu á þró-
unarstarfið, þ.e. að nýjar efnisskrár verði hann-
aðar sem höfði æ meir til áhugasviðs barna, og er
ég þá jafnt að tala um fræðslugildið sem tilfinn-
ingalega upplifun, sem er jú kannski það mik-
ilvægasta í þessu öllu saman. Ég mun sjá til þess
að sem mest breidd verði í verkefnavali – allar
tegundir tónlistar komi þar fram, fyrir utan það
sem þau heyra alla daga. Ég er einmitt á leið til
Kaupmannahafnar á stóra norræna hátíð sem
helguð er skólatónleikum einvörðungu – þar fæ ég
tækifæri til þess að hlusta á tugi tónleika sem
samkvæmt dagskránni virðist spanna ótrúlegustu
svið. Það verður gott veganesti inn í fyrsta vet-
urinn í nýju starfi og er ég fullur tilhlökkunar.“
Tónlistarfræðsla | Nýr framkvæmdastjóri Tónlistar fyrir alla tekur til starfa
Stefnir á þróun og útvíkkun
Pétur Jónasson
fæddist í Reykjavík árið
1959. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamra-
hlíð 1977 og einleikara-
prófi á gítar frá Tón-
listarskóla Garðabæjar
sama ár. Þá tók hann
burtfararpróf frá Estu-
dio de Arte Guitarr-
ístico í Mexíkóborg
1980 og hefur starfað á ýmsum sviðum ís-
lensks tónlistarlífs síðan. Pétur er kvæntur
Hrafnhildi Hagalín leikskáldi.
Landshornaflakkarar á Skjá 1
LANDSHORNAFLAKKARARNIR
Súsanna Svavarsdóttir og samstarfs-
fólk hafa glatt mig og frætt um lands-
byggðina í sumar. Ég vonast til að
þættirnir verði endurfluttir.
Kærar þakkir.
Guðlaug Karvelsdóttir.
Þakklæti fyrir menningarnótt
ÉG vil koma á framfæri þakklæti fyr-
ir menningarnóttina og eins senda
Tedda þakkir, en hann var með varð-
eld á Landsmiðjulóðinni á menning-
arnótt og bauð upp á kaffi og kökur
og þar var hann með listaverkin sín
til sýnis, þar var margt skemmtilegt
að skoða.
Ánægður menningarnæturgestur.
Hver á bókina?
Á EINHVER bókina eftir Jón Múla,
sem kom út í kringum 1980, sem hef-
ur verið kölluð Djassbókin? Ef ein-
hver getur útvegað mér þessa bók þá
vinsamlega hafið samband í síma
588 2378, eða á netfangið: ssair@isl.is
Stafræn myndavél tapaðist
SAMSUNG Digimax 430 silfurlituð
stafræn myndavél tapaðist á Menn-
ingarnótt í miðbæ Reykjavíkur og er
hennar sárt saknað. Annað hvort á
eða í grennd við Lækjartorg eða á
leiðinni upp að Óðinsgötu. Myndavél-
in nýtist engum nema eiganda vegna
þess að til að hægt sé að nota hana
vantar alla fylgihluti. Skilvís finnandi
vinsamlegast hafið samband við Guð-
mund í síma 691 5945. Fundarlaun.
Leðurjakki týndist
LEÐURJAKKI týndist sl. föstudag
á Kapital. Þetta er svartur mittis-
jakki og er hans sárt saknað. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
694 2970. Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Í TENGSLUM við frumsýningu á kvikmyndinni Gretti (Garfield) var haldin
sérstök styrktarsýning fimmtudaginn 5. ágúst í Smárabíói fyrir Umhyggju
– samtök langveikra barna á Íslandi.
Íslandsbanki, einn af samstarfsaðilum myndarinnar, hafði veg og vanda
af kynningu á sýningunni og seldist upp á mettíma. Allur ágóði af sýning-
unni, 300 þúsund kr., rann óskiptur til Umhyggju.
Brynhildur Magnúsdóttir hjá Íslandsbanka og Guðmundur Breiðfjörð
fulltrúi Skífunnar, dreifingaraðila myndarinnar á Íslandi, afhentu Rögnu
Marinósdóttur stjórnarformanni Umhyggju og Jóni Kristni Snæhólm hinn
kærkomna fjárstyrk í höfuðstöðvum félagsins, Sjónarhóli, Háaleitisbraut
11–13. Morgunblaðið/Árni Torfason
Grettir er umhyggju-
samur köttur
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3 dxc4 5.
a4 Bf5 6. Re5 Rbd7 7. Rxc4 Rb6 8. Re5
a5 9. g3 e6 10. Bg2 Bb4 11. O-O h6 12. f3
O-O 13. e4 Bh7 14. Be3 Rfd7 15. De2
Rxe5 16. dxe5 Rd7 17. Hfd1 De7 18. f4
Hfd8 19. Df2 f6 20. Ra2 fxe5 21. Rxb4
axb4 22. f5 Rf6 23. h3 Hxd1+ 24. Hxd1
Hd8 25. Hxd8+ Dxd8 26. Dc2 exf5 27.
Dc4+ Kh8 28. Dxb4 Dd3 29. Kf2
Staðan kom upp í atskákmóti í Sao
Paulo sem lauk fyrir skömmu í Brasilíu.
Viswanathan Anand (2783) hafði svart
gegn Giovanni Vescovi (2648). 29... f4!
30. gxf4 exf4 31. Df8+ Bg8 32. Bxf4
Dd4+ 33. Kg3 Dg1! 34. Kf3 Rxe4! 35.
Be3 Dd1+ 36. Kf4? hvítur stæði einnig
höllum fæti eftir 36. Kxe4 Dd5+ 37. Kf4
Dxg2 en textaeikurinn leiðir til máts.
36... g5+ 37. Kf5 hvítur hefði orðið mát
eftir 37. Kxe4 Dd5#. 37...Dd7+ 38. Kg6
De6+ og hvítur gafst upp enda verður
hann mát eftir 39. Kh5 Rg3#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
GOETHE ZENTRUM
www.goethe.is
551 6061
Laugavegi 59, s. 551 8258.
debbie bliss garn
debbie bliss prjónabækur
Nýtt
Nýtt
Póstsendum
Leikfimi fyrir konur
Leikfimin hefst 8. september
Frjáls aðgangur í eftirtalda tíma
Mánudaga kl. 10:05 - 11:00
Þriðjudaga kl. 17:35 - 18:30
Miðvikudaga kl. 10:05 - 11:00
Fimmtudaga kl. 17:35 - 18:30
Tilvalið fyrir þær sem vinna óreglulegan vinnutíma eða
stunda vaktavinnu. Auk þess aðgangur að tækjasal að vild.
Leiðbeinendur: Ásta Vala Guðmundsdóttir og Erna
Kristjánsdóttir, lögg. sjúkraþjálfarar.
Erum komin í nýtt og stærra húsnæði.
Skráning í síma 587 7750
Nánari upplýsingar www.sstyrkur.is
Erna Kristjánsdóttir
sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfun Styrkur • Stangarhyl 7 • 110 Reykjavík
Ásta Vala
Guðmundsdóttir
sjúkraþjálfari
RANGLEGA var hermt í dálkinum
Staður og stund í Morgunblaðinu í
gær að Guðbergur Bergsson flytti
fyrirlestur um Kenjarnar eftir Goya
í Hafnarhúsinu í dag. Hið rétta er, að
fyrirlestur Guðbergs verður sunnu-
daginn 19. september klukkan 15.
LEIÐRÉTT
Röng dagsetning
FORSALA miða á sögulega
endurkomutónleika ísfirsku hljóm-
sveitarinnar Grafíkur í Austurbæ
fimmtudaginn 9. september er haf-
in.
Miðar eru seldir á Hard Rock
Café og á concert.is.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni
af því að tuttugu ár eru liðin síðan
platan Get ég tekið cjéns kom út.
Hljómsveitin var ein sú áhrifa-
mesta á 9. áratug síðustu aldar og
reis velgengni hennar hvað hæst
með vinsældum laga eins og „1000
sinnum segðu já“, „Sextán“ og
„Húsið og ég“ – en þau er öll að
finna á Get ég tekið cjéns sem
kom út fyrir jólin 1984.
Grafík lék á tvennum tónleikum
á Ísafirði í sumar og komust þá
færri að en vildu. Vegna fjölda
áskorana var því ákveðið að halda
tónleika á höfuðborgarsvæðinu en
aðeins verða haldnir þessir einu
tónleikar í Austurbæ. Tónleikarnir
hefjast kl. 20. Tónleikarnir eru
haldnir í samvinnu við Concert
ehf.
Tónleikar | Grafík í Austurbæ
Forsala hafin