Morgunblaðið - 04.09.2004, Side 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert mjög listhneigð/ur og hefur
gaman af hvers konar handverki. Dag-
urinn í dag hentar sérstaklega vel til að
hefjast handa við nýtt verkefni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert mjög ástríðufull/ur þessa dag-
ana. Láttu þá/þann sem þú elskar vita
af tilfinningum þínum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að leggja þig fram um að bæta
samskiptin innan fjölskyldunnar í dag.
Mundu að það kemur upp neikvæðni í
öllum fjölskyldum og að það skiptir
höfuðmáli hvernig unnið er úr henni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla þörf fyrir að segja ein-
hverjum eitthvað í dag. Það er eins og
þú þurfir að létta einhverju af hjarta
þínu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur eytt óvenju miklum peningum
að undanförnu. Reyndu að sýna skyn-
semi í eyðsluseminni og kaupa hluti
sem endast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru fjórar plánetur í merkinu þínu
og brátt mun Merkúr bætast í hópinn.
Þetta veitir þér bæði aukna orku og
aukið sjálfstraust.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft á ró og næði að halda til að ná
jafnvægi. Leitaðu leiða til að vera ein/n
með sjálfri/sjálfum þér í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu að lenda í samkeppni við vin
þinn eða vinkonu. Ef þú finnur til öf-
undar skaltu minna þig á ástæðurnar
fyrir því að þú valdir þér hann/hana að
vini.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður tími til aðgerða. Þú hef-
ur mikinn metnað og átt auðvelt með
að fá fólk til að hlusta á þig. Mundu að
velgengni felst oft í réttri tímasetn-
ingu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður tími fyrir þig til að
leggjast í ferðalög eða fara aftur í
skóla. Þig einfaldlega þyrstir í fróðleik.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur mikla þörf fyrir að bæta
sjálfa/n þig þessa dagana. Þetta má að
hluta til rekja til hrifningar þinnar á
einhverjum öðrum og löngunar þinnar
til að ganga í augum á viðkomandi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Spenna í samskiptum þínum og maka
þíns mun ekki skila þér neinu nema
hugarangri. Þú ættir því að reyna að
sitja á þér.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru stórhuga, skipulögð og hæfileikarík.
Þau eiga spennandi ár framundan
sem býður upp á fjölmarga möguleika.
Þau þurfa því að velja hvaða leið
þau vilja fara.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Gamalt stef.
Norður
♠K103
♥D98 N/NS
♦K76
♣ÁD86
Vestur Austur
♠62 ♠ÁG987
♥K75 ♥643
♦8532 ♦Á94
♣G1092 ♣73
Suður
♠D54
♥ÁG102
♦DG10
♣K54
Tímaritið The Bridge World hefur
komið út samfleytt frá árinu 1929, tólf
tölublöð á ári. Uppsafnað efni er því
mikið og margt sem komið er til ára
sinna þolir vel endurbirtingu. Und-
anfarin ár hafa ritstjórar tímaritsins
tekið upp þann skemmtilega sið að
endurbirta sígildar greinar sem náð
hafa 50 ára aldri. Spilið að ofan er úr
grein eftir John C. Stablein frá árinu
1954.
Sagnir voru þessar:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf 1 spaði 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Viðfangsefni Stableins er hið marg-
fræga kapphlaup sóknar og varnar í
þremur gröndum. Vestur kom út með
spaðasexu og sagnhafi stakk upp kóng
blinds til að verja tíuna. Vestur drap og
skipti yfir hjarta, en sagnhafi vildi ekki
hleypa vestri inn til að spila spaða, svo
hann fór upp með ásinn og rak út tíg-
ulásinn. Allt rétt reiknað – austur átti
tígulásinn og vestur hjartakónginn, svo
vörnin komst ekkert áleiðis við að frí-
spila spaðann.
Þetta kapphlaup vann sagnhafi, en
það hefði farið á annan veg ef austur
hefði verið með hjartakóng og vestur
tígulás. Þá væri spilið dæmi um snilld-
artilþrif í vörn.
Eins og sjá má hefur spilatækninni
lítið fleygt fram á 50 árum. Sagntækn-
in er hins vegar betri. Ef suður doblar
einn spaða (neikvætt, til að sýna
hjarta), verður norður sagnhafi í þrem-
ur gröndum, og hann þolir vel útspil í
spaða upp í K10x.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík | Mánu-
dagur: Brids kl. 13.00. Línudanskennsla kl.
18.00. Samkvæmisdansar framh. kl.19.00
og byrjendur kl. 20.00. Þriðjudagur: Skák
kl. 13.00. Kl. 13–21.
Framtíðarhópur Samfylkingarinnar | Op-
inn morgunverðarfundur um stöðu jafn-
réttismála og verðleikasamfélagið undir
yfirskriftinni: Bakka í vörn eða sækja
fram? verður haldinn í Iðnó laugardaginn
4. september kl. 11–13.
Myndlist
Saltfisksetur Íslands | Jón Adólf Stein-
ólfsson mun opna sína fjórðu einkasýn-
ingu í listsýningasal Salfisksetri Íslands í
Grindavík. Nefnist sýningin Úr viðjum hafs
og eru öll verkin unnin úr rekavið. Sýn-
ingin verður opnuð fjórða sept. og lýkur
24. sept. Opið alla daga frá kl. 11 til 18. Kl.
14–18.
Askalind 4 | Maria Antal sýnir málverk
unnin upp úr mánaðardvöl í íslenskri nátt-
úru.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Dúettinn Halli og Kalli
skemmta.
Búálfurinn Hólagarði | Hermann Ingi úr
Logum.
Cafe Amsterdam | Hljómsveitin Sex Volt.
Cafe Catalina | Sváfnir Sigurðarson
trúbador spilar.
Cafe Kósý Reyðarfirði | Hljómsveitin Sent
spilar.
Classic Rock | Hljómsveitin 5 á Richter
heldur uppi stuðinu.
Dubliner | Spilafíklarnir leika.
Flugskýli Íslandsflugs | Papar spila.
Gaukur á Stöng | Breakbeat.is Dom &
Roland eitt stærsta númerið í Drum ’n’
Bass ásamt Dj Kalli, Dj Lelli og Dj Gunni
Ew.
Grand Rokk | Byltan með skrall á Grand
Rokk. Húsið opnað kl. 23 og ætlar hljóm-
sveitin Bob að hita upp. Aðgangur ókeyp-
is. Hefst kl. 23.30.
Hótel Örk, Hveragerði | Póstberarnir með
djasstónleika.
Hressó | Dj Valdi skemmtir á Hressó um
helgina.
Kaffi List | DJ Heidi.
Kaktusinn | Hljómsveitin Sixties spilar.
Klúbburinn við Gullinbrú | Brimkló leikur.
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit skemmta. Hefst kl. 23.
Krúsin, Ísafirði | Hljómsveitin Hraun! fær-
ir Ísfirðingum og nærsveitungum birtu og
yl í formi fagurra tóna í kvöld. Andi meist-
ara David Lynch mun svífa yfir vötnum í
fögru umhverfi kjallara Alþýðuhússins.
Laugavegur 22 | Dj. Palli Maus.
Nasa | Diskó-hátíð Daddi Disco Hlynur
Mastermix sjá um tónlistina.
Odd-Vitinn | Hljómsveitin Smack, hljóm-
sveitin Herecy hitar upp.
Pakkhúsið, Selfossi | Hljómsveitin Spútn-
ik spilar.
Pravda | Dj Aki Pain á efri hæð.
Rauða Ljónið | Hljómsveit Hilmars Sverr-
issonar leikur fyrir dansi föstudags- og
laugardagskvöld.
Sjallinn, Akureyri | Stuðmenn spila.
Stapinn, Reykjanesbæ | Í svörtum fötum
spilar. Nánari upplýsingar á
www.iSvortumFotum.is.
Traffik | Atli skemmtanalögga.
Tónlist
Vélsmiðjan Akureyri | Stuðhljómsveitin
SWISS spilar á megaballi um helgina. Það
verður svo mikið stuð að fólk fer örvhent
heim.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivist fer dagsferð
á Högnahöfða sunnudaginn 5. september.
Ekið upp á Miðdalsfjall að Rótasandi en
þaðan verður gengið á fjallið. Leiðin af
fjallinu liggur niður í Brúarárskörð, með
Brúará og síðan Hrútá að sumarhúsa-
byggðinni í Miðhúsaskógi. Verð 2.400/
2.900 kr. Brottför kl. 9.
Ferðafélagið Útivist | Útivist gengur um
Brúarárskörð sunnudaginn 5. september.
Brúará hefur grafið gljúfur og fellur í foss-
um niður á undirlendið. Þetta gljúfur verð-
ur skoðað og síðan haldið niður með
Brúará og Hrútá að sumarhúsabyggðinni í
Miðhúsaskógi. Verð 2.400/2.900 kr.
Brottför frá BSÍ kl. 9.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar | Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar stendur fyrir
göngu um Kirkjugarð Hafnarfjarðar. M.a.
verður reynt að finna stærstu og mark-
verðustu trén. Mæting er við aðalinngang
garðsins að norðanverðu.
Skógræktarfélag Íslands | Opinn skógur í
Sólbrekkum, við Seltjörn á Suðurnesjum
4. september milli kl. 17 og 19. Árni Mat-
hiesen sjávarútvegsráðherra „opnar“
skóginn. Ávörp fulltrúa skógræktarfélag-
anna, Olís og Alcan sem standa að verk-
efninu. Dagskrá fyrir alla aldursflokka.
Léttar veitingar. Rúnar Júlíusson sér um
tónlistina. Allir velkomnir.
Skógræktarfélag Reykjavíkur | Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir
göngu í Heiðmörk. Bjarni Diðrik Sigurðs-
son, skógarvistfræðingur hjá Rannsókn-
arstöðinni á Mógilsá, leiðir gönguhópinn í
náttúruskoðun og leit að sveppum. Safn-
ast verður saman í Furulundi við Heið-
arveg.
Mannfagnaður
Miðborg Reykjavíkur | 15 ára afmæl-
ishátíð Dansskóla Jóns Péturs og Köru
verður haldin í miðbæ Reykjavíkur laug-
ardaginn 4. september kl. 13.00. Það
verða ýmsar uppákomur bæði á Lauga-
veginum og eins á Ingólfstorgi m.a. Jóki
trúður, hljómsveitin Bardukha og marg-
faldir Norðurlandameistarar í dansi.
Reiðhöll Sörla | Hundaræktarfélag Íslands
fagnar 35 ára afmæli sínu laugardaginn 4.
september, með hátíð fyrir hunda og
menn í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Kynntir
verða hundar af 40–50 tegundum. Einnig
verður keppni meðal ungra sýnenda og
sýnikennsla á vegum Hundaskólans. Nán-
ari upplýsingar á www.hrfi.is. Kl. 10–17.
Íþróttir
Kajakklúbburinn | Í dag ráðast úrslit í Ís-
landsmeistaramótum kajakmanna. Í flokki
sjóbáta verða fyrstu flokkar í Hvammsvík-
urmaraþoni ræstir kl. 9.30 frá Geldinga-
nesinu. Í flokki straumvatnsbáta verður
blásið til leiks kl. 13.30 undir gömlu Þjórs-
árbrúnni.
Staður og stund
idag@mbl.is
ÞAÐ verður „hrikaleg“ stemning við skógræktina á Akranesi á laugardaginn klukkan tvö
þegar Wout Ziljstra Evrópumeistari í Hálandaleikum og Colin Breyce frá Skotlandi mæta til
leiks á Hálandaleika ásamt fjölda annarra kraftamenna. Íslenska liðið á Hálandaleikunum
skipa þeir Auðunn Jónsson, Pétur Guðmundsson kúluvarpari, Óðinn Björn Þorsteinsson
kringlukastari, Kristinn Óskar Haraldsson, Jón Valgeir Villiams og Georg Ögmundsson.
Þrátt fyrir að hér sé um alþjóðlegt mót að ræða er einnig keppt um Íslandsmeistaratitilinn.
Keppt verður í steinakasti, sleggjukasti með skafti, lóðkasti yfir rá (25 kg), 12,5 kílóa lóð-
kasti og að lokum keppt í staurakasti, en staurinn þarf að endasnúast. Frítt er inn á svæðið
og allir velkomnir.
Hrikalegir Hálendingar keppa sín á milli á Akranesi
Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um
viðburði dagsins er að finna á Stað og stund á
forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
95 ÁRA afmæli.6. september
nk. verður 95 ára Sig-
urveig Guðmunds-
dóttir, kennari í
Hafnarfirði og fyrrv.
formaður Kvenrétt-
indafélags Íslands. Í
tilefni dagsins tekur
Sigurveig á móti gestum sunnudaginn
5. september frá kl. 17-19 í Hafnarborg
í Hafnarfirði. Þeim sem vilja gleðja af-
mælisbarnið er vinsamlega bent á að
láta Jósefskirkju í Hafnarfirði njóta
þess. Kt. 680169-4629, bnr. 0546-14-
100800.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 umönnunin, 8
krafturinn, 9 smábátur, 10
greinir, 11 stólpi, 13 dimm
ský, 15 hali, 18 mótlæti, 21
kærleikur, 22 þyngdarein-
ingar, 23 gerist oft, 24
veikur jarðskjálfti.
Lóðrétt | 2 brytja í duft, 3
vekur máls á, 4 spaug, 5
gengur, 6 fréttastofa, 7
beitiland, 12 blóm, 14 am-
boð, 15 munnfylli
drykkjar, 16 lýkur upp, 17
skýjahulur, 18 spilið, 19
hamingja, 20 kylfu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 grófs, 4 bólur, 7 staka, 8 rómum, 9 puð, 11 nótt,
13 arga, 14 eðlan, 15 full, 17 nasa, 20 æra, 22 liðug, 23
fangs, 24 rónar, 25 rýrar.
Lóðrétt | 1 gisin, 2 ósatt, 3 skap, 4 borð, 5 lómur, 6 romsa,
10 uglur, 12 tel, 13 ann, 15 fílar, 16 lóðin, 18 asnar, 19 aus-
ur, 20 Ægir, 21 afar.
Gullbrúðkaup | Í dag, 4. september,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin
Solveig Thorarensen, framhalds-
skólakennari og Sturla Eiríksson, for-
stjóri. Þau fagna þessum tímamótum
erlendis, en senda vinum og vanda-
mönnum kærar kveðjur.
50 ÁRA afmæli. Ídag, 4. sept-
ember, er fimmtug
Sigríður Halldórs-
dóttir, prófessor við
Háskólann á Akur-
eyri, til heimilis að
Steinahlíð 8a. Eigin-
maður hennar er sr.
Gunnlaugur Garðarsson.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050