Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 52
Fréttir í tölvupósti MENNING 52 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ OPINN fundur verður haldinn á vegum Félags ís- lenskra leikara og Borgarleikhússins í forsal Borg- arleikhússins klukkan 17.00 í dag. Þar mun Magnús Þór Þorbergsson leikhúsfræðingur ræða við þýska leikstjórann Thomas Ostermeier um leikhús hans, Schaubüehne í Berlín og þá stefnu sem hann hefur þróað. Farið verður yfir feril Ostermeiers síðustu ár og varpað upp brotum úr nýjustu verkum hans. Fund- urinn er opinn öllum áhugamönnum um leiklist. Thomas Ostermeier hefur verið einn af listrænum stjórnendum Schaubühne í Berlín frá árinu 1999 og hefur hann valdið straumhvörfum í þýsku leikhúslífi og þykir einn athyglisverðasti og mest spennandi leik- stjóri í Evrópu. Egill Heiðar Anton Pálsson leikari segir Ostemeier hafa gegnt mikilvægu hlutverki í leikhúslífi Þýskalands og Evrópu allrar. „Hann hefur hann verið að geta sér stærra og stærra orð sem einn besti leikstjóri sinnar kynslóðar,“ segir Egill. „Hann var hluti af þeirri bylgju nýleikritunar sem hefur verið hrundið af stað. Hann setti meðal upp leikritið Shopping and Fucking í litlu leikhúsi sem hann rak. Síðan hefur leiðin orðið greiðari upp á við.“ Nýjasta uppsetning Ostemeiers á Brúðuheimili Ib- sens ferðast út um allan heim sem gestasýning og er meðal annars í Konunglega leikhúsinu í Danmörku 19. september. Brot úr verkinu, sem sjónvarpsstöðin Arte, verða sýnd á sunnudaginn. „Það sem einkennir stíl Ostemeirs er að hann á við samtímann. Hann velur að setja upp Brúðuheimilið vegna stöðu konunnar í dag,“ segir Egill. „Ef hann er að setja upp klassíkina svarar hann spurningunni „Af hverju í dag?“ og gerir til dæmis Noru í Brúðuleikhús- inu að stríðsmanni. Hún er klárari en Helmer, til að lifa af. Hún er ekki svo saklaus og varnarlaus eins og oft er lesið í verkið, heldur er hún stríðsmaður, til að komast af. Hann hefur ofurraunsæi í uppsetningum, sem stundum springur út í draumkenndum senum eða hálfgerðum súrrealisma og er þá sjón sögu ríkari.“ Fundað með þýska leikstjóranum Thomas Ostermeier Ofurraunsæi sem springur út í súrrealisma ÞAU Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleik- ari, Robert La Rue sellóleikari og Adrienne Kim píanóleikari kalla sig Gruppo Atlantico og héldu tónleika í Listasafni Sigurjóns á sunnudags- kvöldið. Efnisskráin var helguð Ro- bert Schumann og var fyrsta atriðið sónata í a-moll op. 105 fyrir fiðlu og píanó. Flutningur þeirra Hlífar og Adrienne byrjaði vel, fyrsti kaflinn var hressilegur og voru helstu meg- ineinkenni tónlistarinnar undir- strikuð í túlkuninni auk þess sem allskonar blæbrigði voru fallega út- færð. Annar kaflinn var ekki eins góður, tónn fiðlunnar var dálítið ófókuseraður og samspilið var stund- um aðeins á reiki. Sístur var þó loka- þátturinn, en hann var óþægilega varfærnislegur, sem gerði að verk- um að tónlistina skorti alla spennu. Næst á dagskránni voru fimm stykki op. 102 fyrir selló og píanó og steig þar á svið Robert La Rue selló- leikari ásamt fyrrgreindum píanó- leikara. Verður því miður að segjast að flutningurinn var ekki fullnægj- andi, inntónun sellóleikarans var stundum ónákvæm; sumt, eins og þriðja stykkið, var gróft og tilgerð- arlegt og vantaði tilfinnanlega flæði. Skást var fyrsta stykkið; það var a.m.k. fyndið, alveg eins og Schu- mann hugsaði það. Sem betur fer var lokaatriði tón- leikanna, píanókvintett í Es-dúr op. 44, að mörgu leyti áheyrilegt. Túlkun hópsins ásamt Sigurlaugu Eðvalds- dóttur fiðluleikara og Guðrúnu Þór- arinsdóttur víóluleikara var skáldleg og þrungin spennu og hefði útkoman getað orðið glæsileg ef samspilið hefði verið betra, en það var á tíðum óþægilega klúðurslegt. Píanóleik- arinn hefði líka mátt vera mjúkhent- ari; einstaka áherslur voru eins og byssuskot, sem varð til þess að draumkennd rómantíkin breyttist í kráarstemningu í villta vestrinu þeg- ar minnst varði. Í heild voru þetta því misjafnir tónleikar; upp úr standa fyrsti kafli fiðlusónötunnar og nokkur sannfærandi tilþrif í kvin- tettinum. …og Brahms með spora Seinni tónleikar Gruppo Atlantico voru haldnir á þriðjudagskvöldið og fyrsta atriði tónleikanna, tríó í G- dúr, Hob: XV 25 eftir Haydn, var á ýmsan hátt ágætt. Túlkunin var þrungin einlægni og tæknilega var allt eins og það átti að vera fyrir utan óstöðugan tón fiðlunnar. Fyrsti kafl- inn var þó undarlega flatneskjulegur og hefði hugsanlega mátt leggja meiri áherslu á þær dramatísku and- stæður sem liggja undir yfirborðinu. Tvö samtímaverk voru flutt á tón- leikunum, Vocalisa eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Impressions for Cello eftir Inessu Zaretsky. Tónsmíð Hjálmars hljómaði vel í kraftmikilli túlkun Signýjar Sæmundsdóttur, Hlífar Sigurjónsdóttur fiðluleikara og Adrienne Kim píanóleikara; þetta er glæsileg tónlist með skemmtilegu tangó- og djassívafi og skapaði sterk hughrif, a.m.k. hjá undirrituðum. Sömu sögu er að segja um litríka tónsmíð Zaretsky sem Robert La Rue spilaði með sannfærandi til- þrifum og yfirleitt hnökralaust. Lokaverk tónleikanna, tríó í H-dúr nr. 1 op. 8 eftir Brahms var hins- vegar alls ekki nógu gott. Fiðlu- röddin var ekki upp á marga fiska, hún var ómarkviss og einkennilega hlédræg; rödd píanósins var aftur á móti hörkuleg og yfirgnæfandi. Sumt má flokka sem hreinar bar- smíðar og kvað svo rammt að þessu að maður hrökk í kút aftur. Vel hefði mátt sleppa þessu atriði tónleikanna. Schumann með kúrekahatt Tónlist Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Verk eftir Schumann í flutningi Gruppo Atlantico ásamt Sigurlaugu Eðvalds- dóttur og Guðrúnu Þórarinsdóttur. Sunnudagur 19. ágúst. KAMMERTÓNLEIKAR Jónas Sen Verk eftir Haydn, Hjálmar H. Ragnarsson, Inessu Zaretsky og Brahms í flutningi Gruppo Atlantico og Signýjar Sæmunds- dóttur. Þriðjudagur 31. ágúst. Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16 Flott föt fyrir konur á aldrinum 25-90 ára Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson á Kringlukránni í kvöld Rakarinn morðóði Óperutryllir eftir Stephen Sondheim Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20 Miðasala á Netinu verður opnuð þriðjudaginn 7. september: www.opera.is Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200 Endurnýjun áskriftarkorta er hafin RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Í kvöld kl 20, - UPPSELT, Su 5/9 kl 20 - UPPSELT, Takmarkaður sýningafjöldi PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert í samstarfi við Á SENUNNI Fi 9/9 kl 20, Fö 10/9 kl 20, Lau 11/9 kl 20 Su 12/9 kl 20 Örfáar sýningar Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 5/9 kl 14, Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14 CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins! Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20 THINGS THAT HAPPEN AT HOME e. Birgit Egerbladh Gestasýning frá Teater Pero, Svíþjóð Í kvöld kl. 20. Aðeins þessi eina sýning. LÍT ÉG ÚT FYRIR AÐ VERA PALLÍETTUDULA? e. Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Margréti Söru Guðjónsdóttur METROPOLITAN e. Cameron Corbett GRÆNA VERKIÐ e. Jóhann Björgvinsson Í dag kl.16, Su 5/9 kl. 20 THINGS THAT HAPPEN AT HOME e. Birgit Egerbladh Gestasýning frá Teater Pero, Svíþjóð Í kvöld kl. 20. Sýnt á Stóra Sviði. Aðeins þessi eina sýning. NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9 "ÁN TITILS" e. Ástrósu Gunnarsdóttur THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine WHERE DO WE GO FROM THIS e. Peter Anderson Sun 5/9 kl.16 THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine WHERE DO WE GO FROM THIS e. Peter Anderson Fi 9/9 kl. 20 MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur og Ismo-Pekka Heikenheimo Fö 10/9 kl.20, Lau 11/9 kl. 20 Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00 Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00 Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is Passi á allar sýningar hátíðarinnar á aðeins 4.900. Í dag laugardaginn 4 september kl. 17.00 verður boðið upp á opnar umræður í forsal Borgarleikhússins með leikstjóranum Thomas Ostermeier um leikhús hans, Schaubühne í Berlín. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Lau . 04.09 20 .00 UPPSELT Sun . 05.09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI F im . 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI „Ekk i spurn ing að þe t ta e r e inn bes t i söng le ikur sem ég hef séð . Ég á t t i e r f i t t með að ha l da mé r í sæ t i nu og s tökkva ekk i upp á sv i ð og ve ra með“ -B i rg i t ta Haukda l , söngkona - . “ MIÐASALAN er opin á fame.is, á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 JÓNSI SVEPPI Lau. 4. sept. kl. 18.00 Sun. 5. sept. kl. 19.30 Fim. 9. sept. kl. 19.30 SÍÐUSTU SÝNINGAR: Fös. 10. sept. kl. 19:30 Sun. 12. sept. kl. 19.30 Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á að hægt er panta miða með tölvupósti í miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is. 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning Lau 11/9 kl. 18 Lau 11/9 kl. 21 Sun 12/9 kl. 20 SVIK e. Harold Pinter frumsýning 1/10 kl. 20 UPPSELT 2. sýning 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 3. sýning 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 4. sýning 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni gestasýning fös 24/9 kl. 20 - sala hafin! Áskriftarkort! 4 sýningar á aðeins 6.500 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.