Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 47
NEYTENDASAMTÖKIN telja að
uppgreiðslugjald á neytendalánum sé
ekki í samræmi við lög um neytenda-
lán. Samtökin hafa sent erindi til
Samkeppnisstofnunar vegna málsins.
„Samkvæmt lögum um neytenda-
lán eiga einstaklingar ótvíræðan rétt
til að greiða lán sín upp fyrir gjald-
daga. Í lögunum er ekki gert ráð fyrir
því að hægt sé að takmarka þann rétt
með nokkrum hætti, t.d. með því að
gera uppgreiðslugjald að skilyrði fyr-
ir uppgreiðslu. Þetta, auk fleiri atriða
bæði í lögunum sjálfum og lögskýr-
ingargögnum, bendir mjög sterklega
til þess að ætlun löggjafans hafi ekki
verið sú að heimila uppgreiðsluþókn-
un vegna neytendalána. Það er því
mat Neytendasamtakanna að inn-
heimta uppgreiðsluþóknunar vegna
uppgreiðslu neytendalána samræm-
ist ekki fyrrgreindum lögum.“
NS bendir á að gildissvið laganna
hafi verið útvíkkað með lagabreyt-
ingu sem tók gildi 14. desember 2000.
Því sé óumdeilanlegt að veðlán ein-
staklinga, sem tekin voru eftir laga-
breytinguna, falla undir lögin.
Gjaldtakan
er ólögleg
STJÓRN Félags ungra framsóknar-
manna í Reykjavík suður fagnar því
að R-listinn hafi ákveðið að setja
uppbyggingu Sundabrautar í for-
gang vegaframkvæmda innan höfuð-
borgarinnar en harmar að það skuli
þurfa að bitna á öðrum brýnum verk-
efnum innan borgarinnar.
„Ljóst er að mannvirkið er for-
senda uppbyggingar nýrra hverfa í
hlíðum Úlfarsfells og á Kjalarnesi,
auk þess sem það mun koma ná-
grannasveitarfélögum Reykjavíkur
mjög til góða. Bent skal sérstaklega
á að útreikningar gera ráð fyrir að
innan fárra ára muni allt að 40–50
þúsund bílar aka um Sundabraut á
degi hverjum og því ljóst að arðsemi
hennar verður mun meiri en mann-
virkja af svipaðri stærðargráðu utan
höfuðborgarsvæðisins svo sem jarð-
ganga við Siglufjörð sem munu í
mesta lagi þjónusta nokkur hundruð
bíla á sólahring.“
FUF vill að
Sundabraut
fái forgang
KENNARAFUNDUR, haldinn í
Grundaskóla á Akranesi, skorar á
samninganefndir Kennarasambands
Íslands og Launanefnd sveitarfélaga
að ganga nú þegar til samninga þann-
ig að ekki þurfi að koma til verkfalls
hinn 20. september nk. Var ályktun
þess efnis samþykkt samhljóða á al-
mennum kennarafundi á miðvikudag.
„Við teljum brýnt að kjör grunn-
skólakennara verði bætt verulega
þannig að þau verði í samræmi við
menntun, ábyrgð og kröfur sem gerð-
ar eru til kennarastarfsins,“ segir í
ályktuninni.
Gengið verði
nú þegar til
samninga
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122