Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 300. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Stóll til að vefja um háls Húsgagnahönnuður sem vekur athygli í Mílanó og New York | Daglegt líf Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Nýr og enn þá betri Focus  Betur búinn undir vetrar- akstur Íþróttir | Chelsea komið áfram, Grikkir náðu jöfnu á Highbury  Gylfi æfir hjá Cardiff JARÐVÍSINDAMENN telja ljóst að miðað við þróun elds- umbrotanna í Vatnajökli í gær sé gosið í Grímsvötnum, sem hófst í fyrrakvöld, mjög kraftmikið og stærra en árið 1998 þegar þessi virkasta eldstöð Íslands gaus síðast. Gosmökk- urinn hefur verið biksvartur eins og sést hér að ofan en jafn- framt sveiflukenndur. Í fyrrinótt náði hann í 13 km hæð, fór niður í um 8 km í gærmorgun en náði fyrri hæðum síðdegis. Telja vísindamenn að gosið nú muni vekja mikla alþjóðlega athygli meðal starfsbræðra sinna. 6/12/Miðopna Kraftmikið gos og stærra en árið 1998 Morgunblaðið/RAX SPÁR sem birtar höfðu verið í Bandaríkjunum laust fyrir klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma þóttu benda til þess að mjótt yrði á mun- unum í forsetakosningunum vestra. Útlit var fyrir mestu kjörsókn í rúm- lega 30 ár og þvert á venju héldu báðir frambjóðendur kosningabar- áttu sinni áfram fram eftir degi. Bandarískar sjónvarpsstöðvar birtu fyrstu kosningaspár skömmu eftir að kjörstöðum hafði verið lokað í átta ríkjum í austurhluta Banda- ríkjanna. Samkvæmt þeim hafði George W. Bush forseti fengið at- kvæði 39 kjörmanna en áskorandinn John F. Kerry, frambjóðandi Demó- krataflokksins 3 atkvæði. Spár þessar eru gerðar á grund- velli svonefndra „útgöngukannana“ sem framkvæmdar eru á kjörstöðum á þann veg að kjósendur eru spurðir hvaða frambjóðanda þeir hafi stutt. Hvert af 50 ríkjum Bandaríkjanna ræður yfir ákveðnum fjölda kjör- manna í samræmi við íbúafjölda. Kjörmenn eru alls 538 og duga því 270 til sigurs í forsetakjöri í Banda- ríkjunum. Samkvæmt fyrstu tölum hafði Bush forseti unnið Indiana, Ken- tucky, Vestur-Virginíu og Georgíu. Því var spáð að Kerry hefði unnið Vermont. Allar voru spár þessar í samræmi við skoðanakannanir og komu úrslitin því ekki á óvart. Óstaðfestar fregnir hermdu að út- göngukannanir sem gerðar voru í nokkrum lykilríkjum bentu til þess að John Kerry gæti gert sér vonir um sigur í Pennsylvaníu og Wiscons- in og jafnvel í Ohio og Flórída. Reyndust fregnir þessar réttar þóttu sigurlíkur hans hafa vaxið verulega í kosningunum. Hermt var að bjartsýni ríkti í herbúðum Kerrys, ekki síst sökum þess hve kjörsókn virtist góð. Sérfróðir höfðu sagt að vera kynni að kosningarnar reyndust álíka tví- sýnar og þær sem fram fóru fyrir fjórum árum. Þeim lyktaði á þann veg að George W. Bush var úrskurð- aður sigurvegari eftir flókna laga- þrætu sem stóð yfir í fimm vikur. Sjálfur sagði Bush í gær að hann væri vongóður um sigur og kvaðst vænta þess að skýr úrslit myndu fást í kosningunum. John Kerry kvaðst þess fullviss að sér hefði tekist að sannfæra banda- rísku þjóðina um nauðsyn þess að breytingar yrðu gerðar. Líkt og for- setinn sagðist hann vænta þess að skýr úrslit fengjust í kosningunum og ítrekaði nauðsyn þess að skráðir kjósendur nýttu sér atkvæðisrétt- inn. Þátttaka í kosningunum var mjög góð og víða virtist stefna í að met yrðu slegin. Var það í samræmi við spár sérfræðinga. Í Bandaríkjunum er sú speki viðtekin að góð þátttaka í kosningum komi fremur demókröt- um til góða. Þess var vænst að 118 til 121 milljón manna myndi nýta sér atkvæðisréttinn að þessu sinni. Sú þátttaka myndi jafngilda um 60% kjörsókn og reynast hin mesta frá því í kosningunum árið 1968 þegar Richard Nixon var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Fyrstu tölur í bandarísku kosningunum að mestu í samræmi við kannanir Mikil kjörsókn eykur vonir um skýr úrslit Reuters Íbúar Miami-Dade-sýslu í Flórída í biðröð eftir því að fá að kjósa. John Kerry sagður sigurstranglegur í nokkrum lykilríkjum  Biðraðir/14 GENGI hlutabréfa á Wall Street seig nokkuð rétt fyrir lokun mark- aða í gærkvöldi eftir að frétt hafði birst á netsíðunni www.drudgere- port.com um klukkan 20.30 að ís- lenskum tíma um að fyrstu út- gönguspár sýndu sterka stöðu demókratans Johns Kerrys. Haft var eftir Peter Boock, sér- fræðingi hjá verðbréfafyrirtækinu Miller Tabak, að „eins konar skelf- ing“ hefði gripið um sig meðal verðbréfasala þegar heyrðist af fréttinni á vefsíðu Matts Drudges. Mátu verðbréfasalar stöðuna þann- ig að sterk staða Kerrys þýddi að mjótt yrði á munum, sem aftur þýddi að meiri hætta væri fyrir vik- ið á að það drægist á langinn að lýsa yfir hver væri sigurvegari. Slíkt þýddi óvissuástand, sem aftur skýrði titringinn á markaðnum. Titringur á Wall Street New York. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.