Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 4
ÍSLENSK æska notar tímann á haustin vel til að æfa
sig í fótbolta. Sjötti flokkur Fram var á æfingu á Fram-
vellinum í ágætis veðri og létu krakkarnir dagatalið,
sem segir að fyrsti vetrardagur sé upprunninn, ekki
Æft af kappi hjá Fram
Morgunblaðið/Árni Torfason
hafa áhrif á sig heldur spörkuðu og sprikluðu af mikilli
elju. Inn á milli tók liðið sér þó hvíld, ræddi málin og
leiktíðina framundan. Það gaf sér líka tíma til að líta í
myndavél ljósmyndara Morgunblaðsins.
4 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur Magnús Einars-
son, eiginmaður Sæunnar, játað að
hafa orðið henni að bana. Að sögn
Friðriks hringdi hann örskömmu
síðar í nokkra vandamenn og vini og
greindi þeim frá því sem gerst hafði.
Einn þeirra tilkynnti lögreglu um
málið áður en Magnús hringdi þang-
að sjálfur.
Að sögn Friðriks eru engar vís-
bendingar um að Magnús hafi verið
ölvaður eða undir annarlegum áhrif-
um.
AÐ SÖGN lögreglunnar í Kópavogi
staðfesta bráðabirgðaniðurstöður
krufningar það sem áður hefur kom-
ið fram um dánarorsök Sæunnar
Pálsdóttur, sem ráðinn var bani í
Hamraborg aðfaranótt mánudags,
þ.e. að eiginmaður hennar hafi
þrengt svo að öndunarvegi að það
hafi leitt til köfnunar.
Vettvangsrannsókn í íbúð þeirra
mun væntanlega ljúka á morgun en
þangað til verður íbúð þeirra innsigl-
uð, að sögn Friðriks Björgvinssonar,
yfirlögregluþjóns í Kópavogi.
Bráðabirgðaniðurstöður krufningar
Vettvangsrann-
sókn lýkur í dag
DAVÍÐ Oddsson
utanríkisráð-
herra mun eiga
fund með Colin
Powell, utanrík-
isráðherra
Bandaríkjanna,
16. nóvember þar
sem varnarsam-
starfið og fram-
tíð þess verður
rætt.
Þetta kom fram í svari utanrík-
isráðherra við fyrirspurn Böðvars
Jónssonar varaþingmanns á Al-
þingi í gær.
Varnarmálin í höndum
utanríkisráðherranna
Í samtali við Morgunblaðið sagði
utanríkisráðherra að á fundi hans
og Georg Bush Bandaríkjaforseta í
júlí hefði Bandaríkjaforseti ákvarð-
að að málið færðist frá skrifstofu
hans til utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Það hefði verið á borði
forsetans og forsætisráðherra Ís-
lands en færðist nú á borð utanrík-
isráðherranna á nýjan leik. „Ég
bind vonir við að það meginviðhorf
sem mér fannst ríkjandi á fundi
mínum með Bush verði ráðandi fyr-
ir þessar viðræður og að við getum
að minnsta kosti komist verulega
áleiðis við að draga úr þeirri óvissu
sem verið hefur í Keflavík. Það er
nú þannig að óvissa og öryggi fara
ekki vel saman,“ segir Davíð.
Utanríkisráðherra segir Powell
hafa haft samband við sig í síma
ekki alls fyrir löngu. „Ég sagði frá
því opinberlega og sagðist vera
reiðubúinn að hitta hann þegar ég
væri kominn með nægjanlegan
kraft og styrk til þess. Ég tel mig
vera að öðlast hann núna þannig að
ég vil ekki draga það að hitta hann
að máli og er
mjög ánægður
með að hann
skyldi bregðast
hratt við ábend-
ingu um að ég
væri nú tilbúinn
til að hitta hann.
Fundurinn var
strax ákveðinn
16. þessa mánað-
ar, árdegis.“
Davíð segir að hann muni leggja
áherslu á það í viðræðum sínum við
Powell að tryggja að lágmarks-
varnir séu fyrir hendi í landinu og
óvissunni gagnvart framtíðinni
verði þar með eytt, þ.e.a.s. menn
ræði um stöðuna til lengri tíma en
ekki skamms tíma.
Hugsanlegt að úrslit
kosninganna hafi áhrif
Aðspurður hvort það muni hafi
áhrif á viðræðurnar um varnarmál-
in ef John Kerry sigrar Bush í for-
setakosningunum segir Davíð að
ekki sé hægt að útiloka slíkt.
„En auðvitað vonar maður að
milli stjórnvalda tveggja ríkja haldi
það meginviðhorf sem hefur skinið
í gegn þótt ekki hafi neitt verið
undirritað eða handsalað í þeim
efnum ennþá. Það má svo sem
segja að það sé kannski öruggara
ef núverandi forseti heldur velli. Ef
það kemur nýr maður þarf hann
auðvitað sinn tíma til þess að móta
nýja stefnu og þá kemur vænt-
anlega nýr utanríkisráðherra, nýr
varnarmálaráðherra o.s.frv. Eins
og bandaríska kerfið er þurfa allir
að ganga í gegnum nýja maskínu,
eiginlega, þannig að þá gæti það að
minnsta kosti dregist. En ég þori
ekki að öðru leyti að spá,“ segir ut-
anríkisráðherra.
Davíð Oddsson Colin Powell
Davíð fer til
fundar við
Colin Powell
Munu ræða varnarsamstarfið
og framtíð þess að sögn ráðherra
21 ÁRS karlmaður sem framdi vopn-
að rán í söluturni við Holtsgötu í
Reykjavík í mars árið 2002 var í hér-
aðsdómi dæmdur í 10 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. Málið upplýst-
ist er hann gaf sig fram við
afgreiðslukonuna sem var við störf
þegar ránið var framið.
Að sögn konunnar réðust menn-
irnir inn í söluturninn með miklum
látum, báðir með grímu fyrir andlit-
inu. Hún hefði óskað eftir því að fara
út en annar þeirra hefði þá tekið ut-
an um hana og brugðið hnífi að hálsi
hennar. Síðan hefði hann keyrt hana
út í vegg og niður í gólf. Samverka-
maður hans hrifsaði síðan 57.000
krónur úr peningakassa auk
greiðslukortakvittana fyrir 16.000
kr. Aðspurð fyrir dómi sagðist konan
þó ekki muna eftir því að hafa séð
manninn halda hnífnum að hálsi
hennar. Hún kvaðst þó hafa skynjað
að maðurinn væri með hníf en hún
ekki þorað að hreyfa höfuðið vegna
ótta.
Leituðu að sjoppu til að ræna
Maðurinn játaði ránið en sagðist
hvorki hafa borið hnífinn upp að
hálsi konunnar né ýtt henni upp að
vegg eða niður á gólf. Fyrir dómi
sagðist maðurinn hafa verið í mikilli
fíkniefnaneyslu á þessu tímabili og
umrætt kvöld hefði hann ekið um
Vesturbæinn ásamt félaga sínum til
að leita að sjoppu til að ræna. Þegar
hann var hættur vímuefnaneyslu og
kominn í meðferð hefði hann farið að
leiða hugann til hennar og loks farið
til hennar að biðjast afsökunar.
Í niðurstöðu dómsins segir að það
sé ósannað að maðurinn hafi borið
hnífinn upp að hálsi konunnar og ýtt
henni niður. Sannað þótti að hann
hefði framið ránið. Við ákvörðun
refsingar var m.a. litið til þess að
hann var 18 ára þegar brotið var
framið og að málið upplýstist eftir að
hann gaf sig fram. Þá hefði hann
bætt ráð sitt að undanförnu, farið í
vímuefnameðferð og verið í vinnu í
um eitt ár. Þótti hæfilegt að dæma
hann í 10 mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið til þriggja ára og að auki að
greiða sakarkostnað, endurgreiða
ránsfenginn og greiða afgreiðslu-
konunni 200.000 kr. í miskabætur.
Arnfríður Einarsdóttir kvað upp
dóminn en Sigríður Friðjónsdóttir
saksóknari flutti málið og Guðrún
Sesselja Arnardóttir hdl. til varnar.
Ræninginn gaf
sig fram við af-
greiðslukonuna
SÓLSKINSSTUNDIR voru umfram
meðallag í Reykjavík í október en
undir meðallagi á Akureyri. Þar
var úrkoma 50% umfram meðaltal
en úrkoman var í minna lagi í
Reykjavík. Tíð var nokkuð um-
hleypingasöm í október, m.a. gerði
tvö snörp norðanáhlaup. Í báðum
tilvikum urðu skaðar á landi. Þetta
kemur fram í samantekt Veðurstof-
unnar um tíðarfar í október.
Meðalhiti í Reykjavík var 4,3 stig
og er það 0,1 stigi neðan meðallags
og kaldasti október frá 1998. Á Ak-
ureyri var meðalhitinn 3,3 stig og
er það 0,3 stigum ofan meðallags.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 110 og er það 27 stundum
umfram meðallag. Á Akureyri var
sólarlítið, þar mældust sólskins-
stundirnar 36 og er það 16 stundum
minna en í meðalári.
Sól fyrir sunnan