Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 14

Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GERT var ráð fyrir því í gær að allt að 125 milljónir manna myndu greiða atkvæði í forsetakosningunum í Bandaríkjun- um í gær, hlut- fallslega mun fleiri en í kosn- ingum síðustu áratugina. Víða voru langar biðraðir við kjör- staði þegar í gærmorgun og milljónir manna hafa greitt utan kjörstaða síð- ustu vikurnar, að sögn AP-fréttastof- unnar. Einnig hafa óvenju margir sem ekki hafa fyrr tekið þátt í kosn- ingum látið setja sig á kjörskrá. Alls höfðu um 156 milljónir manna kosn- ingarétt að þessu sinni. Auk þess að kjósa um forsetaemb- ættið eru allir 435 þingmenn fulltrúa- deildarinnar í kjöri, einnig 34 af alls 100 öldungadeildarþingmönnum og 11 ríkisstjórar. Þjóðaratkvæða- greiðsla er einnig víða um ýmis sér- mál. Um milljón sjálfboðaliða úr hvorum flokki kepptist í gær við að hvetja fólk til að fara á kjörstað. Og ekki verða George W. Bush forseti og John Kerry, frambjóðandi demó- krata, heldur sakaðir um sinnuleysi. Hinn fyrrnefndi greiddi atkvæði í Crawford-þorpi í Texas í gærmorgun að sögn fréttavefjar BBC en hélt síð- an til Washington með viðkomu í Ohio þar sem hann braut gamla hefð. „Þetta eru sögulegir tímar. Öryggi og hagsæld Bandaríkjanna í framtíðinni eru á kjörseðlinum,“ sagði Bush á fundi í Albuquerque í Nýju Mexíkó á mánudagskvöld. Forsetaefni vestra hafa lengi sleppt því að reka áróður á sjálfum kjördeginum en nú ákvað Bush að svo mikið væri í húfi að rétt væri að eggja stuðningsmenn sína í Ohio á loka- sprettinum með því að sýna sig þar á kjördag. Ríkið er eitt af hinum mik- ilvægu „óvissuríkjum“, kannanir hafa m.a. gefið til kynna að munurinn á Bush og Kerry í Ohio, Flórída og Pennsylvaníu sé afar lítill. Þessi ríki eru öll með marga kjörmenn og geta því ráðið úrslitum en alls þarf 270 kjörmenn til að vinna. Og í þeim eins og í flestum sambandsríkjunum 50 fær sá sem hlýtur flest atkvæðin alla kjörmennina. Kerry að fram á síðustu stundu John Kerry hélt mikinn fund í Cleveland í Ohio á mánudagskvöld. „Látið orkuna frá þessum stað fleyta ykkur áfram, fáið fólk til að mæta á kjörstað og hjálpa til við að breyta stefnunni,“ sagði hann. Kerry braut eins og Bush hefðina í gær, hann fór til La Crosse í Wisconsin-ríki þar sem kannanir hafa sýnt að baráttan sé hörð. Tók Kerry þar þátt í starfi stuðningsmanna sem hvöttu almenn- ing til að láta skrá sig á kjörskrá og fara síðan að kjósa. En síðan hugðist hann fara til heimaríkis síns, Massachusetts, og greiða atkvæði í Boston. Um kvöldið ætlaði Kerry að halda nokkra fréttamannafundi, eink- um með það að markmiði að höfða til kjósenda í ákveðnum óvissuríkjum. Óttast er að til langvarandi deilna og málaferla geti komið eins og árið 2000, einkum ef litlu munar. Ekki síst óttast menn að til vandræða geti komið þar sem notaðir eru snertiskjá- ir á kjörstöðum, eins og í Flórída og mörgum öðrum ríkjum. Komi upp vafi er ekki hægt að endurtelja vegna þess að ekki er um neinn pappír að ræða. Herskari lögfræðinga bíður nú reiðubúinn í bækistöðvum beggja flokka og þykir víst að þeir sem tapi muni einskis svífast til að reyna að bera brigður á niðurstöðurnar. Demókratar hafa verið afar dug- legir við að fá fólk sem ekki hefur áð- ur neytt atkvæðisréttar síns til að láta setja sig á kjörskrá. En repúblikanar fullyrða að í mörgum tilfellum hafi verið beitt brögðum og fólk sem ekki eigi að hafa atkvæðisrétt hafi fengið að skrá sig, þ.á m. erlent verkafólk. Hafi einnig verið beitt hreinræktuð- um fölsunum, fólk með atkvæðisrétt búið til á pappírnum. Svo mikil er harkan og tortryggnin að repúblikanar kröfðust þess að fá að senda þúsundir manna á kjörstaði í Ohio til að fylgjast með og kanna hvort kjósendur væru löglegir. Fór svo að alríkisdómari heimilaði slíkt eftirlit á síðustu stundu en fréttir í gærdag hermdu að til úlfúðar hefði komið vegna málsins. Demókratar sökuðu repúblikana um að ætla að nota eftirlitsmenn á kjörstöðum í Ohio til að hræða suma kjósendur, ekki síst blökkumenn, frá því að kjósa. Farsímar rugla spárnar Kannanir á landsvísu síðustu dag- ana hafa gefið til kynna að keppinaut- arnir tveir séu með nánast sama fylgi, munurinn er innan skekkjumarka. Einnig gefa þær til kynna að aðeins 3–4% líklegra kjósenda hafi ekki gert upp hug sinn, muni gera það fyrst í kjörklefanum. En bent er á að millj- ónir ungra kjósenda séu nú ekki með fastlínusíma, aðeins farsíma, og þetta fólk og skoðanir þess komi því að jafnaði ekki fram í úrtakinu sem not- að sé, sagði í grein AFP-fréttastof- unnar. Einnig er óvíst hvernig nýir kjós- endur, sem nú eru óvenju margir, muni verja atkvæði sínu og jafnvel hvort þeir muni yfirleitt mæta á kjör- stað. Þess bera að gæta að þriðjudag- urinn var venjulegur vinnudagur og dæmi eru um að fólk heykist á því að taka sér frí úr vinnu til að kjósa. Þessi atriði og fleiri hafa gert að verkum að flestir sérfræðingar í kosningaspám hafa veigrað sér við að segja fyrir um úrslitin. Sumir hafa jafnvel gerst svo djarfir að segja að ekkert sé að marka niðurstöður kann- ana; svo geti vel farið að annaðhvort Bush eða Kerry vinni öruggan sigur. AP George W. Bush ræðir við kjósanda í síma. Hann kom í gær við á kosn- ingaskrifstofu repúblikana í Columbus í Ohio á leiðinni til Washington. AP John Kerry heilsar upp á stuðningsmenn sína á flugvellinum í borginni La Crosse í Wisconsin í gærmorgun. Biðraðir við marga kjörstaði Bush og Kerry börðust áfram á kjördag ’Demókratar sökuðurepúblikana um að ætla að nota eftirlitsmenn á kjörstöðum í Ohio til að hræða suma kjósendur, ekki síst blökkumenn, frá því að kjósa.‘ TVÖ lítil þorp í New Hampshire njóta ávallt þess heiðurs að þaðan koma fyrstu tölurnar í forsetakosn- ingunum og það löngu áður en kosningum er lokið vestast í land- inu. Að venju höfðu repúblikanar sig- ur að þessu sinni í Dixville Notch, George W. Bush hlaut í gær 19 at- kvæði en keppinautur hans, John Kerry, var með sjö atkvæði. Sigur Bush var þó talsvert minni en árið 2000. Hann sigraði naumlega í hinu þorpinu, Hart’s Location, fékk 16 atkvæði en Kerry 14, neyt- endafrömuðurinn Ralph Nader fékk eitt atkvæði. Síðustu tölur berast ávallt frá vestasta hluta landsins vegna tíma- munarins. Er kosið var árið 2000 var enn verið að greiða atkvæði í Kaliforníu og var gagnrýnt að spár sjónvarpsstöðvanna hefðu haft bein áhrif. Þegar ein þeirra var of fljót á sér og spáði Al Gore sigri munu ein- hverjir hafa hætt við að fara á kjör- stað, a.m.k. fullyrtu repúblikanar það. Margir töldu að sjónvarpsstöðv- arnar myndu sýna mikla varkárni í spám sínum á talningarnótt að þessu sinni vegna þess hve litlu munaði í mörgum ríkjum fyrir fjór- um árum. Yfirburðir Bush í Dixville Notch RÆNINGJAR Margaret Hass- an, yfirmanns deildar alþjóð- legu hjálparsamtakanna CARE í Írak, hóta nú að framselja hana innan tveggja sólarhringa hópi sem tengist al-Qaeda-samtök- unum ef breska stjórnin dragi ekki herlið sitt frá landinu. Kom þetta fram á myndbandi sem arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera birti í gær. Stöðin birti myndbandið án hljóðs og sagðist ekki vilja birta það allt vegna „ástands gíslsins“. Hassan er 59 ára gömul, breskur og íraskur borgari. Hún er írsk að uppruna en gift Íraka og hefur búið í landinu í þrjá áratugi. Henni var rænt í Bagdad í liðnum mánuði en ekki er vitað hverjir voru þar að verki. Hópurinn hótaði í gær að láta hana í hendur samtökum Jórdanans Abu Musabs al-Zarqawis sem tengist al- Qaeda. Hóta að framselja Hassan Bagdad. AP, AFP. HOLLENSKI kvikmyndagerðar- maðurinn Theo van Gogh, sem gerði nýlega umdeilda mynd um íslam, var skotinn og stunginn til bana í Amst- erdam í gær. Morðinginn, 26 ára mað- ur, var handtekinn eftir að hafa særst í skotbardaga við lögreglumenn. Mynd van Gogh, „Auðmýkt“, sem fjallaði um íslam og konur, vakti mikla gremju meðal múslíma í Hol- landi þegar hún var sýnd í sjónvarpi í ágúst. Myndin fjallar um konu sem var neydd til að giftast manni er beitti hana ofbeldi. Ættingi hennar nauðg- aði henni og var henni síðan refsað grimmilega. Í myndinni var konan stundum í gegnsærri skikkju og í einu atriðanna sáust vers úr Kóraninum sem máluð voru á líkama hennar. Handrit myndarinnar skrifaði hol- lenska þingkonan Ayaan Hirsi Ali, sem fæddist í Sómalíu. Hún afneitaði íslamskri trú sinni og hefur oft gagn- rýnt múslíma í Hollandi fyrir að halda í íslamskar hefðir og samlagast ekki hollenska samfélaginu. Eftir að myndin var sýnd bárust van Gogh og Ali morðhótanir og lög- reglan gerði ráðstafanir til að vernda þau. Lögreglumenn voru á verði við heimili van Goghs fyrstu dagana eftir að myndin var sýnd en öryggisgæsl- unni var hætt vegna þess að ekki komu fram skýrar vísbendingar um að reynt yrði að ráða hann af dögum, að sögn hollenskra yfirvalda í gær. Líkt við morðið á Fortuyn Van Gogh var á reiðhjóli á götu í Amsterdam þegar ráðist var á hann. Lögreglan sagði að hann hefði verið skotinn og stunginn til bana. Árásar- maðurinn skildi eftir miða á líkinu en ekki var skýrt frá því hvað stóð á hon- um. Lögreglan sagði að maðurinn sem var handtekinn hefði verið með rík- isborgararétt í Hollandi og Marokkó. Hann særðist á fæti í skotbardaga við lögreglumenn þegar hann reyndi að flýja. Hann var fluttur á sjúkrahús áður en hann var yfirheyrður. Lög- reglumaður særðist einnig í skotbar- daganum. Hollenskir stjórnmálamenn for- dæmdu morðið og líktu því við morðið á hollenska stjórnmálamanninum Pim Fortuyn sem var skotinn til bana skömmu fyrir kosningar í maí 2002. Báðir voru þeir mjög umdeildir vegna skoðana sinna, Fortuyn vegna þess að hann barðist fyrir því að straumur innflytjenda, einkum frá Marokkó og Tyrklandi, yrði stöðvaður. Jan Peter Balkenende, forsætis- ráðherra Hollands, lýsti van Gogh sem „málsvara málfrelsisins“. „Van Gogh var maður sem leyndi ekki skoðunum sínum og eignaðist þess vegna óvini. Það væri óviðunandi ef skoðanaágreiningur leiddi til þessa grimmilega morðs.“ Samtök Mar- okkómanna fordæmdu morðið og sögðu það líklegt til að skaða hol- lenska múslíma. Van Gogh var 47 ára og sagður son- arsonarsonur Theos, bróður hol- lenska listmálarans Vincents van Goghs. Auk kvikmyndagerðarinnar hafði Theo van Gogh skrifað greinar um íslam sem birtar voru í hollenska dagblaðinu Metro og á vefsetri hans. Hann lauk nýlega við kvikmynd um morðið á Fortuyn. Reuters Theo van Gogh Umdeildur kvikmynda- gerðarmaður myrtur Mynd hans um íslam og konur vakti reiði músl- íma í Hollandi Amsterdam. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.