Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SUÐURNES                                                                         !" # $  # $  % &  ! ' '   $   $(   "  )*   "   ( "+ ! $  ,$(        " -  !.   Njarðvík | Fimm félagar í Sjálf- stæðisfélaginu Njarðvíkingi voru heiðraðir í 50 ára afmælishófi fé- lagsins sl. föstudag. Fjórir heið- ursfélaganna hafa gegnt for- mennsku í Njarðvíkingi, þeir Ásbjörn Guðmundsson, Kristbjörn Albertsson, Guðjón Ómar Hauksson og Ingólfur Bárðarson, núverandi formaður. Þá var eiginkona Ing- ólfs, Halldóra Jóna Guðmunds- dóttir, heiðruð en hún hefur verið umsjónarmaður félagsheimilis Njarðvíkings á undanförnum árum. Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur er með elstu sjálfstæðisfélögum landsins en það var stofnað í kjölfar stórsigurs sjálfstæðismanna í sveit- arstjórnarkosningunum árið 1954. Sjálfstæðismenn í Njarðvík fengu þá 3 fulltrúa kjörna af 5 og aðeins munaði einu atkvæði að þeir kæmu fjórða manninum að. „Þannig var að kommúnistar héldu kosn- ingaskrifstofu sinni opinni fram yf- ir miðnætti og kaus þá piltur sem átti afmæli daginn eftir kjördag. Vegna mistaka kjörnefndar var at- kvæðið tekið gilt og þar með misst- um við fjórða manninn,“ sagði Áki Gränz, gjaldkeri Njarðvíkings til 33 ára, í afmælisblaði félagsins og um- mælin vöktu mikla kátínu í afmæl- ishófinu í meðförum Árna Sigfús- sonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, sem stýrði veisluhöldum. Að öllu gamni slepptu þá hefur Njarðvíkingur komið miklu til leið- ar á þeim 50 árum sem það hefur starfað. Geir Haarde fjár- málaráðherra sem var sérstakur gestur nefndi í ræðu sinni að félag- ið hafi alla tíð verið mjög öflugt. Geir nefndi einnig að það væri mjög sérstakt hversu félagið hefði starfað lengi í ljósi þess að Sjálf- stæðisflokkurinn væri ekki nema 75 ára gamall. 50 ára afmælishóf Njarðvíkings Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Afmælishóf Áki Gränz í hópi afmælisgesta. F.v. Geir Haarde fjármála- ráðherra, Inga Jóna Þórðardóttir, Ingólfur Bárðarson, núverandi formað- ur Njarðvíkings, Árni Ingi Stefánsson og Árni Sigfússon bæjarstjóri. Fimm félagar heiðraðirVesturlandsvegur | Húsasmiðjanáformar að opna nýja verslun við Vínlandsleið 1 (við Vesturlands- veg) næsta vor sem jafnframt verður stærsta byggingarvöru- verslun landsins undir einu þaki, að sögn forsvarsmanna fyrirtæk- isins. Verslunarvara og timbur „Þarna verðum við bæði með verslunarvöru og timbur, allt undir einu þaki og það sem meira er – þetta er í fyrsta sinn sem öll vara er innanhúss,“ segir Ólafur Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri þungavörusviðs Húsasmiðjunnar. Verslunin verður í stálgrind- arhúsi, á einni hæð og er gólfflötur hennar 7.300 fermetrar. Jarðvinna er langt á veg komin og er vinna við bygginguna sjálfa rétt að hefj- ast. Jarðvinna er í höndum Heimis og Þorgeirs ehf. en aðalverktaki hússins er ÞG-verktakar. Í versl- uninni munu starfa um 35–40 manns sem verður sú nítjánda í verður verslun Húsasmiðjunnar í Grafarvogi lokað og munu allir starfsmenn hennar flytjast yfir í nýju verslunina, að sögn Ólafs Þórs. Þá verður Blómaval með verslun í húsinu en Blómaval er í 100% eigu Húsasmiðjunnar. Fleiri fyrirtæki opna á sömu slóðum Verslun og þjónusta er óðum að rísa á sömu slóðum og Húsasmiðj- an opnar verslun. Verslun Nóatúns er gegnt nýju Húsasmiðjunni og þá er áformað að opna þar einnig skemmtistaðinn Gullhamra. Að sögn Ólafs Þórs eru for- svarsmenn Húsasmiðjunnar bjart- sýnir á rekstur stórrar bygging- arvöruverslunar á þessum slóðum enda mikil uppbygging í Grafar- holti og fram undan mikil upp- bygging í Úlfarsfelli. „Síðan er borgin að tengjast Mosfellsbænum þannig að við lít- um mjög björtum augum á þetta nýja svæði,“ segir hann. röðinni undir merkjum Húsasmiðj- unnar. Samhliða opnuninni í vor Stærsta byggingarvöruverslun landsins undir einu þaki „Lítum björtum augum á þetta nýja svæði“ 7.300 fermetrar á einni hæð. Svona lítur byggingin út samkvæmt teikningu. Kristján Ágústsson, starfsmaður í timbursölu, tók skóflustunguna. Árni Hauksson forstjóri og Hall- björn Karlsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs, fylgjast með.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.