Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 19
DAGLEGT LÍF
KRISTILEGUR LESTUR OG RAÐGJÖF
Lestur símleiðis
Sr. Lenny afhjúpar allt
Are you unhappy with your marriage, separeted from loved
ones, problems with luck, marriage, examinations, job,
immigration, evil spirit or any other problems?
Leading Spiritual Medium and Psychic Healer from Trinidad
who has helped thousands of people all over the world. In the
past 20 years help and advise you with the combination of
Psychic and Occult Art
001 888 807 4698 - 001 561 248 9974
Sr. Lenny
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar
Garðatorgi 3 • 565 6680
www.fataleiga.is
Ný sending
af glæsilegum
samkvæmiskj
ólum
í öllum stærðu
m.
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Í vélinni er nýi Intel Prescott
örgjörvinn ásamt Kingston
vinnsluminni með eilífðarábyrgð,
hljóðlátur harður diskur, netkort,
geislaskrifari, XP Pro
og margt fleira.
verð 89.900.-
skrifstofuvélin sem uppfyllir
ýtrustu kröfur nútímans
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
Amerískar
lúxus heilsudýnur
á tilboði
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 89.900.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
María Sjöfn Dupuis Dav-íðsdóttir lauk nýlegatveggja ára masters-námi í hönnun frá
Domus Academy í Mílanó eftir að
hafa lokið fjögurra ára BA-námi í
listhönnun í Madríd á Spáni.
„Námið heitir iðnhönnun en ég
nefni það listhönnun sem ég er að
fást við,“ segir María Sjöfn. „Það
er betri skilgreining á því sem ég
er að vinna við, svona á jaðri iðn-
og listhönnunar eins og verkin
bera með sér.
Ég hef mjög gaman af að leika
mér á þessum jaðri og ætlaði alltaf
að fara inn á þessa braut lista og
hönnunar. Var reyndar að hugsa
um að fara í arkitektúr en í list-
hönnun gat ég sameinað þetta
allt.“
María Sjöfn tók þátt í sýningum
á vegum skólanna á meðan hún var
við nám og í sumar tók hún þátt í
stórri heimssýningu á hönnun í
Mílanó, þar sem ungum hönnuðum
var boðið að sýna húsgögn. „Sýn-
ingarsvæðið sem eingöngu var ætl-
að völdum ungum hönnuðum var á
stærð við Laugardalshöllina,“ seg-
ir hún. „Þarna sýndi ég sófa,
„sessalon“, eða réttara sagt
„sniglasessalon“ sem má teygja og
móta að vild og „rolllongue“-bekk,
sem má rugga. Við vorum fjórar
vinkonur saman með sýningarbás
en hver með sína hönnunina og var
okkar getið í umfjöllun í tveimur
ítölskum tímaritum í kjölfar sýn-
ingarinnar, þar á meðal í tímarit-
inu Interne.“
Listaverk úr ull
María Sjöfn var einnig í hópi níu
ungra hönnuða, víðsvegar að úr
heiminum, sem fengnir voru til að
hanna húsgagn sem kæmist fyrir í
kassa.
„Ég var beðin að hafa það eitt-
hvað íslenskt og ákvað að taka fyr-
ir ullina og reyna að nálgast hana
á þrívíðan hátt,“ segir hún. „Ég
þæfði hana og bjó til hálfgert lista-
verk, langan orm með þæfðum
öngum, sem hægt er að sitja á eða
vefja um hálsinn. Verkið hefur ver-
ið á sýningu í New York sem
styrkt var af tískufyrirtækinu
Diesel og haldin í Diesel Skylab,
galleríi í eigu fyrirtækisns. Ég
vinn hjá VA-arkitektum og hef
gert á sumrin með námi og þeir
styrktu mig til fararinnar. Þetta
verk fékk einnig umfjöllun í blöð-
um í New York.“
Snigla- og rólonbekkirnir sem
María Sjöfn hannaði fyrir sýn-
inguna í Mílano eru framleiddir
eftir pöntun hjá Bólstraranum og
Sóló-húsgögnum, sem framleiddu
frumgerðina, en þessa stundina
eru þeir til sölu í galleríi í Róm.
HÖNNUN | Húsgögn sem vakið hafa athygli bæði í Mílanó og New York
Stóll sem vefja má um hálsinn
www.mariadupuis.com
www.city-magazine.com
Bekkur: Ruggandi bekkur.
Morgunblaðið/Kristinn
Lopi: Stóll úr þæfðum lopa sem móta má að vild.
Sófi: Snail-
longe, sófi
sem móta má
að vild.
Nýstárlegt: María Sjöfn Dupuis Davíðs-
dóttir, með ullina um hálsinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Ég þæfði ullina
og bjó til langan
orm með þæfð-
um öngum, sem
hægt er að sitja
á eða vefja um
hálsinn
MENNTUN foreldra hefur áhrif á
löngun barnanna til frekara náms,
að því er sænsk könnun meðal
ungs fólks á aldrinum 15–25 ára
gefur til kynna. Könnunin er gerð
á hverju ári og er þar spurt um
áhuga og gildismat unga fólksins,
fjölmiðla og auglýsingar, nám,
áfengisneyslu og fleira. Fjögur
þúsund manns tóku þátt í könnun-
inni í ár.
Í Dagens Nyheter kemur fram
að fjöldi þeirra sem eiga háskóla-
menntaða foreldra og ætla sjálfir í
háskólanám er tvöfaldur á við þá
sem eiga foreldra sem ekki eiga
háskólamenntun að baki. Rúmt
41% þeirra sem eiga báða foreldra
háskólamenntaða, ætla sjálf í frek-
ara nám eftir menntaskóla en 22%
þeirra sem eiga foreldra sem ekki
eru háskólamenntaðir. Fyrri hóp-
urinn nefnir ástæður eins og: „Ég
fæ frekar áhugavert starf“ eða
„Það er gaman að upplifa háskóla-
lífið“.
Seinni hópurinn ætlar í frekara
nám af ástæðum eins og: „Ég get
fengið hærri laun…“ eða „Það er
erfitt að fá vinnu og þá get ég al-
veg eins haldið áfram námi…“
80% telja að þau eigi erfiðara
með að fá vinnu ef þau halda ekki
áfram námi eftir menntaskóla.
Menntun
foreldra
örvar börnin
til náms
KÖNNUN