Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 20

Morgunblaðið - 03.11.2004, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á NÆSTU dögum mun sam- viska okkar kennara og annarra þurfa að svara ýmsum spurn- ingum. Við kennarar þurfum að svara spurningum sem munu hljóða svona: Getum við sent börnin aftur heim með því að leggja niður kennslu á ný? Er ekki nóg komið? Er miðlunartillaga rík- issáttasemjara ekki ágæt kjarabót til kennara? Mitt svar er: Sem kennara er mér gróf- lega misboðið með þessari miðl- unartillögu. Þeir sem munu samþykkja hana ættu að spyrja sig hver hafi verið tilgangurinn með verkfallinu. Var það ekki til þess að sækja leiðréttingu á launum? Þessi miðlunartillaga er móðgun ásamt því að vera hreint og beint grín. Fyrst og fremst er hún það léleg að hún heldur með naumindum í verðlagsþróun í landinu. Í henni eru hækkanir í prósentutölum sem eru nú þegar inni í okkar launum eins og launaflokkar úr potti skólastjóra. Peningar sem nú þegar eru hjá okkur, er það allt í einu orðin hækkun? Einnig er sett inn að fyrsta hækkun skuli taka gildi frá 1. október! Kennarar vaknið ! Við vorum ekki í vinnu í október, við erum ekki að fá neinar kjarabætur greiddar afturvirkt. Að lokum rúsínan í pylsuendanum, þá er prósentu- hækkun í samningum sem tekur gildi eftir að samningurinn er út- runninn. Hvers konar vinnubrögð eru þetta á miðlunartillögu? Ef við samþykkjum þessa miðl- unartillögu þurfum við að hafa það á samvisku okkar að við og komandi kynslóðir kennara munu ávallt vera undirmálsstærð í launakjörum. Við munum ekki fara í verkfall aftur eftir þrjú ár, eða er það eitthvað sem við vilj- um? Erum við ekki búin að skerða laun okkar nóg með þessu verkfalli? Þurfum við virkilega að fara aftur í sex vikna verkfall til þess að kaupmáttur launa okkar rýrni ekki í næstu samningum? Þær blikur virðast vera á lofti að hæstvirtur menntamálaráð- herra ætli að afnema verkfallsrétt kennara og koma í veg fyrir að við getum mótmælt kjörum okk- ar. Ég spyr, hvar stöndum við þá? Hvar er samviska samninga- nefndar okkar, af hverju tóku þeir ekki afstöðu gegn þessari til- lögu? Með því að fá börnin aftur út í skólana, mun al- menningsálitið snúast gegn okkur. Þá verð- ur reynt að höfða til samvisku okkar um það að vera ekki að níðast á þeim sem eiga það ekki skilið. Börnum þessa lands. Hafið því hugfast kennarar, að við er- um líka foreldrar. Við viljum fá og eigum rétt á menntun fyrir okkar börn. Hverjir eru það svo sem ættu að vera að svara þess- um samviskuspurningum? Af hverju þurfti að grípa til verk- falls? Af hverju var ekki strax farið að vinna í samningamálum kennara þegar samningur þeirra rann út í vor? Var þetta ávallt stefna sveitarfélaga og ríkis? Var virkilega enginn vilji til að semja? Það er okkar fólk sem við höfum kosið til starfa bæði í sveit- arstjórnir og ríkisstjórn sem þarf að svara þessu. Ljóst er að meira fjármagn þarf að koma frá ríkinu. Sveitarfélögin virðast ekki vilja semja og ætla að nota okkur sem blóraböggul til að fá meira fjár- magn inn í hítina. Víst er að sum sveitarfélög hafa ekki það fjár- magn sem til þarf til að standa undir rekstri skólanna, og þau ættu þá sannarlega að fá meiri peninga. Annaðhvort frá ríkinu eða Jöfnunarsjóði. Á meðan eru sum sveitarfélög sem eiga nægan pening í ýmiss konar óþarfa. En eru svo í samkrulli um það að segjast ekki eiga peninga til að setja út í grunnskólana. Hvaða þvæla er í gangi? Þegar almenn- ingur þarf að spara þá byrjar hann á því að sleppa óþarfanum, er það ekki? Á þessum sex vikum sem við höfum verið í verkfalli hafa sveitarfélögin sparað stórfé og geta núna boðið þessa „launa- hækkun“ án þess að finna fyrir því. Forsvarsmenn sveitarfélag- anna hafa reynt að lengja þetta sem allra mest til að spara pening til að eiga fyrir auknum „út- gjöldum“ en jafnframt eru þau að bíða eftir útspili ríkisins sem virðist ekki ætla að setja neitt meira inn í grunnskólana. Í fjölmiðlunum koma fram „gosar“ sem skortir athygli. Þeir eru með staðhæfingar um að hægt sé að borga upphæð sem nemi 300.000–315.000 í laun til kennara. Í staðinn eigi kennarar loksins að fara að vinna eins og annað fólk þ.e. 8–5 . Vita þessir herrar ekki hver vinnurammi kennara er samkvæmt síðustu kjarasamningum við sveit- arfélögin. Mín reynsla er sú að meirihluti kennara vinnur vel út fyrir þennan vinnuramma í skól- anum ásamt mikilli vinnu sem þeir vinna heima. Þeir segjast eiga peninginn og því ætti ekki að vera neitt mál að verða við okkar kröfum. Kröfurnar voru nú ein- göngu 250.000- í byrjunarlaun í lok samningstímans. Þetta verfall hlýtur því að vera byggt á mis- skilningi! Hvers konar þjóð og stjórn- völdum er sama um menntun barna sinna. Eigum við ekki bara að hætta að standa í því að fá há- skólamenntaða kennara sem vilja fá alltof há laun fyrir kennsluna. Fáum þess í stað ódýrt vinnuafl frá öðrum þjóðum til að „passa“ börnin líkt og Spaugstofumenn gripu til í sínum þætti sl. laug- ardag. Með þessum lokaorðum hvet ég kennara í landinu til að standa saman og láta ekki bjóða sér því- líka vitleysu sem þessi miðl- unartillaga er. Höldum áfram að berjast fyrir bættum kjörum með enn meiri samhug og samstöðu. Virðingarfyllst ! Samviskuspurningar! Steindór Gunnarsson spyr kennara samviskuspurninga ’Fáum þess í stað ódýrtvinnuafl frá öðrum þjóð- um til að „passa“ börnin líkt og Spaugstofumenn gripu til í sínum þætti sl. laugardag.‘ Steindór Gunnarsson Höfundur er grunnskóla- kennari við Njarðvíkurskóla. Í FRÉTTUM mátti lesa og heyra „hér hvílir Jóna Jóns“ og var tengingin við heimilisofbeldi. Jón Jónsson er mjög oft notað sem nafn þegar draga þarf eitthvað fram í dagsljósið, skýra hluti eða koma einhverju á framfæri „al- menningi til heilla“. Sá sem þessar línur ritar ber hið ágæta nafn Jón en fyrir einhverja Guðsmildi hét faðir minn Sigurður. Þegar und- irritaður var að alast upp þá var haft á orði að sá sem bæri nafnið Jón og ætti Jón að föður gæti allt eins heitið „Hundur Hundsson“. Þegar ég Jón Sigurðsson sé þessa tengingu við mitt ágæta nafn við heimilisofbeldi, já eða hvað sem er, efast ég lítillega. Hvers vegna þessi tenging við Jón eða Jónu? Beitið ekki okkur sem berum þetta fallega nafn fyrir ykkur þegar í harðbakkann slær. Ofbeldi í hvaða mynd sem hún birtist á aldrei rétt á sér. Jónur og Jónar, sameinumst gegn misnotkun okkar fallega nafns, stöndum saman gegn of- beldi en sameinumst í því að finna sökudólginn og gefa honum nafn. Jón Sigurðsson Hér hvílir ábyrgð – ekki Jóna Jóns Höfundur er héraðsráðunautur á Blönduósi. ÖLDUM saman var meginhluti jarða í eigu fárra stóreignamanna, kóngsins og biskupsstólanna. Frumkvöðlar sjálf- stæðisbaráttunnar á nítjándu öld töldu brýnt fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og fram- farir í landbúnaði að bændur ættu jarð- irnar, sjálfseign- arbóndinn var í lyk- ilhlutverki. „Það var leiðin út úr torfkof- unum.“ Með svokölluðum ábúðarlögum hefur þessari stefnu verið fylgt eftir þannig að þeir sem höfðu jarðirnar á leigu fengu lífstíðarábúðarrétt, sem setti þá nánast að fullu upp að hlið sjálfseignarbóndans. Fjöl- skyldubúin voru grunneining í landbúnaði. Þetta hefur reynst þjóðinni farsælt og um þessa stefnu hefur ríkt sátt til þessa. Stuðningur hins opinbera við landbúnað hefur annars vegar miðast við að bæta náttúruleg gæði landsins til framtíðar og hins vegar að tryggja neytendum holla og góða vöru á hagstæðu verði. Með dreifðri búsetu skapast forsendur fyrir því að gæði lands- ins séu vernduð og nýtt á sjálf- bæran hátt. Þessi stefna krefst búsetumynsturs þar sem bænd- urnir, landeigendurnir, sitja jarð- irnar og mynda samfélag þar sem hver styður annan. Ekki aðeins hin nátt- úrulegu gæði eru auðlind heldur einnig samfélagið og gerð þess. Sérlög um land- búnað þurfa fyrst og fremst að lúta að hagsmunum byggð- anna og varanleika náttúruauðlindanna ásamt framleiðslu gæðavöru og þjón- ustu. Hlutur löggjaf- ans er að skapa þeim sem vilja búa í sveit og stunda þar sinn atvinnuveg fullnægjandi starfsumgjörð. Réttur þeirra á að hafa algjöran forgang og fyrir þá eiga samtök bænda að berjast. Þar eiga að fara saman hagsmunir bændanna og þjóðarinnar til skemmri og lengri tíma. Búvöru- samningar ríkisins við bændur hafa byggt á því að þessari grunn- hugsun sé fylgt þannig að fram- leiðslurétturinn sé ávallt í höndum þeirra sem búa á jörðunum. Síðastliðið vor voru gerðar veigamiklar breytingar á jarðalög- um og ábúðarlögum. Sumar voru eðlilegar, en aðrar stuðluðu því miður að því að veikja stöðu sjálfseignarbóndans og fjöl- skyldubúsins sem gunneiningar. Í stað þess að skerpa forkaupsrétt sveitarfélaga að jörðum var hann afnuminn. Í stað þess að skil- greina samfélagslegar kvaðir á landeigendur var frjálsræði í ráð- stöfun og meðferð lands aukið. Réttur ábúenda á leigujörðum var skertur verulega. Innlausn- arréttur ábúanda gagnvart sam- eigendum var afnuminn. Aðkoma sveitarfélaganna að meðferð og ráðstöfun lands til landbún- aðarnota er skert verulega þvert á meginmarkmið laganna. Þessar breytingar voru flaust- urslega unnar og flestar at- hugasemdir samtaka bænda og sveitarfélaga að engu hafðar. Frekar hefði þurft að skýra og styrkja samfélagskvaðir á þá sem fara með forsjá lands og búvöru- framleiðslu. Nágrannaþjóðir okkar á Norð- urlöndum leggja áherslu á að verslun með land og landgæði hafi sérstöðu. Öfugt við okkur eru í löggjöf þeirra gerðar ákveðnar og skilgreindar kröfur til landeig- enda um búsetuskyldu og meðferð auðlindarinnar. „Inn í torfkofann“ Og nú vakna menn upp við vond- an draum. Fjársterkir ein- staklingar, félög og fyrirtæki kaupa nú upp í stórum stíl fram- leiðsluheimildir og bújarðir, jafn- vel í fullum rekstri. Sjálfseign- arbóndinn, fjölskyldubúið, er ekki lengur grunneining, heldur rétt- litlir leiguliðar stóreignamanna. Morgunblaðið, málgagn Sjálfstæð- isflokksins, ræðir þetta í leiðara sínum 23.okt.sl. og finnst þetta góð þróun. Öðruvísi mér áður brá. Í Ríkisútvarpinu 14. okt. sl. er haft eftir Ólöfu Hallgrímsdóttur, formanni félags kúabænda í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, að það sé aft- urhvarf til fortíðar að bændur verði leiguliðar auðmanna. Ein- mitt í nágrenni hennar og í Eyja- firði er hart sótt að samfélaginu með uppkaupum bújarða. Er talið að skipt geti nú þegar tugum jarða í höndum sama lögaðila. Vissulega hafa áður verið keyptar jarðir sem fallið hafa úr ábúð. En það hafa gjarnan verið jað- arbyggðir og ekki um raðuppkaup að ræða. Beingreiðslum til bænda var ætlað að tryggja búsetu, dreifða byggð og heilnæma framleiðslu. Fari fram sem horfir verða bein- greiðslurnar notaðar til hins gagnstæða, til að fjármagna skipulögð uppkaup á bújörðum. Forsendur núgildandi búvöru- samninga bæði í mjólk og sauð- fjárafurðum hljóta að vera í upp- námi. Verð á framleiðsluheim- ildum, áskrift að greiðslum úr ríkissjóði rýkur upp úr öll valdi, er nú komið yfir 300 kr. á mjólk- urlítrann. Greiðslumark í sauðfé er á sömu leið. Bóndinn á engin tök á að kaupa framleiðsluheim- ildir þessu verði. Neytendur geta ekki greitt þetta háa kvótaverð. Framleiðsluöryggið dvín. Heilu byggðarlögin standa agndofa og varnarlaus gagnvart því sem er að gerast. „Ég mun ekkert gera“ „Ég mun ekkert gera sem stöðvar þessa þróun,“ sagði landbún- aðarráðherra við umræðuna á þingi þegar rætt var um raðupp- kaup á jörðum. Þá féllust þeir í faðma Pétur H. Blöndal alþing- ismaður og Guðni Ágústsson land- búnaðaráðherra. Nýfrjálshyggjan lofaði framgöngu ráðherrans. Einhverntíma hefðu bændur talið það hættumerki. Ég tel að svo sé enn og að þessa óheillaþró- un verði að stöðva. Sjálfseignarbóndi eða réttlaus leiguliði Jón Bjarnason skrifar um uppkaup á jörðum ’Heilu byggðarlöginstanda agndofa og varn- arlaus gagnvart því sem er að gerast.‘ Jón Bjarnason Höfundur er alþingismaður í Norðvesturkjördæmi. R-LISTNN hefur samþykkt um- talsverða hækkun á gjaldskrá í heima- þjónustu og á gjald- skrám fyrir fæði, veit- ingar og akstur í félagsstarfi. Þar með ræðst R-listinn enn á ný á garðinn þar sem hann er lægstur en ljóst að það eru fyrst og fremst aldraðir og öryrkjar sem verða fyrir barðinu á þess- um hækkunum. Miklar hækkanir Hér eru engar smá hækkanir á ferðinni. Hver unnin stund í heimaþjónustu á dag- vinnutíma hækkar úr 350 kr. í 500 kr. og þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að fjölga þeim sem undanþegnir eru gjald- skyldu munu langflestir verða fyrir barðinu á þessari hækkun. Fæði, veitingar og akstur í félagsstarfi fyrir lífeyrisþega, atvinnulausa og þá sem njóta fjárhagsaðstoðar hækkar einnig töluvert. Aksturinn mun hækka um 47% og kaffi- meðlæti frá 21% til 50%. Orðagjálfur Félagsþjónustan hefur verið rekin með halla og er gert að skera niður um rúmlega 42 milljónir á árinu 2005. Til að stoppa upp í fjárhagsrammann ákveður R-listinn að sækja það fé sem á vantar að verulegum hluta til aldraðra og öryrkja. R-listinn reyn- ir að réttlæta hækk- unina með orðagjálfi en það breytir ekki þeirri staðreynd að hér er um auknar álögur á öryrkja og aldraða að ræða enda ætlunin að sækja til þeirra um 20 milljónir króna. Auknar álögur á aldraða og öryrkja Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrif- ar um gjaldskrárhækkanir Guðrún Ebba Ólafsdóttir ’R-listinn reyn-ir að réttlæta hækkunina með orðagjálfri.‘ Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í félagsmálaráði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.