Morgunblaðið - 03.11.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 03.11.2004, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR um hætt að undrast öryggið og óbrigðult minnið sem gerði honum kleift að flytja af fullkomnu öryggi löng og hrynþung ljóð í hálfrökkrinu. Hvert eitt skipti var tilhlökkunarefni og stundum þurfti Árni að láta vita þegar við vorum orðin aðeins of að- gangshörð að biðja um eitt ljóð enn. Þá var söngrödd Árna falleg og eng- inn söng sænska ,,glunta“ af jafn strákslegri gleði og hann. Án efa hljómar rödd hans enn í hugum okk- ar margra, með fjölbreyttum blæ- brigðum og kímni sem rímaði vel við brosið í augunum, sem alltaf var skammt undan. Hreppsbúar allir fengu einnig að njóta ljóðaflutnings Árna, bæði á bókmenntakvöldum Dægradvalar og á þorrablótum til margra ára, þegar Árni fór jafnan með Þorraþræl við mikinn fögnuð áheyrenda. Þau Árni og Guðný voru meðal fyrstu íbúa Blátúns, fluttust hingað fyrir liðlega 20 árum. Þótt þau væru eldri í árum talið en flest okkar hinna hafa þau alltaf verið ung í augum okkar. Fátt var gert í götunni án þess að þau tækju þátt og án efa eiga þau ríkan þátt í því hve samstilltir íbúarnir í götunni hafa verið. Árni var snöggur til orða og athafna, á hlýlegan hátt, sem er sérstakur galdur. Hann var mikill húmoristi og heitur hugsjónamaður og í skapgerð hans bjuggu þessir eðlisþættir að því er virtist í sátt og samlyndi. Hug- sjónirnar gáfu húmornum aukna dýpt og kímnigáfan var honum góð- ur liðstyrkur við að koma hugsjónum sínum á framfæri. Hann var sívak- andi fyrir umhverfi sínu fram á síð- ustu stundir og kunni þá list flestum öðrum fremur að lifa lífinu lifandi. Árni var gæfumaður í lífi og starfi, ekki vegna þess að honum hafi verið hlíft við erfiðleikum, heldur vegna þess að hann kunni að takast á við það sem að höndum bar. Heilsufarið var honum oft erfitt síðustu árin, en hann var ekki að flíka því. Árni naut þeirrar sérstöku gæfu að lífsföru- nauturinn, Guðný, leyfði honum að blómstra án þess að nokkurn tíma glataðist það jafnræði sem var með þeim tveimur. Hann átti stóra og góða fjölskyldu sem var samhent og traust við hlið hans til hinstu stund- ar. Við nágrannarnir í Blátúni kveðj- um Árna með miklum söknuði og hugurinn er hjá Guðnýju vinkonu okkar og fjölskyldu hans allri. Grannarnir í Blátúni. Við Árni Björnsson höfðum sést við og við á málþingum og öðrum menningarviðburðum en ég kynntist honum þegar ég tók við hann viða- mikið viðtal í helgarblað Þjóðviljans í maí 1989. Einstaka sinnum er bæði lærdómsríkt og örvandi að vera blaðamaður, og þetta viðtal var besta dæmið um slíkt í mínu lífi. Árni sýndi blaðasnápnum virðingu og óvenju- legt örlæti, honum tókst í raun og veru að gefa í skyn að hann fagnaði þessu tækifæri til að kynna hug- myndir sínar um tilgang og takmörk lýtalækninga, ást á íslenskum menn- ingararfi og áhyggjur af samtíma- stjórnmálum. Ég var algerlega hug- fangin af gáfum hans – og ekki síður glæsileika og fágaðri og tilgerðar- lausri framkomunni. Árni var meðal fremstu lækna á sínu sviði, kunnur um víða veröld meðal sérfræðinga í lýtalækningum fyrir rannsóknir sínar meðal annars á fólki með klofinn góm og vör. En hann var líka mikill unnandi hinna fögru lista sem hann sagði að fengju hann til að gleyma sínu erfiða starfi. Hann las gríðarlega mikið, hafði einkum gaman af að ræða miðalda- bókmenntir Íslendinga og hafði þá sannfæringu að án Íslendingasagna værum við ekki til sem þjóð. Ljóð las hann af ástríðu og starf sitt gerði hann líka að listgrein, enda má segja að góður lýtalæknir sé eins konar myndlistarmaður. Nú þegar Árni kveður missi ég ekki bara vin heldur áhugasaman áskrifanda. Hann var spenntur fyrir Tímariti Máls og menningar sem hann hafði verið áskrifandi að öll sín fullorðinsár, hafði ákveðnar skoðanir á efni þess og lét í sér heyra bæði til lofs og lasts. Hann heillaðist af ljóði Hannesar Péturssonar, „Efri dög- um“, í öðru hefti ársins og las fyrir mig ljóðræna hugleiðingu sína út frá því í síma. Með nokkrum eftirgangs- munum fékk ég að birta það í haust- heftinu og tek mér það bessaleyfi að endurbirta það hér til að leyfa fleiri vinum hans og aðdáendum að njóta þess – um leið og ég kveð með sökn- uði þennan einstaka mann. Þó að allt hverfi að endingu og gleymist mun hann ekki gleymast þeim sem þekktu hann. Hvað gagnar oss sem erum að kveðja viskan sem við sugum úr sjóði andans eða verðmætin sem við söfnuðum í sveita langra vinnudaga. Við hverfum og gleymumst og allt safnið hverfur og gleymist í tímans endalausu rás. Sálir okkar og líkamir blandast moldinni sem er lokaathvarfið. Grasið á gröfunum vex jafnt upp af líkama fávitans og spekingsins öreigans og auðkýfingsins og fer allt jafnvel í maga kanínanna í kirkjugarðinum. Silja Aðalsteinsdóttir. Ég kynntist Árna samsveitunga og kollega fyrst um miðjan 7. áratug- inn þá ungur læknanemi á hand- læknisdeild Landspítlans. Hann var lærður skurðlæknir og lýtalæknir frá Svíþjóð og Skotlandi. Okkur unga fólkinu í starfsnámi þótti hann sýna lagni og öguð vinnubrögð, einn- ig vilja til fræðslu. Ég starfaði síðar sem sérfræðingur á svæfingadeild Landspítalans með honum. Þar var mest um að ræða svæfingar eða deyfingar við lýtaaðgerðir af ýmsum toga. Mér eru minnisstæðastar hol- gómaaðgerðir á nýfæddum en þar var Árni frumkvöðull og framúr- skarandi fær. Árni starfaði með mér á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði árin 1976–1993. Segja má að hann hafi verið farsæll og vel liðinn af sjúkling- um sínum. Þrátt fyrir mikla vinnu gaf Árni sér tíma til að sinna ýmsum fé- lagsmálum. Þar má nefna umfangs- mikil störf fyrir Landspítalann og læknasamtökin, en ætla ég ekki að fjalla neitt um það. Ég ætla hinsveg- ar að geta dálítið um þátt Árna í póli- tísku vafstri á Álftanesi sem ég þekki nokkuð til. Árni og fjölskylda fluttust á Álfta- nesið í nýbyggt hús árið 1980. Þau vildu vafalaust komast á rólegri stað og umhverfisvænni. 1982 var sjálf- kjörið í hreppsnefnd. Margir í hreppnum töldu það ekki hollt fyrir sveitarfélagið til lengdar og var ákveðið 1986 að stofna félag, Hags- munasamtök Bessastaðahrepps og bjóða fram lista sama ár sem var þverpólitískur. Árni var einn af stofnendunum og var áberandi á list- anum sem fékk við kosningarnar 2 menn kjörna af 5 og flest atkvæðin. Árni starfaði talsvert fyrir listann og sagðist hafa gaman af. Var hann meðal annars í sýslunefnd 1990– 1993. Var honum sérstaklega um- hugað um umhverfisvernd og vildi verja það sveitasamfélag sem enn var eftir eins og kostur var. Árni var drengur góður og leitað- ist við að leysa vandamál fólks og þá á skynsamlegan hátt. Slíkir menn eru vinsælir og eftirsóttir til verka. Við Ingibjörg vottum Guðnýju Bjarnar og fjölskyldu samúð við frá- falls vinar. Auðunn Kl. Sveinbjörnsson. Árið 1998 mætti Árni Björnsson á stofnfund félags ásamt fleirum sem vildu andmæla lagafrumvarpi um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Árni lagði til að félagið skyldi heita Mann- vernd. Þannig leit hann á málið, það snerist um mannvernd. Hann lét þó ekki nægja að leggja samtökunum til nafn heldur tók hann virkan þátt í starfinu til dauðadags. Hann mætti á síðasta fund fyrir rúmum mánuði, og var baráttuviljinn mikill. Nú gæti einhver sem þekkti ekki Árna haldið að ungir róttækir menn hefðu afvegaleitt gamla manninn. Svo var ekki, heldur hélt hann okkur hinum við efnið og útskýrði fyrir okkur hvers vegna mannréttindi þola enga málamiðlun. Þetta skýrði hann líka í greinum sínum, sem er að finna á www.mannvernd.is. „Eru íslenskir læknar hugrakkir eða eru þeir tækifærissinnar og hug- leysingar sem eru tilbúnir til að láta undan hótunum yfirvalda og jafnvel selja aldagömul gildi fyrir aðgang að kjötkötlum gróðafyrirtækja?“ spurði Árni í Læknablaðinu 1999. Hann gerði sér grein fyrir því að barátt- unni væri ekki lokið, því þrátt fyrir sigur í Hæstarétti og úrskurð um stjórnarskrárbrot „seilast menn framá ystu nöf siðgæðis í von um óvissan læknisfræðilegan ávinning en kannske öruggan fjárhagslegan ábata“. Þess vegna þurfum við menn eins og Árna, sem hafa hugrekki til að standa upp og kveðja sér hljóðs þegar réttur borgara er fótum troð- inn. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að vinna með Árna að mannrétt- indamálum, því sem hann kallaði mannvernd. Samstarfið var gefandi fyrir alla sem unnu með honum, og það var mér hvatning að sjá mann á hans aldri berjast fyrir hagsmunum annarra, á óeigingjarnan hátt, og verja grunnréttindi sjúklinga. Þegar ég upplifði þessa virðingu fyrir rétti manna og staðfestu um grundvallar- siðareglur vaknaði von um árangur, og von um að hafa sjálfur brot af þreki og hugsjón Árna þegar árin líða. Fyrir þessa von er ég honum þakklátur. Fyrir hönd félaga í Mannvernd sendi ég fjölskyldu Árna einlægar samúðarkveðjur. Pétur Hauksson. Á sunnudegi geng ég framhjá húsi Árna Björnssonar læknis á Álftanesi á leið minni af fundi í Náttúru- og fuglaverndarfélagi Álftaness sem haldinn var í húsi í götunni hans. Á fundinum var ákveðið að skrifa grein til að vekja athygli á náttúruvernd- armálum á Álftanesi. Nýverið hafði verið kynnt fyrirhugað aðalskipulag bæjarfélagsins þar sem ómetanleg strand- og fuglasvæði voru lituð á korti í hinum ógnvænlega fjólubláa lit steinsteypunnar. Ég lít á dyrnar hjá Árna og hugsa „Mikið væri gam- an að eiga afrit af blaðagreinunum sem hann Árni hefur skrifað um náttúruvernd á Álftanesi“. Mér finnst ekki viðeigandi að banka uppá á hádegi á sunnudegi svo ég ákveð að láta það bíða betri tíma. Ég veit ekki að Árni Björnsson læknir er látinn – hann hafði látist um nóttina. Í gegnum árin hef ég sent Árna fjölmörg þakkarkort í huganum, en aldrei látið verða af því að skrifa eitt einasta. Þegar móðir mín hringdi og sagði mér frá andláti Árna fylltist ég eitt augnablik sjálfsásökunum út af vanefndum mínum. Svo áttaði ég mig: Kort eða veisla, sama hversu vel hefði verið vandað til – EKK- ERT, nei ekkert gæti þakkað það sem Árni Björnsson hefur gert fyrir mig í lífinu. Í mörg ár var ég svo lán- ÁRNI BJÖRNSSON Minningarkort 570 4000 Pantanir á netinu: www.redcross.is Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Þegar á reynir Rauði kross Íslands Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRUNN HANNA JÚLÍUSDÓTTIR, Nýbýlavegi 46, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni mánudagsins 1. nóvember. Villy Pedersen, Ólafur Pedersen, Ingibjörg Halldórsdóttir, Ragnar Bogi Pedersen, Sólveig Sveinsdóttir, Jóna Júlía Pedersen, Ólafur Ásgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra, VILBORG HJALTESTED, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund mánu- daginn 1. nóvember. Walter Hjaltested og fjölskyldur. HJÖRDÍS FJÓLA KETILSDÓTTIR, síðast til heimilis á Vesturgötu 22, Reykjavík, lést á Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili, þriðjudaginn 26. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir frábæra umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA ZOËGA, lést á líknardeild Landakots þriðjudaginn 2. nóvember. Útförin auglýst síðar. Kristín Zoëga, Ágúst Geirsson, Helgi Zoëga, Sheila Zoëga, barnabörn og barnabarnabörn. Konan mín, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Suðurgötu 8, andaðist mánudaginn 1. nóvember. Einar Bragi. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓHANNA ANTONSDÓTTIR frá Skeiði, Hlíðarvegi 45, Siglufirði, andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar mánudaginn 1. nóvember. Jarðsungið verður frá Siglufjarð- arkirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00. Anton Sigurbjörnsson, Pálína Frímannsdóttir, Bogi Sigurbjörnsson, Sigurhelga Stefánsdóttir, Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Birgir Haraldsson, Kristrún Sigurbjörnsdóttir, Stefanía Sigurbjörnsdóttir, Jóhann Stefánsson, Jón Sigurbjörnsson, Björk Jónsdóttir, Ásgrímur Sigurbjörnsson, Guðrún Sighvatsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.