Morgunblaðið - 03.11.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 03.11.2004, Síða 35
Morgunblaðið/Brynjar Gauti Slökkviliðsmenn við störf. KVIKMYNDIN Ladder 49 með þeim Joaquin Phoenix og John Travolta verður forsýnd í kvöld kl. 19.30 í Sambíóunum Álfabakka og mun allur ágóði renna til styrktar Geðhjálp. Það eru Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins, Bylgjan og Sambíóin sem standa fyrir sýningunni. Þá mun Slökkviliðið mæta á svæðið með tæki og tól og verða með ýmsar uppákomur, en Ladder 49 fjallar um hið einstaka starf slökkviliðsmanna. Styrktarsýning á Ladder 49 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 35 DAGBÓK MENNING ÓL í Istanbúl. Norður ♠K106 ♥D107 S/Enginn ♦984 ♣ÁKG4 Vestur Austur ♠D43 ♠9752 ♥Á985 ♥KG42 ♦D6 ♦G107 ♣10652 ♣97 Suður ♠ÁG8 ♥63 ♦ÁK532 ♣D83 Ítalinn Giorgio Duboin er óhræddur við að gefa líkindafræðinni langt nef þeg- ar hann þarf að finna drottningar í við- kvæmum stöðum. Í því tilfelli treystir hann algerlega á eigin lyktarskyn. Spilið að ofan er úr síðustu umferðinni í 16 liða úrslitum ÓL. Þrjú grönd er eðlilegur samningur í NS, sem byggist á því að finna drottninguna í spaða. Í leik Ítala og Bandaríkjamanna kom út hjarta á báðum borðum og vörnin tók þar strax fjóra slagi. Vestur spilaði svo hlutlaust laufi í fimmta slag. Bandaríkjamaðurinn Weinstein tók ÁK í tígli og síðan alla laufslagina. Aust- ur henti tveimur spöðum, svo það var sannað í lokastöðunni að hann hefði byrj- að með 4–5 spaða, en vestur 2–3. Og Weinstein lét íferðina í spaðann mótast af því – hann tók á kónginn og svínaði gosanum. En var óheppinn og fór einn niður. Greinarhöfundur horfði á Duboin spila þetta spil á Bridgebase.com og í sömu þriggja spila endastöðu tók hann á spaða- ás og svínaði fyrir drottninguna í vestur. Hvers vegna veit enginn nema hann, en það væri gaman að þekkja leyndarmálið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is TEXTI þessarar bókar er hvorki langur né seinlesinn en efni hennar, og þó enn frekar hugmyndin að baki henni, er nýstár- leg og að vissu leyti dapurleg. Bókarhöfundur, Sigurður Gylfi Magnússon sagn- fræðingur, hefur um árabil lagt sig eftir einsögu- rannsóknum, en svo er nefnt það svið sagnvísinda, þar sem fræði- menn hyggja einkum að hinu smáa, einstaklingum, „smáum atburðum eða þáttum í lífi þeirra og umhverfi“. Efni þessarar bókar er auðvelt að tengja áhuga- og rannsóknarsviði Sigurðar. Hann birtir hér myndir af fólki, fátæku fólki, flökkurum og „skrýtnu“ fólki, fólki sem á einhvern hátt var öðru vísi en fjöldinn, ann- aðhvort í útliti eða hegðun. Margt af þessu fólki myndi nú á dögum kall- ast utangarðsmenn, en þó ekki allir. Myndunum í bókinni hafði afi Sig- urðar, Helgi Magnússon járnsmiður og kaupmaður í Reykjavík, safnað. Þær eru birtar hér í upphaflegri stærð og við allar semur Sigurður stuttan texta. Sumir textanna hafa að geyma beinar upplýsingar um mynd og myndefni, aðrir eru meira í ætt við hugleiðingar, sumir nánast eins og stutt ljóð. Myndirnar eru höfuðefni bókarinnar og í þær verð- ur lesandinn að rýna vilji hann skilja það sem höfundur er að segja. Margur freistast vafalaust til þess að tengja efni þessarar bókar rann- sóknarsviði höfundar og það hygg ég að sé honum sjálfum að meinalausu. Hvað er meiri einsaga en einmitt augnablikið þegar ljósmynd er tek- in? En myndirnar sýna ekki aðeins einstaklinga – oft umkomulítið fólk, sem var snöggur blettur á samfélag- inu. Þær bregða einnig upp svip- mynd(um) af horfinni tíð – veröld sem var. Eða er þetta annars veröld sem var? Við þurfum ekki að ganga lengi um götur Reykjavíkur nú- tímans til þess að hitta fyrir fólk, sem er alveg jafn umkomulaust og illa á sig komið og margir þeirra er prýða myndirnar í þessari bók. Það er ekki klætt í sams konar tötra, en neyð þess er engu minni, stundum sárari. Að þessu leyti er bókin Snöggir blettir aldarspegill okkar tíma engu síður en fyrri tíðar. Hún er einföld að ytri gerð en innihald hennar og boðskapur er í senn fal- legt og nöturlegt. BÆKUR Sagnfræði Höfundur: Sigurður Gylfi Magnússon. Útgefandi: Miðstöð einsögurannsókna í Reykjavíkurakademíunni og Ljós- myndasafn Reykjavíkur, Reykjavík 2004. 141 bls., myndir. Snöggir blettir Jón Þ. Þór Sigurður Gylfi Magnússon Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Farið í Hagkaup Skeifunni kl. 10, kaffi og vínarbrauð í boði Hagkaupa, postulín kl. 10 og 13. Bókaormarnir kl. 13.30, hjúkrunarfr. kl. 11. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, heilsugæsla kl. 9.30–11.30, smíði, útskurður kl. 13– 16.30, spil kl. 13.30, keila kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, almenn handavinna, glerlist, bridge, vist. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10– 10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–16 samverustund, kl. 14.30–15 bankinn, kl. 14.40 ferð í Bónus, kl. 15– 15.45 kaffi. FEBÁ Álftanesi | Opið hús í Hauks- húsum kl. 13–16. Myndlistarnámskeið, framhald. Spilað og spjallað, kaffi. Félag eldri borgara Reykjavík | Sam- félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um málefni eldri borgara á RÚV. Síðdeg- isdans kl. 14–16, húsið opnað kl. 13.30, Guðmundur Haukur. Kaffi og rjómaterta. Söngfélag FEB kóræfing kl. 17. Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11, glerskurður kl. 13, postulínsmálun kl. 16. Í Garðabergi er handavinnuhorn og bridge kl. 13. Opið hús í Holtsbúð kl. 13. Gerðuberg | Kl.10.30 dans, frá hádegi spilasalur opinn, leiðs. í vinnustofum fellur niður v. ferðar. Sími. 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn hand- av., bútasaumur, útskurður, hár- greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11, banki, kl. 12 hádegismatur, kl. 13, bridge, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–15, jóga kl. 9–12, samverustund kl. 10.30–11.30, myndlist kl. 15–18, bingó kl. 14, böðun fyrir hádegi. Fót- snyrting–hársnyrting, kl. 9–16.30. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf. Listasmiðja, postulínsmálun kl. 9–16. Avon-kynning kl. 11–14. Hárgreiðslu- stofa 568-3139. Fótaaðgerðarstofa 897-9801. Molasopi, hádegisverður og síðdegiskaffi. Bókmenntaklúbbur kl. 20–21.30. Híbýli vindanna. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Norðurbrún 1 | Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 13 bankaþjónusta, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Fótaað- gerðastofan er opin mið. og mán. frá kl. 9. Vitatorg | Smiðja kl. 8.45, bókband og hárgreiðsla kl. 9, helgistund með sr. Sigurði Pálssyni, kl. 10, handmennt kl. 10–16, fótsnyrting kl. 9.30, kór kl. 13. Þórðarsveigur 3 | Opið hús, handverk kl. 13.30–16. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl. 10–12. – Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 15.30–16.30. Námskeið – Tíð- argjörð, bæn og íhugun kl. 18–18.50. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, altarisganga, fyr- irbænir. Léttur málsverður. Kirkju- prakkarar (7–9 ára) kl. 16.30 og TTT (10–12 ára) kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf aldraðra frá kl. 13. Spil, föndur og handavinna. Kaffi kl. 15. Fróðleikur og skemmtiefni. Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára kl 17.15–18 á neðri hæð. digraneskirkja.is Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10 til 12. Fyrirlestur mánaðarlega. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, org- elleikari Hörður Bragason. Æskulýðs- félag í Engjask. kl. 20 fyrir 8. bekk. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8 árdegis. Hugleiðing og altarisganga. Einfaldur morgunverður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Kven- félagið heldur fund 4. nóv. kl. 20. Gest- ur fundarins verður Elín Ebba Ás- mundsdóttir iðjuþjálfi sem talar um geðrækt, harmonikkuleikur og sr. Sig- urður Pálsson flytur hugvekju. Háteigskirkja | Foreldramorgnar fimmtudaga. Kl. 10.30 ræðir Herdís Storgard um „Slys og öryggi“. Hjallakirkja | Fjölskyldumorgunn í Hjallakirkju kl. 10–12. 3. nóvember verður fræðsla um brjóstagjöf. Kapella Fríkirkjunnar í Reykjavík | Bæna og kyrrðarstund kl. 12.15. Heitt á könnunni og létt meðlæti á eftir. Kristniboðssalurinn | Samk. kl. 20. „Vitnisburður“. Sálmur 40, Friðrik Hilmarsson, Lofgjörðarsamk. Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30. Starf eldri borgara kl. 13–16. Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu- morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn Sólarmegin. Kl. 14.10–15.30. Kirkju- prakkarar (1.–4. bekkur). Kl. 16.15 TTT (5.–7. bekkur). Kl. 19 Fermingar–Alfa. Kl. 20.30 Unglingakvöld. Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Fæði ungbarna. Hólmfríður Þorgeirs- dóttir, matvæla- og næringarfræð- ingur, Lýðheilsustöð. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Dr. Sigurður Árni Þórðarson. Opið hús kl. 13. Ferð höfuðstöðvar ÍE. 7 ára starf kl. 14.30. Kóræfing kl. 19. Njarðvíkurprestakall | Spilakvöld aldraðra og öryrkja í Ytri-Njarðvík- urkirkju á fimmtudagskv. kl. 20. VIÐHORF mannanna til orðsins listar hefur löngum verið misjafnt og sumum finnst ekkert fyndið ýmislegt það, sem aðrir veltast af hlátri yfir. „Ertu að lesa helv. rugl- ið úr honum Flosa?“ spurði hálærður kollega minn sem kom að mér þar sem ég sat með nýjustu bók Flosa Ólafssonar og skemmti mér konunglega. Þar sem viðkom- andi kollega er ekki þekktur að skopskyni og tilheyrir aukinheldur sumum þeim hópum fólks, sem ekki eru beinlínis hafnir til skýjanna í þessari bók, lét ég mér nægja að kinka kolli og varð svo ekki af frek- ari samræðum. En ég var sem sagt að lesa bókina Heilagur sannleikur, og hafði mikið gaman af. Sannleikurinn er að vísu ekki alltaf heilagri en svo að ég efast um að höfundurinn trúi honum sjálf- ur, a.m.k. ekki alltaf. Sjálfum er hon- um ekkert heilagt og umfjöllun hans um ýmis þau málefni, sem hann tek- ur fyrir, myndu margir kalla ein- strengingslega og meinlega, en hún er oft á tíðum drepfyndin. Stundum segir hann eitt og annað, sem margir aðrir vildu sjálfsagt gjarnan sagt hafa, og ekki vantar hugmynda- flugið. Vafalaust eru þeir margir, karlar jafnt sem konur, sem helst vildu af- greiða þessa bók sem „bull“ eða „spuna“, í besta falli sem eins konar brandarabók. Slík afgreiðsla er þó að mínu mati of ódýr. Því skal alls ekki neitað að Flosa hættir til að bulla, á köflum fullmikið, en hann spinnur frásögnina skemmtilega og ekki er einn einasti leiðinlegur kafli í bókinni. Þeir eru þó misskemmti- legir og stundum verður vaðallinn ansi mikill. Flosi gerir sér sérstakt far um að hæðast að ýmsu því sem margir taka mjög alvarlega og beitir einföldum rökum til að „sanna“, að ýmis „vandamál“ nútímans eru lítið annað en tilbúningur þeirra sem við þau fást og að mörg þeirra voru leyst fyrir löngu, án þess að verða „vandamál“. Þá voru þau bara kölluð eitthvað annað. Ekki get ég verið sammála höf- undi í öllum greinum, en bókin er skemmtileg aflestrar og þeir sem ekki hafa gaman af henni hljóta að vera haldnir „skopskynsröskun“. BÆKUR Hugleiðingar eftir Flosa Ólafsson Skrudda, Reykjavík 2004. 63 bls. Heilagur sannleikur Jón Þ. Þór Flosi Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.