Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HÉRAÐSBÚAR eru samir við sig; þeir setja upp mjög metnaðarfullar sýningar ár eftir ár og reglulega eru leiksýningar fyrir börn eða með börnum. Nú er það söngleik- urinn Bugsý Malone þar sem leik- arar, söngvarar og hljóðfæraleik- arar eru allir ellefu til sextán ára. Hvorki meira né minna en sjötíu krakkar taka þátt í uppfærslunni sem er stór og glæsileg og tónlistin er ákaflega vel flutt. Söngleikurinn fjallar í stuttu máli um misjafnlega einfalda bófa, töffara, dansara, söngvara og lög- reglu á gamansaman hátt. Róm- antíkin svífur yfir, sérstaklega hjá aðalpersónunni Bugsý og saklausu sveitastúlkunni Blúsí. Allt er á sín- um stað; heimska löggan, heimski mafíuforinginn og menn hans, tæl- andi borgarkvendið og margir fleiri sem passa inn í undirheima- lífið í bandarískri borg á kreppuár- unum. Spyrja má hvers vegna þessi söngleikur er jafn vinsæll og raunin er, sérstaklega þar sem boðskapurinn, ef boðskap skyldi kalla, er gamaldags og sönglögin eru mörg erfið í flutningi. Svarið er í raun einfalt: Tónlistin er skemmtileg, verkið er fyndið í bland við rómantík og spennu og síðast en ekki síst er gaman fyrir krakka að leika leikrit þar sem hægt er að fara í byssu- og bófa- leik. Hættan er alltaf sú aðþegar börn leika fullorðna, að ekki sé tal- að um stelpur að leika fáklæddar dansmeyjar og tælandi konur, þá fari þeir fullorðnu yfir strikið og þvingi kynferðislegu útliti og leik upp á börnin. Guðjón Sigvaldason leikstjóri fellur aldrei í þá gryfju. Það þarf styrka stjórn og næmt auga til að stjórna svona stórum hópi fólks á leiksviði, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna. Guðjón hefur fundið leið til að þess að allir gætu verið með. Hann hef- ur búið til fjöldann allan af skemmtilegum hópatriðum þar sem allir njóta sín vel, ekki síst í flottum dansatriðum og í stílfærð- um byssuatriðunum. Það er ein- staklega vel til fundið að fara alla leið í því að láta bófaflokkinn vera kvennaflokk. Flestir leika nokkur hlutverk en oft eru litlu hlutverkin mjög vel unnin eins og til dæmis hlutverk barstúlkunnar með tyggjóið og tuskuna og litli guttinn í fátækrahópnum. Fátæklingahóp- urinn sem flestir leikaranna léku er skemmtilegur og gaman að sjá hve leikstjórinn er hugrakkur að hvíla í svo löngu og vandmeðförnu hópatriði. Á frumsýningu gætti hiks í innkomum og ljósastjórnun en slíkt slípast vafalaust þegar á líður þar sem allar skiptingar eru greinilega vel skipulagðar. Sýningin á Bugsý Malone er prýðileg skemmtun þar sem vand- að er til hvers verks og krakkarnir leika, syngja og dansa af hjartans lyst. Uppeldisgildi leiksýningar af þessu tagi er gríðarlegt og ástæða til að hvetja Héraðsbúa til að fjöl- menna og hvetja þannig börnin sín. LEIKLIST Leikfélag Fjótsdalshéraðs Höfundur: Alan Parker. Leikstjóri og þýð- andi: Guðjón Sigvaldason. Tónlistarstjóri: Freyja Kristjánsdóttir. Frumsýning í Vala- skjálf 16. október. Bugsý Malone Hrund Ólafsdóttir JÓHANNES Geir lét eftir sig mik- inn fjölda málverka er hann lést á síðasta ári. Hann var ekki síst af- kastamikill á síðari árum sínum en sagði m.a. í viðtali að veikindi sín hefðu orðið til þess að hann jók af- köstin. Þannig verður manni við þegar maður áttar sig á því að lífið er ekki endalaust. Jóhannes var frá Sauðárkróki en nam við Myndlista- og handíðaskól- ann hér heima og síðan í Kaup- mannahöfn. Hann átti ekki auðvelt uppdráttar í myndlistinni á þeim tíma þegar abstraktið var allsráð- andi en gekk betur síðar. Myndir hans eru allflestar landslagsmyndir og flestar auðþekkjanlegar vegna sérstakrar og djarfrar litanotkunar. Það er suðræn sveifla í litum hans, bleikum, appelsínugulum og græn- bláum og efast ég þó ekki um að lit- irnir séu í samræmi við íslensk birtubrigði sem jafnan koma á óvart. Nú má sjá um þrjátíu málverk og minni verk eftir Jóhannes í Galleríi Fold, eingöngu myndir sem sýna hesta. Það er svo sem gott og gilt og hestar hafa án efa verið Jóhann- esi, Skagfirðingnum hugleiknir. Hann er líka frásagnarmálari og segir oft sögur í verkum sínum og hestarnir tilvaldir til þess. Það er þó birtan og litavalið sem er mest spennandi í málverkum hans og for- vitnilegt að skoða hvernig honum tekst að sýna íslenskan vetur með fjólubláu, bleiku og gulu, undir grænbláum himni. Hér er ekki drungi dimmra skammdegisdaga á ferð, heldur fær hrein litaástríða út- rás. Fyrir þá sem þekkja til verka Jó- hannesar mun þessi sýning ekki segja mikið nýtt, en gaman er þó t.d. að sjá minni myndir við hlið stærri og áhugaverðari útfærslu, sjá breytingar á litum og litaflötum. Hér er um að ræða nýleg verk en ég gæti líka ímyndað mér að það væri gaman að sjá sýningu sem birti áhorfandanum þróunina á ferli Jóhannesar frá upphafi til enda, frá leitandi ungum málara til manns sem hafði fundið sinn farveg og sína palettu. Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Gallerí Fold Gallerí Fold er opið daglega 10–18, laug- ard. 11–17 og sunnud. 14–17. Málverk, Jóhannes Geir (1927–2003) Morgunblaðið/Sverrir Eitt verka Jóhannesar Geirs í Galleríi Fold, Á ferð. Rakarinn morðóði Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Miðasala á Netinu: www.opera.is Fös. 12. nóv. kl. 20 - sun. 14. nóv. kl. 20 fös. 19. nóv. kl. 20 - sun. 21. nóv. kl. 20 ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla stúlkan með eldspýturnar Lau. 6. nóv. kl. 14 - sun. 7. nóv. kl. 13 - lau. 13. nóv. kl. 14 - sun. 14. nóv. kl. 14 lau. 20. nóv. kl. 14 - sun. 21. nóv. kl. 14 - lau. 27. nóv. kl. 14 - sun. 28. nóv. kl.14 Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is Þjóðleikhúsið sími 551 1200 • Stóra sviðið kl. 20:00 NORÐUR – Hrafnhildur Hagalín 3. sýn. í kvöld mið 3/11 örfá sæti laus, 4. sýn. sun. 7/11 örfá sæti laus, 5. sýn. fim. 11/11 örfá sæti laus. LISTIN AÐ DEYJA – Gestasýning frá Danmörku. Kristján Ingimarsson og Paolo Nani Fim. 4/11 örfá sæti laus. Aðeins þessi eina sýning. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 5/11 örfá sæti laus, fös. 12/11 örfá sæti laus, lau. 20/11 nokkur sæti laus. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Lau. 6/11 uppselt, lau. 13/11 uppselt, fös. 19/11 uppselt, fim. 25/11 uppselt, fös. 26/11 uppselt, lau. 4/12 uppselt, lau. 11/12 uppselt, mið. 29/12 uppselt. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Sun. 7/11 kl.14:00 örfá sæti laus, sun. 14/11 kl.14:00 nokkur sæti laus, sun. 21/11 kl. 14:00. • Smíðaverkstæðið kl. 20:00 SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov Lau. 13/11 nokkur sæti laus, sun. 14/11 nokkur sæti laus, fös. 19/11. • Litla sviðið kl. 20:00 BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson Fös. 5/11 nokkur sæti laus, sun. 7/11 nokkur sæti laus, fös. 12/11 nokkur sæti laus. LISTIN AÐ DEYJA SÝNING Á HEIMSMÆLIKVARÐA! CHICAGO Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fi 4/11 kl 20, - UPPSELT Su 7/11 kl 20, Su 21/11 kl 20, Su 28/11 kl 20 Aðeins þessar sýningar GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? eftir Edward Albee Fö 5/11 kl 20, Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20, Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 5/11 kl 20, Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20 NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU 11. NÓVEMBER Kennarar: Böðvar Guðmundsson, Gísli Sigurðsson, Helga Ögmundardóttir, Viðar Hreinsson Skráning hjá Mími - Símenntun á mimir.is eða í síma 580 1800 Híbýli vindanna - frumsýning 7. janúar 2005 CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir. Lau 6/11 kl 20, Lau 13/11 kl 20, Lau 20/11 kl 20, Lau 27/11 kl 20 Síðustu sýningar Í TAKT VIÐ LÍFIÐ - VERTU ÞÚ SJÁLFUR Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness í kvöld 3/11 Kl 20:30 - kr 1.200 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI og SÖGN ehf. Fö 12/11 kl 20, Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20 Su 21/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20, 15:15 TÓNLEIKAR Caput/Vox Academica, Ný endurreisn. Rómeó og Júlíu kórinn frá Dramaten í Stokkhólmi Lau 6/11 kl 15:15 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 7/11 kl 14, Su 14/11 kl 14, Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14 Su 5/12 kl 14 ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN: SCREENSAVER eftir Rami Be'er 4. sýning su 7/11 kl 20 - Græn kort 5. syning fö 12/11 kl 20 - Blá kort Su 21/11 kl 20 AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR ☎ 552 3000 SÍÐUSTU SÝNINGAR! • Fimmtudag 4/11 kl 20 NOKKUR SÆTI LAUS • Föstudag 12/11 kl 23 • Fimmtudag 25/11 kl 20 eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is “EINSTÖK SÝNING sem gengur upp að öllu leyti. Leikararnir fara á kostum” SS Rás 2 Nýdönsk og Sinfó Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Nýdönsk ::: gömul og ný lög Maurice Ravel ::: Bolero Aram Katsjatúrjan ::: Maskerade svíta Aram Katsjatúrjan ::: Spartakus Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson Útsetningar ::: Kjartan Valdimarsson og Samúel Jón Samúelsson HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 4. NÓVEMBER KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS FÖSTUDAGINN 5. NÓVEMBER KL. 19.30 LAUS SÆTI LAUGARDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 19.30 UPPSELT MI‹ASALA Í SÍMA 545 2500 E‹A Á WWW.SINFONIA.IS 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími SVIK e. Harold Pinter, Fös. 5/11 kl. 20 7. kortas. UPPSELT Fös. 5/11 kl. 22 30 Aukasýning Sun. 7/11 kl. 20 8. kortas. Örfá sæti laus Síðustu sýningar á Akureyri Ausa og Stólarnir Fim 11/11 kl 20 Frums. UPPSELT Fös 12/11 kl 20 2.kortas. Örfá sæti laus Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus Mán 15/11 kl 20 UPPSELT Þri 16/11 kl 20 UPPSELT Mið 17/11 kl 20 UPPSELT Fim 18/11 kl 20 UPPSELT Gjafakort góð gjöf Lau . 06 .11 20 .00 T ILBOÐ MBL. Sun . 07 .11 20 .00 T ILBOÐ MBL. F im. 11 .11 20 .00 LAUS SÆTI Lau . 13 .11 20 .00 LAUS SÆTI „Hár ið er rosa lega krö f tug og orkumik i l sýn ing sem sner t i mig“ -K ja r tan Ragnarsson , le iks t jó r i -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.