Sunnudagsblaðið - 07.02.1965, Blaðsíða 12

Sunnudagsblaðið - 07.02.1965, Blaðsíða 12
MWWWlWWWWWWWMWWWWWWWWWIWWWWWWiWtWWWWtWW**1 TUNGUTAK í PISTLI sínum í AlþýðublaS- inu þann 20. janúar sl. segir Hannes á horninu frá því, að hann hafi þá nýverið hlýtt á samræður nokkurra unglinga, sem sátu rétt hjá honum. Þótti honum nú kynlega bregða, því að hann skildi fátt eitt af því, sem unglingarnir sögðu. Fór hann því að óttast, að hann væri að verða heyrnarsljór. Þó hægðist honum, þegar einhver kunningi hans hafði sömu sögu að segja. Hann hafði verið með þremur unglingum í bíl • og skildi treglega það, sem þeir sögðu. Ég get fullvissað Hannes og kunningja hans um það, að heyrn þeirra er áreiðanlega í bezta lagi hvað þetta snertir. Það er iskyggilega mikill fjöldi unglinga, sem talar svo illa, ógreinilega og þvoglulega, að venjulegu fólki gengur illa að skilja það. Það tæplar á orðun- um, sleppir úr atkvæðum eða slengir saman orðum. Og þetta ágerist stöðugt. Ég hef fengizt við unglingakennslu að meira og minna leyti nokkra áratugi og kennt nær því eingöngu ís- lenzku. Ég ætti þvi að vita nokkurn veginn hvað ég syng í þessum efnum. Ég tel það sitt mesta mein tungu vorrar i dag, hversu mjög almennu tálmáli hnignar. Það er eins tun máiið og sjtík dómana — þegar fundið er læknislyf við einum sjúkdómi, færist kannski annar í aukana. Svo er hér. Hljóövillan gamla og flámælgin er að mestu horf- in. Hún heyrist varla hjá unga fólkinu. Ef hún heyrist einhvers staðar, þá er það hjá fólki, sem komið er á og yfir miðjan ald- ur. Hér ber að þakka skólun- um, sem unnið hafa stórvirki á þessu sviði — lika útvarpið. En nú kemur ógreinilegur fram- burður og óskýr talandi í stað- inn, og er engu betri. En hver er þá undirrót þess- arar öfugþróunar? Hvar er or- sakanna að leita? Ég svara af- dráttarlaust: Heimilin og skól- arnir bera höfuðsökina Sök skólanna er þó að mínum dómi drjúgum þyngri, þvi að mörg heimilin vita ekki, sökum fá- vízku og menntunarskorts, hvað þau eiga að gera. En þá eru það skólarnir, þeir ættu þó að vita, hvað þeim ber að gera í þessum efnrnn. En þeir gera það bara ekki, og skal að því vikja síðar í þessurn pístii. Á mörgum heimilum er full- orðna fólkið furðu hirðulaust um að segja börnunum til um réttan framburð og rétt mál. Til þess þarf ekki alltaf mikinn skólalærdóm eða þekkingu. Aldrei er svo, að fullvaxinn maður hafi ekki, að öllu eðli- legu .víðtækari þekkingu en barn. Vingjarnlegar bending- ar, bornar fram með hógVæ'rð og þolinmæði eru oft bezti skól inn í móðurmálinu. Auk þess eru fjölskylduböndin lausari nú en áður og heimilislífið los- aralegra. Feðurnir vinna und- antekningarlítið utan heimilis, mæðumar stundum líka. Börn- in umgangast fullorðna fólkið- mun minna nú en fyrr á árum. Þnu eru í skólum og úti við mestan hluta dagsins, stund- um á götunni langtímum sam- an. Og hinn óvandaði fram- burður, sem við erum að minn- ast á, er ósvikið götumál, ef til vill byrjun á hliðstæðri múg- mállýzku þeim, sem rótfestar eru í mörgum milljónaborgum erlendis, sbr cockney-ensku (þið munið eftir Elisu í My Fair Lady) .... Og fáir eru svo heppnir nú á dögum að nema tært alþýðumál af vörum marg- fróðrar ömmu, eins og Halldór Kiljan .... Þvi miður bregðast mörg heimili skyldu sinni í því að leitast við af fremsta megni að gera börn sín sæmilega tal- andi. Þar brestur líka oft á skilninginn á því, hve mikið gildi það gefur lífinu að geta talizt siðmenntaður maður. Það verður að koma þeirri sann- færingu inn í alla, í hvaða þjóð- félagsstétt sem þeir eru, að sú manneskja getur ekki talizt sið- fáguð, sem ekki talar fallega, og að sá maður er sannkallað- ur slordóni, sem misþyrmir móðurmáli sínu, enda þótt hann kunni að vera fínt klæddur, aki í lúxusbil og éti þorramat á Naustinu .... Og sérhver sóma kær móðir I # §§$ . rií: ' ætti að setja markið svo hátt, að börn hennar geti sxðar á ævinni tekið undir með Einari Ben. er hann yrkir til móður sinnar: XWWWWWWWWWWWWmWWlMÍWIWWWIWWWWMM WWWWWW** **** 92 auNNUÞAGSBLAP v A

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.