Morgunblaðið - 31.12.2004, Side 1
Morgunblaðið/Sverrir
Mikil nálykt er í Khao Lak á suðurströnd Taílands vegna rotnandi líkamsleifa fólks sem liggur undir braki og rústum.
STJÓRN Alþjóðabankans hefur heit-
ið 250 milljónum dollara, ríflega 15
milljörðum íslenskra króna, til neyð-
araðstoðar á hamfarasvæðunum í
Suður-Asíu en í gær var tala látinna
af völdum flóðbylgjunnar sl. sunnu-
dag komin í 119.000, þar af um 80.000
í Indónesíu einni og sér. Stjórnvöld í
hinum ýmsu löndum hafa heitið mikl-
um fjármunum og þá hefur safnast
gríðarlega mikið fé meðal óbreyttra
borgara víða um heim. Stóð upphæð
fjárheita vegna neyðaraðstoðar í tæp-
lega 35 milljörðum íslenskra króna í
gærkvöldi.
Bresk stjórnvöld tilkynntu í gær-
kvöldi að þau hefðu ákveðið að hækka
framlag sitt úr 35 milljónum punda í
fimmtíu, þ.e. í um 6 milljarða ís-
lenskra króna. Svíar höfðu áður heitið
mestu fé, 4,6 milljörðum íslenskra
króna, en af einstökum vestrænum
ríkjum virðist nú sem Svíþjóð hafi
mátt þola mest mannfallið í náttúru-
hamförunum. Margir sænskir ferða-
menn voru staddir á þeim stöðum þar
sem hörmungarnar eru hvað mestar
og allt að 4.000 Svía er enn saknað.
Frakkar hafa heitið fjórum millj-
örðum íslenskra króna, Bandaríkin
2,1 milljarði, Evrópusambandið 2,7
milljörðum og Kanada, Japan og
Ástralía næstum jafnmiklu fé. Þá
sögðu hjálparsamtök í Bretlandi og
Ítalíu, sem staðið hafa fyrir fjársöfn-
unum meðal almennings að viðbrögð-
in hefðu verið „framúrskarandi“.
Fimmtíu milljónir króna höfðu í
gær safnast í söfnun Rauða kross Ís-
lands fyrir fórnarlömb hamfaranna.
Aldrei hefur áður safnast svo há upp-
hæð hér á landi til alþjóðlegs hjálp-
arstarfs Rauða krossins á svo
skömmum tíma. Nærri 20 þúsund
manns hafa hringt í söfnunarsímann
907 2020 og gefið þannig 1.000 kr.
Súmatra varð verst úti
Hjálpargögn hafa verið að berast á
hamfarasvæðin, m.a. matur og ferskt
vatn. Erfiðlega hefur þó gengið að
koma gögnunum til afskekktustu
svæða, t.a.m. Súmötru í Indónesíu,
sem hvað verst urðu úti í hörmung-
unum. Staðfest er að 79.940 dóu í
Indónesíu, 24.743 á Sri Lanka og
7.330 á Indlandi. Þá er vitað að a.m.k.
2.394 dóu í Taílandi, margir þeirra er-
lendir ferðamenn. Ekkert er vitað um
ferðir þúsunda manna til viðbótar.
Tugum milljarða heit-
ið til neyðaraðstoðar
Tala látinna í
hamförunum í
Asíu var í gær
komin í 119.000
Sjá bls. 6/14
STOFNAÐ 1913 356. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Gamlársdagur 2004
Straumar og stefnur Fólk og fréttir ársins Hvað segja þau um áramót? Áramótagetraunir Krossgáta
Bestu plötur og kvikmyndir ársins Áramótabrennur Ávörp formanna stjórnmálaflokkanna Stjörnuspá 2005
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt nýár!
ENN liggur ekki fyrir hversu
margra Norðurlandabúa er saknað
á hamfarasvæðinu við Indlandshaf.
Ljóst er þó að þar kann að vera um
að ræða þúsundir manna.
Göran Persson, forsætisráðherra
Svía, sagði í gær að vera kynni að
fleiri en 1.000 sænskir ríkisborg-
arar hefðu týnt lífi í náttúruham-
förunum. Nöfnum á lista yfir þá
sem saknað væri hefði verið fækk-
að um 2.000 en enn væru „skelfi-
lega margir“ ófundnir. Göteborgs-
posten sagði að enn hefðu 4.000
Svíar í Taílandi ekki haft samband
við ferðaskrifstofur þær sem sáu
um ferðir þeirra til landsins. Kjell
Magne Bondevik, forsætisráðherra
Noregs, sagði að 430 Norðmanna
væri saknað. Óttast er að 200
finnskir ferðamenn hafi týnt lífi í
Taílandi. Alls 419 Dana er saknað.
„Skelfilega margir enn ófundnir“
HALLDÓR Ásgrímsson for-
sætisráðherra hefur boðið fram
aðstoð Íslendinga við að koma
slösuðum Norðmönnum og Sví-
um frá Asíu og á heimaslóðir,
eða á sjúkrahús á Íslandi. Hef-
ur í því skyni m.a. verið tryggð
flugvél frá Icelandair.
Að sögn Björns Inga Hrafns-
sonar, aðstoðarmanns Hall-
dórs, mun ríkisstjórnin leggja
fram mun meira fé til hjálpar-
starfsins og mun ákvörðun um
það liggja fyrir á næstu dögum.
Aðstoð Ís-
lands aukin
Einkar bjart/28