Morgunblaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 4
VIÐAR Janusson lét af störfum
fyrir aldurs sakir eftir áratuga
langt starf á Morgunblaðinu í gær,
sjötugur að aldri.
Viðar, sem lærði til prentara á
sjötta áratugnum, hóf störf sem
prentari hjá Morgunblaðinu í Að-
alstrætinu árið 1967. Þar starfaði
hann þar til prentsmiðjan flutti sig
um set í Skeifuna snemma á átt-
unda áratugnum og starfaði hann
þar til ársins 1980. Frá 1980 til
1987 tók Viðar sér „langt mat-
arhlé“, eins og hann orðar það
sjálfur, frá Morgunblaðinu er hann
hóf störf hjá öðru fyrirtæki. „Mér
fannst allan tímann vanta
spennuna sem fylgir blaða-
prentun,“ segir Viðar varðandi
þann tíma sem hann var fjarver-
andi frá Morgunblaðinu.
Viðar hóf svo störf á nýjan leik á
Morgunblaðinu árið 1987, en þá
hafði prentsmiðjan verið flutt í
Kringluna 1. Hann hefur verið
starfandi á blaðinu samfleytt frá
þeim tíma, fyrst sem prentari og
svo sem lagermaður frá árinu 1997.
Viðar segir það hafa verið einna
mest spennandi og skemmtilegast
við þann tíma sem hann starfaði
hjá Morgunblaðinu hve miklar
tæknibreytingar hafi átt sér stað í
tengslum við blaðaprentunina.
„Maður byrjaði í Árbæjarsafni,“
segir Viðar hlæjandi og þá á hann
við fyrstu prentvélina
sem hann starfaði við í
Aðalstrætinu, en sú vél
hafði einungis þrjá
takka að hans sögn. Síð-
an þá hafi tækninni
fleygt fram og það sé af
sem áður var. Vélarnar í
dag séu ekki samanburð-
arhæfar við þær eldri.
Viðar kveðst kveðja
Morgunblaðið með góð-
ar minningar í fartesk-
inu. Þar hafi hann
kynnst góðu fólki sem
hann hafi notið þess að
starfa með í gegnum tíð-
ina.
Aðspurður hvað taki
nú við segist Viðar ætla
að njóta þess að fara
seinna á fætur með eig-
inkonunni sem einnig
hefur látið af störfum,
auk þess að grúska í
áhugamáli sínu sem sé
prentvélar. En Viðar á
nokkrar slíkar sjálfur.
Morgunblaðið þakkar Viðari
löng og farsæl störf við blaðið og
sendir fjölskyldu hans hlýjar
kveðjur.
Lætur af störfum hjá Morgunblaðinu eftir áratuga starf
Fyrsta prentvélin
hafði bara þrjá takka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðar Janusson hóf störf á blaðinu 1967.
4 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EIN deild í leikskólanum Sólhlíð
verður lokuð í a.m.k. eina viku vegna
elds sem kviknaði í neyðarútgangs-
ljósi í skólanum snemma í gærmorg-
un. Umtalsverðar skemmdir urðu af
völdum reyks og sóts en enginn varð
fyrir meiðslum enda skólinn mann-
laus. Í byrjun nóvember kviknaði
eldur út frá samskonar ljósi í Borg-
arholtsskóla, sem er framhaldsskóli í
eigu ríkisins. Ljósið var innkallað af
heildsala í október sl. og hafa rúm-
lega 70 ljós skilað sér en um 30 ljós
eru enn í notkun.
Leikskólinn var lokaður í gær. El-
ísabet Auðunsdóttir leikskólastjóri
Sólhlíðar segir að eldurinn hafi
kviknað á deild fyrir yngstu börnin
en þar var pláss fyrir 18 börn. Á
meðan deildin verður lokuð munu
foreldrarnir gæta barnanna.
Lamparnir sem um ræðir eru frá
spænska framleiðandanum Daisa-
lux. Á heimasíðu Löggildingarstofu
segir að nokkrir brunar hafi orðið
hér á landi af völdum lampa af þess-
ari gerð. Rafmagnsöryggisdeild
Löggildingarstofu tók þá til rann-
sóknar og í kjölfarið tók framleið-
andinn þá til einnig rannsóknar. Sú
rannsókn leiddi í ljós að lampar sem
framleiddir voru á árunum 1998 og
1999 gætu verið með gölluðum þétti
sem valdið gæti bruna. Framleiðslu-
númerin eru á bilinu 43.843-77.821.
Lamparnir hafa verið innkallaðir
og sér söluaðili þeirra hér landi, S.
Guðjónsson, um að kalla þá inn. Sig-
urjón Sigurðsson sölustjóri segir að
öllum viðskiptavinum fyrirtækisins
hafi verið sent fréttabréf í október
þar sem innköllunin hafi verið aug-
lýst auk þess sem hringt hafi verið í
kaupendur. Rúmlega 70 lampar hafi
skilað sér inn af þeim um 100 sem
seldust en Sigurjón segir að talið sé
að um helmingur lampanna sé gall-
aður. Allur kostnaður við að skipta
um lampana er greiddur af S. Guð-
jónssyni sem fær kostnaðinn endur-
greiddan af framleiðanda.
Einar H. Skúlason tæknifræðing-
ur hjá Fasteignastofu Reykjavíkur-
borgar segir að upplýsingar um göll-
uðu lampana hafi ekki borist til
borgarinnar svo hann viti til. Vænt-
anlega hafi seljandi haft samband við
verktaka sem hafi séð um fram-
kvæmdir við byggingar borgarinnar.
Þessir verktakar hafi keypt lampana
en ekki borgin. Einar segir að auð-
vitað hefði verið betra að vita af
þessum galla og það þurfi að tryggja
að slíkar upplýsingar berist til réttra
aðila.
Eldur í leikskóla
út frá gölluðu
neyðarljósi
Áður hafði kviknað í Borgarholtsskóla
ÁRIÐ 2004 reyndist bæði hlýtt og
hagstætt í veðurfarslegu tilliti, að
mati Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings hjá Veðurstofu Íslands. Hann
hefur tekið saman bráðabirgða-
yfirlit tíðarfars ársins 2004.
Árið í ár reyndist um hálfu stigi
kaldara en árið 2003, en var engu
að síður fimmta til áttunda hlýjasta
ár í flestum landshlutum frá upp-
hafi mælinga. Að slepptu árinu
2003 þarf að fara 40–50 ár aftur í
tímann til að finna jafn hlý ár.
Í Reykjavík var árið hið níunda í
röð þar sem hiti er yfir meðallaginu
1961 til 1990, en á Akureyri hið
sjötta, að því er fram kemur í yf-
irlitinu. Sé meðalhiti síðustu fimm
ára í Reykjavík reiknaður, kemur í
ljós, að þetta er hlýjasta fimm ára
tímabil sem vitað er um frá upphafi
samfelldra mælinga. Hið sama á við
um síðustu fjögur, þrjú og tvö árin
tekin saman. Aðeins vantar 0,2°C
upp á að síðustu tíu árin nái fyrra
hlýjasta tíu ára tímabili hvað hita
snertir. Meðaltal síðustu fimm ára
á Akureyri er einnig hærra nú en
vitað er um áður, en meðaltal ár-
anna 1933 og 1934 er lítillega hærra
en meðaltal 2003 og 2004 þar.
Hitabylgjan í ágúst síðastliðnum
þykir mjög óvenjuleg. Hennar
gætti einkum um sunnan- og vest-
anvert landið og inn til landsins í
öðrum landshlutum. Hitamet féllu
víða, m.a. 113 ára gamalt hitamet í
Reykjavík, en hiti komst þar í 24,8
stig hinn 11. ágúst. Hitabylgjan var
ekki síst óvenjuleg fyrir það hversu
marga daga hún stóð og fór hiti yf-
ir 20 stig í Reykjavík fjóra daga í
röð. Ekki er vitað til þess að slíkt
hafi gerst áður. Á Egilsstaða-
flugvelli mældist hámarkshiti 29,2
stig hinn 11. ágúst og er ekki vitað
um jafn háan hita hér á landi í
ágústmánuði.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hitabylgjan í ágúst sl. líður landsmönnum sennilega seint úr minni. Naut-
hólsvíkin var þéttsetin dag eftir dag og sólbrúnkan lét ekki á sér standa.
Fimm óvenju hlý ár í röð
SAMKVÆMT tilkynningu frá
Heklu hf. til Kauphallarinnar hefur
Tryggingamiðstöðin selt 33,3%
eignarhlut sinn í Heklu. Kaupandi
var Herðubreið ehf. sem fyrir var
meirihlutaeigandi í félaginu. Kaup-
verðið er ekki gefið upp en í tilkynn-
ingu er tekið fram að TM hafi hagn-
ast á viðskiptunum.
Eftir þessi viðskipti er eignarhald
Herðubreiðar í Heklu orðið um 90%
að sögn Tryggva Jónssonar for-
stjóra Heklu og eiganda Herðu-
breiðar. Að hans sögn stendur enn-
fremur til að kaupa þau 10% sem
eftir eru. Viðræður séu hafnar við
Skarðsheiði ehf. sem er í eigu Odda
hf. og Straums fjárfestingarbanka
hf. um kaup á hlut 10% hlut Skarðs-
heiðar.
Afkomuviðvörun TM
Tryggingamiðstöðin hf. hefur gef-
ið út afkomuviðvörun samkvæmt
frétt á vefsetri Kauphallar Íslands.
Ástæða þess er, auk sölunnar á
Heklu, sala félagsins á 9,22% hlut í
Straumi fjárfestingarbanka hf. í
byrjun desember.
Viðskiptin eru gerð með fyrirvara
um samþykki Fjármálaeftirlitsins
og fáist það er gert ráð fyrir að
hagnaður TM á árinu verði um 2
milljarðar króna.
Herðubreið kaupir
33,3% í Heklu
Tryggingamiðstöðin selur en
Herðubreið á nú 90% hlutafjár
DRÖFN Þóris-
dóttir tók við
starfi markaðs-
stjóra Eddu út-
gáfu hf. í gær, en
fráfarandi mark-
aðsstjóri er
Hrannar B. Arn-
arsson. Dröfn
hefur gegnt stöðu
útgáfustjóra
Vöku-Helgafells
undanfarin misseri og mun hún
halda því áfram meðfram starfi
markaðsstjóra.
„Þetta leggst bara vel í mig,“ sagði
Dröfn í samtali við Morgunblaðið, en
hún hefur áður komið að markaðs-
málum innan fyrirtækisins. Aðspurð
hvort ekki verði erfitt að gegna stöð-
um sem tvær manneskjur hafi áður
gegnt, svarar
Dröfn að tíminn
muni leiða það í
ljós. „Þessu er
ráðstafað svona
núna og við mun-
um nota fyrstu
mánuði ársins til
að þróa þetta
áfram.“
Dröfn segist
horfa björtum
augum til framtíðarinnar enda hafi
allar áætlanir fyrir jólin staðist.
Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri
Eddu, segist ánægður með ráðningu
Drafnar. „Ég stóð að ráðningu
Drafnar sem útgáfustjóra Vöku-
Helgafells. Hún hefur staðið vel und-
ir þeim væntingum og treysti henni
fyllilega til þessa starfs.“
Dröfn ráðin
markaðsstjóri Eddu
Hrannar B.
Arnarsson
Dröfn
Þórisdóttir