Morgunblaðið - 31.12.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 31.12.2004, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 31 S amfylkingin er þakklát landsmönnum fyrir þann öfluga meðbyr sem þeir veittu jafn- aðarmönnum á liðnu ári. Hún hefur fest sig í sessi sem öfl- ugt mótvægi við Sjálfstæðisflokk- inn og tekið forystu um mótun ferskra stjórnmálahugmynda á mörgum sviðum. Má þar nefna áherslu Samfylkingarinnar á beint lýðræði og breytingar á stjórn- arskrá, jöfnun lífsskilyrða, og nán- ari tengsl við Evrópusambandið. Ársins 2004 verður í sögu Sam- fylkingarinnar minnst sem mik- ilvægs mótunarárs. Við fluttum í nýjar höfuðstöðvar við Hallveig- arstíg 1 í Reykjavík sem duga stórum og vaxandi flokki næstu áratugina. Fjárhagsleg staða flokksins er orðin góð. Mikill kraftur er í hugmyndavinnu sem mun nýtast fyrir kosningar jafnt til sveitarstjórna og Alþingis. Fylgi flokksins hefur verið jafnt og traust og liggur á því bili sem Göran Person, forsætisráðherra Svíþjóðar, taldi í Viðeyjarheim- sókninni í sumar að væri sögulegt fylgi jafnaðarmanna í Evrópu síð- ustu 20 árin. Flokkur okkar er burðarstoð í öflugri stjórnarand- stöðu sem mánuðum saman hefur mælst með meira fylgi en rík- isstjórnin. Samfylkingin hefur því bæði stærð, sjálfstraust og metnað til að leiða næstu ríkisstjórn. Skapandi útrás og öflug smáfyrirtæki Hluti af nýrri stefnumótun Sam- fylkingarinnar á liðnu ári birtist í aukinni áherslu á frelsi í atvinnu- lífi og viðskiptum. Viðskiptafrelsi er undirstaða velmegunar. Þróun- araðstoð á ekki síst að felast í opnun markaða. Í stíl við þessa áherslu er það fagnaðarefni hversu mikill þróttur birtist í út- rás íslenskra fyrirtækja á liðnu ári. Velgengni fjármálafyrirtækja vekur heimsathygli. Útrás lyfja- iðnaðarins er ævintýri líkust. Sama gegnir um landnám fyr- irtækja í sjávarútvegi og mat- vælaiðnaði í Evrópu. Flugrekstur, sem ég skilgreini sem íslenskan þekkingariðnað, breiðir vængi sína ört um allar heimsálfurnar í frum- herjaanda hinna gömlu Loftleiða- manna. Á næstu árum viljum við í Samfylkingunni auðvelda útrás fyrirtækja með því að afnema við- skiptahindranir og ósýnilega regluverksmúra sem hindra sam- skipti á viðskiptasviði við umheim- inn. Því miður hafa seigustu dráttar- klárar hagkerfisins, litlu og með- alstóru fyrirtækin, hins vegar gleymst. Atvinnustefna næstu ára – atvinnustefna Samfylkingar í ríkisstjórn – verður að taka mið af mikilvægi þeirra. Viðreisn lands- byggðarinnar mun ekki síst byggj- ast á því að bæta starfsskilyrði smáfyrirtækja og einyrkja, meðal annars með því að ráðast gegn áhrifum flutningsskatta rík- isstjórnarinnar sem hafa haft ótrúlega óheillavænleg áhrif á at- vinnulíf á landsbyggðinni. Sam- fylkingin lítur á sig sem sérstakan málsvara smáfyrirtækja og ein- yrkja. Nýting mannauðsins og menntaátak Atvinnulíf smáþjóðar verður ekki öflugt ef við sóum mann- auðnum. Íslenskar konur eru að verða betur menntaðar en karlar. Hví kastar þá atvinnulífið á glæ kröftum og hugarafli kvenna þeg- ar kemur að stjórnun fyrirtækja og stefnumótun í stjórnum og ráð- um? Langtímaatvinnuleysi, brott- fall fólks með takmarkaða örorku af vinnumarkaði vegna skorts á endurhæfingu, alltof hátt brottfall úr framhaldsskólum, takmörkun að námi jafnt í framhaldsskólum sem háskóla, að ónefndri innleið- ingu skólagjalda eru allt dæmi um sóun á mannauðinum. Þarna eru alvarlega vandamál sem þarf að leysa. Útrás stórfyrirtækja og vel- gengni smáfyrirtækja heimafyrir byggist á menntun. Eitt af stór- verkefnum okkar Íslendinga á næstu árum er að ná saman um átak um stóraukin gæði mennt- unar allt frá leikskóla upp í fram- haldsnám á háskólastigi. Metn- aðarleysi stjórnvalda á því sviði birtist hins vegar í stefnuleysi varðandi háskólastigið, skorti á list- og verknámi og uppgerð- argleði yfir mælingum á getu grunnskólabarna í alþjóðlegum samanburði sem sannarlega var ekki tilefni til að berja sér á brjóst. Fersk sýn á betra lýðræði Fjölmiðlastríðið fyrri hluta árs- ins birti nakinn valdhroka sem í huga þjóðarinnar er orðið að vöru- merki ríkisstjórnarinnar. Í barátt- unni gegn fjölmiðlalögunum veitti Samfylkingin einbeitta forystu. Forseti lýðveldisins stóð með þjóð- inni og sýndi einurð og kjark þeg- ar hann nýtti í fyrsta sinn ákvæði stjórnarskrárinnar um að vísa frumvarpi til þjóðarinnar. Nið- urstaðan varð sú að ríkisstjórnin lagði ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu og felldi á hæpnum forsendum ný- samþykkt lög úr gildi til að kom- ast hjá dómi þjóðarinnar. Átökin um lýðræðismál á alþingi sýndu að sameinuð stjórnarandstaða með vel undirbúinn málflutning hefur í fullu tré við ríkisstjórnina. Í kjöl- farið er samstaða um að ráðast í endurbætur á stjórnarskránni. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram ferska sýn á betra lýðræði, þar á meðal breytingar á stjórnarskrá. Hæst ber áhersluna á beint lýðræði með skýru ákvæði um þjóðaratkvæði, landið verði gert að einu kjördæmi, þjóðareign á sameiginlegum auðlindum, lög verði sett um fjárreiður flokkanna, betur verði gengið frá aðskilnaði framkvæmdavalds og löggjafans til dæmis með því að ráðherrar gegni ekki samtímis þingmennsku, minnihluti Alþingis geti krafist rannsóknarnefnda, breytt skipan hæstaréttardómara, aukinn upp- lýsingaréttur einstaklingsins og bætt mannréttindi. Á næsta ári munu þingmenn Samfylking- arinnar leggja fram frumvarp um að í kosningum fái kjósendur ekki aðeins að velja flokk heldur líka tækifæri til að velja einstaklinga og raða þeim í sæti. Slíkt fyr- irkomulag eykur rétt kjósenda og gerir prófkjör óþörf. Jöfnun lífskjara er brýnt verkefni Á næsta ári munu pólitísk átök snúast um jöfnun lífskjara. Þrátt fyrir velsæld dreifast verðmæti samfélagsins í vaxandi mæli ójafnt milli þegnanna. Um 18–20 þúsund Íslendingar hafa tekjur sem eru undir því sem stjórnvöld skil- greina sjálf sem lágmarks- framfærslu. Ríkisstjórnin ber sér á brjóst vegna mikils kaupmátt- arauka en veit þó að tíu þúsund aldraðir landar okkar hafa sl. 10 ár ekki fengið nema fimmtung af þeim aukna kaupmætti sem felst í meðaltölum stjórnvalda. Fólk með 110 þúsund krónur á mánuði greiðir nú fimm- til sjöfalt hærra hlutfall af tekjum sínum í skatta en þegar jafnaðarmenn sátu síðast í ríkisstjórn árið 1995. Svigrúmið til skattalækkunar átti því að nota til að brúa bilið, en ekki breikka það. Meira að segja breski Íhaldsflokkurinn setur það í forgang. Íslenska ríkisstjórnin ákvað hins vegar að nýta skatta- svigrúmið þannig að þeir efna- meiri fá mest, þeir sem minnst hafa fá minnst, og þeir sem lang- verst eru staddir fá ekkert. Bankastjórinn fær 25 sinnum meira í vasann vegna skattalækk- ana en konan sem ræstir skrifstof- una hans. Framsóknarflokkurinn beit svo höfuðið af skömminni með því að stöðva lækkun matarskatts- ins um helming. Mörgum hefur fundist aðdáun- arvert einkenni á íslensku sam- félagi hve stéttamunur er lítill. Ís- lenska samfélagið skar sig frá öðrum vegna þessa. En nú er annað uppi. Frjálshyggjan, sem víðast hvar var búið að kasta á öskuhauga sögunnar, veður uppi hér á landi og hanneskan var leidd til valda með hjálp Fram- sóknarflokksins. Hinn nýi siður er að eyðileggja stéttleysi íslensks samfélags. Það á að stefna skatt- heimtu niðurfyrir þau mörk sem duga til að halda uppi mennta- og heilbrigðiskerfi án aðgangshindr- ana og kreddan er sú, að í staðinn eigi fólk að hafa meira handanna á milli svo það geti sjálft greitt skólagjöld barnanna og heilbrigð- isþjónustu fjölskyldunnar. Þetta kerfi, sem er óheft frjálshyggja, er ávísun á samfélag þar sem stórir hópar lifa á bónbjörgum og njóta ekki sömu þjónustu og tæki- færa til sömu lífsgæða og hinir. Samfylkingin vill ekki þannig samfélag. Hún mun áfram berjast fyrir jöfnun lífskjara. Írak og Asía Kæru samlandar, ég veit að þið deilið langflest sárindum mínum vegna Íraksmálsins. Hundrað þúsund saklausir borgarar hafa nú fallið að mati breska lækna- ritsins Lancet. Ekkert kallar þá aftur til lífsins. En ljúkum ekki árinu án þess að styðja framtak Þjóðarhreyfingarinnar um auglýs- ingu í New York Times þar sem andstöðu við innrásina er lýst. Það er í anda íslensks skoð- anafrelsis og lýðræðis. Um þessi áramót er hugur okk- ar líka bundinn hamförunum í As- íu. Þær hafa krafist skelfilegra mannfórna og valdið ómældri eyðileggingu og þjáningum. Við biðjum þeim blessunar sem eiga um sárt að binda af þeirra völd- um. Það er skylda okkar, almenn- ings og stjórnvalda, að styðja af stórhug það hjálpar- og uppbygg- ingarstarf sem þar er fyrir hönd- um. Ég óska landsmönnum öllum árs og friðar. Betra lýðræði og jöfnun lífskjara Morgunblaðið/Kristinn Á næsta ári munu pólitísk átök snúast um jöfnun lífskjara. Þrátt fyrir velsæld dreifast verðmæti samfélagsins í vaxandi mæli ójafnt milli þegnanna. Um 18–20 þúsund Íslendingar hafa tekjur sem eru undir því sem stjórnvöld skilgreina sjálf sem lágmarksframfærslu, segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar                             !   "#    !     $%          &  &      #    '   ( &  & &  "  &         )  !         ! * +      ,    &       -  *              + .    ,        /$%%%  &             0    .     ,      *  1 2#   %1 $$ 3#*1    444&   & *  *   1 )  !   1  *  ! 1 $55 3#*1    1    444  

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.