Morgunblaðið - 31.12.2004, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Miklar breytingarverða á raforku-töxtum orkufyr-
irtækjanna um áramót, en
þá taka gildi ný raforku-
lög. Lögin kveða á um að
skil verða að vera milli
dreifingar raforkunnar,
orkuvinnslu og sölu. Þetta
þýðir m.a. að ekki verður
lengur heimilt að láta
hagnað af virkjun greiða
niður kostnað við dreif-
ingu orkunnar. Þá verður
hver og einn viðskiptavin-
ur að greiða fyrir orkuna í
samræmi við kostnað, en
það þýðir að orkufyrir-
tækjunum verður óheimilt
að vera með millifærslu milli þétt-
býlis og dreifbýlis.
Um áramót tekur nýtt fyrir-
tæki, Landsnet, að sér flutning á
raforku. Inn í þetta fyrirtæki fara
flutningslínur Landsvirkjunar,
RARIK og Orkubús Vestfjarða.
Rekstur á flutningslínum RARIK
og Orkubús Vestfjarða er tiltölu-
lega dýr vegna þess að línurnar
eru langar og viðskiptavinirnir
dreifðir um stórt svæði. Guð-
mundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, segir að
þessi breyting leiði til þess að
kostnaður sem landsbyggðarveit-
urnar hafi borið af dreifikerfinu
verði jafnaður yfir á alla, þar á
meðal á þá sem búa í þéttbýli.
OR breytir gjaldskrá í janúar
Öll orkufyrirtækin munu
breyta gjaldskrám sínum. Orku-
veita Reykjavíkur hefur ekki tek-
ið ákvörðun um hækkanir en Guð-
mundur segir að þær verði
tilkynntar fljótlega eftir áramót.
Hann segir að lagabreytingin kalli
á breytingar á töxtum og þær
verða aðallega til hækkunar.
Hitaveita Suðurnesja hækkar
almennt raforkuverð á flestum
veitusvæðum um 4,86% en verðið
lækkar í Vestmannaeyjum og Ár-
borg um 3,58%. Hins vegar hækk-
ar fastagjald rafmagnsreikninga
um 300 krónur á öllum veitusvæð-
um Hitaveitu Suðurnesja.
Tryggvi Þór Haraldsson, raf-
veitustjóri RARIK, segir að mikl-
ar og talsvert flóknar breytingar
verði á taxta RARIK. „Meðal-
hækkun hjá okkur um áramótin
er 3,5%. Ekki er gert ráð fyrir
neinni hækkun í þéttbýli, en 7,9%
hækkun í dreifbýli. Almennt má
segja að gjald til rafhitanotenda
muni hækka, en önnur gjöld munu
í flestum tilvikum lækka. Lækkun
hjá stórnotendum er á bilinu 5–
20%. Gjald til heimilisnotenda í
þéttbýli lækkar að meðaltali um
8% og gjald til heimilisnotenda í
dreifbýli lækkar um 2%. Gjald til
rafhitanotenda bæði í dreifbýli og
þéttbýli hækkar hins vegar á
bilinu 15–20%.“
Tryggvi Þór sagði að taxti til
þeirra sem hita hús sín með raf-
magni hafi verið haldið niðri á síð-
ustu árum á kostnað annarra. Í
þessu nýja umhverfi verði þetta
ekki hægt lengur. Fram að þessu
hafi orkufyrirtækin verðlagt raf-
hitun sérstaklega en nú komi það
orkufyrirtækjunum ekki lengur
við hvað kaupendur geri við
orkuna.
Ný gjaldskrá Orkubús Vest-
fjarða verður ekki tilbúin fyrr en í
næstu viku. Kristján Haraldsson
orkubússtjóri segir að ekki sé
reiknað með að raforkuverð í þétt-
býli hækki, en gert sé ráð fyrir
hækkunum í dreifbýli, en þær
verði líklega innan við 10%. Krist-
ján bendir á að um áramót falli
niður afsláttur sem Landsvirkjun
var með vegna sölu til rafhitunar.
Þann tekjumissi verði Orkubú
Vestfjarða að bæta sér með því að
hækka verð til notenda.
Hann reiknar ekki með að fyrir-
tækið nýti sér að fullu þær heim-
ildir sem það hafi til að hækka
verð vegna dreifingar orkunnar.
Franz Árnason, forstjóri Norð-
urorku á Akureyri, segir að fasta-
gjaldið hjá Norðurorku muni
hækka um 225 krónur á mánuði.
Það jafngildi 4–7% hækkun eftir
því hvað notkunin er mikil. Verð á
kílówattstund hækkar hins vegar
ekki. Ástæða hækkunarinnar sé
fyrst og fremst hærri flutnings-
kostnaður samfara lagabreyting-
unni.
Landsvirkjun hækkar ekki
umfram „raungildi“
Stjórnvöld ákváðu að verja 230
milljónum á næsta ári til niður-
greiðslu á raforkuverði í dreifbýli.
Sú upphæð rennur öll til notenda
á svæði RARIK og Orkubús Vest-
fjarða. Forstjórar beggja fyrir-
tækjanna segja að þessi upphæð
sé ekki nægilega há og þess vegna
sé óhjákvæmilegt að hækka taxta
til notenda í dreifbýli.
Landsvirkjun þarf einnig að
endurskoða gjaldskrá sína í sam-
ræmi við þær kröfur sem gerðar
eru í nýju lagaumhverfi. Niður-
staða af þeirri vinnu liggur ekki
enn fyrir, en Friðrik Sophusson
forstjóri sagði í bréfi til Neyt-
endasamtakanna fyrr í vikunni að
ekki sé gert ráð fyrir að „heild-
söluverð raforku frá fyrirtækinu
hækki að raungildi á næsta ári“.
Almennt má segja um þær
verðbreytingar sem þegar hafa
verið tilkynntar leiði til þess að
raforkuverð til þeirra sem búa í
þéttbýli á landsbyggðinni lækki
en verð til íbúa í dreifbýli hækki.
Fréttaskýring | Miklar breytingar
á raforkuverði um áramót
Rafhitun hækk-
ar um 15–20%
230 milljónum verður varið til niður-
greiðslu á raforkuverði í dreifbýli
Landsnet tekur yfir rekstur dreifikerfisins.
RARIK lækkar almennt
orkuverð í þéttbýli um 8%
Öll orkufyrirtækin breyta
gjaldskrám fyrir raforku um
þessi áramót. Breytingarnar eru
bæði til hækkunar og lækkunar
en þó mest til hækkunar. Mest er
hækkunin á rafhitun hjá RARIK
sem hækkar um 15–20% um ára-
mót. Forstjórar RARIK og Orku-
bús Vestfjarða segja að 230 millj-
óna króna niðurgreiðsla ríkis-
sjóðs á raforkuverði í dreifbýli sé
ekki nægilega mikil. Heimilis-
notkun í þéttbýli hjá RARIK
lækkar um 8% og meira hjá stór-
notendum.
egol@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn