Morgunblaðið - 31.12.2004, Side 28

Morgunblaðið - 31.12.2004, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ G óðir Íslendingar Það er gömul saga og ný að það skiptast á skin og skúrir, jafnt í lífi hvers einstaklings sem heilla þjóða. Þau hörmulegu tíðindi bárust heimsbyggðinni yfir hátíðirnar að náttúruhamfarir í Suður-Asíu hefðu valdið gríðarlegu manntjóni og eyðileggingu. Við slíka atburði sést glögglega hversu vanmáttugir við mennirnir erum þegar óblíð náttúruöflin sýna mátt sinn og megin; hversu viðkvæm við erum. Við Íslendingar þekkjum vel þau sár sem náttúruhamfarir geta skapað, við höfum tekist á við slíkt í gegnum aldirnar og sameinast í stuðningi og uppbyggingu. Við get- um að einhverju marki sett okkur í spor þeirra sem nú eiga um sárt að binda um víða veröld og ég veit að hugur margra Íslendinga dvelur nú á þessum fjarlægu slóðum, en ekki síður hjá vinum okkar á Norð- urlöndum sem hafa orðið fyrir miklu áfalli og þurfa á stuðningi og vinarþeli að halda. Við höfum þeg- ar veitt nokkurt fé til að byggja upp að nýju það sem rifið hefur verið niður og munum leggja enn meira fram á næstunni, aðstoð sem sýnir að við gleymum ekki þeim sem minna mega sín. II. Um áramót er bæði horft til for- tíðar og framtíðar. Árangur ársins sem er að líða er gerður upp og ný markmið sett fyrir komandi ár. Sitt sýnist hverjum þegar litið er til baka en þó er hægt að fullyrða að við Íslendingar höfum það betra nú en nokkru sinni fyrr. Hver al- þjóðleg könnunin á fætur annarri sýnir að Íslendingar eru í far- arbroddi hvað varðar lífsgæði, af- komu og lýðræði, enda er hag- vöxtur hér meiri en annars staðar, kaupmáttur heimilanna hefur auk- ist um 40% á síðustu 9 árum og stefnir í 55% aukningu áður en kjörtímabilinu lýkur. Atvinnuleysi er minna en þekkist í flestum lönd- um, afkoma ríkissjóðs betri og verðbólga innan skynsamlegra marka. Í umræðunni um skuldasöfnun þjóðarinnar vill gleymast að þeir aðilar sem standa fyrir skulda- aukningu þjóðarbúsins eru ekki ríkið heldur fyrirtækin, heimilin og sveitarfélögin. Það er hins vegar athyglisvert að þegar litið er til skulda fyrirtækja eru það ekki all- ar greinar sem hafa aukið skuldir sínar á síðustu árum. Skuldir sjáv- arútvegs og ýmissa iðnfyrirtækja hafa staðið í stað meðan skuldir ýmissa hátækni- og fjármálafyr- irtækja hafa aukist. En það eru einmitt þessar greinar sem hafa vaxið hvað mest að undanförnu, bæði hér innanlands og ekki síður á erlendum mörkuðum. Það er ekkert óeðlilegt við það að skuldsetningin skuli vera mest í þeim hlutum hagkerfisins sem vaxa hvað hraðast. Útrás íslenskra fyr- irtækja á erlenda markaði hefur gengið vonum framar og vakið mikla athygli erlendis. Þetta er því mjög jákvæð þróun og ánægjulegt að þær skipulagsbreytingar á ís- lensku efnahagslífi, sem rík- isstjórnin hefur beitt sér fyrir, skuli hafa stuðlað að uppbyggingu öflugra og framsækinna fyrirtækja. Það er líka nauðsynlegt að hafa í huga að á móti aukinni skuldsetn- ingu fyrirtækja standa miklar eign- ir. Þetta vill oft gleymast í um- ræðunni og menn tala stundum eins og fyrirtækin séu að skuld- setja sig út í bláinn. III. Á árinu sem er að líða varð eitt helsta kosningamál Framsókn- arflokksins að veruleika. Fram- sóknarflokkurinn gekk fram fyrir skjöldu fyrir síðustu alþingiskosn- ingar og gaf þau heit að hækka lán Íbúðalánasjóðs upp í 90% á kjör- tímabilinu. Þegar þetta loforð var gefið var hámarkslánshlutfall 70% við kaup á fyrstu íbúð og hámarks- lánsfjárhæð 9 milljónir króna. Þetta kosningaloforð þótti mörg- um fráleitt, jafnt pólitískum and- stæðingum sem ýmsum aðilum á fjármagnsmarkaði. Þegar ljóst var að þetta loforð yrði að raunveru- leika fóru ytri aðstæður að breyt- ast. Það frumkvæði og sú vinna sem fólst í þessari ákvörðun leiddi til róttækra breytinga á húsnæð- ismarkaði með aðkomu bankanna og á svipstundu breyttist lands- lagið og því var ákveðið að lögin tækju strax gildi. Nú í desem- berbyrjun, rétt rúmu einu og hálfu ári eftir kosningar, varð frumvarp félagsmálaráðherra um 90% lán að lögum og þar með náðist að upp- fylla þetta mikilvæga kosningalof- orð sem sýnir svo ekki verður um villst að ríkisstjórnin og þeir flokk- ar sem að henni standa láta verkin tala. Íbúðalánasjóður býður nú 90% lánshlutfall og hámarkslán upp undir 15 milljónir króna. Nýr raun- veruleiki blasir við þeim sem vilja eignast sitt eigið þak yfir höfuðið, raunveruleiki sem sumum þótti fjarstæðukenndur fyrir aðeins nokkrum mánuðum. IV. Á sviði heilbrigðisþjónustu hefur verið gert rækilegt átak í uppbygg- ingu grunnþjónustu heilsugæsl- unnar á árinu sem senn er liðið og þessi þjónustuþáttur heilbrigð- iskerfisins verið styrktur. Mikil breyting varð fyrir nokkrum miss- erum á samskiptum samtaka eldri borgara og yfirvalda heilbrigðis- og tryggingamála. Samkomulag varð um áherslur í uppbyggingu hjúkr- unarheimila, um áherslur í trygg- ingamálum og fleiri málum sem snerta hag aldraðra og á árinu var settur punkturinn aftan við það samkomulag sem gert var og með því að fullu staðið við sam- komulagið. Ríkisstjórnin hefur unnið mark- visst að því á undanförnum árum að stytta biðlista fatlaðra og verður á annað hundrað fleiri rými á sam- býlum á næsta ári en fyrir fjórum árum síðan. Hvað öryrkja varðar tala tölurnar sínu máli þrátt fyrir harðan áróður gegn staðreynd- unum. Sérstaða þeirra sem yngstir eru hefur verið viðurkennd með tvöföldun á grunnlífeyri þeirra og hefur rúmur milljarður króna verið settur sérstaklega í þann mála- flokk. Heildarbótagreiðslur til ör- yrkja síðustu sex ár hafa þrefald- ast og er óhætt að segja að undir forystu Framsóknarflokks hafi þar orðið meiri bót á en nokkur annar getur státað af. En áfram verður unnið að því að styrkja þennan málaflokk, ekki síst með vitund- arvakningu um heilbrigðan lífsstíl og samspili lífshátta og sjúkdóma. V. Á árinu var unnið að undirbún- ingi sölu á hlut ríkisins í Lands- síma Íslands hf., samkvæmt heim- ild Alþingis og stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Framkvæmda- nefnd um einkavæðingu hefur um- sjón með undirbúningi sölu og hef- ur sér til ráðgjafar Morgan Stanley í Lundúnum, sem er virt fjármálafyrirtæki og býr meðal annars yfir mikilli reynslu af einkavæðingu í fjarskiptageiranum. Gætt verður að því að sala Sím- ans fari fram við hagstæðar mark- aðsaðstæður og þannig tryggt að ríkissjóður fái sanngjarnt verð fyr- ir eign sína. Nú um stundir eru að- stæður til sölu hagstæðar og hefur markaðurinn hérlendis sem erlend- is brugðist jákvætt við fregnum af fyrirhugaðri sölu, enda Síminn einkar vel rekið fyrirtæki í fremstu röð á sínu sviði. Miðað við núver- andi aðstæður gæti sala á hlutum í fyrirtækinu hafist fyrri hluta næsta árs. Með sölu á hlut sínum í Síman- um er markmið íslenskra stjórn- valda að auka samkeppni á fjar- skiptamarkaði enn frekar og bæta þannig hag neytenda. Það verður þó áfram skylda stjórnvalda að beita tiltækum úrræðum til að tryggja nauðsynlega uppbyggingu á fjarskiptaþjónustu á svæðum þar sem markaðsaðilar treysta sér ekki til. VI. Góðir landsmenn. Framundan er nýtt ár; ár tæki- færa, ár uppbyggingar, ár vaxtar og þroska. Eins og ég hef rakið hefur ríkisstjórnin látið verkin tala og árangurinn liggur fyrir. Það er því einkar bjart framundan, en verkefnin eru næg og á næsta ári tökumst við á við krefjandi og mik- ilvæg verkefni á borð við endur- skoðun stjórnarskrárinnar, áfram- haldandi styrkingu grunneiningar þjóðfélagsins, fjölskyldunnar, og viðhald og eflingu velferðarkerf- isins. Um leið og ég þakka ykkur fyrir samstarfið á árinu, sem er að líða, bið ég þess að árið 2005 verði ykk- ur ár farsældar og friðar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, formaður Framsóknarflokksins Einkar bjart framundan Morgunblaðið/Sverrir Á árinu sem er að líða varð eitt helsta kosningamál Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar að veruleika, fyr- irheit um að hækka lán Íbúðalánasjóðs upp í 90% á kjörtímabilinu, segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Formenn stjórnmálaflokka við áramót Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.