Morgunblaðið - 31.12.2004, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 35
DAGLEGT LÍF
Stílhrein húsgögn úr ljósri eik
Ármúla 44, sími 553 2035.
FOCUS
Borðstofuborð 135 cm x 135 cm kr. 90.990.
Borðstofustóll kr. 22.410.
Glerskápur, b130 cm x h190 cm x d45 cm, kr. 124.490.
Skápur, b130 cm x h162 cm x d45 cm, kr. 116.640.
Skenkur 3 hurða, b185 cm x h90 cm x d45 cm, kr. 94.230
Sjónvarpsskápur, b130 cm x h72 cm x d 45 cm, kr. 57.510.
Hljómtækjaskápur, b74 cm x h72 cm x d45 cm, kr. 31.590.
Sófaborð, l140 cm x b70 cm x h40 cm, kr. 53.190.
Hornborð, l70 cm x d70 cm x h40 cm kr. 41.580..
Borðstofuborð, b95 cm x l150 cm,
stækkanlegt í 240 cm, kr. 125.280.
Borðstofustóll kr. 22.410.
Skenkur 4 hurða, b241 cm x h490 cm x d45 cm kr. 115.290.
Glerskápur, b130 cm x h190 cm x d45 cm, kr. 124.490.
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
kostar birtingu auglýsingarinnar
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Samsung SGH-X450
fallegur 3 banda
sími með
hágæða skjá
Ný norsk uppgötvun geturlétt þeim lífið sem fengiðhafa hálshnykk, t.d. eftir
aftanákeyrslu. Slík meiðsli hafa
hingað til ekki sést greinilega á
myndum. Jostein Kråkenes, vís-
indamaður við Háskólann í Bergen,
hefur rannsakað hálshnykki. Hann
hefur stækkað segulómmyndir af
hnakka þeirra sem kvarta undan
verkjum vegna hálshnykkja og séð
meiðslin. 92 sjúklingar með gömul
meiðsli voru skoðaðir, að því er
greint var frá í vísindaþætti NRK,
Schrödingers Katt. Rætt var við
Else Nicolaysen sem fékk háls-
hnykk eftir að keyrt var aftan á
hana þar sem hún sat í kyrrstæðum
bíl sínum. Hálshnykkurinn breytti
lífi hennar gjörsamlega. Hún hætti
að sofa á nóttunni, hætti að fara út
á meðal fólks og verkirnir voru
óbærilegir. „Það versta er að eng-
inn trúir manni,“ segir Nicolaysen.
Hún lítur út fyrir að vera frísk og
ekkert kom í ljós á myndum fyrr en
nú að tækni Kråkenes var notuð.
Kråkenes hefur komist að því að
meiðslin eftir hálshnykk koma
fram í tveimur efstu hnakkalið-
unum en ekki neðar á aftanverðum
hálsinum eins og fyrr hefur verið
haldið fram. Það sem gerist er að
það tognar á liðböndunum sem
festa höfuðið við hálsinn. „Nú vitum
við hvernig meiðsli eftir hálshnykk
líta út og hvar þau koma fram.
Þannig verður auðveldara að vita
hvað á að gera til að létta líf sjúk-
linganna,“ segir Jostein Kråkenes.
Linar þjáningar eftir hálshnykk
HEILSA
Jensen er ekki hræddur um að tapa
viðskiptavinum ef það kemur í ljós
að bænir geri fólk frískara.
Rannsókn guðfræðingsins Niels
Christian Hvidt stendur yfir og
byggist m.a. á því að safna gögnum
um það sem þegar liggur fyrir um
V
ið Háskólann í Umeå í
Svíþjóð hefur sam-
bandið á milli bæna og
krabbameins verið
kannað. Í ljós kom að
fyrirbænir og bænir höfðu jákvæð
áhrif á sjúkdómsferlið. Við Háskól-
ann í Osló kom í ljós að auknar líkur
eru á að þeir sem greinast með
krabbamein, verði trúræknari.
Einnig að trúin hafi jákvæð áhrif
þegar kemur að því að sættast við
sjúkdóminn, að því er fram kemur í
Göteborgs Posten.
Lyfjafræði og guðfræði virðast við
fyrstu sýn ekki eiga mikið sameig-
inlegt en nú hefur danska lyfjafyr-
irtækið Lundbeck breytt sambandi
þessara fræðigreina. Fyrirtækið
styrkir nú rannsókn guðfræðings á
sambandi bæna og bata. Lundbeck
framleiðir m.a. þunglyndislyf og að-
stoðarforstjórinn Hans-Henrik
Munch-Jensen, segir í samtali við
GP að lyfjaframleiðendur verði að
hafa opinn huga og þetta samstarf sé
í takt við stefnu fyrirtækisins um
þátttöku í rannsóknum. Munch-
áhrif bæna, kraftaverk og lækningu
sjúkra. Fyrir tveimur árum gaf hann
út bókina „Kraftaverk – þar sem
himinn og jörð mætast“ og bráðum
kemur út bókin „Flytur trúin fjöll?“
Þar velta sálfræðingar, lyfjafræð-
ingar og guðfræðingar fyrir sér
samspili sjúkleika, heilsu og trúar.
Áður fyrr var það álitinn dauða-
dómur að greinast með krabbamein
en nú á dögum eru lífslíkur mun
betri. Sjúkdómur eins og krabba-
mein breytir þó lífi fólks mikið og til
að komast í gegnum lyfjameðferðir
og aukaverkanir sem þeim fylgja og
til að halda áfram að lifa lífinu geta
bænir hjálpað mörgum. Ekki þarf að
vera um kraftaverk að ræða heldur
getur bænin haft nokkurs konar
hugleiðsluáhrif á líkamann þannig
að hann slakar á og það getur flýtt
fyrir bata. Einnig getur lífsstíll
þeirra trúræknu oft verið heilbrigð-
ari en annarra, t.d. neyta þeir síður
áfengis og fíkniefna.
TRÚ | Bænin kann að hafa nokkurs konar hugleiðsluáhrif á líkamann þannig að hann slakar á
Tengsl milli bæna og bata
Reuters
Lífsstíll þeirra trúræknu er kannski heilbrigðari en annarra, t.d. neyta
þeir síður áfengis og fíkniefna.