Morgunblaðið - 31.12.2004, Síða 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR ÞAÐ AÐ ÞAÐ
SÉ PÍTSUSNEIÐ FÖST Í LOFTINU...
EN MÉR SÝNIST HÚN
VERA AÐ LOSNA
ÞAÐ ÞARF AÐ
ÞRÝFA HÚSIÐ
ÉG SÉ
UM
ÞAÐ
HELDURÐU
AÐ ÉG VERÐI
EINHVERN
TÍMAN
ÞROSKAÐUR
FYRIR SVONA SPURNINGU VIL
ÉG FÁ GREITT FYRIRFRAM
FYRIRFRAM?
AF HVERJU?
ÉG HELD AÐ ÞÉR EIGI EKKI
EFTIR AÐ LÍKA SVARIÐ!
ÉG NENNI EKKI Í SKÓLANN!
ÉG HATA SKÓLANN!
ÉG VÆRI TIL Í AÐ GERA
HVAÐ SEM ER ANNAÐ EN
AÐ FARA Í SKÓLANN!
EKKERT MÁL,
ÉG SKAL FARA
FYRIR ÞIG OG
ÞÚ FÆRÐ ÞÉR
VINNU...
SÍÐAN GETURÐU KOMIÐ
HEIM ÞAR SEM ENGINN BER
VIRÐINGU FYRIR ÞVÍ SEM
ÞÚ GERIR OG HLUSTAÐ Á
KRAKKAN ÞINN VÆLA YFIR
ÞVÍ HVAÐ LÍFIÐ ER ERFITT
GAMAN AÐ VITA AÐ ÞAÐ ER
SVONA MIKIÐ SEM HÆGT ER
AÐ HLAKKA TIL
SEINNA Á ÆVINNI
Risaeðlugrín
NEI SKO ... GÖNGUR RISASNIGLANNA
VIRÐAST VERA BYRJAÐAR ...
© DARGAUD
Dagbók
Í dag er föstudagur 31. desember, 366. dagur ársins 2004
Víkverji fór í kirkju ádögunum. Aldrei
þessu vant sat hann
ekki innarlega, heldur
á einum af öftustu
bekkjunum. Sessu-
nautar hans þar voru
börn, sem eiga að
fermast í vor og eru
fyrir vikið skyldug að
sækja messu í vetur.
Strax undir forspili
organistans fór Vík-
verji að heyra sér-
kennilega smelli og píp
í kringum sig. Þegar
hann litaðist um, kom í
ljós að ferming-
arbörnin sátu hér um
bil öll með farsímana sína í messunni
og kepptust við að senda vinum sín-
um – kannski bara hvert öðru – SMS-
skilaboð. Víkverji hvíslaði að þremur
stífmáluðum stúlkubörnum, sem
næst honum sátu að þær hlytu nú að
geta látið þetta vera þangað til eftir
messu. Sú athugasemd var tekin til
greina – í svo sem eins og tíu mínútur.
x x x
Víkverja rekur minni til að áhugi áinnihaldi messunnar var mis-
munandi hjá honum og félögum hans
þegar hann var sjálfur í ferming-
arundirbúningi fyrir margt löngu. En
varla var þó áhugaleys-
ið svona gersamlega
ódulbúið. Víkverji efast
um að í þá tíð hefðu
menn látið sér detta í
hug að sitja t.d. og lesa
bók eða blað í miðri
messu – nema þá
sálmabókina.
x x x
Víkverja finnst aðþrennt sé hægt að
gera í málinu. Í fyrsta
lagi að mælast til þess
við alla gesti í kirkjum
landsins að þeir slökkvi
á farsímunum sínum.
Slík apparöt eiga bara
ekki heima í messu. Í öðru lagi finnst
Víkverja liggja í augum uppi að for-
eldrar fermingarbarna eiga að fara
með þeim í messu til að hjálpa þeim
að öðlast áhuga á því, sem þar fer
fram – og geyma kannski fyrir þau
símann á meðan. Í þriðja lagi ættu
prestarnir kannski að skoða þann
möguleika að senda fermingarbörn-
unum nokkrar spurningar úr prédik-
uninni í SMS.
x x x
Víkverji þakkar lesendum ánægju-lega samfylgd á árinu og óskar
þeim gleðilegs árs.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hallgrímskirkja | Hefð hefur skapast fyrir því undanfarin ár að síðustu tón-
leikar ársins á Íslandi séu haldnir í Hallgrímskirkju á gamlársdag. Í dag kl.
17 kveðja þeir félagar, trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eirík-
ur Örn Pálsson og orgelleikarinn Hörður Áskelsson, gamla árið og fagna því
nýja með viðeigandi lúðraþyt og orgelleik. Á efnisskrá tónleikanna við þessi
áramót eru verk eftir Pezel, Vivaldi, Holloway, Bach og Albinoni/Giazotto.
Þeir félagar renndu í verkin í gærmorgun og undirbjuggu að blása árið á
braut með fögrum tónum.
Morgunblaðið/Kristinn
Líðandi ár blásið á brott
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. (Sálm. 84, 5.)