Morgunblaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 53
DAGBÓK
ÍSLENDINGAR munu án
efa sletta rækilega úr klauf-
unum í kvöld og kveðja liðið
ár með sprengingum, dansi,
söng og tilheyrandi skralli.
Um allt land verða áramóta-
dansleikir og skemmtanir
og flestir af hinum virku
skemmtistöðum munu hafa
opið, þó nokkur smærri
kaffihús loki yfir áramótin
og taki sér frí frá kapp-
hlaupinu um skemmt-
anafúsa gesti.
Á flestum stöðum í miðbæ
Reykjavíkur verða plötu-
snúðar á fullum snúningi,
en einnig verða hljómsveitir
á stærri skemmtistöðum.
Meðal annars verður Sálin
með áramótadansleik í
Broadway ásamt herskara
plötusnúða, en á Gauknum
mun Á móti sól leika fyrir
gesti.
Á Nasa verður hins vegar
Páll Óskar Hjálmtýsson í
fullu fjöri og rífur upp dans-
stemninguna eins og honum
einum er lagið. Mun hann
leika heitustu danslög ársins í bland við sígild gleðilög þar sem fer mikið
fyrir diskói og Eurovisionlögum. Í hita leiksins mun Páll Óskar svo stíga út
úr diskóbúrinu syngja sjálfur sín bestu lög. Honum til liðsinnis kemur síðan
dúettinn Þú og ég, sem naut mikillar velgengni fyrir aldarfjórðungi og gaf
út fjölda skemmtilegra smella sem hafa elst ágætlega að mati poppfróðra.
Á Akureyri mun hin fornfræga poppsveit Vinir vors og blóma leika fyrir
skemmtanafúsa á Sjallanum en sveitin hefur legið í dvala um árabil.
Gamlársskrallið framundan
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíu-
málverk.
Gallerí Banananas | Úlfur Chaka – Geim-
dúkka og Fönix reglan/spacedol™ and the
phoenix rule.
Gallerí Tukt | Innrás úr Breiðholtinu í
Gallerí Tukt. Samsýning níu myndlist-
arnema úr FB.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný ol-
íumálverk.
Hrafnista, Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina. 20
listamenn sýna.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Graf-
ísk hönnun á Íslandi. Erró – Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Myndir úr Kjarvalssafni.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa sam-
einast um vefinn www.skjaladagur.is þar
sem er að finna fróðleik og sýningu um
árið 1974 í skjölum.
Listasýning
Lumex, Skipholti 37 | Sandra Erlings-
dóttir, nýútskrifaður gullsmiður og hönn-
uður frá New York, sýnir skartgripi sína
og hönnun, sunnudaginn 2. janúar.
Skemmtanir
Broadway | Áramótaball með Sálinni.
Húsið opnað um miðnætti. R&B herbergi
og VIP/Sódóma herbergi. Verð 2.500 kr. í
forsölu. Miðasala hafin á Broadway og
Skífunni.
Café Victor | Áramótagleði Café Victors
er ógleymanleg því plötusnúður hússins,
DJ Gunni, er engum líkur og spilar svaka-
lega partítóna fram undir morgun. 100%
partístemning.
Celtic Cross | Celtic Cross hljómsveitin
Póstur & sími leikur og spilar inn nýja ár-
ið. Frítt inn og venjulegt verð á veitingum.
Gaukur á Stöng | Á móti sól spilar á
gamlárs- og nýárskvöld ásamt DJ Þresti
3000.
Hvíta Húsið, Selfossi | Bjórbandið mætir
ferskt til leiks á heimaslóðum til að leiða
Sunnlendinga inn í rokkað nýtt ár. Húsið
opnað klukkan 1 á nýju ári.
Kaffi Sólon | Kaffi Sólon, svaka stuð alla
nóttina, langt fram á nótt, þar sem hús
Dj. verða í feikna formi og spila alla bestu
dansmúsíkina langt fram á morgun.
Kaffi Sólon | Kaffi Sólon, matur – kaffi –
djamm – frá hádegi fram á rauðan morg-
un, leikir í beinni o.fl.
Klúbburinn við Gullinbrú | Nýársdans-
leikur með Hljómsveitini Sixties.
Nasa | Dj. Páll Óskar verður á Nasa á
gamlárskvöld. Sérstakir gestir: Diskódú-
ettinn „Þú & ég“. Miðaverð kr. 1000. Hús-
ið opnað kl. 01.
Prikið | Gullfoss og Geysir með áramóta-
djamm.
Traffik, Keflavík | Hljómsveitin Sex Volt
spilar á gamlársballi.
Dans
Ásgarður | Harmonikufélag Reykjavíkur
heldur nýársdansleik í Glæsibæ og hefst
hann kl. 22 að kvöldi 1. janúar.
Mannfagnaður
Leikskálar | Áramótaball í Leikskálum.
Fritz Von Blitz skemmtir. Aðgangseyrir kr.
1.500. 16 ára aldurstakmark.
Fréttir
Björgunarsveitin Víkverji | Flugeldasala
Víkverja verður á gamlársdag kl. 10–14 og
flugeldasýning um kvöldið.
Lýðháskólanám | Danskur lýðháskóli með
áherslu á leiklist, dans og tónlist býður 6
íslenskum ungmennum 400 DKK afslátt á
viku, á vorönn 2005. Heimasíða skólans
er www.musikogteater.dk þar sem um-
sóknareyðublað og allar upplýsingar er að
finna. Nánari upplýsingar hjá Norrænu
upplýsingaskrifstofunni. Sími 460 1462.
Ráðstefnur
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Ráðstefna
um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum
verður haldin í tólfta sinn 4. og 5. janúar í
Öskju, Háskóla Íslands. Kynntar verða
rannsóknir með 135 erindum og ríflega
100 veggspjöldum. Viðfangsefnin sem
kynnt verða eru frá grunnvísindum til
heilsufarskannana. Nánar á www.laekna-
bladid.is/fylgirit.
Börn
www.menntagatt.is | Fram að áramótum
verður opinn jólakortavefur á mennta-
gatt.is. Allir nemendur í leik–, grunn– og
framhaldsskólum geta sent inn myndir og
verða þær sjálfkrafa að jólakortum. Inn-
sendar myndir verða sýnilegar á vefnum
og er hægt að senda þær sem jólakort til
vina og ættingja.
Útivist
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd
(SJÁ) | Sjálfboðaliðasamtök um nátt-
úruvernd (SJÁ) heilsa nýju ári með göngu
að morgni nýársdags, laugardaginn 1. jan-
úar. Farið verður frá strætisvagnaskýlinu í
Mjódd kl. 11 og tekur gangan um 3 klukku-
stundir. Nánari uppýsingar á netpósti:
sja.is@simnet.is. Talhólf SJÁ er: 881 0551.
Ferðafélag Íslands | Nýársganga 2. jan-
úar kl. 15. Mæting er við Mörkina 6, þaðan
er ekið að Úlfarsfelli, þar sem gengið
verður á fellið, kveikt á blysum og skotið
upp flugeldum á toppnum, sungið og
dansað undir lifandi tónlist. Ókeypis er í
nýársgöngu. Mætið með kyndla og af-
gangs flugelda. Fararstjóri Sigrún Val-
bergsdóttir. Sunnudagsgleði FÍ fellur nið-
ur.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos