24 stundir - 08.02.2008, Síða 1
24stundirföstudagur8. febrúar 200827. tölublað 4. árgangur
Jón Ólafsson, ásamt Rokksveit
sinni og 40 hljóðfæraleikurum úr
Sinfó, fetar í fótspor Bítlanna
og flytur Sgt. Pepper’s Lonely
Hearts Club Band í heild sinni
í Laugardalshöll í mars.
Bítlaveisla nálgast
KOLLA»20
Sterkir litir einkenna vor- og
sumartískuna. Stutta tískan
heldur velli en kjólar með skyr-
tusniði verða vinsælir. Tísku-
hönnuðir boða spennandi sum-
ar í tískuheiminum.
Spennandi tíska
TÍSKA»22
73,6% munur á
kókómjólkinni
NEYTENDAVAKTIN »4
2
1
5 4
4
Þegar lögreglan í St. August-
ine í Flórída stöðvaði 46 ára
gamla konu sem ók á rauðu
ljósi sá hún að bjórkassi í bíl
konunnar var vandlega
spenntur í öryggisbelti. Það
var hins vegar ekki barnið í
aftursætinu sem var 16 mán-
aða gamalt. Konan, sem ekki
gat gefið neina skýringu á því
hvers vegna bjórinn væri í ör-
yggisbelti en ekki barnið, var
handtekin. Hún var ekki með
ökuskírteini og neitaði að
gangast undir áfengispróf. ibs
Bjór í belti en
ekki barnið
GENGI GJALMIÐLA
SALA %
USD 67,50 +2,06
GBP 131,07 +1,12
DKK 13,14 +0,96
JPY 0,63 +1,29
EUR 97,94 +0,97
GENGISVÍSITALA 128,94 +1,26
ÚRVALSVÍSITALA 5.067,83 -0,68
»14
VEÐRIÐ Í DAG »2
Óvenju þungfært hefur verið á landinu undanfarna daga og margir þurft að skafa af bílunum sínum. Þessi kona
dó þó ekki ráðalaus heldur fór út með stærðarinnar kúst og sópaði af bílnum sínum. Þórhallur Óskarsson leigu-
bílstjóri hjá BSR segir eftirspurn eftir leigubílum aukast þegar færðin er slæm enda séu margir illa búnir til akst-
urs í vetrarfærð. „Ég lenti í dag fyrir aftan við bíl á sumardekkjum sem var fastur á afrein, ég þurfti bara að fá
farþegann með mér út að ýta því við komumst hvorki aftur á bak né áfram.“
Vanbúnir bílar í vetrarfærð
Árvakur/Árni Sæberg„Ég þurfti bara að fá farþegann með mér út að ýta“
Tryggingafélagið VÍS gafst upp á að
tryggja húseiganda á Siglufirði
vegna þess hve oft var brotist inn í
hús hans. Eigandinn er ósáttur við
uppsögnina enda er
hún óvenjuleg.
Missti tryggingu
vegna innbrota
»8
Pólskir þjófar koma til Noregs með
pöntunarlista að heiman í tilefni
ránsferðanna. Efst á listanum er
ýmis aukabúnaður í bíla. Glæpa-
gengi Litháa í Noregi fylla sekki af
farsímum og öðru og
flytja úr landi.
Glæpagengi frá
Austur-Evrópu
»12
ÚTSALA Ú
TSALA ÚT
SALA ÚTS
ALA ÚTSA
LA ÚTSA 10-70% AFSLÁTTUR
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 I Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 I Afgreiðslutími: virka daga: 10-18 og laugard.: 11-15
Heilsudýnur - Rafmagnsrúm - Húsgögn - Sófar - Koddar - Sængur - Rúmföt
Rúmteppi - Handklæði - Sloppar - Gjafavara
Opið í dag frá kl. 9 til 22 www.europris.is
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Sunnlenskir bjórunnendur fá ekki tækifæri til
að kaupa sunnlenskan bjór, sem kemur á mark-
að innan skamms, í sinni heimabyggð fyrr en
bjórneytendur í Reykjavík hafa sýnt það í verki
að bjórinn standist kröfur þeirra.
Sunnlensku bjórtegundirnar sem um ræðir
eru tvær. Annars vegar er Skjálfti sem brugg-
húsið Ölvisholt í Flóahreppi mun setja á markað
í lok mánaðarins og hins vegar er um að ræða
Volcano-bjór frá Vestmannaeyjum. Stefnt er að
því að sá bjór komi í búðir í sumar.
Furðulegar reglur
Reglur ÁTVR kveða á um að nýjar áfengis-
tegundir á íslenskum markaði þurfa að fara í
reynslusölu í tvo mánuði í Vínbúðinni í Kringl-
unni og Heiðrúnu, verslun ÁTVR á Stuðlahálsi.
„Þetta er nú bara ein af þeim furðulegu
reglum hjá ÁTVR sem gilda varðandi verslun
með áfengi,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks. Sigurður Kári
lagði fram frumvarp til breytinga á áfengis-
lögum sl. haust. „Þetta væri nú ekki vandamál ef
búið væri að samþykkja frumvarp mitt um að
heimila sölu á þessum vörum í búðum.“
Hann segist hafa fullan skilning á því að
Sunnlendingar skuli vera svekktir yfir því að
þurfa að bíða eftir því að Reykvíkingar sam-
þykki bjór sem framleiddur er í þeirra sveit.
Markaðshömlur í kerfinu
„Þetta mál er lifandi dæmi um að einkaleyfi
ríkisins á sölu áfengis gerir það að verkum að
það eru markaðshömlur í kerfinu sem gera nýj-
um framleiðendum erfitt fyrir að komast inn á
markaðinn,“ segir Sigurður Kári.
Framleiðendurnir segjast fullvissir um að
bjórtegundirnar komi á endanum í verslanir
annars staðar á landinu. „Við höfum ekki
áhyggjur, enda er þetta úrvalssælkerabjór sem
við höfum lagt í allan okkar metnað,“ segir
Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts.
„Við byrjum í þessum tveimur búðum en gerum
ráð fyrir að færa okkur svo út í aðrar verslanir.“
Sunnlenski bjórinn
ekki til á Suðurlandi
Samkvæmt vinnureglum ÁTVR þarf sunnlenski bjórinn fyrst að sanna sig í Reykjavík
➤ Nýjar tegundir hjá ÁTVR þurfa til að byrjameð að fara í tveggja mánaða reynslusölu
í Kringlunni og Heiðrúnu.
➤ Í lok mánaðarins kemur Skjálfti frá Flóa-hreppi á markað, en í sumar er von á Volc-
ano frá Vestmannaeyjum.
Í REYNSLUSÖLU Í REYKJAVÍK