24 stundir - 08.02.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
í dag
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
Óperusöngkonan
Sigrún Pálmadóttir.
UMRÆÐAN»
ÍSLENSKUR AÐALL»
Rússlandsforseti
er þekktur fyrir að
vera júdókappi og
vakti athygli í fyrra er
hann lét mynda sig
fáklæddan á veið-
um. Ný rússnesk
kvikmynd nefnist
Koss - í trúnaði. Hún
er sögð fjalla um
ástmanninn
Vladimír Pútín og
kemur út á dvd-diski
á Valentínusardag.
»Meira í Morgunblaðinu
Ástalíf Pútíns á hvíta tjaldið?
Föstudagur 8. febrúar 2008
Hljómsveitin Celest-
ine gefur út sína
fyrstu plötu og leik-
ur þyngsta rokk á
Íslandi.
TÓNLIST»
Himneskt
dauðarokk
Fasteignagjöldin hækka og hækka
Upplausn í Evrópumálum hjá ríkisstjórninni
Mogginn leggur línur
Atvinnuréttindi: fyrir suma eða alla?
» Meira í Morgunblaðinu
Það er meira
í Mogganum
Þær svífa kappsfullar um svellið og um helgina
ætla þær að keppa á Norðurlandamótinu í list-
hlaupi á skautum. Listhlaup á skautum er ung
íþrótt á Íslandi en ört vaxandi og íslensku kepp-
endurnir hlakka til að spreyta sig á heimavelli á al-
þjóðlegu stórmóti.
» Meira í Morgunblaðinu
Svellkaldar á stórmótið
reykjavíkreykjavík
Saab 9-3 Twin Turbo kom skemmtilega á óvart í
reynsluakstri.
Sá dýrasti og sá ódýrasti; þyngsti bíllinn og sá
mest seldi - metbílar af öllum toga.
» Meira í Morgunblaðinu
Bílar
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ef Nintendo hefur selt yfir 10
milljónir leikja í gegnum Virtual
Console þá hefur fyrirtækið hagnast
um a.m.k. 50 milljónir dollara.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Forstjóri leikjarisans Nintendo, Sa-
toru Iwata, ljóstraði því upp í ný-
legu viðtali að í desember síðast-
liðnum hefði Nintendo náð því
marki að hafa selt yfir 10 milljónir
leikja í gegnum Virtual Console
Wii-leikjatölvurnar. Nintendo hef-
ur hingað til lítið verið að básúna
sölutölur fyrir Virtual Console en
miðað við þessar sölutölur er þessi
þjónusta að gera góða hluti hjá
viðskiptavinum Nintendo.
Ódýrir gamlir leikir
Virtual Console, eða sýndar-
leikjatölvan eins og hægt er að
kalla það á íslensku, býður Nin-
tendo Wii-eigendum upp á þann
möguleika að kaupa gamla klass-
íska tölvuleiki, sem flestir hafa ver-
ið gefnir út af Nintendo, í gegnum
netið og spila þá svo á Wii-
tölvunni sinni. Verðlagningu á
leikjunum í Virtual Console er
stillt í hóf þar sem ódýrustu leik-
irnir kosta í kringum fimm doll-
ara.
Græða á gömlu efni
Ef Nintendo hefur selt yfir 10
milljónir leikja í gegnum Virtual
Console þá hefur fyrirtækið hagn-
ast um a.m.k. 50 milljónir dollara
en sú tala er tvímælalaust mun
hærri þar sem margir vinsælir
gamlir leikir kosta meira en fimm
dollara.
Iwata sagði í tilefni af þessum
merka áfanga að velgengni Virtual
Console sýndi fram á að stafræn
dreifing á efni væri gróðavænleg
en tók þó fram að hann teldi hefð-
bundna sölu verða mikilvæga hjá
Nintendo næstu þrjú til fimm árin.
Sótt í klassíkina
Aukin aðsókn í gamla, klassíska
tölvuleiki hefur verið greinileg
enda merki um að leikjaspilarar
séu ekki bara börn og unglingar.
Uppkomnir einstaklingar eru
nú orðnir stór partur af tölvu-
leikjaheiminum. Því er ekki skrýtið
að fólk vilji rifja upp gömul kynni
við Mario, Zelda og fleiri góða.
Klassíkin selst vel The
Legend of Zelda: Ocarina
of Time er einn mest seldi
leikurinn á Virtual Console.
Virtual Console hjá Nintendo Wii slær í gegn
Gamlir leikir
seljast vel á Wii
Stafræn sala á gömlum
tölvuleikjum blómstrar
sem aldrei fyrr. Nintendo
hefur nú selt yfir 10 millj-
ónir eintaka af gömlum
leikjum í gegnum Virtual
Console Wii-tölvurnar.
➤ Á meðal klassískra leikja áVirtual Console eru gamlir
Mario-leikir og Zelda: Ocarina
of Time.
➤ Suma leikina er hægt að spilameð Wii-stýripinnanum en
aðra bara með Gamecube-
eða Classic-stýripinnum.
VIRTUAL CONSOLE
Tölvuleikir viggo@24stundir.is
Við fyrstu sýn virðist leikurinn
Zack & Wiki: Quest for Barbaros
Treasure vera lítið meira en barna-
leikur þar sem bjartir litir og krútt-
legar persónur eru alls ráðandi. En
um leið og spilun leiksins hefst
verður öllum ljóst að hér er á ferð-
inni leikur sem er ekki einungis
stórgóður heldur einnig mjög
krefjandi.
Zack & Wiki segir frá sjóræn-
ingjasnáðanum Zack og félaga
hans, gyllta flugapanum Wiki. Í
einni af sínum fjölmörgu fjársjóðs-
leitum finna félagarnir hauskúpu
fornfrægs sjóræningja og hann
heitir þeim félögum að ef þeir geti
fundið alla líkamsparta hans þá
muni hann verðlauna þeim það
ríkulega.
Það mun þó verða þeirra missir
því undir allri þessari litaælu
leynist stórgóður leikur sem býður
upp á eina bestu notkun á Wii-
fjarstýringunni sem þekkist og þar
að auki krefjandi heilabrot.
Helsti kostur Zack & Wiki er
hversu vel leikurinn nýtir sér kosti
stýripinna Wii tölvunnar. Mis-
munandi hlutir krefjast þess að
leikmaðurinn haldi á stýripinn-
anum á mismunandi vegu og oft
þarf maður að snúa stýripinnanum
á alla vegu til að finna rétta notkun
á hlutnum.
Leikurinn krefst þess að gráu
sellurnar séu vel virkar og eru
sumar þrautir leiksins ansi erfiðar,
en þó er hjálpin aldrei langt undan
í formi vísbendinga frá tusku-
dúkku með kristalkúlu.
Helsti gallinn við Zack & Wiki
er krúttlegt útlit hans. Leikurinn er
eins og fyrr segir ótrúlega krútt-
legur, líkt og regnbogi hafi ælt yfir
skjáinn, og því munu harðkjarna-
tölvuleikjaspilarar líklega afskrifa
hann.
Krúttlegri en hvolpur í tútú
Grafík: 87% Ending: 89%
Spilun: 92% Hljóð: 73%
Zack & Wiki (Wii)
NIÐURSTAÐA: 85%
Í desember síðastliðnum til-
kynnti leikjaframleiðandinn
Electronics Arts að stórleikstjórinn
Steven Spielberg væri kominn í
samstarf með fyrirtækinu í þeim
tilgangi að framleiða tölvuleiki fyr-
ir Nintendo Wii-leikjatölvuna.
Nú hefur hulunni verið svipt af
fyrsta leiknum en hann hefur feng-
ið nafnið Boom Blox og er vænt-
anlegur á Bandaríkjamarkað í maí.
Boom Blox er fjölskylduvænn
þrautaleikur þar sem leikmenn
reyna að leysa þrautir með því að
hreyfa til kubba eða sprengja þá í
loft upp.
Fullgerður mun leikurinn skarta
30 furðulegum persónum, raun-
verulegu þyngdarafli á hlutum í
leikjaheiminum og rúmlega 300
borðum þar sem leikmenn geta
reynt á gráu sellurnar. Þar að auki
munu leikmenn geta hannað sín
eigin borð og svo deilt þeim með
vinum sínum í gegnum netið.
Spielberg sagði við afhjúpun
leiksins að hann hefði fyrst og
fremst hugsað um börnin sín við
hönnun leiksins. „Ég spila sjálfur
mikið af tölvuleikjum og mig lang-
aði að búa til leik sem ég gæti spil-
að með krökkunum mínum.“ vij
Spielberg-leikur afhjúpaður