24 stundir - 08.02.2008, Blaðsíða 39
24stundir FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 39
12 ára skólastrákur í Michigan
lenti illa í því á dögunum þegar
PSP-leikjatölvan hans sprakk í
buxnavasa hans í miðri kennslu-
stund. Stráksi var fluttur á spítala
með annars stigs brunasár á fót-
leggnum en hann var fljótur að
jafna sig og var mættur aftur í
skólann samdægurs. Sony hefur
enn sem komið er ekki tjáð sig
um atvikið en það er hámark
kaldhæðninnar að leikurinn sem
var í tölvunni var Burnout. vij
Sjóðandi heit
PSP-leikjatölva
Yfirvöld í Þýskalandi hafa nú
krafist þess að farsímafyrirtækið
Nokia endurgreiði rúmlega 41
milljónar evra fjárstyrk sem fyr-
irtækið fékk á árunum 1998-1999
vegna verksmiðju farsímarisans í
Bochum. Nokia hefur nú lokað
þeirri verksmiðju og byggt aðra
nýja í Rúmeníu og græðir þar á tá
og fingri. vij
Vilja peningana
aftur frá Nokia
Í nýrri skýrslu Electronic Soft-
ware Ratings Board, sem sér um
að aldursflokka tölvuleiki fyrir
Bandaríkjamarkað, kemur fram
að grófum ofbeldisleikjum sem
eru ætlaðir fyrir 17 ára og eldri
hefur fækkað verulega. Af þeim
1,563 leikjum sem ESRB flokkaði
á árinu 2007 töldust einungis sex
prósent þeirra grófir ofbeldis-
leikir og fengu M-stimpil. vij
Leikjaofbeldið
er á undanhaldi
Fyrr í vikunni fór að bera á sögu-
sögnum þess efnis að leikurinn
Duke Nukem Forever, sem hefur
verið í framleiðslu frá árinu 1997,
væri loks tilbúinn og yrði gefinn
út fyrir árslok. Nú hefur George
Broussard, forstjóri 3D Realms
sem er að gera leikinn, sagt að
þessar sögur séu bara bull og vit-
leysa og leikurinn verði gefinn út
þegar hann er tilbúinn. vij
Vitleysan heldur
áfram hjá Duke
Samkvæmt nýrri skýrslu fyrirtækisins Sym-
antec þá hefur Evrópa tekið við krúnu Ameríku
sem sú heimsálfa sem sendir frá sér hvað mest af
ruslpósti, eða spam eins og það kallast ytra.
Symantec, sem er hugbúnaðar- og hönnunar-
fyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í hönn-
un vírus- og ruslpóstsvarna, sendir reglulega frá
sér skýrslu þar sem finna má alls konar upplýs-
ingar um ruslpóstinn.
Evrópubúar hafa síðastliðna þrjá mánuði ver-
ið að sækja í sig veðrið hvað ruslpóstssendingar
varðar. Í nóvember á síðasta ári áttu 46 prósent
alls ruslpósts rætur sínar að rekja til N-Ameríku
en um 31 prósent kom frá Evrópu. Nú er staðan
hins vegar orðin sú að 44 prósent alls ruslpósts
koma frá Evrópu en Ameríka er með rétt rúm
35 prósent.
Ruslpósturinn fer vaxandi
Ruslpóstssendingar um heiminn allan hafa
aukist gríðarlega og segir Symantec að 78,5 pró-
sent alls tölvupósts sem sendur er í heiminum
séu ruslpóstur. Allar heimsálfur hafa aukið þess-
ar óvelkomnu póstsendingar en Evrópa er þar
alveg í sérflokki.
Þessi miklu pólskipti í ruslpóstssendingum
vilja forsvarsmenn Symantec meina að sé hægt
að rekja til aukinnar útbreiðslu háhraðanetteng-
inga í Evrópu. „Þessi gríðarlega aukning á rusl-
pósti í Evrópu er hægt að setja í samhengi við
lista þar sem löndum er raðað eftir fjölda há-
hraðanettenginga á hverja 100 íbúa en þar eru
átta Evrópulönd í efstu tíu sætunum,“ stóð enn-
fremur í skýrslu Symantec. viggo@24stundir.is
Óhugnanleg þróun í netsamskiptum
Evrópubúar senda mest af ruslpósti
Mynd/Getty Images
Yfirflæðandi rusl Sendingar á rusltölvupósti
aukast umtalsvert með Evrópu í fararbroddi.