24 stundir - 08.02.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Það er vetur í höfði
mínu en eilíft vor í
hjarta mínu.
Victor Hugo
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Eldunartæki, kælitæki,
uppþvottavél og ljós
í eldhúsið þitt.
Sannarlega
góð hugmynd!
Á þessum degi árið 1958 varð
Bobby Fischer yngsti alþjóðlegi
stórmeistari í skáksögunni. Hann
vantaði þá tvo mánuði í að vera
fimmtán ára gamall. Skömmu síð-
ar hætti hinn ungi skáksnillingur í
skóla til að geta helgað sig skáklist-
inni og varð þekktur fyrir djarfan
sóknarstíl. Árið 1972 varð hann
heimsmeistari í skák eftir að hafa
sigrað Boris Spassky í einvígi ald-
arinnar í Reykjavík. Fyrir vikið
varð hann þjóðhetja í Bandaríkj-
unum en það breyttist þegar hann
fór til Júgóslavíu árið 1992 til að
tefla við Boris Spassky og virti
þannig að vettugi alþjóðlegar refsi-
aðgerðir gegn Júgóslavíu. Banda-
ríkjastjórn gaf út handtökuskipun
á hendur honum. Fischer settist að
í Japan og á Íslandi. Hann lést hér
á landi í síðasta mánuði.
Margar bækur hafa verið skrif-
aðar um Fischer. Ein sú skemmti-
legasta er Bobby Fischer Goes to
War eftir David Edmonds og John
Eidinow. Þar er saga heimsmeist-
araeinvígisins í Reykjavík rakin á
einstaklega lifandi hátt. Til stendur
að gera kvikmynd eftir bókinni.
MENNINGARMOLINN
Fischer slær met
„Það voru haldnir svipaðir tón-
leikar fyrir tíu árum þegar 30 ár
voru liðin frá því platan Sgt. Pep-
per’s Lonely Hearts Club Band
kom út. Síðan stóð til að halda tón-
leika í fyrra á fjörutíu ára afmæli
plötunnar en það gekk illa að koma
öllu heim og saman. Núna
ákváðum við svo að láta verða af
þessu þótt það séu fjörutíu og eitt
ár en ekki fjörutíu frá útkomu plöt-
unnar,“ segir Jón Ólafsson sem er
tónlistarstjóri á stórtónleikum sem
haldnir verða í Laugardalshöll 22.
mars. Þar verður hljómplatan Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club Band
flutt í heild sinni af Rokksveit Jóns
Ólafssonar og 40 hljóðfæraleikur-
um úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Um sönginn sjá nokkrir af þekkt-
ustu söngvurum landsins: Björgvin
Halldórsson, Stefán Hilmarsson,
Daníel Ágúst Haraldsson, Eyjólfur
Kristjánsson, Sigurjón Brink og
KK. Miðasala á tónleikana er hafin
á midi.is og á afgreiðslustöðum
midi.is
Stórmerkileg plata
„Mér finnst Sgt. Pepper’s ekki
merkilegri en aðrar Bítlaplötur,
mér finnst hún hins vegar jafn stór-
merkileg og þær. Revolver og
White Album höfða ekki síður til
mín. Tónlistin á þessari plötu hent-
ar hins vegar vel til flutnings á stór-
tónleikum með rokkhljómsveit og
Sinfóníuhljómsveit, en það myndi
sennilega ekki virka jafnvel með
aðrar Bítlaplötur,“ segir Jón. Um
þessa frægu plötu, sem er að
margra dómi ein merkasta og
áhrifamesta hljómplata allra tíma
segir Jón: „Sgt. Pepper’s platan
virkar eins og samfellt verk en það
má deila um það hvort svo sé. Lög-
in eru mjög ólík og ef svona plata
kæmi út í dag mundu sumir segja
að hún væri sundurleit því Bítlarn-
ir leyfa sér að gera allt sem þeim
dettur í hug, sem er auðvitað frá-
bært. Þeir flytja til dæmis gamal-
dags danstónlist í When I’m sixty
four og fara svo yfir í níðþungt lag
eftir George Harrison, Within you
without you, sem er undir sterkum
indverskum áhrifum. Ég held að
fáir hefðu komist upp með þetta
aðrir en þeir Bítlar. Uppáhaldslag
mitt á plötunni er A Day in the
Life. Það er fallegt lag sem Lennon
syngur sérstaklega vel. Lokakaflinn
er óvenjulegur og þar sprengir Sin-
fóníuhljómsveitin allt utan af sér
sem er mjög áhrifaríkt.“
Betri en fyrir tíu árum
Jón segist fullviss um að tónleik-
arnir muni takast vel. „Ef eitthvað
er þá verða þessir tónleikar enn
betri en þeir sem haldnir voru fyrir
tíu árum. Sgt. Pepper’s tekur ekki
nema fjörutíu mínútur í flutningi
sem dugar ekki í tónleika þannig
að við munum flytja fleiri Bítlalög,
jafnvel lög sem fólk á ekki von á að
heyra. Rokkhljómsveitin verður
alltaf í forgrunni og mun keyra
áfram kraftinn en Sinfóníuhljóm-
sveitin bætir einhverju við fyrir
skilningarvitin sem menn fá ekki
með því að hlusta á plöturnar. Þar
fer útsetjarinn á kostum og von-
andi við hin líka.“
Tónlistarveisla í Laugardalshöll
Í fótspor Bítlanna
Í næsta mánuði verður
hljómplatan Sgt. Pep-
per’s Lonely Hearts Club
Band flutt í heild sinni í
Laugardalshöll af Rokk-
sveit Jóns Ólafssonar og
40 hljóðfæraleikurum úr
Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Um sönginn sjá
nokkrir af þekktustu
söngvurum landsins.
Jón Ólafsson „Ef eitt-
hvað er þá verða þess-
ir tónleikar enn betri en
þeir sem haldnir voru
fyrir tíu árum.“
➤ Sgt. Pepper’s Lonely HeartsClub Band er áttunda plata
Bítlanna.
➤ Platan kom út 1. júní 1967 íBretlandi og 2. júní í Banda-
ríkjunum.
➤ Tímaritið Rolling Stone valdiplötuna nýlega bestu hljóm-
plötu allra tíma.
PLATAN
Árvakur/Golli
Hinn heimsþekkti fiðluleikari
Shlomo Mintz leikur allar 24
Caprísur Niccolo Paganinis á
tónleikum í Grafarvogskirkju
þann 9. febrúar 2008 í tilefni
fimmtugsafmælis síns og
verður það í fyrsta sinn sem
þær hljóma í heild sinni á tón-
leikum á Íslandi. Tónleikarnir
hefjast kl. 17.00 og eru miðar
seldir á midi.is og við inn-
ganginn. Miðaverð er kr.
4.000, en 2.500 fyrir tónlist-
arnema. Afsláttarmiðar verða
seldir við innganginn. Ókeyp-
is er fyrir börn yngri en 12
ára.
Shlomo Mintz er einn þekkt-
asti fiðluleikari heims í dag.
Hann stundaði nám m.a. hjá
Isaac Stern og hóf einleik-
araferil sinn 11 ára gamall
með Fílharmóníusveitinni í
Ísrael.
Í tilefni fimmtugsafmælis síns
síðastliðið haust ákvað hann
að fara í tónleikaferð um
heiminn með Caprísur Pag-
aninis í farteskinu. Eru þessir
tónleikar hans hér á Íslandi
liður í þeirri för.
Mintz í Graf-
arvogskirkju
AFMÆLI Í DAG
Lana Turner leikkona, 1920
Edith Evans leikkona, 1888
Kate Chopin rithöfundur,
1850