24 stundir - 08.02.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
Hönnuðirnir McCollough og
Hernandez kynntu hausttískuna
2008 fyrir tískuhús Proenzu
Schouler á sýningu 4. febrúar síð-
astliðinn. Sýningin vakti mikla
lukku og þá sérstaklega hugvits-
samleg og litfögur útkoma hönn-
uðanna sem fengu hugmyndir sín-
ar að teikningum á bílferðalagi þar
sem þeir drápu tímann við að
brjóta saman pappírsskutlur.
Súpervíðar glamúrbuxur
Á sýningunni mátti líta dásam-
legar og þægilegar súpervíðar bux-
ur er minntu á Katherine Hepburn
og eiturharðar kvenhetjur kvik-
mynda fjórða áratugarins. Snið á
jökkum og kokkteilkjólum minntu
á pappírsskutlur, brotin sveifluðust
fram og aftur en efnin þó mjúk
silkiefni.
Litir vöktu sérstaka hrifningu
Samsetning litanna er hrífandi
og jafnvel erfitt að nefna litina er
félagarnir notuðu réttum nöfnum.
Sokkabuxur í bláum, grænum,
fjólurauðum og dempuðum gul-
um litum og rúskinnsskór í öllum
mögulegum skærum litum. Jakkar
voru í hlutlausum litum með
glamúryfirbragði. Djúpgrænn,
dökkur litur vakti mikla athygli,
skærir dökkbláir litir, mjúkir gráir,
nóg af glitrandi efni í buxum og
fjaðurskrauti til að brjóta upp
móderníska hönnunina.
Hér á landi bíðum við enn eftir
víðum glamúrbuxum þótt helst
megi líta í Nakta apann eftir víðum
buxum. Sokkabuxur í öllum litum
fást í Top Shop og Sock Shop og ef
til vill má finna notaða herrasmók-
ingjakka í Spútnik.
Framúrstefnulegar film noir-gellur í lit
Pappírsskutlur úr silki
Skærir rúskinnsskór Dökkgræni
liturinn vakti mikla lukku og kemur
vel út með skærum skónum.
Eiturharðar í lit Stíll er minnir
á Katherine Hepburn ef hún
væri söguhetja í 1001 nótt.
Grænir rúskinns-
skór Fást í Kron,
skóbúð.
Víðar buxur
úr H&M
Þessar eru
glansandi,
metalgráar.
Það getur verið erfitt að finna
hentugan klæðnað í þeim vetrar-
hörkum og snjóþunga sem hafa
verið allsráðandi undanfarna daga,
en til þess að verða ekki kuldanum
að bráð er best að vera vel klæddur
og almennilega skóaður án þess að
það sé á kostnað tískunnar.
Góð úlpa
Hlý og góð úlpa er skyldueign í
svona veðri. Hermannagrænar eða
svartar úlpur, síðar og rykktar í
mittið, geta verið mjög smart og
halda góðum hita á líkamanum.
Þykk peysa
Stór og góð prjónapeysa er ekki
aðeins nauðsynleg á Íslandi heldur
er einnig mög flott að vera í stórri
peysu við þröngar gallabuxur eða
þykkar leggings.
Góðir skór
Það er hálfvonlaust að klæðast
háum hælum í miklum snjó og því
er um að gera að verða sér úti um
hlýja og góða skó, helst há flat-
botna stígvél svo að snjór berist
ekki upp undir buxnaskálmarnar.
Leðurhanskar
Loðfóðraðir leðurhanskar eru ekki
aðeins smart heldur einnig hlýir.
Það þýðir ekkert að vera með kalda
putta úti í vetrinum á meðan skaf-
ið er af bílnum.
Stór trefill
Treflar eru nauðsynlegir á veturna
og stóra, breiða trefla er gott að
eiga í klassískum litum eins og
svörtum, hvítum og brúnum. Þeg-
ar kuldinn sækir að er hægt að
vefja þeim um sig og á sumrin er
hægt að nota þá sem sjöl.
Góð taska
Það þurfa allar konur að eiga góða
tösku sem hægt er að koma öllu
sem nauðsynlegt er að nota dags
daglega fyrir í. Það þýðir ekkert að
vera með fullt fangið á meðan ark-
að er í gegnum snjóinn.
Nauðsynlegt að eiga góðar flíkur
Að klæðast vel í vetrarkuldanum
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
GEL OG
ETHANOL
ELDSTÆÐI
BYLTING Í SVEFNLAUSNUM
SPRENGIÚTSALA
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
20-50% AFSLÁTTUR
VAXTALAUS LÁN Í 6 MÁNUÐI
Lokadagur útsölunnar er 10. febrúar