24 stundir - 08.02.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 16
Amsterdam 8
Ankara 7
Barcelona 16
Berlín 7
Chicago -4
Dublin 14
Frankfurt 9
Glasgow 14
Halifax -1
Hamborg 7
Helsinki 1
Kaupmannahöfn 7
London 11
Madrid 17
Mílanó 14
Montreal -10
München 4
New York 5
Nuuk -23
Orlando 20
Osló 3
Palma 23
París 10
Prag 7
Stokkhólmur 2
Þórshöfn 6
Suðaustan 20-28 m/s síðdegis og í kvöld,
fyrst suðvestantil. Talsverð rigning eða slydda
á sunnan- og vestanverðu landinu, annars úr-
komulítið.
Hlýnandi, hiti 2 til 7 stig síðdegis.
VEÐRIÐ Í DAG
2
1
5 4
4
Rigning eða slydda
Hvöss suðvestanátt og él, en þurrt að mestu
norðaustantil á landinu.
Hiti nálægt frostmarki.
Hægari vindur og úrkomuminna á sunnudag.
VEÐRIÐ Á MORGUN
2
1
5 4
4
Hvöss suðvestanátt
„Ég held það hafi allt verið lokað
sem getur verið lokað,“ segir starfs-
maður hjá Vegagerðinni þegar 24
stundir höfðu samband í gær til að
grennslast fyrir um færð á vegum.
Hann bjóst þó við því að flestir
vegir yrðu opnir fram eftir degi í
dag. „En svo á allt að verða snarvit-
laust aftur seinnipartinn,“ segir
hann.
Sérleyfisbílar Keflavíkur hættu
akstri strætisvagna fyrir klukkan 18
í gærkvöldi vegna ófærðar. Var
þeim tilmælum beint til foreldra að
huga að því hvort börnin þeirra
væru að bíða eftir strætisvögnum.
Þrátt fyrir ófærð á Suðurnesjum
gekk þó allt slysalaust í umferðinni,
að sögn lögreglunnar. Allar björg-
unarsveitir voru að störfum í gær
en fjölmargir ökumenn festu bíla
sína út og suður. Ekki varð úr því
að Reykjanesbrautinni yrði lokað
eins og til greina kom vegna um-
ferðartafa.
Að sögn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu gekk umferð um
svæðið stóráfallalaust. Hún sagði
þæfing í Reykjavík en enga stóró-
færð.
Vegagerðin vill minna vegfar-
endur á að vegna framkvæmda við
tvöföldun Reykjanesbrautar er
nauðsynlegt að sýna þar aðgát. Sér-
staklega biður hún fólk að fara var-
lega við framhjáhlaup við Voga,
Grindavíkurveg og Njarðvík. Veg-
farendur eru beðnir að virða
hraðatakmarkanir.
aak
Ófært um allt land í gær en þæfingsfærð í Reykjavík
Allt lokað sem gat verið lokað
Ég er á kafi Þessi þarf að kafa
snjóinn til að komast leiðar sinnar.
Búast má við að útflutningsverð-
mæti áls aukist úr rúmum 80 millj-
örðum króna í um 135 á þessu ári
og fari í um 140 milljarða á næsta
ári. Samorka segir frá og vísar til
greiningardeildar Kaupþings. Þar
er spáð að útflutningsverðmæti áls
fari í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar
fram úr útflutningi á sjávarafurð-
um. Niðurskurður aflaheimilda í
þorski um 33 prósent dragi úr vægi
útflutnings á fiski næstu árin.
Framkvæmdir í Helguvík nái há-
marki á næsta ári. Að því gefnu að
þær hefjist aukist fjárfestingar en á
þessu ári verði aftur á móti sam-
dráttur í fjárfestingu. Loks vísar
Samorka til spár um að kröfur um
álver á Bakka verði háværar undir
lok núverandi hagsveiflu. beva
Kaupþing spáir fjárfestingu í fleiri álverum
Álið fer fram úr
fiski að verðmæti
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Lokaskýrsla stýrihóps borgarráðs
um málefni Reykjavík Energy Invest
(REI) og Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) var kynnt í borgarráði í gær.
Í álitsgerð Andra Árnasonar
hæstaréttarlögmanns sem fylgir
skýrslunni kemur skýrt fram að Vil-
hjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri
hafi ekki haft umboð til að taka þær
ákvarðanir sem hann tók á eigenda-
fundi OR þann 3. október. Í áliti
Andra kemur einnig fram að hann
telji að væntingar Geysis Green
Energy um bætur frá OR vegna þess
að hætt var við samruna REI og
GGE séu ekki réttmætar.
Í skýrslunni sjálfri segir að far-
sælla hefði verið að borgarstjóri
hefði sótt sér umboð borgarráðs, og
þurfi að „skerpa á þeim skilningi að
borgarstjóri Reykjavíkur þurfi
framvegis skýrt umboð meirihluta
borgarstjórnar við meiriháttar
ákvarðanir.“
Ákvarðanir án umræðu
Stýrihópurinn gagnrýnir að stór-
ar ákvarðanir hafi verið teknar án
umræðu kjörinna fulltrúa og telur
að leita hefði átt samþykkis í sveit-
arstjórnum þeirra sveitarfélaga sem
eru eigendur OR. Þá er gerð athuga-
semd við að Hjörleifur Kvaran, þá
starfandi forstjóri OR, hafi undirrit-
að hluthafasamkomulag í REI við
innkomu Bjarna Ármannssonar
sem nýs hluthafa án þess að fyrir
lægi samþykki stjórnar OR um um-
boð hans.
Óeðlileg afskipti FL Group
Í skýrslunni kemur fram að FL
Group hafði bein áhrif á gerð á
þjónustusamningsins á milli OR og
REI. Þetta telur stýrihópurinn
óeðlilegt enda hafi FL Group ekki
haft neina formlega stöðu gagnvart
fyrirtækjunum og hafi auk þess haft
mikla fjárhagslega hagsmuni af
samningnum.
Stýrihópurinn telur að REI eigi
áfram að sinna þróunar- og fjárfest-
ingarverkefnum erlendis og skuli
vera alfarið í eigu OR. Þá er lögð á
það áhersla að fyrirtæki í opinberri
eigu eigi að lúta reglum um opin-
bera stjórnsýslu.
Borgarstjóri þarf
skýrara umboð
Borgarstjóri fór út fyrir umboð að mati lögmanns Stýrihópur vill
að REI starfi áfram við þróunar- og fjárfestingarverkefni erlendis
Með umboð? Vilhjálmur
Vilhjálmsson í ræðustól
borgarstjórnar.
➤ Stýrihópurinn kynnti tillögurog niðurstöður fyrir borg-
arráði þann 1. nóvember.
➤ Áformum um samruna REI ogGGE var hafnað.
➤ Þjónustusamningi á milli ORog REI var einnig hafnað.
➤ Lagt var til að gerð yrðistjórnsýsluúttekt á OR.
TILLÖGUR 1. NÓVEMBER
Árvakur/Brynjar Gauti
STUTT
● Á flugi Sumarbústaður á
Borgarfirði eystri tókst á loft í
miklu hvassviðri um miðjan
daginn og fauk fram í fjöru
þar sem hann er orðinn að
spýtnabraki einu saman. Bú-
staðurinn stóð inni í þorpinu
og frammi á bakka nærri sjó.
Salernið er eitt salerni. mbl.is
● Gallað hús Byggingarfyr-
irtækið Formaco var dæmt í
héraðsdómi til að greiða
kaupendum húss, sem það
byggði, á þrettándu milljón
króna í bætur vegna marg-
víslegra galla. Byggingafyr-
irtækið ber ábyrgð á frá-
gangi.
mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
„Ég mjög ánægð að þessu sé lokið
og finnst það í rauninni alveg
stórkostlegt að
okkur skuli hafa
tekist að ljúka
þessu verkefni á
þennan hátt.
Þetta hefur ekki
verið einfalt
verkefni að halda
utan um þennan
hóp með allar
sínar ólíku skoðanir og sjón-
armið og að komast að sameig-
inlegri niðurstöðu,“ segir Svandís
Svavarsdóttir formaður stýrihóps
borgarráðs um REI-málið. „Það
er líka frábært að Reykjavík-
urborg skuli ryðja braut fyrir
vinnubrögð af þessu tagi vegna
þess að það hefur ekki verið gert
áður að setja alvarleg ágreinings-
mál í svona farveg.“
Hún segir að öllum steinum hafi
verið velt við og að engu hafi ver-
ið haldið til hlés. „Það eina er að
menn taka misdjúpt í árinni með
ályktanir,“ segir Svandís.
Aðspurð segir hún að það hafi
aldrei verið hlutverk stýrihópsins
að draga menn til ábyrgðar. „Það
stóð aldrei til, það eru verkefni
þeirra hópa sem hafa með þau
mál að gera, stjórnar Orkuveit-
unnar og borgarráðs,“ segir
Svandís. Hún segir að á þeim
mörgu lögfræðiálitum sem fram
eru komin sé ljóst að mjög mikil
áhöld eru um það hvort borg-
arstjóri hafi haft umboð til að
taka ákvarðanir í REI-málinu.
„Mér finnst að umboð borg-
arstjóra eigi að vera hafið yfir
vafa og við eigum ekki að þurfa
að kalla eftir mörgum álitum til
að vita hvað borgarstjóri má og
hvað ekki.“
Svandís Svavarsdóttir
Umboð verði
hafið yfir vafa
„Það var samstaða um niðurstöð-
una og það vekur mjög mikla at-
hygli vegna þess
hvernig þetta mál
er vaxið,“ segir
Dagur B. Egg-
ertsson, fyrrver-
andi borg-
arstjóri. „Það eru
allir sammála um
það að þarna
voru óverjandi
vinnubrögð. Það eru allir sam-
mála um að borgarstjóri hafi far-
ið langt út fyrir umboð sitt – þó
að orðavali sé stillt í hóf þá held
ég að það sé almennt góð regla
þegar verið er að fjalla um mik-
ilvæga hluti,“ bætir hann við.
Dagur segir það ekki vera sitt
svara því hvort Vilhjálmi sé stætt
að verða aftur borgarstjóri. „Það
er málefni Sjáflstæðisflokksins og
þessa nýja meirihluta. Þeir verða
að eiga það við sig, sína samvisku
og borgarbúa.“
Spurður hvort hann muni styðja
það að hann verði aftur borg-
arstjóri svarar hann: „Ég hef aldr-
ei stutt hann.“
ejg
Dagur B. Eggertsson
Óverjandi
vinnubrögð
Auglýsingasíminn er 510 3744
Þeir borgarfulltrúar sem 24
stundir reyndu að ná í í gær til
þess að fá álit þeirra á nið-
urstöðum REI-skýrslunnar létu
annaðhvort ekki ná í sig eða vildu
ekki tjá sig um málið að svo
stöddu. Undantekningin á þessu
eru þau Dagur B. Eggertsson og
Svandís Svavarsdóttir.
ejg
Tjá sig ekki að
svo stöddu