24 stundir - 08.02.2008, Qupperneq 6
Stefnt er að því að yfirfærslan á
málefnum fatlaðra frá ríki til sveit-
arfélaga geti átt sér stað eigi síðar en
í ársbyrjun 2011 eftir því sem fram
kom í svari Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, félags- og tryggingamálaráð-
herra, við fyrirspurn Rósu Guð-
bjartsdóttur, Sjálfstæðisflokki, á
Alþingi á miðvikudag.
Jóhanna sagði ráð fyrir því gert
að endanlegt kostnaðarmat vegna
flutnings verkefna liggi fyrir eigi
síðar en 1. desember 2008 en í kjöl-
farið verður gengið frá formlegu
samkomulagi ríkis og sveitarfélaga
um verkefnaflutning.
Hún lagði ríka áherslu á að þau
nýju viðhorf sem hafa verið að ryðja
sér til rúms í búsetumálum fatlaðra
endurspeglist í stefnumótun og
starfsemi málaflokksins. Hún sagði
afar mikilvægt að endurskoða þessi
mál og sagðist hlynnt því að hugað
væri sérstaklega að fjölbreytni í
þjónustu og rekstrarfyrirkomulagi í
þjónustu við fólk sem býr við fötl-
un. Þetta þarf þó að taka mið af því
fjármagni sem til ráðstöfunar er að
hennar mati. fifa@24stundir.is
Yfirfærsla málefna fatlaðra til umræðu á þingi
Fatlaðir til sveitarfélaga 2011
Árvakur/Ómar
Ráðherra Jóhanna segist hlynnt fjölbreytni í þjónustu við fatlaða
6 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
Búrfell, góður matur á borð
25%
afsláttur
Beikon
bragðast
alltaf vel
Gríptu tækifærið og
bragðbættu tilveruna með
ljúffengu beikoni.
Beikon gerir flesta rétti
aðeins betri!
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði á Alþingi
í gær að ekki væri hægt að líta svo á að sjónarmið
menntamálaráðherra væru sjónarmið ríkisstjórnar-
innar varðandi kjarasamninga sem nú standa fyrir
dyrum. Það væri hlutverk fjármálaráðherra að gera
samninga við ríkisstarfsmenn.
Árni var að svara fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfús-
syni, þingmanni VG, sem vísaði í ummæli Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra á fundi
um síðustu helgi. Þar sagði Þorgerður Katrín, að kenn-
arar hefðu dregist aftur úr í launum og ef gott fólk ætti
að fást í skólana þyrfti að hækka laun þar. Mikilvægt
væri að laun kennara hækkuðu.
Vildi Steingrímur vita hvort ekki mætti treysta því
að ríkisstjórnin væri að undirbúa umtalsverðar kjara-
bætur fyrir kennara. Árni sagði að engin leið væri fyrir
fjármálaráðherra að segja úr ræðustóli Alþingis hvern-
ig kjarasamningar ættu að vera.
„Hvað sem líður góðum hug menntamálaráðherra
verðum við að gæta að því hvernig við stöndum að
okkar samningum og hvernig þeir snúa að öðrum,
sem eru að semja. mbl.is
Menntamálaráðherra vill hækka laun kennara
Ekki sjónarmið ríkisstjórnar
Ósammála Ráðherrar eru ekki á sama máli um laun kennara.
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
Skeljungi, Olís og Keri, um að þeim
beri að greiða Reykjavíkurborg
rúmar 72 milljónir króna og Strætó
bs. tæpar sex milljónir vegna ólög-
legs samráðs félaganna í útboði
borgarinnar á eldsneyti árið 1996.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi félögin til greiðslu sömu
upphæðar þann 13. desember
2006, en olíufélögin áfrýjuðu dóm-
inum til Hæstaréttar.
Játuðu samráð en ekki tjón
Aðalbótakrafa borgarinnar
hljóðaði upp á 139 milljónir króna
í upphafi.
Olíufélögin viðurkenndu að hafa
haft með sér samráð vegna útboðs-
ins en höfnuðu því að borgin hefði
orðið fyrir tjóni sökum þess.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
taldist aðalbótakrafa Reykjavíkur-
borgar ekki fullsönnuð. Hins vegar
þótti sannað að olíufélögin hefðu
hagnast um sem nemur skaðabóta-
upphæðinni með samráði sínu, en
það var varakrafa borgarinnar.
Upphæðin verður hærri
Hæstiréttur staðfesti upphæðina
í gær en lækkaði tildæmda drátt-
arvaxtakröfu borgarinnar. Vaxta-
lækkunin er umdeilanleg að mati
Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lög-
manns hjá lögfræðistofunni Lands-
lögum, sem rak málið fyrir borg-
ina.
„Borgin vissi auðvitað ekki af
samráði félaganna fyrr en skýrsla
samkeppnisyfirvalda kom út og gat
þess vegna ekki haft uppi kröfur
fyrr. Ég hygg að kostnaður félag-
anna verði engu að síður í kringum
125 milljónir króna með vöxtum
og málskostnaði,“ segir Vilhjálmur.
„Það sem ég tel skipta mestu
máli í dóminum er að það telst
sannað að tjón hafi orðið vegna
samráðsins. Ég man ekki eftir að
það hafi gerst áður vegna sam-
keppnislagabrots. Þannig tel ég
dóminn hafa almenn varnaðará-
hrif og að hann gæti komið í veg
fyrir svipuð brot í framtíðinni.“
Olíufélögin
borgi brúsann
Dómur héraðsdóms yfir olíufélögunum staðfestur í Hæstarétti
Dómurinn hefur almenn varnaðaráhrif, segir lögmaður
➤ Skeljungur hf., Olíuverslun hf.og Ker hf. greiði Reykjavík-
urborg sameiginlega
72.733.904 krónur með vöxt-
um.
➤ Þá greiði félögin Reykjavík-urborg samtals 5.000.000
krónur í málskostnað í héraði
og fyrir Hæstarétti
DÓMUR HÆSTARÉTTAR
Árvakur/Kristinn
Olía í Reykjavík Tjón
Reykjavíkurborgar vegna
samráðs olíufélaganna þótti
sannað fyrir dómi.