24 stundir - 08.02.2008, Qupperneq 25
24stundir FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 25
Kannski er það fágaður hreim-
urinn og ískalt, yfirvegað augna-
ráðið, en Tricia Helfer, eitt helsta
kyntákn Kanada, hefur tekið að
sér módelmömmuhlutverk Tyru
Banks í fyrirsætukeppni sem
byggð er á sama grunni og hin
vinsæla ANTM-keppni sem hald-
in er í Bandaríkjunum.
Kyntákn Battleship Galactica
Tricia er annars helst þekkt
fyrir hlutverk sitt sem Number
Six í hinum vinsælu sjónvarps-
þáttum, Battlestar Galactica.
Tricia ólst upp á kornbúgarði í
Donaldo í Alberta-fylki í Kanada.
Hún hóf módelstörf 16 ára göm-
ul og segir frá því að hún hafi
verið uppgötvuð þar sem hún
hafi beðið í röð fyrir framan
kvikmyndahús.
Ferill hennar varð giftu-
samlegur og hún vann Super-
model of the World-keppnina ár-
ið 1992 og fór þá á samning hjá
Ford fyrirsætuskrifstofunni.
Sat fyrir í Playboy
Tricia hætti fyrirsætustörfum
og sneri sér að leik í sjónvarpi og
kvikmyndum. Árið var 2002 og
Tricia fluttist til L.A til að öðlast-
frama. Kaldur kanadískur kyn-
þokkinn gekk vel í Hollywood og
Tricia nældi sér í hlutverk í CSI
og Jereimah, áður en hún náði
bitastæðu hlutverki sínu sem hin
kynþokkafulla Number Six í
Battleship Galactica. Hlutverk
hennar í KNTM er þó hennar
stærsta hlutverk hingað til og
frægðarsól hennar mun líklegast
halda áfram að rísa hratt. Tricia
hefur setið fyrir í Playboy-
tímaritinu og lenti á lista yfir 100
kynþokkafyllstu konur heims.
Hún hefur setið fyrir í fjöldanum
öllum af tískuherferðum, þar á
meðal fyrir Ralph Lauren, Cha-
nel, og Giorgio Armani.
Fyrirsætukeppnin KNTM slær í gegn
Tricia Helfer kyntákn Kanada
Nordic-Photo/Getty
Tricia Helfer Tískuljónið frá Kanada er ekki prúð og hefur meðal annars setið fyrir
topplaus í Playboy
Betsey Bítnikk er nýjasta við-
urnefni Betsey Johnson sem oftast
hefur verið kennd við pönk en er
hún kynnti nýjustu línu sína voru
áhrif bítnikk-tímabilsins augljós.
Fyrirsæturnar skrýddust gler-
augum eins og þessum flottu
rauðu kisugleraugum, sýning-
arsvæðið einkenndi myrk klúbb-
stemning; á borðum voru Gauloise
sígarettur, eintök af On the Road
og Chianti flöskur handa gestum.
Betsey tekur
bítnikksveiflu
Á þessum köldustu mánuðum árs-
ins er nauðsynlegt að eiga góða
hanska eða vettlinga. Best er að
eiga nokkur pör, hlýja vettlinga til
daglegra nota þegar skafa þarf af
bílnum og labba úti í köldu veðri.
En eiga síðan líka fína og sparilega
hanska til að hafa á djamminu eða
til að fara út að borða. Það þurrkar
hendur mikið að vera óvarðar út í
kulda, svo ekki gleyma hönsk-
unum eða vettlingunum.
Nauðsynlegur
fylgihlutur
Það er mjög mikilvægt að reyna að
hafa gott skipulag í fataskápnum.
Til að mynda er gott að flokka föt-
in eftir árstíðum og setja t.d. sum-
arfötin til hliðar þegar vetra tekur.
Ef sá lúxus er fyrir hendi að nóg
pláss sé fyrir öll fötin í íbúðinni
þinni, t.d. í aukaskáp eða háalofti,
er enn betra að pakka vetrar- eða
sumarfötunum lauslega niður og
geyma á sérstökum stað þar til þú
hefur not fyrir þau á nýjan leik.
Föt flokkuð eftir
árstíðum
S
M
Á
R
A
L
IN
D
O
G
K
R
IN
G
L
U
N
N
I