24 stundir - 08.02.2008, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
Villtur lífsstíll Kirsten Dunst hef-
ur leitt til þess að leikkonan þarf
að leita sér aðstoðar á meðferð-
arstofnun. Haft er eftir heimild-
armanni Qirque Lodge-meðferð-
arstofnunarinnar að Dunst hafi
verið lögð inn í vikunni til með-
ferðar eftir að hafa komið í ann-
arlegu ástandi. „Hún brotnaði
niður og leið mjög illa, en hún er
í góðum höndum núna.“ hþ
Kirsten Dunst
farin í meðferð
Söngkonan Fergie er lítið stress-
uð vegna fyrirhugaðs brúðkaups
síns og Josh Duhamels. Eins og
frægt er orðið trúlofaði parið sig í
desember síðastliðnum en Fergie
hefur harðlega neitað að ganga
strax í skipulagningu brúðkaups.
Vill hún heldur taka hlutunum
rólega svo að allt verði fullkomið.
„Ég hef ekki litið í eitt einasta
brúðarblað,“ segir söngkonan. hþ
Vill halda full-
komið brúðkaup
Vill leika Lísu
Leikkonan Lindsay Lohan er æst í
að taka að sér hlutverk Lísu í
Undralandi í samnefndri Disney-
kvikmynd undir stjórn leikstjór-
ans Tims Burtons, en stefnt er að
gerð kvikmyndarinnar á næstu
misserum. „Ég vona bara að þeir
vilji ekki einhverja óþekkta. Mig
langar virkilega í þetta hlutverk,“
sagði Lohan á dögunum. hþ
Mariah Carey hætti næstum við
hlutverk sitt í kvikmyndinni
Tennessee vegna þess eins að per-
sóna hennar þarf að vera ófríð.
Stjarnan harðneitaði að nota
gervinef og þykkar augabrúnir,
en með látunum setti hún allt á
annan endann hjá aðstandendum
kvikmyndarinnar. hþ
Gerir allt vitlaust
vegna gervinefs
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Litaðar konur eru ekki „inn“ núna í tískuheiminum. Það er einfald-
lega málið! Og það er sorglegt að fólk kunni ekki að meta svarta
fegurð. Í sumum tilvikum setja stærri stofurnar svartar konur algerlega
til hliðar og velja þær hvítu miklu frekar,“ sagði fyrirsætan.
Svarti liturinn virðist tróna á toppnum hjá stjörnunum vestanhafs
Sykursætar í svörtu
Ef marka má stjörnurnar vestanhafs virðist svarti liturinn
ráða ríkjum í tískuheiminum um þessar mundir. Við
hérna á Klakanum tökum uppsveiflu þess svarta auðvit-
að fegins hendi, enda ljóst að Vetur konungur hefur náð
hæstu hæðum og ekki vænlegt til vinnings að klæðast
skærum og æpandi sumarlitum á götum úti.
halldora@24stundir.is
Flott Fergie Söngkonan
Fergie var smart í partíi
tímaritsins People.
Sjúklega sæt Níþröng-
ar leðurbuxur Anglinu
Joli slógu í gegn á
frumsýnigu Beowulf.
Glæsileg Kate Moss
slær ekki vindhöggin í
klæðaburði og þykir yf-
irleitt með þeim flottustu.
Smart Ellen Pompeo
skartaði flottum kjól á sýn-
ingu Giorgio Armani þar
sem sá síðarnefndi lagði
línurnar fyrir sumarið 2008.
Með stílinn í lagi
Selma Blair þótti glæsi-
leg í kvöldverðarboði
Chanel á dögunum.
Öll í svörtu Dita Von
Teese mætti í stór-
glæsilegum kjól á
sýningu Christian Di-
or í París 21.janúar.
Flottar í svörtu Það vantaði ekki glæsileg-
heitin hjá þeim Keishu, Heidi og Amelle úr
Sugababes þegar þær mættu á NRJ tónlist-
arverðlaunin í Cannes nýverið.
Naomi Campbell heldur ótrauð
áfram baráttu sinni gegn kynþátta-
misrétti. Í viðtali við The London
Paper í vikunni lét hún í sér heyra
og talaði um mikilvægi þess að
sporna við kynþáttafordómum. Þá
benti hún á að fólk væri komið
með nóg af misréttinu og sagði að
fyrirsætur yrðu æfar þegar hönn-
uðir létu Naomi lönd og leið.
„Linda Evangelista og Christy Turl-
ington fara til hönnuða og segja við
þá að ef þeir vilji ekki fá Naomi á
sýninguna þá vilji þær ekki vera
með,“ sagði Naomi í viðtalinu.
Ástandið fer versnandi
Naomi, sem þekkt er fyrir
ástríðufulla baráttu sína gegn kyn-
þáttamisrétti, kunngerði einnig þá
skoðun sína að helstu hönnuðir
heimsins í dag væru orðnir mun
verri en áður þegar kæmi að vali á
fyrirsætum.
„Litaðar konur eru ekki „inn“
núna í tískuheiminum. Það er ein-
faldlega málið! Og það er sorglegt
að fólk kunni ekki að meta svarta
fegurð. Í sumum tilvikum setja
stærri stofurnar svartar konur al-
gerlega til hliðar og velja þær hvítu
miklu frekar,“ sagði fyrirsætan.
„Tískuheimurinn þarf að ná því
að verða eins og áður þegar frábær-
ir hönnuðir eins og Yves Saint
Laurent, Gianni Versace og Azzed-
ine Alaia voru með úrval fallegra
fyrirsætna á sínum snærum, bæði
svartar, hvítar, kínverskar og aðr-
ar.“ halldora@24stundir.is
Naomi Campbell er hvergi nærri hætt í baráttu sinni gegn kynþáttamisrétti
Gagnrýnir hönnuði harkalega
Berst fyrir sínu Naomi Campbell hefur fengið sig fullsadda á kynþáttamisrétti og
segir ástandið verra nú en áður.