24 stundir - 08.02.2008, Blaðsíða 48
24stundir
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.isTM Ánægja
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
/
T
M
I
41
00
0
02
/0
8
Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni
eru viðskiptavinir TM þeir ánægðustu
af viðskiptavinum tryggingafélaga.
„Ekkert röfl og ekkert vesen. Ef svo illa vildi til að ég yrði
fyrir tjóni aftur þá þyrfti ég greinilega engu að kvíða
með það. Takk fyrir mjög góða þjónustu.“
Bestu kveðjur,
Guðrún Jónsdóttir og Ludwig H. Gunnarsson
„…sem sagt
fljót og góð
þjónusta!“
Ummæli fólks sem lent hefur í tjóni segja
mest um þjónustu tryggingafélaga.
%
63
62
64
65
66
67
68
69
70
Ánægjuvog tryggingafélaga 2007
TM SJÓVÁ VÍS VÖRÐUR
? Það er óneitanlega sérkennilegt aðheyra á einum og sama degi fréttir afmilljarðahagnaði fjármálastofnana ogfrétt um að félagsmálaráðherra hafiákveðið að skipa nefnd til að vinna að-gerðaáætlun gegn fátækt. Það er sorglegtað einhverjir þurfi að búa við fátækt hérá landi á meðan hagnaður annarra virð-
ist meiri en nægur. En kannski er lausnin
einmitt falin í þessum fréttum. Getur
þetta tvennt ekki átt samleið?
Ef við skoðum nokkuð einfalda út-
reikninga þá sjáum við að það ætti að
vera auðvelt að aðstoða þá sem skil-
greinast fátækir hér á landi. Ríkissjóður
fékk 23,7 milljarða króna í fjármagns-
tekjuskatt árið 2006. Samkvæmt skýrslu
um fátækt barna sem unnin var fyrir Al-
þingi sama ár bjuggu 6,3% barna lands-
ins við fátækt. Árið 2006 voru Íslend-
ingar 307.261 talsins. Ef við gerum ráð
fyrir sama hlutfalli fátækra meðal full-
orðinna og barna, þ.e. 6,3%, lifa hér
19.357 manns undir fátæktarmörkum.
Meðalfjölskylda á Íslandi er samkvæmt
rannsókn á útgjöldum heimila 2,47 ein-
staklingar. Samkvæmt því má áætla að
7.837 fjölskyldur búi við fátækt. Ef við
látum 10% af fjármagnstekjuskatti renna
til fátækra fjölskyldna þá eru það 2,37
milljarðar króna. Deilum þeim jafnt til
7.837 fjölskyldna og hver þeirra fær
302.412 krónur, skattfrjálsar! Ef við kjós-
um að deila upphæðinni til einstaklinga
fengi hver þeirra 122.436 kr. Það er ekki
lítið fé þegar lágmarkslaun í landinu eru
samkvæmt upplýsingum frá Starfs-
greinasambandinu 125.000 krónur.
Tökum upp tíund á ný
Þóra Þórarinsdóttir
Styður skjótar lausnir
YFIR STRIKIÐ
Viljum við
útrýma
fátækt?
24 LÍFIÐ
Nemar telja að þeim hafi verið
mismunað þegar þeir voru rukk-
aðir um 50 krónur
fyrir að nota salerni.
Sár vegna rukkunar
fyrir afnot af salerni
»40
Alma í Nylon er að fara af stað
með sjálfstyrkingarnámskeið. Hún
hefur fengið til liðs við
sig heilsugúrúið Sollu.
Solla græna og Alma
í Nylon vinna saman
»46
Our Lives heldur til Kanada á
næstunni til að taka upp hjá upp-
tökustjóra sem vann
með Muse og Tool.
Íslensk hljómsveit
í fótspor Muse
»46
● Í fötin „Nú fer
ég að vinna með
föt í stað þess að
vinna með fólk,“
segir Svanur Val-
geirsson, starfs-
mannastjóri hjá
Bónus til 8 ára,
sem er að skipta
um starfsvettvang og taka við sem
rekstrarstjóri Debenhams. „Það er
alltaf verið að breyta og nú á að
leggja áherslu á svokallaða búð í
búð með því að taka inn ný merki
eins og t.d. Sand og Boss,“ segir
Svanur sem langaði til að breyta
um starfsvettvang. Hagar sem rek-
ur Debenhams eru með samning
um reksturinn til ársins 2015.
● Til Afganistans
Einnar konu her-
inn Herdís Sig-
urgrímsdóttir var
sem kunnugt er
kölluð heim frá
Írak í byrjun sept-
ember á síðasta ári
en hún gegndi þar
starfi upplýsingafulltrúa NATO á
vegum íslensku friðargæslunnar.
Hún er nú aftur á leið af landi
brott á vegum friðargæslunnar en
hún flýgur á þriðjudag áleiðis til
Afganistans.
Heimför Herdísar frá Írak vakti
mikla athygli vestanhafs, sér-
staklega eftir að spéfuglinn og
sjónvarpsgosinn Jason Jones
reyndi að fá hana þangað á ný.
● Flott karnival
„Það var búið að
segja okkur að
þetta væri næst-
flottasta karnival í
heimi á eftir Ríó-
karnivalinu og
þetta reyndist
ótrúlega flott,
mikil búninga- og skrautsýning,“
segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, sem eyddi sprengi-
degi á mikilli karnivalhátíð í Santa
Cruz, höfuðborg Tenerife, og við-
urkenndi að hann hefði aldrei séð
neitt jafnflott á ævi sinni. „Þarna
var fólk á öllum aldri, allt frá börn-
um upp í gamalmenni.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við