24 stundir - 23.02.2008, Blaðsíða 33
ATVINNA
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR
AUGLÝSINGASÍMI 510 3728 / 510 3726
Á ekki að þéna vel í sumar?
Norðurál á Grundartanga óskar að ráða metnaðarfullt og duglegt fólk af báðum kynjum í sumarafleysingar sem getur unnið
samfellt í a.m.k. tvo og hálfan mánuð. Unnið er 4-5 daga í senn, síðan er 4-5 daga frí. Lágmarksaldur er 18 ár.
Aðrar hæfniskröfur: Stundvísi • Heiðarleiki • Góð samskiptahæfni • Sjálfstæði í vinnubrögðum. Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 14. mars. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína
á netfangið umsokn@nordural.is eða póstlagt umsóknina merkta: Sumarstarf.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Gísladóttir og Helga Björg Hafþórsdóttir,
fulltrúar á starfsmannasviði, og Rakel Heiðmarsdóttir,
framkvæmdastjóri starfsmannasviðs,
í síma 430 1000.
Mánaðarlaun
miðað við 12 tíma vaktavinnu
:
Grunnlaun: 161.530
Vaktaálag: 60.768
Föst unnin næturvinna (26 k
lst/mán): 47.878
Ferðapeningar: 20.887
Alls: 291.062
Í boði eru fríar ferðir til og frá
Akranesi og víða af Vesturlandi og af höfuðborgarsvæðinu.
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Óska eftir starfsfólki í afgreiðslu
um helgar á Laugaveginum.
Stundvísi, reglusemi, áræðanleiki
og enskukunnátta skilyrði.
Upplýsingar í síma 822 9104.
Óskum eftir að ráða nú þegar eða eftir
nánara samkomulagi, sjúkraliða og aðs-
toðarfólk á Hlein, sem er sambýli fyrir fatlaða
við Reykjalund. Um er að ræða störf á
þrískiptum vöktum.
Upplýsingar gefnar í síma: 585 2000.
Jóna Helgadóttir aðstoðarforstöðumaður
Hleinar (hlein@reykjalundur.is) og
Lára M. Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri
(laras@reykjalundur.is).
Hlein er heimili fyrir fjölfatlaða einstaklinga,
þar sem markmiðið er fyrst og fremst að
hjálpa heimilismönnum að lifa eins eðlilegu
lífi og fötlun þeirra leyfir. Forstöðumaður
Hleinar er þroskaþjálfi.
Heimilisfólk í Hlein stundar iðju- og
sjúkraþjálfun eftir þörfum. Þau sem geta
sækja nám í þjálfunarskóla fatlaðra. Vin-
nuhæfing og hinn félagslegi þáttur skipa
stóran sess í markmiðum deildarinnar og er
öll umönnun heimilisfólks einstaklingshæfð
og þannig leitast við að uppfylla fyrrgreind
markmið.
Lausar stöður sjúkraliða
og aðstoðarfólks í Hlein
Það er náttúrlega ekki til fyrir-
myndar að slugsa í vinnunni en
ef þú ætlar að gera það á annað
borð skaltu vera viss um að gera
það almennilega. Fyrst af öllu er
mjög mikilvægt að koma sér upp
yfirveguðu og þungt þenkjandi
svip sem bendir til þess að maður
sé önnum kafinn við að komast til
botns í excel-skjalinu sem er opið
á tölvunni þinni. Ef þú ert í raun
að leita að einhverju til að kaupa á
eBay verður þú snögg/ur að skipta
aftur yfir á excel-skjalið sem þú
ert búinn að sjá til að sé opið þvert
yfir tölvuskjáinn. Sumir nota skjá-
hvílur sem gefa í skyn að þú sért
að hlaða niður nauðsynlegu forriti
eða búnaði á tölvuna þína. Ef ein-
hver spyr af hverju þú sért ekki að
gera neitt getur þú bent á tölvuna
og sagst vera að bíða eftir að hún
klári niðurhalið.
Jakkatrikkið er líka klassískt
en þá skilur þú ætíð jakka eftir á
stólnum þínum þannig að ef þú
hefur verið of lengi í burtu frá
skrifborðinu þínu lítur ekki út
fyrir að svo sé. Ef þú ert virkilega
í letikasti getur þú jafnvel skrifað
niður ýmiss konar upplýsingar á
minnisblöð og skrifað þau inn í
tölvuna þína öðru hverju. Ef þú ert
með MSN-spjallforritið á tölvunni
þinni skaltu passa að tölvan þín
gefi ekki frá sér hljóð í hvert skipti
sem einhver skráir sig inn á það
eða í hvert skipti sem þú færð tölvu-
póst. Loks skaltu hafa á bak við
eyrað að þú vilt ekki heldur líta út
fyrir að vera gríðarlega upptekin/n
og ekki segja neitt, það er nefnilega
það sama með þetta og lítil börn, ef
þau eru alveg hljóð eru þau að gera
eitthvað slæmt, ekki satt?
Jakkatrikkið klikkar ekki