24 stundir - 23.02.2008, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Febrúarsýning Íslenska dansflokks-
ins samanstendur af tveimur verk-
um eftir norræna danshöfunda, þá
Jo Strömgren frá Noregi og Alex-
ander Ekman frá Svíþjóð. Verkin
voru frumsýnd á Stóra sviði Borg-
arleikhússins í gær, en þetta er í
fyrsta skipti sem Íslenski dans-
flokkurinn sýnir verk eftir hinn
unga og upprennandi Alexander
Ekman. Verkið hans heitir „Station
Gray – Last Stop“ og fjallar um
ungt fólk sem bregður sér í gervi
gamalmenna. „Ég reyni eftir
fremsta megni að líkja eftir hreyf-
ingum eldra fólks í dansinum og til
þess að gera það hef ég að sjálf-
sögðu þurft að fylgjast með hreyf-
ingum þess og rannsaka að hvaða
leyti þær væru frábrugðnar hreyf-
ingum þeirra yngri. Upphaflega
ætlaði ég að láta persónur í verkinu
leika gamalt fólk en ég breytti því á
miðri leið og ákvað frekar að láta
þau vera ungt fólk sem klæðir sig
upp sem gamalmenni. Þannig
fjallar sýningin að hálfu leyti um
það að setja sig í ákveðin hlutverk,“
segir hann.
Stíft ferli
Alexander hefur verið staddur
hér á landi í fjórar vikur, sem hann
segir nokkuð knappan tíma fyrir
uppsetningar sem þessar. „Það er
því stíf æfingatörn að baki og þó
svo að ég hefði gjarnan viljað fá að-
eins meiri tíma til að undirbúa
verkið þá hefur þetta gengið vel.
Það sem hefur gert þetta erfitt er sú
staðreynd að ég þekkti hópinn ekk-
ert þegar ég kom hingað og vissi
þar af leiðandi ekki hverjir styrk-
leikar og veikleikar einstakra dans-
ara voru. En nú er ég farinn að sjá
það og ég held við séum nokkurn
veginn orðin tilbúin með verkið
þótt maður sé kannski aldrei alveg
hundrað prósent öruggur. Reyndar
held ég að ég hafi aldrei verið eins
ánægður með sýningu eftir mig
eins og þegar ég samdi mitt fyrsta
verk, en upp frá því hef ég verið
gagnrýnni á sjálfan mig. Ég held
líka að sjálfsgagnrýni sé nauðsynleg
til þess að maður geti þróast eitt-
hvað áfram og náð framförum,“
segir hann.
Dans fyrir alla
Verki Alexanders hefur verið lýst
sem léttu og húmorísku og hann
segir að vissulega sé eitthvað til í
því. „Ég er samt ekki að reyna sér-
staklega að koma áhorfendum til
að hlæja enda held ég að slíkar til-
raunir geti auðveldlega misheppn-
ast. En ég legg áherslu á að nútíma-
dans geti vel höfðað til allra, hvort
sem fólk hefur eitthvert sérstakt vit
á dansi eða ekki. Mér finnst oft eins
og nútímadans hafi þann stimpil á
sér að hann geti alls ekki verið við
almannasmekk, enda þurfi áhorf-
endur alltaf að skilja fullkomlega
hvað danshöfundar og dansarar
eru að túlka hverju sinni. Auðvitað
er maður alltaf að reyna að segja
einhverja sögu, en ef fólk sér eitt-
hvað annað út úr verkinu en höf-
undurinn sjálfur og hefur gaman af
þá er það bara í góðu lagi,“ segir
hann.
Eins og fyrr segir er þetta í fyrsta
sinn sem Alexander vinnur með Ís-
lenska dansflokknum og hann hef-
ur verið hér í fjórar vikur. Hann
flýgur svo af landi brott í dag þar
sem fleiri verkefni bíða. „Næst fer
ég til Gautaborgar að vinna með
danshópi að nýju verki en það
verður í fyrsta skipti sem verk eftir
mig verður sýnt í mínu heima-
landi. Frá því að ég byrjaði að
spreyta mig sem danshöfundur
fyrir þremur árum hef ég lifað al-
geru flökkulífi og komið víða við í
Evrópu. Það getur vissulega verið
erfitt, en maður kvartar ekki á
meðan maður hefur nóg af verk-
efnum,“ segir Alexander að lokum.
Dansverk eftir Alexander Ekman sýnt í Borgarleikhúsinu
Nútímadans fyrir alla
Ungt fólk bregður sér í
gervi gamalmenna í
dansverki Alexanders Ek-
mans, sem Íslenski dans-
flokkurinn sýnir á Stóra
sviði Borgarleikhússins.
Ungur og upprenn-
andi Hinn sænski Al-
exander Ekman.
➤ Sýningin á verkum Jo Ström-gren og Alexanders Ekman
ber heitið Dans-andi.
➤ Frumsýning var í gær og aðr-ar sýningar verða 24. febrúar
og 2., 7., 9. og 16.mars.
FEBRÚARSÝNINGIN
MENNING
menning@24stundir.is a
Ég er samt ekki að reyna sérstaklega að koma áhorf-
endum til að hlæja enda held ég að slíkar tilraunir geti
auðveldlega misheppnast.