24 stundir - 04.03.2008, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 24stundir
Cleveland Brown, hinn pollrólegi
nágranni Peter Griffin úr teikni-
myndaþáttunum Family Guy,
gæti komið fram í eigin þáttaröð
á næstunni. Seth MacFarlane,
skapari Family Guy, á nú í við-
ræðum við Fox-sjónvarpsstöðina
um framleiðslu þáttanna sem
hafa hlotið vinnuheitið Cleve-
land. Sigurganga Family Guy er
engu lík. Fox-sjónvarpsstöðin tók
þættina af dagskrá á meðan fram-
leiðsla þriðju þáttaraðar stóð yfir.
Vegna fjölda áskorana hófst
framleiðsla á ný árið 2005 og hafa
þættirnir halað inn einum millj-
arði dollara síðan. afb
Cleveland gæti
fengið eigin þátt
Hljómsveitin For a Minor Ref-
lection er nokkurra ára gömul og
meðlimir hennar eru allir á
nítjánda ári. Þrátt fyrir ungan ald-
ur er sveitin á fullu við að skipu-
leggja tónleikaferð til Bandaríkj-
anna og Kanada. Lagt verður af
stað frá Íslandi þann 15. mars og
spilað á 7 tónleikum á austur-
strönd Bandaríkjanna og 3 tón-
leikum í Kanada. Þar spilar sveitin
meðal annars á tónleikastað sem
fyrrum meðlimir Godspeed You
Black Emperor eiga í Montreal.
Guðfinnur Sveinsson gítarleik-
ari For a Minor Reflection hefur
orðið: „Þegar Airwaves-hátíðin var
yfirstaðin síðasta haust fóru er-
lendar hljómsveitir að setja sig í
samband við sveitina í gegn um
Myspace-ið okkar. Tvær þeirra
buðu okkur að koma út og spila
með sér, sveitirnar Northern Val-
entine frá Bandaríkjunum og Ho-
loscene frá Kanada.“
Aðspurður um hvort erlendu
vinaböndin séu væntanleg til Ís-
lands segir Guðfinnur að svo sé.
„Northern Valentine hafa staðfest
að von sé á þeim í júní. Þeir koma í
rúma viku og spila á tvennum tón-
leikum með okkur.“
Hljómsveitin fékk Loftbrúar-
styrk fyrir flugmiðum til Banda-
ríkjanna en þarf sjálf að sjá um
ferðakostnað til Kanada og ætlar
því að standa fyrir fjáröflunartón-
leikum þann 9. mars á NASA við
Austurvöll. Ásamt For a Minor
Reflection koma fram Ólafur Arn-
alds, Shadow Parade og Hraun.
Miðar eru seldir á midi.is og við
innganginn á NASA. Miðaverð er
1.000 krónur.
Húsið opnar klukkan 20:00 og
tónleikar hefjast klukkustund síð-
ar. Nánar um hljómsveitina og
tónleikana er að finna á mys-
pace.com/foraminorreflection.
heida@24stundir.is
For a Minor Reflection í landvinningum
Tíu tónleikar í Kanada og Ameríku
For a Minor Reflection
Airwaves, Myspace og
Loftbrú hjálpa til.
Tónlistarmaðurinn Neil Young
spilar á Hróarskeldu í sumar. Sjö
ár eru liðin síðan hann steig þar
síðast á svið og þeir tónleikar lifa
í minningu heppinna gesta hátíð-
arinnar það árið. Neil bætist við
frítt föruneyti fjölbreyttra rokk-
ara og lengist listinn með hverj-
um deginum. Þegar er búið að til-
kynna sveitirnar Radiohead,
Chemical Brothers, Slayer, Band
of Horses, My Bloody Valentine,
The Notwist, The Streets og Teit.
Miða á hátíðina er hægt að fá á
www.midi.is. Hróarskelda fer
fram dagana 3.-6. júlí og hefst
upphitun 29. júní. re
Neil Young á
Hróarskeldu
Heidi Montag, ein af stjörnum
raunveruleikaþáttarins The Hills,
hefur gefið út lag sem virðist vera
dúett hennar og Britney Spears.
Þær stöllur syngja saman í lagi
sem var spilað í útvarpsþætti
Ryan Seacrest í gær en ekki er allt
sem sýnist. Britney gaf aldrei leyfi
fyrir notkun hennar flutnings í
laginu, sem ku vera gamalt lag
sem Britney tók upp en notaði
ekki á eina af breiðskífum sínum.
Upptökustjórinn sem tók upp
lagið lét Heidi fá það og hún
ákvað að halda söng Britneyjar í
laginu og syngja sjálf með. Þann-
ig varð til dúett sem enginn bjóst
við að heyra.
Heidi stelur
söng Britney
Tvífarar vikunnar að þessu sinni
eru annars vegar Markús Örn Ant-
onsson, fyrrum borgarstjóri, út-
varpsstjóri og sendiherra, og nú-
verandi framkvæmdastjóri
Þjóðmenningarhússins, og hins-
vegar Christian Clemenson leikari
sem er þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem hinn sérlundaði Jerry
Espenson í framhaldsþáttamynda-
flokknum Boston Legal sem sýnd-
ur er við miklar vinsældir á Skjá-
Einum. Það má með sanni segja að
svipur sé með þeim félögum.
Tvífarar vikunnar
Leikarinn Christian brosir blítt fyrir
myndavélina.
Framkvæmdastjórinn Markús Örn
brosir í kampinn.
Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur
heida@24stundir.is
Tónlistarbransinn er skrýtin
skepna. Ferlið frá upptöku og þar
til lag hljómar í útvarpi er langt og
strembið. Síðustu ár hafa upp-
tökur færst úr risahljóðverum sem
líta út eins og geimstöð yfir í ferða-
tölvur sem tónlistarmenn geta
jafnvel sjálfir tekið upp á. Græj-
urnar verða ódýrari og aðgengi-
legri en jafnframt gerð krafa um að
allir séu með eins gott sánd og
hægt er.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Bjarni telur að verið sé að ofnota
tæknina í hljóðvinnslu dagsins í
dag. „Upp á síðkastið hefur allt átt
að vera svo hátt. Útkoman er þá
þannig að hljóðið verður eins og
múrsteinn og engin dýnamík er
eftir. Þá reynist ómögulegt að
hlusta í heyrnartólum því þetta
þreytir eyrun miklu meira.“
Nýleg grein í vefritinu Word-
magazine kemur inn á að tónlist sé
að verða hærri og hærri og hljóm-
urinn verri og allt vegna sam-
keppni milli plötufyrirtækja í út-
varpi. „Ég tók nú þátt í þessu
hávaðastríði fyrir nokkrum árum,“
segir Þorvaldur „en hef í seinni tíð
viljandi verið að fara mun var-
legar.“
Valgeir Sigurðsson upp-
tökustjóri viðurkennir að ný tækni
hafi heilmikil áhrif á tónlist í dag.
„Það er orðið svo auðvelt fyrir
hvern sem er að nýta tæknina. Ef
til vill er frekar tilhneiging í þessa
átt í útvarpsvænni popptónlist en
menn eru þá bara farnir að gera
útvarpsútgáfur af lögum sínum.
Valgeir segir alveg til í dæminu að
fólk fari þá leið að taka upp hlið-
rænt (analog) en ekki stafrænt
(digital), til að ná réttum hljómi.
„Það er erfiðara að taka upp þann-
ig, tímafrekara, kostar meira og
mun færri sem hafa vald á því en
oft er það þess virði. Þegar við
gerðum Sprengjuhallar-plötuna
tókum við grunnana upp á teip og
færðum þannig inn í tölvu. Það
skilaði sér alveg.“
Nýjasta tækni í upptökum hefur áhrif á tónlist í dag
Hljómur verður
hærri og verri
Þorvaldur Bjarni
Telur að fara verði
varlega með tæknina
➤ Þörf er á að endurhljóð-blanda Californication með
Red Hot Chili Peppers, því
hún er of há og ódýnamísk.
➤ Hæsta rokkplata sögunnar erendurhljóðblöndun Raw Po-
wer með Iggy Pop.
HÁVÆRAR PLÖTUR
Upptökutækni dagsins í
dag verður æ aðgengi-
legri en skilar sér ekki
endilega í betri hljóm.
Fyrir kemur að fólk
keppist við að ná miklum
hávaða á kostnað gæða.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Upp á síðkastið hefur allt átt að vera svo hátt.
Útkoman er þá þannig að hljóðið verður eins
og múrsteinn og engin dýnamík er eftir.
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur
Opið mán-lau kl. 11-17
Sendum frítt um land allt
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
ULL OG SILKI
Full búð af nýjum vörum
Hitavermar, Angora, Silki, Merino.
Einnig mikið úrval af
brjóstagjafarfatnaði.