24 stundir - 11.03.2008, Side 2
Skrifstofa Alþingis hefur auglýst eftir lögfræðingi,
sérfræðingi í ríkisfjármálum og rekstri og stjórn-
málafræðingi til að aðstoða þingmenn úr stjórn-
arandstöðuflokkum við yfirferð og vinnslu þing-
mála í fastanefndum. „Allar nefndirnar hafa ritara
en hann er eðli málsins samkvæmt mest bundinn
við meirihluta nefndarinnar og formann og aðstoð-
ar hann við frágang á nefndaráliti og fleira. Þess
vegna hafa komið fram óskir um að í stærri málum
hafi minnihlutinn sérstakan ritara og aðstoðar-
mann,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al-
þingis.
Helgi tekur það fram að þingmenn minnihlutans
hafi auðvitað fengið alla aðra almenna þjónustu eins
og stjórnarþingmenn. ,,Auk þess höfum við látið
minnihlutann fá sérstakan starfsmann við frágang á
stórum málum. Þessa þjónustu ætlum við að auka til
þess að stjórnarandstaðan geti oftar fengið aðstoð
við frágang á breytingartillögum, nefndarálitum og
við gagnaöflun og ýmislegt annað.“
Í auglýsingunni segir að til greina geti komið að
ráða tvo lögfræðinga. ingibjorg@24stundir.is
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir sérfræðingum fyrir stjórnarandstöðu
Aukaaðstoð við minnihluta
24 stundir/Ómar
Á Alþingi Þjónusta við stjórnarandstöðu verður aukin.
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
Ferðaskrifstofa
Salan á flugsætum til Alicante fer af stað með látum!
Flogiðalltárið
VÍÐA UM HEIM
Algarve 18
Amsterdam 7
Alicante 17
Barcelona 13
Berlín 12
Las Palmas 19
Dublin 5
Frankfurt 8
Glasgow 4
Brussel 7
Hamborg 11
Helsinki 7
Kaupmannahöfn 7
London 7
Madrid 11
Mílanó 10
Montreal -6
Lúxemborg 5
New York -7
Nuuk -11
Orlando 7
Osló 4
Genf 12
París 9
Mallorca 15
Stokkhólmur 6
Þórshöfn 7
Gengur í norðaustan 5-10 m/s í dag með
snjókomu eða slyddu um landið austanvert,
en rigningu við austurströndina. Áfram stöku
él norðvestantil, en bjart að mestu suðvest-
anlands. Hiti um og undir frostmarki.
VEÐRIÐ Í DAG
1
-1
-1
1 -2
Bjart suðvestanlands
Norðlæg átt, víða 5-13 m/s og él, en bjartviðri
að mestu sunnanlands.
Frost víða 0 til 5 stig, en um frostmark við
ströndina.
VEÐRIÐ Á MORGUN
1
0
0
-1 0
Frost 0 til 5 stig
Tvö skotvopn ásamt öðrum
vopnum og fíkniefnum fundust
við tvær húsleitir í gær. Rannsókn-
ardeild lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu framkvæmdi leitirnar
ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra
og hundadeild lögreglunnar. Að
sögn Ómars Smára Ármannssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns voru
fjórir menn handteknir og lögregl-
an leitar fimmta mannsins í
tengslum við málið. Allir hafa þeir
komið við sögu lögreglu áður. Ekki
fékkst uppgefið hversu mikið magn
fíkniefna var gert upptækt né af
hvaða tagi. Ómar Smári segir málið
í rannsókn en vonast eftir tíðind-
um af því í dag.
Skotvopnunum sem fundust var
stolið úr heimahúsi í Hafnarfirði
síðasta föstudag. fr
Lögreglan gerði tvær húsleitir í gær
Fundu stolin vopn
og fíkniefni
Umferðardeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu mun á næstu
vikum verða með sérstakt umferð-
ar- og hraðaeftirlit í og við íbúða-
götur í umdæminu í samvinnu við
svæðisstöðvar embættisins. Til eft-
irlitsins verður notuð ómerkt lög-
reglubifreið sem búin er mynda-
vélabúnaði, segir í tilkynningu
lögreglu.
Þykir reynslan hafa sýnt að notkun
slíks búnaðar gefi gagnlegar upp-
lýsingar um ástand umferðarmála
og auðveldi leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.
Mælingar verða gerðar eftir ábendingum frá starfsmönnum svæð-
isstöðva. Sérstök áhersla verður lögð á hverfi í námunda við skóla á
grunn- og leikskólastigi. Segir lögregla markmið átaksins vera að ná
umferðarhraða niður þar sem þess er helst þörf og telur að það sé best
gert með upplýstri umræðu. aij
Lögreglan liggur í leyni
Kjarasamningar Starfsgreina-
sambandsins og Flóabandalags-
ins við Samtök atvinnulífsins
voru samþykktir með afgerandi
hætti í öllum félögunum. Taln-
ingu atkvæða lauk í gær. Samn-
ingar voru undirritaðir 17. febr-
úar síðastliðinn, en voru bornir
undir atkvæði í síðustu viku.
Samningar
samþykktir
Fimm karlmenn voru handteknir
í Reykjavík á sunnudag, grunaðir
um að hafa nauðgað stúlku í húsi
í vesturbæ Reykjavíkur nóttina
áður. Grunur leikur á að stúlk-
unni hafi verið byrluð ólyfjan, en
tildrög atburðarins liggja ekki
ljós fyrir.
Krafist var gæsluvarðhalds yfir
mönnunum, og voru nokkrir
þeirra úrskurðaðir í varðhald í
gær. Þetta kom fram í kvöld-
fréttum RÚV í gær. mbl.is
Fimm grunaðir um nauðgun
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Sjónvarpsstöðin
N4 á Akureyri
mun hefja út-
sendingar á
norðlenskum
fréttum og öðru
fréttatengdu efni af Norðurlandi á
landsvísu á morgun, miðvikudag.
Fram að þessu hefur stöðin einungis
sent út á Akureyri.
N4 mun senda út efni sitt í gegn-
um dreifikerfi Digital Ísland, en
stöðinni hefur verið úthlutað rás 15
undir útsendingar sínar.
Fréttatími alla virka daga
Stöðin mun bjóða upp á norð-
lenskan fréttatíma frá mánudegi til
föstudags, en að honum loknum verð-
ur á dagskrá dægurmálaþáttur með
unnum innslögum víðsvegar af Norð-
urlandi frá mánudegi til fimmtudags.
Að loknum fréttum á föstudögum
verður sendur út umræðuþáttur þar
sem tekist verður á um hitamál
fjórðungsins hverju sinni. Þá verður
einnig boðið upp á tónlist, menn-
ingu og annað sem tengist norð-
lensku mannlífi í þættinum. Um
helgar verður boðið upp á samantekt
um fréttamál liðinnar viku.
Tímamót í íslensku sjónvarpi
„Þetta eru auðvitað tímamót í
sögu sjónvarps á Íslandi, því aldrei
áður hefur sjónvarpsstöð á lands-
byggðinni sent út um allt land,“ segir
Þorvaldur Jónsson, framkvæmda-
stjóri N4.
Hann segir mikla eftirspurn eftir
norðlenskum fréttum á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það er óhemjustór hóp-
ur fólks sem býr á höfuðborgarsvæð-
inu sem hefur tengsl norður vegna
fjölskyldutengsla eða uppruna.“
Þorvaldur segir landsbyggðinni
illa sinnt af stærri fjölmiðlum lands-
ins. „Stór hópur fólks hefur virkilega
áhuga á að vita hvað er að gerast á
þessu svæði, því í dag er landsbyggð-
inni tiltölulega illa sinnt í landsmiðl-
unum. Þar miðast fréttaflutningur
við það sem er að gerast í höfuð-
borginni eða úti í hinum stóra
heimi. Fólk hefur mjög sterkar rætur
til upprunans og það fólk viljum við
þjónusta betur en áður hefur
þekkst.“
Norðlenskt sjón-
varp á landsvísu
Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 hefur útsendingar á landsvísu
Eftirspurn eftir fréttum að norðan, segir framkvæmdastjórinn
Stoltur framkvæmdastjóri Þorvaldur Jónsson,
framkvæmdastjóri N4, er fullviss um að norðlenskar
fréttir eigi fullt erindi á landsvísu.
➤ Sjónvarp Norðurlands, N4,hóf útsendingar sínar 1. maí
2006.
➤ Fyrirtækið varð til eftir aðfjögur fjölmiðlafyrirtæki á
Akureyri sameinuðust.
➤ Hjá fyrirtækinu starfa nú ell-efu manns í fullu starfi, þar af
eru tveir fréttamenn.
SJÓNVARP NORÐURLANDS
AKUREYRI
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Drengurinn sem veiktist alvar-
lega á fimleikaæfingu hjá
Gerplu í síðustu
viku, lést á
sjúkrahúsi á
sunnudagskvöld.
Drengurinn hét
Jakob Örn Sig-
urðarson, fædd-
ur 21. júní 1997.
Jakob Örn bjó í
Dynsölum 10 í Kópavogi.
Minningarstund í umsjá séra
Guðmundar Karls Brynj-
arssonar verður í Digra-
neskirkju í kvöld . Athöfnin
hefst klukkan 20.
Lést eftir heila-
blæðingu