24 stundir - 11.03.2008, Page 20

24 stundir - 11.03.2008, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Í síðustu viku auglýsti vélasvið Heklu svokallaða samningadaga þar sem hægt var að semja við sölumenn um verð á vinnuvélum. Ásmundur Jónsson, fram- kvæmdastjóri vélasviðs Heklu, segir ástæðuna vera þá að al- mennt sé mikið til af notuðum vélum hjá öllum umboðum. „Menn eru að leita leiða til að koma þeim í umferð þar sem engum tilgangi þjónar að safna þeim á bak við hús. Eins og þekkt er í notuðum bílum og öðru slíku taka menn sig til annað slagið og eru með sérátak í gangi. Við ákváðum að fara þessa leið- ina líka,“ segir Ásmundur og bætir við að hann búist við að átakið standi eitthvað lengur, þó að formlega hafi því lokið síðasta laugardag. „Sölumenn okkar hafa verulegt svigrúm til að semja um verð og í einstaka tilfellum er hægt að gera mjög góð kaup.“ Innflutningur margfaldast Að sögn Ásmundar hefur þró- unin undanfarin ár verið sú að menn endurnýja vinnuvélar og tæki örar en áður. „Fyrir um tíu árum var mjög algengt að verk- takar miðuðu við að eiga vinnu- vélar í að minnsta kosti tíu ár og jafnvel meira en það, allt eftir gerðum véla. Í dag er annar veru- leiki. Núna er meira um að menn geri fjármögnunarsamninga um tækin til þriggja til fimm ára, þannig að endurnýjunin verður miklu öruggari. Öll umboð eru því að fá inn mikið af notuðum tækjum, tæki sem var kannski verið að selja á árunum 2003- 2004. Þess utan hefur innflutn- ingur á tækjum til landsins marg- faldast á undanförnum árum frá því sem var. Áður þótti þokkalegt ef fluttar voru inn um 150 hefð- bundnar vinnuvélar en á síðasta ári voru 760 slíkar vélar fluttar inn. Það er alveg eins með vinnu- vélar og fólksbíla, þróunin er hröð og það er alltaf að koma eitthvað nýtt á markaðinn. Enda má sjá það á vélunum sjálfum, þær eru ekki lengur einhverjir stálkumbaldar. Þær eru orðnar mjög tæknilega flóknar. Aukinn innflutningur vinnuvéla tengist líka árferðinu hér en það er búið að vera gríðarlega mikið af stórum og miklum verkefnum í gangi.“ Aðspurður hvernig sala á vinnuvélum hafi gengið und- anfarin ár segir Ásmundur að sal- an sé mjög góð á ársgrundvelli. „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur undanfarin ár. Það er nátt- úrlega aðeins rólegra rétt í augna- blikinu, eins og hjá öllum öðrum. Það þarf ekki að koma neinum á óvart þar sem það er erfiðara að fá fjármagn en oft áður. Aftur á móti erum við mjög bjartsýnir, það er mikið framundan.“ Mikið framboð af notuðum vinnuvélum Vinnuvélar endurnýj- aðar örar en áður ➤ Hekla flytur inn og selurCaterpillar-vinnuvélar og Scania-vörubíla. ➤ Af notuðum vélum selja þeirallar tegundir. ➤ Scania er með rúmlega 30prósenta markaðshlutdeild. ➤ Caterpillar er eitt af stærstuvörumerkjunum í vinnuvélum á Íslandi. VÉLASVIÐ HEKLUÞað er mikið framboð af notuðum vinnuvélum á markaðnum í dag enda endurnýja menn vélarnar mun örar en áður. Auk þess hefur innflutningur vinnuvéla margfaldast á undanförnum árum. Notaðar vinnuvélar Í fyrra voru 760 hefðbundnar vinnuvélar fluttar til landsins. Innflutningur á nýjum vinnu- vélum og vörubílum hefur marg- faldast á undanförnum árum. Þeg- ar litið er á opinberar tölur um innflutning vörubíla í flokki 2, sem eru hefðbundnir, stórir vöru- og flutningabílar, má sjá að árið 2001 var heildarinnflutningur vörubíla 103. Innflutningurinn hefur aukist jafnt og þétt og í fyrra, árið 2007, voru fluttir inn 264 vörubílar. Eiga þessar tölur einungis við um nýja bíla en auk þess er einnig fluttur inn umtalsverður fjöldi notaðra bíla í þessum flokki ökutækja, sem og annarra. Hins vegar hefur inn- flutningur á notuðum vinnuvélum dregist allnokkuð saman á und- anförnum árum, samfara aukn- ingu í innflutningi á nýjum vélum. Þrátt fyrir að þetta sé veruleg aukning jókst innflutningur á vinnuvélum enn meira. Árið 2001 voru fluttar inn 115 hefðbundnar vinnuvélar en undir hefðbundnar vinnuvélar flokkast beltagröfur, hjólagröfur, vegheflar, valtarar, traktorsgröfur og svo framvegis. Árið 2007 voru fluttar inn 742 vinnuvélar og má því glöggt sjá hve gríðarleg aukning það er. Frá árinu 2001-2007 hefur innflutningur vinnuvéla og vörubíla aukist jafnt og þétt, ef undan er skilið árið 2002 en þá minnkaði innflutn- ingur verulega frá árinu áður. Það hefur þó ekki áhrif á innflutning árið 2003 og var hann töluvert meiri en árið 2001. svanhvit@24stundir.is Innflutningur vörubíla og vinnuvéla hefur margfaldast Tæplega 700 innfluttar vinnuvélar Vinnuvél Innflutningur vinnuvéla hefur margfaldast frá árinu 2001 24stundir/Helgi Bjarnason UPPLÝSINGAR O is ing Mjódd Staðsetning í Mjódd www.ovs.is upplýsingar og innritun í síma 588-1414 Vinnuvélanámskeið Næsta námskeið hefst 7. mars n.k. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Bílkranar Lyftigeta 2,5 - 85 tm Eigum til á lager PM 3522 LC - 3,5 tm. Mesta lyftigeta: 1100 kg Eigin þyngd: 475 kg Væntanlegur PM 22026 - 22 tm. Mesta lyftigeta: 9000 kg Eigin þyngd: 2825 kg Væntanlegur fljótlega Með spil og glussaslönguhjól GÁLGI 12° yfirhalli JIB 20° yfirhalli

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.